Morgunblaðið - 16.10.2020, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Talan 39 áappelsínu-gulum
grunni á flennistór-
um auglýsinga-
skiltum hefur blas-
að við fólki á
ferðinni undan-
farna daga. Í gær
var merking tölunnar afhjúpuð
þegar hún birtist á forsíðu tíma-
rits Geðhjálpar. „Talan stendur
fyrir þá íbúa Íslands sem féllu
fyrir eigin hendi á árinu 2019,“
segir í grein eftir Héðin Unn-
steinsson, formann Geðhjálpar,
og Kristínu Ólafsdóttur, fram-
kvæmdastjóra samtakanna
Píeta, í Morgunblaðinu í gær.
Höfundar eru á því að nú sé
þung undiralda í samfélaginu.
„Við vitum að það verða fleiri
sem taka líf sitt á þessu ári,“
skrifa þau. „Píeta-samtökin
sinna yfir 300 viðtölum á viku
við fólk sem glímir við sjálfs-
vígshugsanir og hringt er í
hjálparsíma Rauða krossins og
Píeta-símann á öllum tímum
sólarhringsins. Við vitum að
sjálfsvíg er dánarorsök 45%
þeirra karlmanna sem látast
fyrir fertugt.“
Stíga þarf varlega til jarðar
þegar rætt er um sjálfsvíg og
gæta þess að umræðan verði
ekki til að ýta undir vandann,
heldur leiði til úrbóta. Vandinn
er hins vegar það djúpstæður
að lítið mun þokast með þögn-
inni.
„Við höfum í gegnum árin
veigrað okkur við að ræða þessa
tölu, þennan mælikvarða á geð-
heilsu okkar, opinberlega,“
skrifa þau og segja ástæðuna
fyrir því að opinbera hana nú
tvíþætta. „Annars vegar viljum
við ræða sjálfsvíg og þann
skyndilega missi, sársauka og
sorg sem aðstandendur verða
fyrir og hins vegar viljum við
ræða þá ástæðu sem býr að baki
og orsakaþætti geðheilbrigðis.“
Í Geðhjálparblaðinu er grein
eftir Grím Atlason, fram-
kvæmdastjóra samtakanna, þar
sem hann tekur saman ýmsar
upplýsingar, sem komið hafa
fram áður, en eru sláandi þegar
þær eru saman komnar á einum
stað.
Á undanförnum átta árum
hefur fjöldi grunnskólanem-
enda sem telja andlega heilsu
sína sæmilega, slæma eða mjög
slæma rúmlega tvöfaldast, farið
úr 16% í 35%. Að sama skapi
hefur hlutfall þeirra sem telja
andlega heilsu sína góða eða
mjög góða lækkað úr 84% í 65%
á sama tíma.
Staðan er mun verri hjá
drengjum en stúlkum. Munur-
inn á kynjunum er líka afger-
andi þegar kemur að lyfjagjöf
vegna athyglisbrests og of-
virkni. ADHD-lyfjanotkun
barna yngri en 18 ára þrefald-
aðist á árnum 2003 til 2018. Árið
2003 fengu fimm af hundraði
drengja slík lyf, en 2018 var tal-
an 12%. Greining-
arnar hér á landi
eru um helmingi
fleiri en í Noregi og
Finnlandi og ell-
efufalt fleiri en í
Svíþjóð.
Í blaði Geðhjálp-
ar er rætt við Sig-
nýju Rós Ólafsdóttur, sem í vor
fékk verðlaun á kvikmynda-
hátíð í New York fyrir
útskriftarverkefni sitt úr Há-
skóla Íslands. Hún passaði ekki
inn í skólakerfið og segist hafa
fengið þau ósögðu skilaboð að
hún væri heimsk. Í tíunda bekk
kom í ljós að hún væri með les-
blindu og athyglisbrest. Í vetur
ætlar hún að fara í grunnskóla í
samstarfi við Geðhjálp og segja
sögu sína.
