Morgunblaðið - 20.11.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.11.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2020 Skólavörðustíg 22 / www.agustav.is / s. 823 0014 Opið alla virka daga 11-18 og laugardaga 12-16 20. nóvember 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 136.1 Sterlingspund 180.71 Kanadadalur 104.11 Dönsk króna 21.673 Norsk króna 15.074 Sænsk króna 15.812 Svissn. franki 149.37 Japanskt jen 1.3102 SDR 193.97 Evra 161.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 196.155 Hrávöruverð Gull 1877.2 ($/únsa) Ál 1944.5 ($/tonn) LME Hráolía 43.75 ($/fatið) Brent ● Hagnaður Eimskipafélagsins á þriðja ársfjórðungi nam 6,2 milljónum evra, jafnvirði tæplega milljarðs króna. Dróst hagnaðurinn saman um 1,2% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA nam 21,4 milljónum evra, jafnvirði 3,5 millj- arða króna, og jókst um 5,4% frá sama tímabili í fyrra. Rekstrartekjur félagsins námu 170,4 milljónum evra, jafnvirði 27,6 milljarða króna, á fjórð- ungnum og drógust saman um 1,2%. Rekstrarkostnaður dróst hins vegar saman um 2,1% og nam 149 millj- ónum evra, jafnvirði 24,1 milljarðs króna. Kemur m.a. fram í fjár- festakynningu félagsins að starfs- mannafjöldi félagsins hafi dregist saman um 10,6% á árinu og starfa nú 1.596 manns hjá félaginu. Eigið fé félagsins stóð í 228 milljónum evra, jafnvirði 36,9 milljarða króna, í lok síðasta fjórðungs og hafði þá lækkað um 2,7 milljónir evra. Eiginfjárhlutfall félagsins var 42,6% í lok síðasta fjórðungs. Í gildi er yfirtökutilboð til allra hluthafa Eimskipafélagsins frá Samherja Holding sem á nú 30,28% hlut í félaginu. Tilboðið stendur til 8. desember. Býðst Samherji til að kaupa hluti annarra hluthafa á geng- inu 175. Gengi félagsins í dag stendur í 206 og hefur ekki verið hærra síðan í apríl í fyrra. Eimskip hagnast um tæpan milljarð króna STUTT BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, segir breytingar á verslun í miðborginni geta reynt á tímabundið en einnig skapað tækifæri fyrir nýjar gerðir verslunar og smærri og meðalstór fyrirtæki. Tilefnið er að ný verslun Góða hirðisins var opn- uð í nýbyggingu á Hverfisgötu 94-96 í fyrradag. „Ég held að þetta dæmi sýni fyrst og fremst að með nýjum og fleiri rýmum koma alls konar nýjungar og tæki- færi sem kannski blöstu ekki við áður. Við sáum að eftir þrengingar blómstraði miðborgin undanfarin ár, að hluta til í takt við aukna ferða- mennsku, en núna, þegar ferðamenn- irnir eru nánast horfnir í bili, er versl- unin að laga sig að því að íbúum hefur fjölgað í fyrsta skipti í langan tíma á þessum svæðum og þeim á eftir að fjölga enn meira.“ Skapa margs konar tækifæri „Ég á von á því að við sjáum tals- verðar breytingar í miðborginni á næstu árum. Þær munu geta tekið á en þær munu líka skapa alls konar tækifæri fyrir verslanir, sem hafa kannski ekki komist að á góðum stöð- um áður, og ýmsa þjónustu. Þá erum við ekki aðeins að horfa á jarðhæð- irnar heldur líka efri hæðirnar. Það er að bætast við töluvert af nýju skrif- stofuhúsnæði en annað og eldra skrif- stofuhúsnæði að losna. Það má því sjá fyrir sér að lítil og meðalstór fyrir- tæki muni eiga mun auðveldara með að koma sér fyrir miðsvæðis en þau hafa áður. Síðustu ár hefur allt verið stútfullt.“ – Þannig að það verði aðlögun í miðbænum, eftir því sem fyrirtækin laga sig að breyttri eftirspurn og framboði af húsnæði? „Já, eflaust, en eftirspurnin verður áfram sterk við Laugaveg og í mið- borginni, á Hverfisgötu og annars staðar. Ég hef enga trú á öðru.“ – Nú hefur verið mikil umræða um Laugaveginn og fjölda auðra verslun- arrýma þar og í nágrenninu. Telurðu að leigusalar þurfi að hugsa út fyrir rammann við leit að leigjendum? „Faraldurinn skapar auðvitað sér- stakar aðstæður sem eru ekki dæmi- gerðar. En hann varir ekki að eilífu. Við höfum séð að verð hefur hækkað gríðarlega á undanförnum árum. Því er kannski ekkert óeðlilegt að einhver leiðrétting verði þar á. Hækkandi verð var auðvitað hluti af ástæðunni fyrir því að einstakar verslanir og rekstur var að færast til. Þannig að kannski getum við gert okkur vonir um betra jafnvægi þegar fram í sækir og kannski meiri langtímahugsun en að hlaupa til og hækka leigu um leið og færi gefst.