Morgunblaðið - 16.10.2020, Qupperneq 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2020
Hvar sem þú bjóst og hvert
sem þú fórst heillaðir þú alla og
laðaðir það besta fram í fólki. Allir
þekktu Magnús og allir elskuðu
hann.
Elsku besti Maggi minn, þakka
þér fyrir alla elskuna og þegar
eitthvað bjátar á ætla ég að hugsa
til þín og það mun hjálpa mér
endalaust.
Þín Magga mágkona,
Margrét Alfreðsdóttir.
Maggi
Spurn í auga og bros á vör
svarið kannski í formi
örleikrits
Kannski sama spurningin og oft áður
sama svarið leikið eins,
klassísk list, sígilt
Hlýtt faðmlag og loforð um vináttu
eilífa vináttu og hlýtt viðmót
endurtekið oft, alltaf jafn gott
Skellihlátur við spaugilegt atvik
gleðistund notið til hlítar
meðan gafst
Nú fetum við ekki lengur slóðina saman
nú skilur leiðir en þó ekki alveg
því þú dvelur enn
Í huga fullum af myndum
og hjarta fullu af hlýju
þess sem gengur áfram
lífsins veg
(Sigurður Jónsson)
Guð blessi minningu þína.
Fyrir hönd íbúa og starfs-
manna Hafnarstrætis 16,
Pálína Björnsdóttir.
Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins
blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann allsherjardóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla stund
sem aldrei mér hverfur úr minni
og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson)
Elsku Maggi okkar. Nú er
komið að kveðjustund og aldrei er
maður alveg tilbúinn að sleppa.
Lífið leggur misjafnar byrðar á
okkur mannfólkið og strax í upp-
hafi var ljóst að þínar byrðar yrðu
þungar sem þú tókst á við af æðru-
leysi.
Þú varst heillandi persónuleiki
með sterka útgeislun og varst einn
af þeim sem svo auðvelt var að
elska. Þú tókst öllum með hlýju og
væntumþykju og trúðir alltaf á
það góða í fólki. Þú ávannst þér
virðingu og væntumþykju allra
sem urðu svo gæfusamir að kynn-
ast þér. Þú varst mikill húmoristi
og stríðnispúki og oft var glatt á
hjalla þegar þú náðir hæstu hæð-
um.
Við sitjum hér vinkonurnar og
rifjum upp glaðar stundir sem við
áttum með þér. Við fórum meðal
annars í sólarlandaferð til Mal-
lorca og það sem gerðist þar var
skilið eftir á Mallorca. En oft hlóg-
um við rosalega öll þrjú við að rifja
upp endurminningar þaðan.
Við minnumst hlýjunnar og
væntumþykjunnar sem lýstu úr
augunum þínum fallegu og þökk-
um knúsin góðu.
Þú áttir stóra og yndislega fjöl-
skyldu sem umvafði þig ást og um-
hyggju alla tíð. Stórfjölskyldunni
allri vottum við okkar dýpstu sam-
úð.
Elsku Maggi, við þökkum þér
samfylgdina, far þú í friði og friður
Guðs þig blessi.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þínar vinkonur,
Pálína (Palla) og
Ingibjörg (Inga).
✝ Jóhanna Sig-urbjörg Þor-
steinsdóttir fæddist
á Sandbrekku í
Hjaltastaðaþinghá
3. maí 1929. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Eir, Graf-
arvogi, 2. október
2020.
Foreldrar henn-
ar voru Ingibjörg
Geirmundsdóttir, f.
26.10. 1899, d. 15.2. 1976, og
Þorsteinn Sigfússon, f. 29.9.
1898, d. 25.2. 1986.
Systkini Jóhönnu: Guðný, f.
1926, d. 1990, Sigfús, f. 1927, d.
2001, Ragnheiður, f. 1931, d.
2018, Geirmundur, f. 1932, d.
2011, Hreinn, f. 1935, d. 1959,
Valur, f. 1935, d. 1967, Hjördís,
f. 1938, d. 2017, Þorsteinn Þrá-
inn, f. 1941.
Jóhanna giftist hinn 31.12.
1955 Ásgeiri Guðmundssyni, f.
19.2. 1926, d. 22.10. 2004. For-
eldrar hans voru Guðmundur
Jónsson skrifstofumaður, f.
