Morgunblaðið - 16.10.2020, Qupperneq 40
PRÓFAÐU ÞÆGINDIN OG
SLÖKUNINA SEM ÞÚ FÆRÐ Í NÝJU
MODULAX HVÍLDARSTÓLUNUM
NÝTT
Á ÍSLANDI
SÆKTU APPIÐ MODULAX OG
SKOÐAÐU HVERNIG STÓLLINN
LÍTUR ÚT Á ÞÍNU HEIMILI.
JAMES
STÓLL MEÐ SKEMLI
verð 149.900
PANDORA
RAFSTILLANLEGUR
verð 219.900
Alla Modulax stóla er hægt að sérpanta sem lyftustóla.
IRIS
RAFSTILLANLEGUR
verð 209.900
MODULAX HVÍLDARSTÓLAR
HÖNNUN OG ÞÆGINDI Á HVERT HEIMILI
ZERO
GRAVITY
ZERO
GRAVITY MODULAX
• 3-mótora hvíldarstóll.
• Handvirk og þægileg
höfuðpúðastilling 42°.
• Innbyggð hleðslu-
rafhlaða. Endist 250
sinnum fyrir alla mótora.
NÝTT!
MODULAX
MARGAR GERÐIR
modulax.be
BALDURSNES 6 – AKUREYRI LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK
KYNNTU ÞÉR VÖRUÚRVALIÐ
OG VERSLAÐU Í RÓLEGHEITUM
Á SVEFNOGHEILSA.IS
FRÍR FLUTNINGUR
UM ALLT LAND
GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ
Fjórar nýjar íslensk-
ar heimildarmyndir
sem sýndar voru á
alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í
Reykjavík, RIFF,
verða sýndar áfram
á netleigu hátíð-
arinnar, RIFFHeima,
og einnig nýr flokk-
ur heimildarmynda
sem fjalla um
þekkta listamenn, m.a. ljósmyndarann Helmut New-
ton. Hægt verður að streyma myndunum út helgina,
til sunnudagskvölds 18. október. Heimildarmyndirnar
eru Þriðji póllinn eftir Andra Snæ Magnason og Anní
Ólafsdóttur, Á móti straumnum eftir Óskar Pál
Sveinsson, Sirkusstjórinn eftir Helga Felixson og
Titti Johnson og íslensk-spænska heimildarmyndin
Humarsúpa eftir spænsku leikstjórana Pepe Andreas
og Rafael Moles. Frekari upplýsingar um myndirnar
eru á riff.is.
Þrjár íslenskar á RIFFHeima
FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 290. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Við komum saman á mánudaginn kemur og mark-
miðið var að byrja hérna heima fyrst en það ræðst að-
eins af því hvernig fer með þetta æfinga- og keppnis-
bann sem nú er við lýði á höfuðborgarsvæðinu og hvort
því verður aflétt á mánudaginn. Ef bannið verður fram-
lengt reynum við að fara fyrr út til Svíþjóðar með liðið
ef við megum ekki og getum ekki æft hérna heima,“
segir Jón Þór Hauksson, landsliðsþjálfari kvenna í fót-
bolta, um undirbúninginn fyrir leikinn mikilvæga gegn
Svíum. »34
Reynum að fara fyrr til Svíþjóðar
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Valgerður Birna Magnúsdóttir í
Hlíðaskóla í Reykjavík sigraði í
Pangea-stærðfræðikeppninni í 8.
bekk og Ragna María Sverrisdóttir
í Hagaskóla varð í fyrsta sæti í 9.
bekk. Úrslitakeppninni var frestað í
mars vegna kórónuveirufaraldurs-
ins en fór fram í september og
niðurstöður lágu fyrir um helgina.
Pangea-stærðfræðikeppnin fyr-
ir grunnskólanema er haldin í yfir
20 löndum Evrópu og var Ísland
fyrst með 2016. Meginmarkmiðið er
að hvetja nemendur og auka áhuga
þeirra á stærðfræði. Sjálfboðaliðar
úr Félaginu Horizon auk raun-
greina- og verkfræðinema skipu-
leggja og sjá um framkvæmdina, en
Kennarasamband Íslands hefur að-
stoðað við gerð prófanna. Úrslita-
keppnin hefur farið fram í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð en vegna
faraldursins var hún haldin í við-
komandi skólum að þessu sinni.
3.712 nemendur í 8. og 9. bekk í 70
skólum tóku þátt í keppninni hér-
lendis og hafa aldrei verið fleiri.
Báðar í tónlistarnámi
„Þetta var erfitt og ég átti ekki
von á að sigra,“ segir Ragna María,
sem fékk 41 stig af 45 mögulegum.
Valgeir Einir Borgarsson í Réttar-
holtsskóla varð í öðru sæti með 40
stig og Tindur Eliasen í Laugalækj-
arskóla í því þriðja með 36 stig.
Stærðfræði er uppáhaldsfag
Rögnu Maríu, en hún spilar líka fót-
bolta með 3. flokki Gróttu/KR og
lærir að spila á klarinett í Tón-
menntaskóla Reykjavíkur. „Ég
reyni alltaf að gera mitt besta og
það er gaman að sigra í svona
keppni,“ segir hún.
Ragna María var í stærðfræði-
vali í 9. bekk á liðnu skólaári og
segir að þar hafi verið undirbún-
ingur fyrir keppnina, meðal annars
með því að fara yfir fyrri próf. Hún
er núna í 10. bekk og fer í mennta-
skóla næsta haust. „Það er nóg að
gera og ég hlakka til að halda áfram
í því sem ég er að gera.“
Valgerður Birna hefur verið í
tónlistarnámi undanfarin fimm ár,
spilar á óbó og er í Skólahljómsveit
Austurbæjar. Hún er ári á undan
bekkjarfélögum sínum í stærðfræði
og gerir ráð fyrir að taka mennta-
skólastærðfræði í fjarnámi á næsta
ári.
„Það var mjög gaman að
sigra,“ segir Valgerður Birna, sem
fékk 34 stig. Hulda Sigrún Orra-
dóttir í Lindaskóla kom næst með
30 stig og Eberg Óttarr Elefsen í
Laugalækjarskóla fékk 28 stig í 3.
sæti.
„Ég vonaði að ég yrði í topp tíu
og þetta var óvænt en mjög velkom-
in uppákoma,“ heldur Valgerður
Birna áfram. Hún segir að stærð-
fræði og tungumál séu í uppáhaldi
hjá sér. „Ég hef alltaf haft áhuga á
stærðfræði og mér hefur gengið
vel,“ áréttar hún. „Þegar kennarinn
tilkynnti úrslitin held ég að ég hafi
barið í borðið, ég varð svo glöð.“
Stærðfræði í uppáhaldi
hjá sigurvegurunum
Ragna María og Valgerður Birna efstar í Pangea-keppninni
Hagaskóli Ragna María Sverrisdóttir.Hlíðaskóli Valgerður Birna Magnúsdóttir.