Morgunblaðið - 20.11.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.11.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2020 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, lagði í gær- morgun minningarkrans að Von, styttu og sjálfsmynd Bertels Thorvaldsens í Hljómskálagarðinum í Reykjavík, í tilefni af því að 250 ár voru liðin frá fæðingu lista- mannsins. Þetta var gert í aðdraganda hátíðardagskrár og málþings um Thorvaldsen sem haldið var í Listasafni Íslands. Thorvaldsen var sem kunnugt er að hálfu Ís- lendingur. Hann fæddist í Danmörku og eyddi þar ævi- kvöldinu, en starfaði lengst af á Ítalíu. Ísland var þó alltaf nærri í verkum hans og vitund. „Mest er þó um vert að við gleymum ekki arfleifð lista- mannsins. Hann lifir í verkum sínum – en lifa þau með okkur?“ sagði forseti Íslands í ávarpi sínu en hann er höfundur formála að ævisögu Thorvaldsens eftir Helga Gíslason. Sú bók, sem kom upphaflega út árið 1944, er nú endurútgefin á þessum tímamótum. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Lagði krans að styttu Thorvaldsens „Við erum bara orðlaus yfir við- tökum landans. Það hefur gripið um sig bingóæði,“ segir Sigurður Þorri Gunnarsson, dagskrárgerðarmaður á K100, um bingó sem hann stýrði ásamt Evu Ruzu á mbl.is og á rás 9 hjá Símanum í gærkvöldi. Metfjöldi vinninga rauk út í bingó- inu en aðalvinningurinn var Sam- sung Galaxy-sími af tegundinni S20 FE og segir Sigurður, sem betur er þekktur sem Siggi Gunnars, að Berglind Helgadóttir sem vann sím- ann hafi að vonum verið hæstánægð með vinninginn. „Öll fjölskyldan hennar spilaði með svo það var mikil spenna,“ segir Siggi, sem er í skýjunum með kvöld- ið. „Það var frábær stemning. Bríet, vinsælasta tónlistarkona landsins, var gestur þáttarins. Hún flutti tvö lög.“ Þetta var í fjórða sinn sem bingóið var haldið og þurfa landsmenn ekki að örvænta því fram undan eru þó nokkur bingókvöld undir stjórn Sigga og Evu. „Við erum hvergi bangin og keyrum af stað með bingó í næstu viku og munum gera þetta alla fimmtudaga fram að jólum,“ segir Siggi að lokum. Metfjöldi bingó- vinninga rauk út  Bingóæði hefur gripið um sig Morgunblaðið/Eggert Bingóstjórinn Siggi Gunnars er í skýjunum með bingó gærkvöldsins. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Rauði kross Íslands hefur haft for- göngu um að efnt verði til hjálpar- starfs í Vík með aðstoð fyrirtækja, Hjálparstarfs kirkjunnar, sveitar- félagsins og fleiri. Það mun veita fólki jólaaðstoð. Þorbjörg Gísladótt- ir, sveitarstjóri Mýrdalshrepps, sagði að um þriðjungur íbúa sveitar- félagsins væri atvinnulaus. Þar búa um 720 manns. „Flestir eru á atvinnuleysisbótum. Sveitarfélagið hefur ekki þurft að veita fjárhagsaðstoð nema í mý- flugumynd,“ sagði Þorbjörg. „Við gerðum ráð fyrir um 30% samdrætti í útsvarstekjum en mér sýnist við ætla að fara í gegnum þetta ár með um 14% lækkun. Ég held að hluta- bótaleiðin og atvinnuleysis- bæturnar hafi haldið þessu uppi.“ Hún sagði mjög mikilvægt að það rættist úr ferðaþjónustunni áður en tímabili atvinnuleysisbóta lyki. „Við trúum því að þetta verði farið að rísa næsta vor og vinnum eftir því. Reynist það ekki rétt tökum við stöðuna aftur,“ sagði Þorbjörg. „Það er ágætis stemning í sveitarfélaginu, þrátt fyr- ir allt. Það eru allir að vinna sér í haginn og margir hafa endur- skipulagt og tekið til í rekstrinum hjá sér.“ Mýrdalshreppur hélt áfram fram- kvæmdum í sumar til að skapa störf nema að dregið var úr malbikun. Vegagerðin var einnig með miklar framkvæmdir og mest heimamenn sem fengu verkið. „Hér var allt á blússandi siglingu, þetta féll allt með okkur,“ sagði Þorbjörg. „Það hafa aldrei fæðst jafn mörg börn í Mýrdalshreppi og á þessu ári. Okkur vantaði börn og nú eru komin 15-16. Hér voru ekki nema um 80 börn í leik- og grunnskóla. Stærsti árgangurinn til þessa var átta börn og oft ekki nema 3-4 börn í árgangi. Flestir íbúar eru á aldrinum 20-35 ára svo þetta var viðbúið. Nú þurf- um við að byggja nýjan leikskóla!“ Ferðaþjónusta þarf að fara af stað  Þriðjungur íbúa Mýrdalshrepps án atvinnu  Jólaaðstoð undirbúin  Samdráttur í útsvarstekjum minni en búist var við  Miklar framkvæmdir á liðnu sumri  Met slegið í barneignum í hreppnum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vík í Mýrdal Um þriðjungur íbúa sveitarfélagsins er atvinnulaus. Mikilvægt er að ferðaþjónusta komist aftur af stað í vor, að sögn sveitarstjóra. Þorbjörg Gísladóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.