Morgunblaðið - 05.12.2020, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Samkvæmt frumvarpi Sigurðar Inga
Jóhannssonar, samgöngu- og sveit-
arstjórnarráðherra, verður lág-
marksíbúafjöldi sveitarfélaga 1.000
manns, en sé íbúafjöldinn minni í
þrjú ár ber ráðherra að hlutast til um
að það sameinist öðru eða öðrum
sveitarfélögum.
Miðað við íbúatölur Hagstofu Ís-
lands ná 36 sveitarfélög í landinu
ekki þessum tilskilda íbúafjölda og
mega því vænta þess að verða skikk-
uð til sameiningar á næstu árum, nái
frumvarpið fram að ganga.
Meðal sveitarfélaga sem ekki ná
þessu 1.000 íbúa máli eru Bolungar-
vík, Blönduós, Grundarfjörður og
Seyðisfjörður. Miðgildi mannfjölda í
sveitarfélögunum 36 er 473 íbúar.
Þyki sérstakar ástæður til má ráð-
herra þó veita tímabundna undan-
þágu frá lágmarksíbúafjölda í allt að
fjögur ár, en aðeins einu sinni.
Frumvarpinu er ætlað að fylgja
eftir stefnu um eflingu sveitarstjórn-
arstigsins, sjálfbærni sveitarfélaga
og bætta þjónustu við íbúa. Smærri
sveitarfélög eiga sum örðugt með að
uppfylla það allt, svo enn er haldið
áfram á braut sameiningar sveitarfé-
laga. Í greinargerð með frumvarpinu
er sérstaklega tekið fram að þetta sé
einungis fyrsta skrefið og áhersla
lögð á að þó mörkin séu sett við 1.000
íbúa sé það ekki endilega heppileg
lágmarksstærð.
Þrátt fyrir þessa yfirlýstu stefnu
hefur ánægja með sameiningar verið
mismikil. Rannsóknir benda til þess
að íbúum í sameinuðum sveitarfélög-
um þyki oft sem stjórnsýslan verði
fjarlægari og minna tillit sé tekið til
sjónarmiða á jaðarsvæðum. Oft er
kvartað undan því að stefna og
stjórn nýja sveitarfélagsins taki að-
allega mið af stærsta byggðakjarn-
anum, þar sem stjórnsýslan er. Þá er
bent á að ætluð hagkvæmni stærð-
arinnar geti reynst torsótt, en jafn-
vel alstærstu sveitarfélög hafi ekki
verið laus við lélega þjónustu eða
ólestur í fjármálum.
Mýrdalshreppur
Grýtubakki
Hörgár-
sveit Skútustaða-
hreppur
Svalbarðs-
strönd
Skaga-
strönd
Skaga-
byggð
Árnes-
hreppur
Strandir Blönduós
Ása-
hreppur
Fljóts-
dals-
hreppur
Langanesbyggð
Vopnafjörður
Svalbarðshreppur
Flóinn
Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Hvalfjarðarsveit
Eyja- og Miklaholtshreppur
Súðavík
Tálknafjörður
Reykhóla-
hreppur
DalabyggðHelgafellssveit
Grundarfjörður
Þing-
eyjar-
sveit
Akra-
hreppur
Tjörnes
Skorradalur
Bolungarvík
Grímsnes og Grafningur
Skaftárhreppur
Húnavatns-
hreppur
Kald-
rana-
nes
Kjós
Hrunamannahreppur
36 sveitarfélög þyrftu að sameinast
Ef frumvarp um 1.000 manna lágmarksíbúafjölda verður að lögum
Íbúafjöldi 2020
Heimild: Hagstofan
0 200 400 600 800 1000
Árneshreppur
Tjörneshreppur
Helgafellssveit
Skorradalshreppur
Fljótsdalshreppur
Skagabyggð
Svalbarðshreppur
Kaldrananeshreppur
Eyja- og Miklaholtshreppur
Akrahreppur
Súðavíkurhreppur
Kjósarhreppur
Ásahreppur
Tálknafjarðarhreppur
