Morgunblaðið - 05.12.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.12.2020, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020 jólagjöfina Gullbúðin er með Bankastræti 6 • Sími 551 8588 Snusdósir 6.900 56.900 44.900 27.500 26.900 82.900 65.300 63.000 84.500 5.900 14 kt 35.900 Demantar 84.900 5.500 mantur 8.500 De 2 Demantar 63.900 Demantar 69.900 8.900 15.500 5.900 19.900 TAILS skartgripirogur.is 4.900 11.400 8.900 ingahúsi, Harbour Restaurant, í gamla vélaverkstæði SR sem stend- ur á góðum stað við höfnina. Byrjað var á að moka öllu út úr húsinu en nú er uppbygging hafin og stefna þau að því að opna veitingastaðinn í maí með þeirri von að þá verði ástandið í heiminum komið í eðlilegra horf en nú er og ferðamenn farnir að láta sjá sig.    Undanfarin ár hefur orðið mik- il aukning á sorpi sem berst til Gámaþjónustunnar á Skagaströnd. Þar hefur portið fyllst af bílhræjum og alls kyns skrani aftur og aftur. Þess vegna er fyrirtækið nú að stækka athafnasvæði sitt til að geta betur sinnt flokkun og annarri vinnu með ruslið sem til þeirra berst. Heimilissorp, annað en pappír, er enn urðað hjá Norðurá bs. við Stekkjarvík í landi Sölvabakka.    Í framhaldi af velgengni sölu- bíls Vörusmiðju Biopol, sem ekur um Norðurland vestra og selur vörur smáframleiðenda, hefur smiðjan opnað netverslum með sömu eða sams konar vörur. Slóðin inn á netsíðuna er www.voru- smiðja.is og þar getur fólk pantað vörur sem það fær síðan sendar heim. Að sögn Þórhildar Jónsdóttur, sem sér um Vörusmiðjuna, hefur umferð um netsíðuna stöðugt verið að aukast og fólk ánægt með þessa nýju þjónustu.    Nú um mánaðamótin er að koma út fyrsta bók Ástrósar El- ísdóttur, sem hér býr á Skagaströnd með fjölskyldu sinni. Bókin heitir Jól undir Spákonufelli og hefur að geyma fjórar sögur sem allar gerast sama kvöldið á sama sögusviði nokkrum dögum fyrir jól. Fallegar teikningar prýða bókina en þær gerði vinur Ástrósar, Ítalinn Tom- maso Milella. Ástrós, sem lokið hef- ur meistaranámi í ritlist, hefur unnið nokkuð við þýðingar fram að þessu en stígur nú sín fyrstu skref sem rit- höfundur.    Þá er ekki úr vegi að minnast á eina af „tengdadætrum Skaga- strandar,“ Ann Thorsson, sem gefið hefur út tvær bækur sínar, Downhill árið 2019 og nú í haust kom svo út bókin Dark Dreams. Báðar eru bæk- urnar skrifaðar á ensku sem er móð- urmál Ann. Hafa bækurnar báðar hlotið fjórar eða fimm stjörnur hjá Amazon og öðrum slíkum veitum sem gefa út gagnrýni á bækur.    Uppbyggingarsjóður Norður- lands vestra er fjármagnaður af sóknaráætlun fyrir okkar lands- hluta. Sjóðurinn hefur 70 milljónir til að úthluta til hinna ýmsu verk- efna á sviði menningar, at- vinnuþróunar og nýsköpunar. Ný- lega lauk umsóknarfresti í sjóðinn og bárust honum 123 umsóknir þar sem óskað var eftir 228 milljónum í styrki. Það er því augljóst að úthlut- unarnefndanna bíður erfitt verk við að flokka umsóknirnar og ákvarða hvaða verkefni hljóta styrki að þessu sinni. Einbýlishús rísa á Skagaströnd Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Skagaströnd Framkvæmdir eru hafnar við nýtt einbýlishús á Skagaströnd. Ný íbúðarhús hafa ekki risið í bænum í allnokkur ár. ÚR BÆJARLÍFINU Ólafur Bernódusson Skagaströnd Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsti í september nokkrar ókeyp- is byggingarlóðir við götur sem eru fullfrágengnar fyrir löngu. Tvær lóðir gengu strax út og þessa dagana er verið að skipta um jarðveg undir innflutt einbýlishús á annarri þeirra. Þetta telst til tíðinda því allmörg ár eru síðan síðast var byggt einbýlis- hús á Skagaströnd. Til samanburðar má geta þess að einbýlishúsalóðir í Úlfarsárdal kosta 12 – 15 milljónir en annar byggingakostnaður er sambærilegur hér og þar.    Minna hefur veiðst af rjúpu á þessu veiðitímabili en áður því lítið er af fugli. Þá hefur Covid-19 og þríeykið orðið til þess að mun færri veiðimenn af höfuðborgarsvæðinu hafa komið norður til veiða. Reyndar höfum við verið heppin á Skaga- strönd því hér hefur ekkert smit komið upp fram að þessu.    Eftir að Kántrýbær hafði staðið auður í nokkur misseri var hann seldur á uppboði nú á dögunum. Engin starfsemi hefur verið í húsinu frá því að veitingastaðurinn Borgin lokaði. Nýir eigendur Kántrýbæjar auglýstu svo fljótlega húsið til leigu eða sölu.    Talandi um veitingageirann. Tvenn bjartsýn hjón vinna nú hörð- um höndum að því að koma upp veit-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.