Styrmir Gunnarsson, fyrr-
verandi ritstjóri Morgun-
blaðsins, skrifar grein í blaðið
þar sem hann segir að tvennt
veki athygli sína þegar hann lít-
ur yfir framvindu geðheilbrigð-
ismála í hálfa öld. Í fyrsta lagi
að geðræn vandamál hafi aukist
verulega og í öðru lagi að ekki
verði sagt að á þessu tímabili
hafi orðið byltingarkenndar
breytingar í meðferð geð-
sjúkdóma. Bendir hann sér-
staklega á þörfina á að reisa
nýtt hús yfir geðdeild Landspít-
alans og gagnrýnir óvægni og
tillitsleysi í samskiptum fólks.
„Fram undan eru erfiðari tímar
en núlifandi Íslendingar hafa
áður kynnst,“ skrifar Styrmir.
Vandinn að baki tölunni 39 er
gríðarlegur og á honum finnst
engin ein lausn. Það þarf að
ráðast á hann á mörgum sviðum
og hugsa út frá heildinni.
Skólakerfið er greinilega of
einhæft. Hversu mörg börn ætli
séu í sömu sporum og Signý
Rós í skólastofum landsins?
Finnst þau utangátta og finna
til minnimáttarkenndar því þau
ná ekki að fylgjast með þegar
raunin er sú að það vantar ekki
hæfileikana heldur er verið að
reyna að steypa þau í mót sem
passar ekki?
Það þarf að bæta viðbragðið í
kerfinu þannig að hægt sé að
vinna á vandamálum áður en
þau verða svo alvarleg að öll
sund virðast lokuð.
Umræðan um geðheilsu hef-
ur breyst mikið á umliðnum ár-
um. Hún er orðin opnari og for-
dómalausari. Það er jákvæður
þáttur og auðveldar þetta erfiða
verkefni, sem sem er brýnt að
njóti forgangs. Að fá hjálp í
tíma getur skipt sköpum um
virkni eða örorku. Um leið þarf
að draga umræðuna um sjálfs-
víg fram í dagsljósið og hvetja
fólk til að leita sér hjálpar þeg-
ar þyrmir yfir.
Að síðustu er rétt að minna á
neyðarsíma Rauða krossins,
1717, og netspjall auk þess sem
svarað er í síma Píeta-samtak-
anna, 552-2218, allan sólar-
hringinn.
Það þarf að hvetja
fólk til að leita
sér hjálpar og
ræða hugsanir
um sjálfsvíg}
Eflum geðheilsu
M
ikið hefur verið fjallað um ís-
lenskan landbúnað, ekki bara
að undanförnu heldur um
langa tíð. Oftast er fjallað um
einhvers konar vandamál sem
tengjast greininni en minna um mikilvægi
greinarinnar fyrir íslenskt samfélag eða ár-
angurinn og sóknarfærin sem eru mörg. Of
margir átta sig ekki á og þekkja ekki til þeirra
miklu og mikilvægu vinnu sem bændur og aðr-
ir framleiðendur matvæla landsins inna af
hendi fyrir okkur hin sem „hvorki þekkjum
haus né sporð á búfénaði“ eins og sagt var við
mig einu sinni.
Íslenskur landbúnaður er atvinnugrein þar
sem mikil færi eru á að nýta mun betur náttúru
landsins og hugvit landsmanna. Einstakar auð-
lindir landsins, hreinir bústofnar, hollusta og
sagan er oft grunnur hugmynda. Finna má dæmi í fréttum
sl. vikur og mánuði af frumkvöðlum sem eru að skapa eitt-
hvað nýtt. Þau eru með nýjar vörur og framleiðsluferla
kringum íslensk matvæli og hafa óbilandi trú á getu sinni
og Íslands til þess að framleiða matvæli innanlands. Þarna
eru sannarlega vaxtarsprotar sem fjölgað geta atvinnu-
tækifærum á þessum síðustu og verstu tímum.
