Morgunblaðið - 16.10.2020, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2020
Pantið tíma í einkaskoðun
í síma 898-9396
eða á hakon@valfell.is
Kirkjubraut 2, 300 Akranesi | Sími 570 4824
hakon@valfell.is | valfell.is
STILLHOLT 21 - AKRANESI
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar
og seljast fullbúnar án gólfefna nema
forstofa, þvottahús og baðherbergi
flísalagt. Öllum íbúðum fylgir kæliskápur
og uppþvottavél í eldhúsinnréttingu.
Sýningaríbúð á 1. hæð.
Aðeins
örfáar íbúðir
eftir
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Mörg ferðaþjónustufyrirtæki eru lok-
uð og sjá ekki fram á að fá neinar
tekjur sem skipta máli í vetur, vegna
lokunar landsins vegna kórónuveir-
unnar. Það bætist við erfitt sumar.
Baráttan stendur um að halda fyrir-
tækjunum starfhæfum í vetur þannig
að þau geti tekið við bókunum og
þjónað ferðafólki sem vonast er til að
byrji að skila sér aftur til landsins á
vori komanda.
„Við vonumst til að geta opnað í
vor, það er engin önnur leið. Út á það
gengur baráttan þessa mánuðina, að
tryggja að innviðirnir verði til staðar
svo við getum spyrnt okkur hressi-
lega frá botninum sem við erum nú
á,“ segir Kristófer Oliversson, for-
maður Félags fyrirtækja í hótel-
rekstri og gistiþjónustu og fram-
kvæmdastjóri Center hótels.
Ýmislegt þarf að gera til þess að
fyrirtækin verði rekstrarhæf í vor.
Jóhannes Þór Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónust-
unnar, segir að gera verði breytingar
á lokun landsins. Sölutímabilið fyrir
næsta ár sé hafið og verðmætasköp-
unin grundvallist á því að fyrirsjáan-
leiki verði í því hvaða reglur muni
gilda þegar ferðamenn fari að koma.
Nefnir hann að breyta þurfi reglun-
um frá og með áramótum, í síðasta
lagi, og tilkynna sem fyrst hverjar
þær verði.
Jóhannes hefur áhyggjur af því að
fyrirtækin sligist undan skuldum og
bankarnir þurfi að innkalla veð sín.
„Það er ómöguleg staða ef stór hluti
af mikilvægum rekstrareignum
ferðaþjónustunnar verður ekki til
staðar þegar við þurfum á þeim að
halda til viðspyrnu. Það er engin ein
einföld aðgerð sem hægt er að kalla
eftir frá ríkinu, fleiri þurfa að koma
þar að,“ segir Jóhannes.
Lækkun vaxta á hóteleignir
Þrjú meginmál hótelgeirans eru,
að sögn Kristófers, lækkun vaxta á
hótelfasteignir, frestun fasteigna-
gjalda á lágum vöxtum og stuðningur
til að geta viðhaldið þekkingunni með
lágmarksfjölda starfsfólks. Bendir
hann á að hótelbyggingar séu fjár-
magnsþungar eignir. Ekki gangi til
lengdar að fresta greiðslum.
„Menn vona að vaxtalækkanir
Seðlabankans skili sér til hótelanna,“
segir hann.
Ríkið hefur tilkynnt um beina
rekstrarstyrki til fyrirtækja sem orð-
ið hafa fyrir miklum tekjusamdrætti
og eru ætlaðir sex milljarðar til þess.
Jóhannes Þór og Kristófer segja að
þessir styrkir séu mikilvægir og
hjálpi stjórnendum fyrirtækja til að
halda þekkingu í fyrirtækjunum og
greiða fastan kostnað. „Mikilvægt er
að halda hjartanu í fyrirtækinu gang-
andi þangað til einhver viðskipti
verða og þá verðum við tilbúin með
þá öflugu gjaldeyrismaskínu, sem
ferðaþjónustan er. Ef kennitalan er
ekki til og þeir sem vilja bóka ná ekki
sambandi við hótelið verður lítil við-
spyrna í vor,“ segir Kristófer.
Verði starfhæf þegar
ferðamenn koma aftur
Óttast að fyrirtækin sligist og endi í fanginu á bönkunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Komufarþegar Ferðaþjónustan bíður eftir opnun landamæra til að geta bókað gistingu og þjónustu á næsta ári.
Jóhannes Þór
Skúlason
Kristófer
Oliversson
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Hámark hefur verið sett á fjölda
gesta sem mega fara daglega í ís-
hellaferðir og jöklagöngur á fimm
svæðum á sunnanverðum Vatnajök-
ulsþjóðgarði. Þjóðgarðurinn aug-
lýsti eftir umsóknum um ferðirnar
þar sem tilgreindur var hámarks-
fjöldi gesta á hverju svæði og bárust
umsóknir frá 27 fyrirtækjum sem
sérhæfa sig í slíkum ferðum.
Er afgreiðslu þeirra nú lokið og
liggur úthlutun fyrir. Þar er fyrir-
tækjum úthlutað kvótum fyrir fjölda
ferðamanna á hverju svæði.
