Morgunblaðið - 05.12.2020, Side 6

Morgunblaðið - 05.12.2020, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020 Þið finnið okkur á Facebook Kaia.homedecor og á Instagram Einnig er hægt að hafa samband við okkur í síma 822 7771 eða 822 7772 Ný sending af okkar vinsælu Beija mottum komin Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Alls höfðu 78 byggingarfyrirtæki eða -verktakar skráð sig sl. fimmtu- dag til samstarfs við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vegna bygginga íbúða sem uppfylla skil- yrði hlutdeildarlána. Rúmur mán- uður er liðinn síðan opnað var fyrir umsóknir um lánin. Samkvæmt upplýsingum HMS eru áætluð byggingaráform fyrirtækjanna samanlagt 2.333 íbúðir, þar af eru 1.368 fyrirhugaðar íbúðir á höf- uðborgarsvæðinu og 965 á lands- byggðinni. Nú hafa verið gefin út samþykki fyrir 468 íbúðum sem uppfylla skil- yrði hlutdeildarlána. Þar af eru 200 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu og 268 íbúðir á landsbyggðinni, flestar í Reykjanesbæ og á Akureyri sam- kvæmt tölum sem fengust frá HMS. Samþykkt hlutdeildarlán eftir sveitarfélögum Fjöldi íbúða Sveitarfélag Fjöldi Reykjavík 171 Reykjanesbær 112 Akureyri 46 Mosfellsbær 29 Akranes 27 Hveragerði 20 Bolungarvík 10 Selfoss 9 Bíldudalur 8 Ísafjörður 8 Sandgerði 8 Sauðárkrókur 8 Blönduós 5 Sveitarfélag Fjöldi Búðardalur 2 Súðavík 2 Sveitarfélag Fjöldi Vopnafjörður 2 Vík 1 Búið er að gefa út samþykki fyrir 468 íbúð-um sem uppfylla skilyrði hlut- deildarlána 200 íbúðir eru á höfuð borgar- svæðinu og 268 á lands- byggðinni Önnur sveitarfélög Alls 468 78 á skrá með áform um alls 2.333 íbúðir Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Skipulagsfulltrúi gerir í umsögn til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur „ekki skipulagslegar athugasemdir“ við starfsemi Vöku að Héðinsgötu 2 í Laugarnesi. Íbúar við Kleppsveg höfðu kvartað undan sóðaskap á lóð- inni. Fyrirtækið hefur sótt um tíma- bundið starfsleyfi til loka árs 2021. „Frá því ég tók við fram- kvæmdastjórastöðu Vöku í byrjun júlí 2020 hef ég lagt áherslur á breytta ferla, aukið hreinlæti og auk- in afköst. Mikil breyting hefur orðið á verkferlum innan fyrirtækisins og er stefna félagsins að koma á sam- þykktu gæðakerfi,“ segir Reynir Þór Guðmundsson framkvæmdastjóri Vöku í bréfi sem hann sendi borginni 27. október síðastliðinn. Reynir segir að ásýnd svæðisins hafi batnað til muna. Á þessu svæði voru t.d. áður bifreiðar á fjórum hæðum á leið í förgun. Verkferlar fyrirtækisins í dag banni slíka stöfl- un bifreiða og nú sé svæðið eingöngu geymslusvæði fyrir vörslubifreiðar. Á Héðinsgötu 2 er geymsluað- staða fyrir ökutæki sem fjarlægð eru að beiðni Heilbrigðiseftirlits og að- staða fyrir bílauppboð, m.a. uppboð fyrir sýslumannsembættið. Einnig er þar hjólbarða- og bílaverkstæði, bílapartasala og úrvinnsla fyrir end- urvinnslu ökutækja. 