Þannig eru mörg nýsköpunarfyrirtæki byrjuð eða eru
að hefja starfsemi í kringum landbúnað og matvælafram-
leiðslu, allt frá skyrflögum til matvara með collageni eða
prótein og etanol unnið úr mysu og enn aðrir leita leiða til
að framleiða prótein úr grasi. Fólk trúir á íslenskan land-
búnað. Ungt fólk er þar oftar en ekki í fararbroddi með
einhverja reynslu að baki t.d. úr viðskiptalífinu
eða nýútskrifuð úr háskóla og eiga a.m.k. eitt
sameiginlegt, brennandi áhuga og trú á vörunni
sinni sem tengist íslenskum landbúnaði og mat-
vælum með einum eða öðrum hætti. Verslunin
sér þetta líka og setur upp myndalega standa
þar sem ýtt er undir sýnileika þeirra gagnvart
neytendum sem taka vel í nýjungarnar.
Sumir virðast halda að sjálfsagt sé að fara í
verslun eða panta á netinu öruggar, hollar og
góðar íslenskar matvörur. Það er ekkert sjálf-
sagt við það vegna þess að á bak við matvör-
una, skyrið og lambalærið svo eitthvað sé
nefnt, eru mörg handtök sem miða að því að
skapa verðmæti úr íslensku hráefni sem seld
eru á sanngjörnu verði.
Standi íslenskur landbúnaður jafnfætis
samkeppnislöndunum, þar sem tekið er með í
samanburðinn aðföng, laun, aðbúnaður, stærðar-
hagkvæmni o.fl. og að innfluttar vörur séu rétt tollaðar
er ég sannfærður um að sú trú sem bændur, frumkvöðlar
og margir aðrir hafa á greininni sé rétt og enn fleiri
munu sjá hversu mikilvægur og hagkvæmur íslenskur
landbúnaður er fyrir okkur öll. Það vantar hins vegar
landbúnaðarráðherra sem hefur áhuga á og stendur með
greininni, ráðherra sem hlustar á bændur og berst stolt-
ur fyrir bættum starfsskilyrðum landbúnaðarins. Ungt
fólk trúir á greinina af hverju ekki ráðherra.
Gunnar Bragi
Sveinsson
Pistill
Ungt fólk trúir á landbúnaðinn,
af hverju ekki ráðherra?
Höfundur er þingmaður Suðvesturkjördæmis og
varaformaður Miðflokksins. gunnarbragi@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Dönsk rannsókn bendir tilþess að blóðflokkar getimögulega haft áhrif á lík-urnar á því að fólk smitist
af nýju kórónuveirunni og fái CO-
VID-19-sjúkdóminn. Fólk í blóð-
flokki O virðist síður smitast en það
sem er í blóðflokkum A, B og AB.
Rannsóknina gerðu vísindamenn við
dönsku blóðbankana, háskólann í
Árósum og háskólann í Suður-
Danmörku (Syddansk Universitet).
Danska ríkisútvarpið (DR)
greindi frá þessu og sagði að finnist
100 smitaðir einstaklingar í blóð-
flokkunum A, B og AB við skimun á
tilteknum fjölda fólks vegna kór-
ónuveirusmits muni finnast 87 smit-
aðir sem eru í blóðflokki O við skim-
un á jafn stórum hópi. Hættan á að
smitast af nýju kórónuveirunni er
því 13 prósentustigum lægri hjá
þeim sem eru í blóðflokki O.
Magnús Gottfreðsson, prófess-
or og sérfræðingur í smitsjúkdóm-
um á Landspítalanum, segir að þetta
sé í samræmi við niðurstöður sem
komu fram fyrr á árinu. „Þá var tal-
að um að blóðflokkur A væri tengd-
ur meiri hættu en O varðandi það að
veikjast af COVID-19. Þetta var töl-
fræðilega marktækur munur. Við
höfum ekki skoðað okkar gögn með
hliðsjón af þessu, en það er til-
tölulega einfalt að gera það,“ sagði
Magnús.