14.10. 1893, d. 31.12. 1947, og
Kristín Margrét Jónsdóttir, f.
Baldur Már, f. 25.2. 1983, maki
hans er Xiao Tang, f. 28.2. 1985,
barn þeirra er Stefán Logi, f.
27.5. 2014. b. Ástrós, f. 4.9. 1987,
maki Birkir Fannar Bragason, f.
4.2. 1988, barn þeirra er Harpa
Avía, f. 21.4. 2018. c. Smári
Nikulás, f. 16.3. 1995, maki
Alexandra Líf Árnadóttir, f.
12.2. 1998.
3) Þorsteinn, f. 28.11. 1963,
maki Oddný Hildur Sigurþórs-
dóttir, f. 18.1. 1965. Börn þeirra
eru: a. Þóra, f. 6.7. 1984, d. 7.7.
1984. b. Yrsa Örk f. 16.6. 1985,
maki Högni Valur Högnason, f.
15.8. 1983, börn þeirra eru Þor-
steinn Flóki, f. 8.12. 2011, Vaka
Sóllilja, f. 4.11. 2015, og Rökkva
Örk, f. 23.6. 2019. c. Salka, f. 8.6.
1989, maki Sölvi Rafn Sverr-
isson, f. 10.6. 1988, börn þeirra
eru Baltasar, f. 30.6. 2019, og
Sebastían, f. 30.6. 2019, d. 9.7.
2019. d. Jóhanna Embla, f.
11.10. 1995, maki Friðrik Árni
Halldórsson, f. 15.2. 1995, barn
þeirra er Hildur Jara, f. 2.3.
2020.
Jóhanna gekk í héraðsskól-
ann á Eiðum og síðar í hús-
mæðraskólann á Staðarfelli.
Lengst af vann Jóhanna á
göngudeild áfengis- og vímu-
efna á Landspítala og lauk störf-
um 1999.
Útför Jóhönnu fer fram í dag,
16. október 2020, klukkan 13.
8.11. 1900, d. 20.5.
1927. Börn þeirra
Jóhönnu og Ásgeirs
eru:
1) Ingibjörg, f.
2.3. 1956, maki Vil-
hjálmur Ari Ara-
son, f. 27.4. 1956.
Börn þeirra eru: a.
Ásgeir Snær, f.
17.6. 1977. Dætur
hans með Eyrúnu
Eiðsdóttur, f. 22.3.
1977, eru Hjördís María, f.
25.10. 2002, Ingibjörg Svana, f.
16.6. 2004, og Vera Dögg, f.
22.8. 2010. Fyrir átti Eyrún son-
inn Stein Andra Viðarsson, f.
21.12. 1997. b. Jóhanna, f. 1.5.
1982, maki Hörður Birgisson, f.
22.8. 1982, börn þeirra eru Em-
ilía, f. 14.12. 2004, Vilhjálmur
Þór, f. 13.7. 2007, Alexander
Máni, f. 25.6. 2010, og Óliver
Loki, f. 26.2. 2015. c. Ásta, f.
20.11. 1991, sambýlismaður
hennar er Ragnar Kristjánsson,
f. 15.2. 1990.
2) Guðmundur, f. 9.7. 1958,
maki Kristbjörg Baldursdóttir,
f. 11.9. 1957. Börn þeirra eru: a.
Jóhanna Þorsteinsdóttir,
elskuleg tengdamóðir mín, var
einstök kona sem hafði ásamt
eiginmanni sínum Ásgeiri Guð-
mundssyni (d. 2004) mikil áhrif á
lífsviðhorf mitt. Æðruleysi og
dugnaður, og að fjölskyldan
skyldi alltaf vera í fyrsta sæti.
Ég kom inn í fjölskyldu þeirra
í Skaftahlíðinni fyrir rúmum 40
árum sem menntskælingur í
Hamrahlíð. Var vel tekið og leið
strax eins og einum fjölskyldu-
meðlima. Jóhanna vann þá sem
starfsmaður áfengis- og vímu-
efnadeildar Landspítala á Flóka-
götunni. Vann þar í mörg ár sem
starfsmaður á vöktum, en síðar
sem móttökuritari á áfengis- og
vímuefnagöngudeild LSH. Hún
naut alla tíð mikillar virðingar
hjá samstarfsfólki og skjólstæð-
ingum. Starf sem kallaði á mikla
hjartahlýju og fimi í mannlegum
samskiptum. Jóhanna var enda
mikil gáfumanneskja, þótt skóla-
ganga hennar hafi ekki verið
löng á nútímamælikvarða. Í upp-
hafi í sveitinni sinni í farand-
kennslu á Sandbrekku í Hjalta-
staðaþinghá og síðar í
gagnfræðaskólanum á Eiðum.