15 manns vinna þar að meðaltali á hverjum tíma. Vaka hf. hefur móttekið ökutæki til úrvinnslu í fjölda ára. Á árinu 2019 var tekið á móti ríflega 4.000 öku- tækjum til úrvinnslu en á árinu 2020 má búast við allt að 8.000 ökutækj- um. Búist er við þessari aukningu miðað við þróunina á fyrstu mán- uðum ársins 2020. Allur úrgangur fer flokkaður frá starfseminni. Málmar eru flokkaðir Vaka hefur hætt að stafla bílum  Fyrirtækið sækir um tímabundið starfsleyfi á Héðinsgötu 2 til loka árs 2021  Miklar breytingar hafa verið gerðar á verkferlum  Íbúar í nágrenninu höfðu kvartað undan sóðaskap og sjónmengun á svæðinu Ljósmynd/Vaka Bíll á bíl ofan Svona var bílum staflað hjá Vöku en það er ekki gert lengur. Í baksýn má sjá hús við Kleppsveg. og seldir málmfyrirtækjum. Á Héð- insgötu 2 er gámur undir hjólbarða, brotajárn, kör undir ál, kopar, mót- ora, úrgang í urðun, plast, pappa og pappír, rafgeyma og spilliefni. Bíl- flök fara á fleti eða í gámum til brota- járnsfyrirtækja eða til útflutnings. Úrgangsolía fer í úrgangsolíutank sem Hreinsitækni eða sambærileg fyrirtæki tæma reglulega. Öðrum úrgangsvökva, sem ekki er nýti- legur, er safnað í IBC-tank sem er sendur til förgunar, segir í grein- argerð Vöku. Fram kom í frétt í Morgunblaðinu í maí sl. að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og embætti bygging- arfulltrúa borgarinnar væru að fylgj- ast með starfsemi Vöku við Héðins- götu. Hafi fyrirtækið verið krafið um bætta ásýnd og umgengni á lóð þess, til að mynda með því að fjarlægja gáma sem þar voru í leyfisleysi. Einnig að starfsemin hafi teygt sig út fyrir lóðarmörk. „Fyrirtækið flutti í Laugarnesið í byrjun árs og í febrúar tóku að berast kvartanir vegna hávaða, sjónrænna áhrifa og mögulegrar olíumengunar,“ sagði m.a. í fréttinni. Sálfstæðir leikhópar og lítil sjálfstæð leikhús sem ekki eru rekin í hagn- aðarskyni eru öll í sárum vanda vegna samkomutakmarkana og tekjufalls. Aðgerðapakkar stjórn- valda hafa lítið gagnast þessum fé- lögum og hópum, útlitið á næsta ári er svart og óvíst er hvort þau geta haldið starfseminni áfram. Þetta kemur fram í umsögnum við stjórn- arfrumvarpið um viðspyrnustyrki. Bandalag sjálfstæðra leikhúsa (SL) segir að lítil leikhús og atvinnu- hópar í sviðslistum séu útilokuð frá því að sækja þann stuðning sem boð- aður er í frumvarpinu. „Verði ekki gerð breyting þar á er hætt við að aðilar á borð við Tjarnarbíó, Gafl- araleikhúsið, Leikhópinn Lottu, Frystiklefann á Rifi og Kómedíuleik- húsið fari hreinlega í þrot,“ segir í umsögn SL. Í umsögn Gaflaraleikhússins segir að þó að lokunarstyrkir, tekjufalls- styrkir og hlutabótaleið gagnist mörgum þeirra sem starfa í listum og menningu sé ljóst að ákvæði frumvarpsins útiloki að óhagnaðar- drifið menningarfélag eins og Gafl- araleikhúsið fái stuðning frá stjórn- völdum. „Við höfum ekki fengið neina opinbera aðstoð fram að þessu því hlutabótaleið, lokunarstyrkir og tekjufallsstyrkir hafa ekki verið okk- ur opnir. Viðspyrnustyrkir til okkar gætu því gert útslagið um það hvort við lifum af þessa tíma. Í ljósi þessa leggjum við því til að óhagnaðar- drifnum félögum á launagreiðenda- skrá verði einnig gert kleift að sækja um viðspyrnustyrki og að breyting verði á 1. gr. laganna.“ omfr@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Sýning í Tjarnarbíói Tekjufallsstyrkirnir og viðspyrnustyrkirnir ná ekki til lítilla leikhúsa og atvinnuhópa í sviðslistum að mati forsvarsmanna þeirra. Gætu hreinlega farið í þrot  Sjálfstæðu leikhúsin segjast ekki fá viðspyrnustuðning samkvæmt frumvarpi stjórnvalda og útlitið sé svart

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.