Þetta er í fyrsta skipti hér á landi
sem aðgangi að auðlind á borð við
jökla er stýrt með þessum hætti að
sögn Magnúsar Guðmundssonar,
framkvæmdastjóra Vatnajökuls-
þjóðgarðs. Er markmiðið að létta
álag ferðamanna á þessum stöðum
og því þurfti að takmarka fjölda
þeirra gesta sem farið er með í ferðir
á svæðin. Hafa stundum verið allt of
margir ferðamenn á sumum þessara
svæða og lítil sem engin stýring á
fjölda ferðamanna, að sögn hans.
Um þessar mundir er unnið að
frágangi samninga við fyrirtækin
sem fengu úthlutað. „Þetta fer vel af
stað. Ég held að flestir séu sáttir við
að þessi vinna sé komin í gang,“ seg-
ir Magnús.
Um er að ræða íshellaferðir og
jöklagöngur á fimm svæði á Breiða-
merkurjökli, Falljökli/Virkisjökli,
Skeiðarárjökli og Skálafellsjökli.
Hámarksfjöldi á Breiðamerkurjökli
austur er 650 manns á dag og sami
fjöldi á vestursvæði jökulsins. Heim-
ilt er að fara með 1.000 gesti á dag á
Falljökul/Virkisjökul, 500 á Skeiðar-
árjökul og 500 á Skálafellsjökul.
Fram kemur í umfjöllun á vefsíðu
þjóðgarðsins að umsóknir um fjölda
gesta á þremur svæðum voru sam-
anlagt umfram hámarksfjölda sem
tilgreindur var í auglýsingu. Af þeim
sökum þurfti að skerða úthlutun á
fjölda gesta hlutfallslega miðað við
umsóknir fyrirtækjanna.
Ferðir á Breiðamerkurjökul virð-
ast vera vinsælastar. 22 fyrirtæki
sóttu um ferðir á Breiðamerkurjökul
austur fyrir 1.564 gesti á dag, en
auglýst viðmið um hámarksfjölda er
eins og fyrr segir 650 gestir á dag.
Niðurskurður þar var allt að 81%.
20 sóttu um ferðir á Breiðamerk-
urjökul vestur fyrir 1.481 gest og
þurfti að skera niður fjöldann um
allt að 80%. Umsóknir um ferðir á
Falljökul/Virkisjökul voru einnig yf-
ir hámarksþakinu eða fyrir 1.273
gesti en sótt var um ferðir með færri
gesti á Skeiðarárjökul og Skálafells-
jökul en hámarkið segir til um.
Þetta er þróunarverkefni sem er
mjög flókið en um leið spennandi og
snertir marga þætti á borð við ör-
yggi ferðamanna og hvernig til tekst
að stýra álaginu á þessar auðlindir
að sögn Magnúsar. Áhersla verði
lögð á að læra af reynslunni og bæta
ef þörf krefur þetta fyrirkomulag
vegna atvinnutengdrar starfsemi í
þjóðgarðinum í framtíðinni.
Ljósmynd/Einar R. Sigurðsson
Íshellir í Vatnajökli Alls sóttu 27 fyrirtæki um gerð samninga um íshella-
ferðir og jöklagöngur á fimm svæðum á suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.
Úthluta kvótum í
jökla- og íshellaferðum
Alls greindist 81 nýtt kórónuveiru-
smit innanlands í fyrradag. Þar af
voru 80% í sóttkví eða 65 ein-
staklingar en 16 voru fyrir utan. Ný-
gengi smita hefur aldrei verið jafn
hátt á hverja 100 þúsund íbúa eða
281,2 síðustu tvær vikur. 26 eru á
sjúkrahúsi og af þeim eru þrír á
gjörgæsludeild Landspítalans.
Átján biðu í gær niðurstöðu mót-
efnamælingar eftir að hafa greinst
með veiruna við landamæraskimun.
Alls var tekið 2.181 sýni hjá Land-
spítala og Íslenskri erfðagreiningu í
fyrradag. Landamæraskimanirnar
voru 570 talsins.
Nú eru 1.170 í einangrun á land-
inu öllu og hefur fjölgað um 38 á
milli daga. Í sóttkví eru 3.035 og
1.609 eru í skimunarsóttkví.
Á höfuðborgarsvæðinu eru 1.015 í
einangrun og 2.391 í sóttkví. Smit
eru í öllum landshlutum fyrir utan
Austurland en þar eru sex í sóttkví.
Kórónuveirusmit á Íslandi
Staðfest smit frá 30. júní
3.837 staðfest smit
Heimild: covid.is
Nýgengi innanlands 14. október:
281,2 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
26 einstaklingar eru á sjúkrahúsi, þar af 3 á gjörgæslu
81 nýtt inn an lands smit greindist 14. október
318.797 sýni hafa verið tekin
Þar af í landamæraskimun
159.763
sýni, samtals í skimun 1 og 2
1.609 eru í skimunar-sóttkví
100
80
60
40
20
0
99
75
16
3.035 einstaklingar eru í sóttkví
1.170 eru með virkt smit og í einangrun
júlí ágúst september október
Fjöldi smita
innanlands
Fjöldi smita á
landamærum
80% voru utan sóttkvíar