Reykhólahreppur
Grýtubakkahreppur
Húnavatnshreppur
Strandabyggð
Sveitarfélagið Skagaströnd
Langanesbyggð
Svalbarðsstrandarhreppur
Grímsnes- og Grafningshreppur
Skútustaðahreppur
Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Hörgársveit
Hvalfjarðarsveit
Skaftárhreppur
Dalabyggð
Vopnafjarðarhreppur
Flóahreppur
Mýrdalshreppur
Hrunamannahreppur
Þingeyjarsveit
Grundarfjarðarbær
Blönduóssbær
Bolungarvík
36 sveitarfélög á höggstokkinn
Frumvarp um 1.000 íbúa lágmark hvers sveitarfélags Efling sveitarfélaga markmiðið Ráðherra
skuli eiga frumkvæði að sameiningum 23 sveitarfélög undir 500 íbúum, sjö undir 100 íbúum
Fulltrúar 20 sveitarfélaga vilja að
fallið verði frá hugmyndum um lög-
festingu lágmarksfjölda íbúa í hverju
sveitarfélagi og ráðherra skuli hafa
frumkvæði að sameiningu sveitarfé-
laga til þess að uppfylla það skilyrði,
líkt og fjallað er um að ofan.
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra,
lagði nýverið fram frumvarp um það
á Alþingi, en fulltrúar sveitarfélag-
anna hyggjast leggja fram tillögu
gegn því á Landsþingi Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga (SÍS), sem
haldið verður 18. desember.
Minnt er á að sjálfsstjórnarréttur
sveitarfélaga, lýðræði og íbúa-
lýðræði, séu meginstefið hjá Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga. Lög-
festing 1.000 íbúa lágmarksstærðar
sveitarfélaga gangi þvert gegn þeirri
stefnu. Eins séu áhöld um hvort það
stenst stjórnarskrá og Evrópusátt-
mála um sjálfsstjórn sveitarfélaga.
Fulltrúarnir 20 segjast eiga von á
því, að tillagan fái góðan stuðning
fulltrúa á landsþinginu. Sá fjöldi
sveitarfélaga sem að tillögunni standi
staðfesti jafnframt að ætlaður stuðn-
ingur sveitarfélaga við íbúalágmark
hafi verið ofmetinn. Stuðningur við
hana komi fyrst og fremst frá sveit-
arfélögum, sem tillagan snertir ekki,
eða sveitarfélögum, sem telja sig
hafa beinan fjárhagslegan ávinning
af sameiningu við nágranna.
Andstaða við þvingaðar samein-
ingar sveitarfélaga er því töluverð,
einkum hjá minni sveitarfélögum en
hefur einnig orðið vart meðal fulltrúa
stærri sveitarfélaga. Benda full-
trúarnir 20 á að það færi enda þvert
gegn hlutverki og eðli SÍS ef stærri
sveitarfélög beittu sér gegn vilja og
hagsmunum minni aðildarfélaga.
„Við væntum þess að þau láti af
slíkum háttum og standi við bakið á
lýðræði og stjálfstjórnarrétti sveitar-
félaga sem löngum fyrr,“ segir m.a. í
tilkynningu sveitarfélaganna. „Þar
sem sameiningar eru skynsamlegar
munu þær ná fram að ganga án
þvingana. Mikill fjárhagslegur
stuðningur við sameiningar sem nú
er í boði er hvetjandi, enda er tölu-
vert að gerast í sameiningarmálum
og sú þróun mun halda áfram. Sam-
einingar undir formerkjum nauð-
ungar verða hins vegar aldrei til
heilla.“
Leggjast gegn
íbúalágmarki
Fulltrúar 20 sveitarfélaga segja
tillöguna andstæða lýðræðinu