Loks í húsmæðraskólanum á
Staðarfelli á Fellsströnd. Uppal-
in sem íslensk sveitastúlka á óð-
alssetrinu Sandbrekku í stórum
systkinahóp og þar sem ræturn-
ar alltaf lágu.
Jóhanna og Ásgeir voru frá-
bærir tengdaforeldrar og hjálp-
uðu mér og Ingibjörgu minni
óendanlega á fyrstu búskaparár-
um okkar. Barnapössun og við
allar framkvæmdir þegar á
þurfti að halda. Fórum með þeim
í ferðalög, hérlendis og erlendis.
Alltaf eins og bestu vinir manns
og aldrei bar neinn skugga á.
Heimili þeirra Jóhönnu og Ás-
geirs síðar í Fannafoldinni eins
og konungsríki. Garðurinn eins
og lystigarður og þar sem Jó-
hanna fékk að njóta sín til fulln-
ustu með sína grænu fingur og
reynsluna úr gömlu góðu sveit-
inni.
Kartöflukofinn í Skammadal
var líka sem einskonar sumarbú-
staður í mínum huga, þar sem
líka varð til fallegur trjágarður,
auk matjurtagarðsins góða.
Þangað sem ótal ferðir voru
farnar til að hirða um. Uppsker-
an var eftir því.
Sem betur fer er lífið oftast
gott og venjulegt. Vinnudagar og
frístundir um helgar í góðra vina
hópi. Slíkum stundum man ég
einna best eftir með þeim Ás-
geiri og Jóhönnu, mér og okkur
við hlið. Þar sem börnum okkar
Ingu leið vel og ævintýrin gerð-
ust. Ferðir farnar stundum á
skíði á veturna. Gufubað á heim-
ili þeirra síðdegis, eftir góða
daga.
Jóhanna var mikil hannyrða-
kona. Prjónaði, saumaði út og
stundaði alla tíð allskyns fönd-
urvinnu. Sótti námskeið jafnvel í
glerlist og hannaði falleg mynd-
verk. Féll eiginlega aldrei verk
úr hendi, sem var alla tíð til
marks um hennar eiginleika sem
manneskju. Húsmóðurhlutverkið
var henni síðan eins og í blóð
borið og við hin fengum að njóta
meðan heilsan entist.
Sjúkdómur sem heitir heilabil-
un herjaði á tengdamóður mína
frá áttræðisaldri. Síðasta áratug-
inn naut hún hins vegar frábærr-
ar umönnunar á Eir í Grafarvogi.
Hjúkrunarfólki er kærlega þökk-
uð þjónustan og öll alúðin. Hug-
urinn var að lokum farinn, en lík-
aminn sterkur sem stál fram til
hinsta dags. Vonandi loks góðir
endurfundir með Ásgeiri sínum
og öðrum gengnum ástvinum.
Vilhjálmur Ari Arason.
Elsku besta amma mín, mikið
svakalega er ég heppin að fá að
hafa verið með þér allan þennan
tíma.
Þínar hlýju hendur sem tóku á
móti mér eftir skóla þegar eg var
lítil. Alltaf tilbúin með hrært
skyr með sykri eða hafragraut.
Það var alltaf nóg að gera hjá
okkur því þú varst svo ótrúlega
sniðug og uppátækjasöm.
Þú varst alveg ótrúlega list-
ræn og tókst að þér mörg verk-
efnin sem þú gerðir svo vel,
hvort sem það var í keramík,
gleri, útsaum og fleiru sem okk-
ur fjölskyldunni þykir ótrúlega
vænt um að eiga.