“ Vilja fjölga íbúðum – Hvað með íbúðarhúsnæði í gömlu skrifstofubyggingunum sem þú nefn- ir að kunni að taka breytingum? „Við erum mjög opin fyrir því að skoða það með fasteignaeigendum að efri hæðirnar fái að þróast yfir í að vera íbúðarhúsnæði í auknum mæli og þá erum við ekki að hugsa um Airbnb eða skammtímaleigu, heldur eignaríbúðir eða íbúðir í langtíma- leigu.“ – Hvaða byggingar? „Þetta getur átt víða við á efri hæð- um miðsvæðis þar sem aðstæður leyfa. Til dæmis er fyrirséð að það losni töluvert af skrifstofuhúsnæði og atvinnuhúsnæði í Kvosinni. Annars vegar er Alþingi að byggja skrifstofur þingmanna [gegnt Ráðhúsinu] og hins vegar er Landsbankinn að fær- ast á einn stað [í nýjar höfuðstöðvar við Hörpu]. Maður hefur stundum saknað þess að það sé ekki ljós í fleiri gluggum á efri hæðunum á þessu svæði þegar húmið færist yfir á kvöldin. Þetta hefur verið svolítið hreint atvinnu- og þjónustusvæði en blöndun upp að einhverju marki get- ur verið mjög spennandi fyrir þetta svæði eins og önnur.“ Opin fyrir breytingum – Kemur til dæmis til greina að heimila að byggja ofan á núverandi skrifstofuhúsnæði Landsbankans í Tryggvagötu, svo mögulegt verði að hafa þar fleiri íbúðir? „Við höfum ekki skoðað það sér- staklega en það þarf að huga að ýmsu. Þar beint á móti er að verða til frá- bært torg við Tollhúsið en þar nýtur sólar betur en á flestum stöðum í borginni, liggur mér við að segja. Og við þurfum auðvitað að gæta okkar á að hugsa fyrir skuggavarpi, heildar- mynd og almannahagsmunum. Við erum hins vegar opin fyrir því að skoða hugmyndir sem tengjast þess- um miklu breytingum, að því gefnu að það sé í þágu almannahagsmuna og góðrar borgarþróunar á svæðinu.“ Miðborgin muni laða að sér fjölbreyttari fyrirtæki Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Breytt notkun Landsbankinn mun flytja úr skrifstofum gegnt Tollhúsinu.  Borgarstjóri segir leiguverð of hátt  Boðar fjölgun íbúða í skrifstofuhúsnæði Dagur B. Eggertsson Baldur Arnarson baldura@mbl.is Tryggvi Þór Herbertsson segir menn reiðubúna til viðræðna um staðsetningu lúxushótels við Reykjavíkurhöfn, en hann stýrir fyr- ir hönd malasíska fjárfestisins Vin- cents Tans undir- búningi að bygg- ingu Four Seasons-lúxus- hótels á Miðbakk- anum. „Það er greini- legt að það er vilji hjá borginni og höfninni til að ræða við okkur. Ég tel því eðlilegt að opna á þær við- ræður og athuga hvort eitthvað kemur út úr því. Ég fagna því ef borgin myndi fara í viðræður við okkur,“ segir Tryggvi Þór. Benda á aðra möguleika Tilefnið er viðtöl Morgunblaðsins við Dag B. Eggertsson borgarstjóra og Pawel Bartoszek, forseta borg- arstjórnar, en þeir lýsa yfir vilja til að skoða aðrar staðsetningar fyrir hótelið. Telja þeir Miðbakkann ekki henta undir hótelið sem yrði með 150 herbergjum og íbúðum í einkaeign. Örfirisey ekki til skoðunar Þá kom fram í samtali blaðsins við Magnús Þór Ásmundsson hafnar- stjóra að Faxaflóahafnir hefðu bent á óbyggðar lóðir í Örfirisey. Spurður um þessa ábendingu segir Tryggvi Þór að Örfirisey hafi ekki komið til álita sem staður fyrir lúxushótelið. Búið er að tryggja fjármögnun vegna verkefnisins innan Berjaya. „Við gætum hafið framkvæmdir um leið og tilskilin leyfi liggja fyrir. Okkur er ekkert að vanbúnaði,“ seg- ir Tryggvi Þór sem telur að hótelið geti risið á rúmum tveimur árum. Greint hefur verið frá árangri við þróun tveggja bóluefna gegn kórónuveirunni. Spurður hvaða áhrif þessi tíðindi hafi á væntingar fjárfestanna segir Tryggvi Þór að mögulega verði árið 2022 gott ár í íslenskri ferðaþjón- ustu. Hann hafi trú á að Ísland verði einna fyrst til að endurreisa ferða- þjónustuna. Það muni taka lengri tíma að koma ferðaþjónustunni í gang í stórborgunum. Fagna áhuga á lúxushótelinu  Fjárfestar reiðubúnir til viðræðna Tryggvi Þór Herbertsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.