Morgunblaðið - 05.12.2020, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.12.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Nú er kuldakast á landinu og ef fram fer sem horfir mun meðalhiti ársins 2020 verða nokkru lægri en hann hefur verið nokkur undanfarin ár. Meðalhiti í Reykjavík fyrstu ellefu mánuði ársins 2020 var 5,4 stig sem er 0,7 stigum ofan með- allags áranna 1961 til 1990 en -0,5 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Þetta kemur fram í tíðarfars- yfirliti Veðurstofu Íslands. Með- alhitinn raðast í 40. sæti á lista 150 ára mælinga. Á Akureyri var með- alhiti mánaðanna ellefu 4,8 stig. Það er 1,1 stigi ofan meðallags áranna 1961 til 1990 en -0,2 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhit- inn þar raðast í 22. til 24. sæti á lista 140 ára. Úrkoman hefur verið 13% umfram meðallag í Reykjavík, en 26% umfram meðallag á Akureyri. Tíð var nokkuð hagstæð í ný- liðnum nóvember og samgöngur greiðar, segir í yfirliti Veðurstof- unnar. Að tiltölu var hlýjast aust- anlands en að tiltölu kaldast sunn- an- og vestanlands. Mjög kalt var á landinu dagana 18. til 19. Óveðra- samt var á landinu dagana 4. og 5. og aftur dagana 26. og 27. Fremur kalt í höfuðborginni Meðalhiti í Reykjavík í nóv- ember var 1,9 stig og er það 0,7 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990, en -0,7 stigum undir með- allagi síðustu tíu ára. Raðast mán- uðurinn í 64. sæti í mælingum síð- ustu 150 ára. Á Akureyri var meðalhitinn 1,0 stig, 1,4 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990, en 0,3 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var meðalhitinn 2,2 stig og 3,5 stig á Höfn í Horna- firði. Sem dæmi um hitstig á Aust- urlandi má nefna að meðalhiti á Teigarhorni í Berufirði var 3,6 stig í nóvember og raðast mánuðurinn í 20. sæti af 144 árum mældum. Úrkoma í Reykjavík mældist 80,5 millimetrar, sem er 10% um- fram meðallag áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældist úrkoman 53,6 mm sem er rétt undir meðallagi ár- anna 1961 til 1990. Í Stykkishólmi mældist úrkoman 56,8 mm og 134,4 mm á Höfn í Hornafirði. Alhvítt var einn morgun í Reykjavík í nóvember, sex færri en að meðaltali 1971 til 2000. Á Akur- eyri voru alhvítir dagar sex, níu færri en í meðalári. Meðalhiti í ár lægri en undanfarin ár Morgunblaðið/Eggert Leikur í snjónum Börn og unglingar nýttu tækifærið þegar snjóaði og renndu sér á sleðum niður Arnarhól.  Tíðin var fremur hagstæð í nýliðnum nóvembermánuði Fæst í verslunum okkar á Selfossi og í Ármúla 42 KINDAsögur 2. BINDI Skipholti 29b • S. 551 4422 Fylgdu okkur á facebook SKOÐIÐNETVERSLUNLAXDAL.IS TRAUST Í 80 ÁR YFIRHÖFNIN FÆST Í LAXDAL er bæði spennandi og ógnvekjandi Bókin fæst í Eymundsson UNGMENNABÓKIN Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Rösch náttkjóll Verð 19.980 Skoðið hjahrafnhildi.is GLÆSILEGT ÚRVAL AF NÁTTFATNAÐI TILVALIN JÓLAGJÖF Opið í dag kl. 11-14 Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Vatteruð vesti Kr. 10.900.- Str. M-XXXL • 2 litir Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is Kaupandi bifreiðar ber tjón sem varð þegar vél bílsins bræddi úr sér og eyði- lagðist nokkrum mánuðum eftir að ábyrgð framleiðanda rann út. Kæru- nefnd vöru- og þjónustukaupa taldi að galli kynni að vera ástæða bilunar- innar en eigandanum hafi ekki tekist að sýna fram á það. Kvartandinn keypti nýjan bíl af gerðinni Dacia Duster, árgerð 2016, í ágúst 2016 af bílaumboði. Bíllinn bilaði 3. janúar sl. og var dreginn á verkstæði umboðsins. Í ljós kom að vélin hafði brætt úr sér og var ónýt. Bifreiðinni hafði þá verið ekið 78.500 km og liðin voru þrjú ár og rúmlega fjórir mánuðir frá því hún var keypt. Umboðið hafnaði kröfu bíleigandans um úrbætur á sinn kostnað en bauð honum helmingsafslátt af nýrri vél. Hann þurfti að nota bílinn og greiddi 585 þúsund fyrir viðgerð. Bíleigandinn kvartaði til kæru- nefndar enda taldi hann að vél bílsins hefði enst mun skemur en gera hefði mátt ráð fyrir. Umboðið benti á að ábyrgð framleiðanda hefði verið 3 ár frá kaupdegi og því runnin út. Kærunefndin benti á í niðurstöðu sinni að það geti talist galli ef sölu- hlutur endist ekki með eðlilegum hætti. Við kaup á nýrri bifreið megi neytandi almennt gera ráð fyrir að vél- in endist lengur en hér um ræðir. Hins vegar þurfi neytandi að færa sönnur á að söluhlutur hafi verið haldinn galla við afhendingu, þegar galli kemur upp meira en sex mánuðum frá afhend- ingu. Þegar svo langt sé liðið frá af- hendingu geti reynst erfitt að sýna fram á hvort galli hafi verið við afhend- ingu eða hvort bilunin hafi orðið vegna notkunar eða umhirðu. Í þessu tilviki hafi ekki verið sýnt fram á að bilunina mætti rekja til framleiðslugalla og taldi kærunefndin ekki annað fært en að hafna kröfu bíleigandans. Situr uppi með kostn- aðinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.