Morgunblaðið - 05.12.2020, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 05.12.2020, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Íslenskakvennalands-liðinu tókst í vikunni að tryggja sér sæti í loka- keppni Evr- ópumeistaramóts- ins í knattspyrnu með sigri á Ung- verjum. Þetta er í fjórða skipti í röð sem liðið fer á lokakeppni EM og er þessi árangur til marks um það hversu fram- arlega íslensk kvennaknatt- spyrna stendur. Þá má líka halda því til haga að hjá kon- unum komast 16 lið í lokakeppn- ina, en 24 hjá körlunum. Frammistaða Íslands í riðla- keppninni var til fyrirmyndar. Liðið sigraði í sex leikjum, gerði eitt jafntefli, tapaði einum leik og varð í öðru sæti á eftir Sví- um. Augljóst er að á Íslandi er vel staðið að uppbyggingu kvenna- boltans. Íslensk félagslið hafa spjarað sig vel í Evrópukeppni og sýnt að þau eiga fullt erindi í keppni með þeim bestu. Íslenskir leikmenn hafa einn- ig farið víða, leikið með fé- lagsliðum í fremstu röð beggja vegna Atlantshafs og getið sér gott orð. Til marks um það er að markavélin Margrét Lára Við- arsdóttir varð í þrígang marka- hæst í Evrópukeppni félagsliða og í sumar varð Sara Björk Gunnarsdóttir Evrópumeistari með liði sínu Lyon eftir að hafa orðið deildarmeistari með Wolfsburg í Þýska- landi. Það er ekki sjálf- gefið að komast í lokakeppni hinna bestu í Evrópu fjór- um sinnum í röð. Sá árangur ber vitni mikilli breidd. Hér er ekki bara um að ræða eina gullaldarkynslóð, heldur koma jafnt og þétt fram nýir og efni- legir leikmenn með hæfileika og getu til að feta í fótspor þeirra, sem rutt hafa brautina. Það hefur verið magnað að fylgjast með velgengni liðsins í áranna rás og sérstaklega ánægjulegt að oftar en ekki er íslenska liðið í þeirri stöðu að þurfa að halda boltanum og sækja á andstæðinginn í stað þess að þurfa að verjast og sæta færis til að skora. Nú tekur við löng bið hjá landsliðinu því að lokakeppnin fer ekki fram fyrr en árið 2022. Þessu veldur kórónuveiran eins og svo mörgu öðru. Liðið gerir sér vonir um að ná langt á EM. Sara Björk orðaði það í viðtali við Morgunblaðið að „í þetta skiptið viljum við ná ein- hverjum alvörumarkmiðum og gera eitthvað almennilegt á mótinu“. Íslenska landsliðið á heiður skilinn fyrir árangurinn sem var innsiglaður með sigrinum í Ungverjalandi og hefur alla burði til að láta að sér kveða á Englandi 2022. Glæsilegt afrek. Íslenska landsliðið náði stórum áfanga með því að tryggja sig í lokakeppni EM í fjórða sinn} Glæsilegt afrek Forvitnilegurdómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í vik- unni þegar ríkið var dæmt til að endurgreiða raf- tækjaversluninni Elko tæpar 18,8 milljónir króna vegna of- tekinna eftirlitsgjalda. Í frétt ViðskiptaMoggans af málinu kom fram að samkvæmt rík- isreikningi hefði gjald af eft- irlitsskyldum raftækjum skilað 82,5 milljónum króna í ríkis- sjóð árið 2019. Dómurinn kveð- ur á um endurgreiðslu fjögur ár aftur í tímann þannig að ætla mætti að ríkið þurfi að endurgreiða nokkur hundruð milljónir. Í dómnum er tekið fram að ríkið beri frumkvæð- isskyldu og mun þá þurfa að greiða alla upphæðina til baka standi dómurinn. En hverjum á að greiða þessa peningana? Gjaldið er lagt á tækin og er því hluti af verðinu, sem neytandinn greið- ir. Neytandinn hefur því greitt gjaldið, sem nú á að renna aft- ur til seljendanna þótt þeir hafi eingöngu verið milliliður. Hlutverk þeirra var að sjá um að innheimta gjaldið og koma því til skila. Spyrja má hvort tjón verslunarinnar sé nokkurt og hvort hún eigi yfirhöfuð tilkall til peninganna. Nú er rétt að geta þess að gjaldið er aðeins 0,15% af toll- verði vörunnar og nemur því nokkrum krónum eða nokkur hundruð krónum í mesta lagi af hverri vöru. Hins vegar má gera ráð fyrir að yfirleitt