Ég á svo margar góðar minn-
ingar með þér elsku amma. Með-
al annars þegar við horfðum a
föndurþættina á BBC og fengum
sniðugar hugmyndir, ég fékk að
gista hjá þér og afa á beddanum,
dúllast í garðinum, mála gifs-
verkin þín og þegar við læstum
bíllyklana inni í bílnum og þurft-
um að ganga heim með alla mat-
arpokana.
Þú hafðir svo ótrúlega hlýtt
hjarta.
Ég vona að ég verði jafn góð
amma og þú einn daginn því þú
varst einfaldlega best.
Nú tekur afi á móti þér í
blómaparadís.
Kveð þig með þakklæti og ást,
elsku amma.
Þangað til næst,
Ásta Vilhjálms.
Jóhanna S.
Þorsteinsdóttir
✝ Agnar BúiAgnarsson
fæddist á
Heiði í Göngu-
skörðum 2. mars
1937. Hann lést
vegna krabbameins
á sjúkrahúsinu á
Sauðárkróki 11.
október 2020. Hann
ólst upp á Heiði og
vann við búskapinn
sem barn og ung-
lingur og fram eftir öllu.
Búi kynnist konu sinni Krist-
ínu Reginbaldursdóttur, f. 15.
ágúst 1940, d. 1.
ágúst 2011, á vertíð
í Grindavík vet-
urinn 1962. Þau
giftu sig 1963 og
bjuggu fyrst í
Grindavík, þar til
vorið 1966, þá flytja
þau norður á Sauð-
árkrók og festa
kaup á íbúð á Skóg-
argötu 18 og
bjuggu þar í um sex
ár. Fluttu svo að Heiði í Göngu-
skörðum árið 1972.
Árið 1971 hóf Búi búskap á
Heiði en bjó ennþá á Sauð-
árkróki.
Búi og Kristín eignuðust fjög-
ur börn; Regínu Bjarnveigu,
Agnar Búa, Hebu Sóleyju og
Eygló Rós, þrjú barnabörn, Sæ-
unni Kristínu, Mikael Búa og
John Thor, og tvö barna-
barnabörn, Aron Frosta og Óli-
ver Davíð.
Búi vann við lökkun hjá Tré-
smiðjunni Borg um tíma. Búi var
einnig skólabílstjóri til margra
ára og sinnti einnig veiðivörslu
hjá veiðifélaginu. Áður vann
hann einnig við línuvinnu hjá
Rafveitunum og um tíma var
hann á síldarbát við síldveiðar.
Hann var einnig virkur í
starfi hjá Björgunarsveitinni.
Útför hans fer fram í dag, 16.
október 2020, klukkan 15 í
Sauðárkrókskirkju.
Með mikilli og djúpri sorg í
hjarta kveð ég þig elsku pabbi
minn, takk fyrir allar góðu
stundirnar okkar saman, þær
voru margar og góðar og mun
ég lifa á góðum minningum með
stútfullt hjartað af ást til þín og
þessum góðu minningum um
þig, ég þakka líka fyrir öll sím-
tölin okkar, við töluðum saman
nánast á hverjum degi og
stundum oft á dag. Þær minn-
ingar ylja mér nú um hjarta-
rætur á þessum erfiðu tímum.
Þú varst svo yndislegur,
traustur, góður maður og mikill
dýravinur. Þú þráðir ekkert
meira en að hafa fjölskylduna
þína alltaf hjá þér og vera í
kringum dýrin.
Það var alltaf stutt í grínið
hjá þér, ég elskaði húmorinn
þinn og þessi hnitmiðuðu skot
sem ekki allir föttuðu og stríðn-
islega glottið/brosið þitt það
gleymist aldrei.
Eftir standa svo ótrúlega
góðar minningar um góðan
mann sem ég mun geyma í
hjarta mínu um ókomna tíð.
Þessir dagar eftir að þú
kvaddir okkur hafa verið svo
tómlegir og ég er búin að
standa mig að því hvað eftir
annað að finnast ég þurfi að
heyra í þér, alltaf þessi tilfinn-
ing að ég eigi eftir að gera eitt-
hvað og þá blasir ískaldur raun-
veruleikinn við en gott að vita
að þú sért kominn á betri stað
og laus við allar þjáningarnar.
Við fjölskydan vorum kölluð
á fund og læknirinn tilkynnir
okkur þessar ömurlegu fréttir
að þú sért kominn með krabba-
mein í líffærin og krabbinn sé
búinn að sigra þig og það liðu
ekki nema 12 dagar frá því við
fáum þessar fréttir og þar til þú
kveður okkur.