Blóðflokkur O er algengasti
blóðflokkur á Íslandi (um 56%), þar
næst blóðflokkur A (um 32%), svo B
(um 10%) og AB sjaldgæfastur (um
3%).
Bólusetja sem aldrei fyrr
gegn árlegri inflúensu
Enska lýðheilsustofnunin
(Public Health England) segir að
fleirum en venjulega verði nú boðin
inflúensubólusetning. Niðurstöður
rannsóknar sem stofnunin gerði
benda til þess að fólk sem smitaðist
bæði af nýju kórónuveirunni og
inflúensu á tímabilinu frá janúar og
apríl á þessu ári hafi verið í meiri
hættu á að verða alvarlega veikt eða
að deyja en fólk sem einungis var
með COVID-19. Dánarhlutfall
þeirra sem smituðust af báðum sjúk-
dómunum samtímis var meira en
tvöfalt hærra en þeirra sem einungis
smituðust af COVID-19. Flestir
sjúklinganna sem veiktust bæði af
COVID-19 og inflúensu voru eldra
fólk og meira en helmingur þess
lést.
Þrír læknar í fremstu röð í
Englandi, þau dr. Yvonne Doyle, Jo-
nathan Van-Tam prófessor og dr.
Nikita Kanani, hvetja til þess að sem
flestir verði nú bólusettir gegn hinni
árlegu inflúensu. Enska heilbrigðis-
kerfið vinnur nú að því að útvega 30
milljónir skammta af bóluefninu,
fleiri en nokkru sinni fyrr. Bólusetn-
ingin er fólki þar að kostnaðarlausu.
Lars Østergaard, yfirlæknir á
smitsjúkdómadeild Háskólasjúkra-
hússins í Árósum, sagði í samtali við
danska ríkisútvarpið að venjulega
ráðlegði hann ekki ungu og frísku
fólki að láta bólusetja sig gegn ár-
legri inflúensu, en í ljósi kórónu-
veirufaraldursins ætti fólk að hug-
leiða það að láta bólusetja sig.
„Það eru til rannsóknir sem
sýna að ef líkaminn er að berjast
við tvær aðskildar sýkingar á
sama tíma að þá fylgja því verri
horfur. Það er erfitt að heyja tvö
stríð samtímis,“ sagði Magnús.
Hann sagði að erfiðara sé að
stjórna markvissum viðbrögðum
gegn tvenns konar mismunandi
sýklum samtímis. Slíkar að-
stæður geti aukið hættu á að
eitthvað fari úrskeiðis.
Blóðflokkar og bólu-
setning í faraldri
Það að bólusetja ungt og
hresst fólk gegn árlegri inflú-
ensu ætti ef til vill að mæta af-
gangi, að mati Magnúsar Gott-
freðssonar, prófessors og
smitsjúkdómalæknis. Það fer
þó eftir því hve vel við erum
birg af bóluefni.
Hann telur að halda eigi
þeirri forgangsröðun sem
stuðst hefur verið við, það er
að bólusetja viðkvæma hópa
eins og aldraða, fólk með und-
irliggjandi sjúkdóma og
heilbrigðisstarfsfólk. Verði til
meira bóluefni en þessir hópar
þurfa megi hugleiða
hvernig það nýtist best.
„Stundum hefur
bóluefnið nærri því
klárast og þá viljum
við ekki að það sé gef-
ið fólki sem strangt til
tekið þarf ekki nauð-
synlega á því að
halda,“ sagði
Magnús.
Forgangs-
röðin haldist
INFLÚENSUBÓLUSETNING
Morgunblaðið/Hari
Bólusetning Að fá inflúensu ofan í kórónuveirusýkingu getur verið
slæmt. Þess vegna er mikilvægt að láta bólusetja sig gegn flensu nú.
Magnús
Gottfreðsson.