hafi verið notuð greiðslukort við raftækjakaupin, öll viðskiptin séu skráð og bakfærslum fylgir frekar einföld umsýsla, sem ríkið hlyti að bera af kostnað. Eftir stendur að tjónið af hinu ólöglega gjaldi báru neyt- endur og þeir munu ekki fá það bætt. Það hlýtur því að mega gera ráð fyrir að þær verslanir, sem fá peningana standi dómurinn, skili þeim aftur til neytenda með ein- hverjum hætti og rétt að taka fram að í viðtali við forsvars- menn Elko í Morgunblaðinu í gær kemur fram að það sé ætl- unin. Hver á að fá end- urgreitt, kaupand- inn eða millilið- urinn?} Hver á peningana? A f öllum þeim gildum sem mér voru innrætt í æsku hefur þrautseigj- an líklega reynst mér best. Sá eiginleiki að gefast ekki upp þótt móti blási, að standa aftur upp þegar maður missir fótanna og trúa því að dropinn holi steininn. Að lærdómurinn sem við drögum af mistökum styrki okkur og auki lík- urnar á að sett mark náist. Þannig hef ég kom- ist gegnum áskoranir í lífi og starfi og stundum náð árangri sem mér þótti fjarlægur í upphafi. Seigla hefur frá aldaöðli þótt mikil dyggð. Til hennar er vísað með beinum og óbeinum hætti í helstu trúarritum heimsins, heimspeki og stjórnmálum. Jesús Kristur og Búdda töl- uðu um þrautseigju, John Stuart Mill um seiglu og Martin Lúther King sagði fólki að hlaupa ef það gæti ekki flogið, ganga ef það gæti ekki hlaupið og skríða ef það gæti ekki gengið. Lyk- ilatriði væri, að hreyfast fram á við hversu hratt sem mað- ur færi! Í gömlu máltæki segir að þolinmæði vinni allar þrautir, en hitt er nær sanni að þrautseigjan geri það. Það dugar ekki alltaf að anda rólega þegar eitthvað bjátar á, heldur þarf að bretta upp ermar. „Trúðu á sjálfs þíns hönd, en undur eigi – upp með plóginn, hér er þúfa í vegi,“ orti Ein- ar Ben í hvatningarljóði til þjóðarinnar fyrir 120 árum og þau skilaboð eiga enn við. Þannig mun slagurinn við heimsfaraldur aðeins vinnast ef við tökum saman höndum. Vinnum sem einn maður að því að tryggja heilsu almenn- ings, velferð, atvinnustig og menntun þeirra sem erfa landið. Það síðastnefnda hefur tekist ótrúlega vel, enda hafa hagaðilar í mennta- kerfinu unnið náið saman, sýnt mikið úthald og þrautseigju. Það er því viðeigandi að þraut- seigjan sé tilgreind sem eitt af gildum nýrrar menntastefnu sem nú er rædd á Alþingi. Megininntak menntastefnunnar er að allir geti lært og allir skipti máli. Þar gildir einu bakgrunnur fólks, félagslegar aðstæður og meðfæddir eiginleikar, því saman ætlum við að stuðla að jöfnum tækifærum allra nemenda. Skipuleggja menntun og skólastarf út frá ólík- um þörfum fólks og gefast ekki upp þótt móti blási. Það er nefnilega ekki vöggugjöfin sem skýrir námsárangur heldur viðhorfið til menntunar, vinnusiðferðið og tiltrúin á að námsgeta sé ekki fasti heldur vaxi þegar hlúð er að henni. Á sama hátt ræðst árangur okkar í lífinu ekki af forskrifuðum örlögum, heldur líka vinnunni sem við leggjum á okkur, afstöðu okkar til málefna og siðferðinu sem við ræktum með okkur. Stundum er sagt að seigla sé þjóðareinkenni Íslend- inga. Hún hafi haldið lífinu í okkur í þúsund ár, á meðan við kúrðum í torfbæjum fyrri alda. Vafalaust er margt til í því, þótt Íslendingar einir geti tæpast slegið eign sinni á seigluna. Þvert á móti hefur hún verið uppspretta fram- fara um allan heim og verður það áfram. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Við gefumst aldrei upp þótt móti blási Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þetta er besta jólagjöfin semhægt er að hugsa sér,“segir Sveinn Guðmunds-son, formaður Félags sumarhúsaeigenda, um frumvarp fjármálaráðherra um breytingar á lögum um tekjuskatt og fjármagns- tekjuskatt. Þar er meðal annars tek- ið á gömlu baráttumáli félagsins, að sala á frístundahúsum verði skatt- lögð á sama hátt og íbúðarhúsnæði. Við sölu fólks á frístundahúsum myndast söluhagnaður, samkvæmt núverandi reglum, og borga þarf af honum 22% fjármagnstekjuskatt og ef fólkið nýtur lífeyris úr almanna- tryggingakerfinu getur söluhagn- aðurinn skert bótarétt þess. Sölu- hagnaðurinn reiknast sem mis- munur á söluverði og kaupverði, að frádregnum endurbótum sem fólk kann að hafa gert grein fyrir á skatt- framtali jafnóðum. Þó er heimilt að telja helming söluverðs sem sölu- hagnað. Er fólk þá að borga 11% af söluverðinu í fjármagnstekjuskatt og þá skerðir helmingur söluverðs- ins einnig tekjutengdar bætur úr al- mannatryggingakerfinu. Kemur illa við fólk Getur þetta komið afar illa við venjulegt fólk, að sögn Sveins Guð- mundssonar, og komið hefur fyrir að fólk hafi hringt grátandi til hans til að spyrja hvort eitthvað væri hægt að gera. Hann hafi ekki haft nein ráð og aðeins getað veitt þau svör að vonast væri eftir skilningi stjórn- valda á þessu óréttlæti í framtíðinni og lagfæringu í kjölfarið. Sveinn leggur áherslu á að frístundahús séu hjá almennum borgurum ekki fjár- festing í hagnaðarskyni. Fólk sé að koma sér upp sælureit fyrir fjöl- skylduna, til að dvelja og njóta nátt- úrunnar. Það sé í raun hluti af heim- ili fólks. Fólk sem hætt er að vinna dvelji þar oft stóran hluta ársins. Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra sagði frá dæmi um órétt- lætið sem felst í mismunandi skatt- lagningu frístundahúsa og annarra íbúða fólks í ræðu sinni þegar hann mælti fyrir frumvarpinu. Eftirfar- andi er í aðalatriðum byggt á því. Einstaklingur í Reykjavík ákveður að selja frístundahús í Grímsnesi eftir að hann hefur misst maka. Við það myndast skattskyldur stofn til fjármagnstekjuskatts og réttindi viðkomandi til lífeyris í al- mannatryggingakerfinu skerðast einnig. Annar einstaklingur á sama aldri og með sömu aðstæður selur íbúð á Selfossi í nágrannasveit- arfélaginu Árborg í kjölfar maka- missis. Hjónin bjuggu í Reykjavík og höfðu notað íbúðina á Selfossi í frístundum eða leigt hana út. Að öðr- um skilyrðum uppfylltum hefði sölu- hagnaður af íbúðinni ekki verið skattlagður og tekjurnar ekki leitt til skerðingar á lífeyrisréttindum. Sömu reglur gildi Þetta meinta óréttlæti á að leið- rétta með því að fella frístundahús til eigin nota undir sömu ákvæði og aukaíbúðir fólks, þó þannig að fólkið þarf að hafa átt sumarbústaðina í fimm ár fyrir sölu en ekki tvö ár. Í báðum tilvikum þarf sam- anlagt húsnæði einstaklings að vera innan við 600 rúmmetrar að stærð og 1.200 rúmmetrar hjá hjónum. Áætla má að 120 fermetra íbúð geti verið um 300 rúmmetrar og 50 fer- metra sumarbústaður 150 rúmmetr- ar. Til að ná 1.200 rúmmetra há- markinu hjá hjónum þarf húsnæði þeirra að vera 500 fermetrar að stærð, gróft reiknað. Sést á þessu að almennir borgarar ná ekki þessum hámörkum. Frístundahús fái sömu meðferð í skatti Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Frístundahús Ríkið hefur tekið til sín hluta af söluverði frístundahúsa með fjármagnstekjuskatti og skert auk þess lífeyrisréttindi fólksins. Aðalbreytingin í frumvarpi fjár- málaráðherra felst í því að hækka frítekjumarki vaxta- tekna úr 150 þúsund kr. í 300 þúsund kr. á ári. Jafnframt eru tekjur af arði og sölu- hagnaði hlutabréfa í skráðum fé- lögum felldar undir frí- tekjumarkið. Tilgangurinn með þessu er að auðvelda almenn- ingi að fjárfesta í íslenskum fyrirtækjum. Gert er ráð fyrir því að tekjur ríkisins muni minnka um 1,5 til 1,8 milljarða vegna þessa. Mest munar um hækk- un frítekjumarks vaxtatekna, 770 milljónir kr., og niðurfell- ingu á söluhagnaði frístunda- húsnæðis, 600-700 milljónir króna. Frítekjumark vaxta hækkar LAGAFRUMVARP Bjarni Benediktsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.