Ég vildi óska þess að það
hefði verið meira gert fyrir þig,
þú varst alltaf sendur heim og
ekki einu sinni með verkjalyf
með þér og þú sem kvartaðir
aldrei og við systkinin vissum
það vel að ef þú talaðir um
kvalir þá hlytu það að vera
miklar kvalir.
Þú varst alltaf svo hæversk-
ur og nægjusamur, talaðir um
að það væri örugglega eitthvað
annað mikilvægara sem gengi
fyrir hjá læknunum.
Góða ferð elsku pabbi minn,
ég er alveg viss um að mamma
hefur tekið vel á móti þér og að
þið séuð sameinuð á ný. (Nokk-
uð viss um að Ronja sé líka
komin í þinn hlýja faðm.)
Ég mun sakna þín að eilífu,
takk fyrir allt pabbi minn. Þín
Eygló.
Elsku Búi minn. Ég minnist
þess þegar ég kynntist þér
fyrst, ég kom keyrandi að
hlaðinu á Heiði með verkfæri í
skottinu og vinnubuxur í tösku.
Það stóðu framkvæmdir yfir á
bænum og fékk ég þann heiður
að vera ráðinn inn í hópinn. Þar
stóðst þú, bóndinn á Heiði,
sannkallaður höfðingi. Þú opn-
aðir heimili þitt fyrir mér með
þínu ljúfa og blíða brosi og
sýndir því einlægan áhuga að
fá að kynnast mér. Og ég man
svo vel hvað mér þótti gaman
og merkilegt að fá að kynnast
þér. Ég, alin upp á malbiki, og
þú, 50 árum eldri, alveg ekta ís-
lenskur bóndi. Ég minnist
einnig þeirra góðu stunda þeg-
ar við settumst niður í hádeg-
inu að snæða, alltaf var stutt í
hnyttnina og stríðnina og gát-
um við oftar en ekki hlegið að
því þegar það voru bjúgu í mat-
inn eða þeim metnaði sem þú
sýndir í að bjóða mér upp á
kaffisopa.
Þegar lífið greip í taumana í
byrjun veturs það sama ár fékk
ég þann mikla heiður að kalla
þig tengdaföður minn. Það var
óvænt en dásamlegt og sam-
verustundirnar okkar urðu því
fleiri fyrir vikið. Mun ég alltaf
vera þakklát fyrir það. Þú tókst
mér opnum örmum og varst
ávallt forvitinn um gang lífsins
hjá okkur og grallaranum hon-
um nafna þínum. Þú kenndir
mér svo ótal margt og á Heiði
opnaðist fyrir mér veröld sem
ég hafði ekki áður kynnst.
Mér þótti samstundis vænt
um þig við fyrstu kynni elsku
Búi minn og góðmennska þín
og hjartahlýja smitaði langt út
frá sér, hvort sem það var til
okkar mannfólksins eða dýr-
anna. Ég sé þessa góðmennsku
skína í börnunum þínum og ég
sé að þú hefur gefið þeim
margt.
Ég þakka þér samfylgdina í
gegnum árin elsku Búi minn og
það var sannkallaður heiður að
fá að fylgja þér síðustu árin og
dagana. Það er tómlegt á Heiði
án þín og mun ég ávallt minnast
þín standandi í dyragættinni
veifandi, með axlabönd og staf-
inn þinn góða.
Hvíldu í friði elsku tengda-
pabbi.
Guðrún West.
Agnar Búi
Agnarsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURJÓN SÖLVI GUÐNASON,
Laugarvegi 46, Siglufirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar
miðvikudaginn 7. október.
Útförin fer fram í dag, föstudaginn 16. október.
Í ljósi aðstæðna munu aðeins nánustu aðstandendur verða
viðstaddir athöfnina.
Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir
Guðný Þórhildur Sölvadóttir Sverrir Jónsson
Guðrún Ásgerður Sölvadóttir
Ásgeir Ingvar Sölvason Erla Gunnlaugsdóttir
Guðni Margeir Sölvason Júlía Birna Birgisdóttir
Sölvi Sölvason Sigríður Karlsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar