Morgunblaðið - 20.11.2020, Blaðsíða 33
DÆGRADVÖL 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2020
„OG FYRIR HERRANN SEM ALLT Á ERUM
VIÐ MEÐ LANGDRÆGAN KJARNAODD.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að laga það sem ekki
er heilt.
Í FRAMTÍÐINNI MUNUM VIÐ
BÚA Á ANNARRI PLÁNETU
VÓÓÓ…
„katta-
plánetan”
EÐA KANNSKI
EKKI
VEGIR VARÐAÐIR
TÚNFISKI
TÓKI LÆKNIR
MEÐ HVERRI SKOÐUN FÆRÐU
HJARTAVÆNT RAUÐVÍN Í KAUPBÆTI!
VÁ!
SVO… RAUÐVÍN ER GOTT FYRIR HJARTAÐ Í MÉR?
JÁ! OG ÞAÐ ER SVO SANNARLEGA
GOTT FYRIR BISNESSINN HJÁ MÉR!
„ÉG SKAL VEITA ÞÉR ÞRJÁR ÓSKIR
– SVO LENGI SEM ÞAÐ ER EKKI
HANDSPRITT, ANDLITSGRÍMUR EÐA
KLÓSETTPAPPÍR.”
ist í gegnum trúna og hún er mitt
haldreipi í öllu sem ég geri.“
Fjölskylda
Eiginmaður Díönu Óskar er Fritz
Már Jörgensson Berndsen, f. 17.5.
1961, prestur, sáttamiðlari og rithöf-
undur. Foreldrar hans eru hjónin
Jörgen Már Berndsen, f. 8.9. 1937,
málarameistari og Erna Ágústs-
dóttir, f. 9.9. 1940, skrifstofustjóri.
Þau búa í Reykjavík. Fyrri makar
Díönu Óskar eru Smári Viðar Grét-
arsson, f. 3.12. 1968 og Pétur Geir
Óskarsson, f. 1.1. 1972.
Börn Díönu eru 1) Sunneva Smára-
dóttir, f. 19.2. 1989, doktorsnemi í
læknavísindum og náttúrufræðingur
á LSH í Reykjavík, og 2) Amanda Líf
Fritzdóttir, f. 3.11. 1999, samtíma-
dansnemandi við LHÍ, danskennari
og ljóðskáld í Reykjavík. Síðan á hún
fyrri börn Fritz: 3) Ari Már, f. 13.8.
1982, sjúkraþjálfari í Kópavogi, giftur
Ester Rós Jónsdóttur verkfræðingi
og þau eiga Benjamín Bjart, f. 20.8.
2013 og Hinrik Loga, f. 13.5. 2019; 4)
Hrafn, f. 24.9. 1984, líftæknifræð-
ingur í Reykjavík, giftur Auði Viðars-
dóttur, f. 8.5. 1987, tónlistarkonu og
þau eiga Þorra, f. 25.1. 2010 og Jöru,
f. 22.8. 2013; 5) Erna Guðrún, f. 18.5.
1990, stílisti og menntaður dansari í
Reykjavík, í sambúð með Sam Bar-
ton, f. 16.2. 1987, efnaverkfræðingi.
Systkini Díönu samfeðra eru Egill,
f. 1966; Karl, f. 1967; Kristjana El-
ínborg, f. 1973; Kristján Hans, f. 1980
og Markús Már, f. 1985. Ekkja föður
Díönu er Guðbjörg Eva Kristjáns-
dóttir þroskaþjálfi, f. 5.4. 1956. Systk-
ini Díönu sammæðra eru Guðný Þór-
ey, f. 1966; Barbara Hafey, f. 1973 og
Árni Páll, f. 1980.
Foreldrar Díönu eru Anna Olsen
Pálsdóttir, f. 5.1. 1949, frá Siglufirði,
starfaði lengst við þjónustustörf og
býr núna í Reykjavík, og Ármann
Óskar Karlsson, f. 9.2. 1943, d. 7.8.
1992. Hann starfaði síðustu árin sín
sem verkstjóri í Sjólastöðinni í Hafn-
arfirði.
Díana Ósk
Óskarsdóttir
Katrín Guðmundsdóttir
húsfreyja í Dísarkoti
Markús Sveinsson
bóndi, Þykkvabæ.
Ólöf Markúsdóttir
húsfreyja,Reykjavík
Karl Svavar Þorsteinsson
bakarameistari,Reykjavík
Ármann Óskar Karlsson
verkstjóri, Hafnarfirði
GuðrúnVigfúsdóttir
bústýra,Reykjavík
Þorsteinn Þorsteinsson
vinnumaður, Hrunasókn
Hólmfríður Rannveig Þorgilsdóttir
húsfreyja, Kambi og Brúardal,Deildardal, Skagaf.
Halldór Jón Árnason
ráðsmaður og trésmiður, bóndi,
Kambi og Brúardal, Skagaf.
Páll Ágúst Jónsson
hótelstjóri, Siglufirði
Una Sigríður Ásmundsdóttir
hótelstjóri, Siglufirði
Nikólína Jóhanna Ólsen
húsfreyja,Teigagerðisklöpp
við Reyðarfjörð
Ásmundur Sigurðsson
bátsformaður,Teigagerðisklöpp við Reyðarfjörð
Úr frændgarði Díönu Óskar Óskarsdóttur
Anna Olsen Pálsdóttir
vann við þjónustustörf í
Reykjavík
Á feisbók yrkir Þórarinn Eld-járn og er yfirskriftin „Org-
anistinn“:
Á orgelið Bach með bravúr flytur,
baðar út höndum og fótum.
Rétt eins og kafteinn í kokkpitt situr
kóarinn flettir nótum.
Nú verður fram haldið þar sem
frá var horfið í gær í upprifjun á
vísum þingmanna um virðingu Al-
þingis og tekið upp úr grein í
Stuðlabergi:
„Kolbeinn Óttarsson Proppé,
þingmaður Vinstrihreyfingarinnar
græns framboðs, orti þetta:
Það eyðist víst gjarnan sem af er tekið
og alþingismanna fer dvínandi þrekið.
Um virðingu Alþingis vel má það segja
að víst sé hún mest þegar flestir þegja.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs-
dótttir, þingmaður Viðreisnar,
sendir limru frá þingflokknum:
Þingmenn í þrasgjörnum tón
þinginu vinna oft tjón;
en virðingu tryggja
og vel að því hyggja
Viðreisnarkonur – og Jón.
Séra Hjálmar Jónsson, fyrrver-
andi þingmaður Sjálfstæðisflokks,
sendi líka inn limru:
Alþingi ótrauð við fylgjum
Þótt álit þess gangi í bylgjum.
Vandamál er
að virðingin fer
undir skætingi, skömmum og dylgjum.
Guðmundur Andri Thorsson,
þingmaður Samfylkingar, gerði
þessa:
Hún fæst ekki með því að þrasa og
þrefa
og þæfa og steyta krepptan hnefa,
heldur með því að hlusta og sefa,
horfa, skilja, leysa og gefa.
Forseti þingsins, Steingrímur J.
Sigfússon, þingmaður og fyrrver-
andi ráðherra Vinstrihreyfing-
arinnar græns framboðs, á þá síð-
ustu:
Um virðingu þingsins er vert að tala
og víst er hver til þess bær.
En þeir sem gjarnan mest um það
mala
mættu oft líta sér nær.
Þingmenn fá bestu þakkir fyrir
skjót viðbrögð og skemmtilegar
vísur.“
Svo mörg voru þau orð og færi
ég Ragnari Inga Aðalsteinssyni
þakkir fyrir frumkvæði og vel unn-
ið verk.
Veturinn leggst ekki vel í Ár-
mann Þorgrímsson:
Ergja sig er ei til neins
þó engin sjáist skíma
fátt sem verður aftur eins
en áfram mun ég glíma.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Organistinn og virðing Alþingis
Laugavegi 178,105 Rvk. | Sími 551 3366 | www.misty.is
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14
NÁTTSETT
Buxur, sloppur og
hlýrabolur
(með haldi fyrir brjóstin)
Efnið er blanda af módal og
PIMA bómul frá Perú. Perúska
bómullin hefur það fram yfir
aðrar bómullartegundir að hún er
endingabetri, heldur lit vel, hnökrar
ekki og hentar vel þeim sem
svitna á næturnar.
Stærðir S-XL
Hentar skálastærðum DD-H
Verð 29.990,-