Morgunblaðið - 05.12.2020, Síða 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
Bökunarsett
(box, kökukefli og smákökumót)
4.590,-
Barnasvunta
4.190,-
Fyrir börnin
MINI
Til hamingju með daginn
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er ekkert vit í öðru en að hafa
alla hluti á þurru þegar taka þarf ákvörðun
í mikilvægu máli. Gættu þess þó að vera
ekki of aðgangsharður við aðra.
20. apríl - 20. maí
Naut Sumar aðstæður hefur þú ekki á
valdi þínu svo þú þarft að reikna með þeim
án þess að geta breytt þeim.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert dásamlega heillandi
þessa dagana og getur talað þig í gegnum
hvaða uppákomur sem er. Haldir þú festu
þinni gegnum þykkt og þunnt mun enginn
reyna að andmæla.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það eru margar spurningar sem
leita á þig. Hristu af þér slenið og haltu
ótrauður áfram, því verkið er svo sann-
arlega á þínu meðfæri.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér er nauðsynlegt að brydda upp á
einhverju nýju til þess að gefa lífinu lit. Ef
um er að ræða rétta sambandið, muntu
finna það á þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert sannkallaður gleðigjafi.
Deildu hugmyndum þínum með öðrum, en
gættu þess að útskýra þær nógu vel.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert með mikilvæga hluti á prjón-
unum. Hér kemur gamaldags hugmynd:
Labbaðu um með vini og léttu á hjarta
þínu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Hikaðu ekki við að segja hug
þinn, hver sem í hlut á. En þú þarft að
breyta því hvernig þú hugsar um tiltekið
vandamál.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er erfitt að velja, þegar
vegir liggja til allra átta. Reyndu að lesa í
hug samstarfsmanna þinna og fáðu þá svo
til að tjá sig.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Óvænt tækifæri berst þér upp í
hendurnar og þér er fyrir bestu að nýta
þér það til hins ýtrasta. Afleiðingin getur
orðið aukin framleiðni og meiri skilvirkni;
betri árangur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Leggðu frá þér allan hroka svo
þú getir af auðmýkt og lítillæti þegið þau
ráð sem þér eru gefin af góðum hug.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft að geta einbeitt þér að
viðkvæmu vandamáli í einkalífi þínu. Not-
aðu kvöldið til að spjalla við góðan félaga.
sem við gátum öll verið saman.
Fjölskyldan flutti í Hlíðabæ í Hval-
fjarðarstrandarhreppi árið 2001 og
Inga Birna vann ýmis tilfallandi
störf þar til hún var ráðin í ritara-
starf á skrifstofu nýstofnaðs sveit-
arfélags Hvalfjarðarsveitar. Þá var
nýbúið að ráða Einar Örn Thorla-
cius sveitarstjóra, en hann kom úr
Reykhólahreppi, þar sem Inga
Birna er núna sveitarstjóri. „Í
þegar hún var sjö ára og var hjá
þeim upp frá því. Eftir sex ár vildi
Ingi Birna flytja sig nær sinni fjöl-
skyldu og þau fóru aftur í Hafn-
arfjörðinn og hún vann ýmis störf.
„Við bjuggum í litlu húsi í Hafn-
arfirði og það stóð til að Brynja,
dóttir Hjalta, flytti til okkar, en
húsið var ekki nógu stórt. Svo við
fórum að líta í kringum okkur og
fundum við húsnæði í Hvalfirði þar
I
ngibjörg Birna Erlingsdóttir
fæddist 5.12. 1970 á Pat-
reksfirði þar sem hún ólst
upp fyrstu fjögur ár ævinn-
ar. Þaðan flutti hún til Sel-
foss og byrjaði í forskóla fimm ára
en flutti stuttu síðar til Hafn-
arfjarðar og gekk í Lækjarskóla
allan grunnskólann. „Ég fór öll
sumur vestur á Patreksfjörð til
ömmu minnar og afa. Afi, sem var
útgerðarmaður og gamall sjómað-
ur, tók alltaf á móti mér með því
að fara með mig í smárúnt um
þorpið og kaupa ís. Hann var alveg
í guðatölu hjá mér. Amma prjónaði
lopapeysur fyrir fólk og var líka
með græna fingur og ræktaði mik-
ið, m.a. rósir, og þar fékk ég að
hjálpa til og huga að plöntunum.
Það voru mörg börn á mínum aldri
á Patró og ég átti mjög góða vini
þar.“
Inga Birna lauk grunnskólanum
vorið 1986 og hóf nám í Flensborg-
arskóla um haustið og útskrifaðist
sem stúdent um jólin 1991. Þegar
hún var átján ára var verið að gera
við blokkina þar sem hún bjó og
þar sá hún Hjalta, eiginmann sinn,
fyrst. „Við litum hvort annað hýru
auga í svolítinn tíma, en svo bauð
hann mér út og það var allt mjög
rómantískt,“ segir hún. Nítján ára
flutti hún að heiman og leigði með
Hjalta í Hafnarfirði, en tveimur ár-
um síðar ákváðu þau að flytja á
Siglufjörð, í heimabæ hans. „Við
sáum að það gæti verið góður stað-
ur til að koma sér upp húsnæði og
hefja lífið. Hjalti fór á undan mér
norður, en ég kom eftir útskriftina
og við keyptum okkur hús og eign-
uðumst fyrsta barnið.“
Þegar Inga Birna var nýkomin
norður var auglýst eftir stúlku á
tannlæknastofu Ólafs Thorarensen
og hún sótti um og fékk starfið.
Eftir að eiga fyrsta barnið 1993
starfaði hún sem leiðbeinandi í
grunnskóla Siglufjarðar í tvo vetur
og vann um tíma í rækju- og fisk-
vinnslu Þormóðs Ramma. Árin á
Siglufirði urðu sex góð ár. Hjalti
átti þrjár dætur frá fyrra sambandi
og elsta dóttirin, Zanný, flutti til
Ingu Birnu og Hjalta á Siglufirði
Hvalfirðinum var engin aðstaða, en
skrifstofan var í Melahverfinu, og
ég byrjaði á því að kaupa inn skrif-
stofudót. Eftir á að hyggja var
þetta gífurlega góður skóli því ég
kynntist svo mörgum þáttum
starfsins. Ég starfa þarna sem rit-
ari og síðar skrifstofustjóri til árs-
ins 2010, en þá sæki ég um sem
sveitarstjóri í Reykhólahreppi og
flyt þangað haustið 2010.“
Hjalti hafði verið að gera upp
gamla báta og var kominn í sam-
band við menn að setja upp báta-
safn á Reykhólum. „Þetta var svo-
lítið eins og að stinga sér í djúpu
laugina. Ég hafði mjög góða
reynslu úr Hvalfjarðarsveit og
þekkti vel til margra þátta starfs-
ins, en þarna er ég ein og sjálf með
alla ábyrgðina. Eftir átta ár í starfi
fann Inga Birna að hún þurfti að-
eins að breyta til og hætti eftir
kosningarnar 2018. Það varð úr að
hún hóf störf sem framleiðslustjóri
hjá Norðursalti á Reykhólum og lét
svo gamlan draum rætast og fór í
háskólanám í miðlun og almanna-
tengslum hjá Bifröst í Borgarfirði.
„Ég tek svo aftur við starfi sveit-
arstjóra Reykhólahrepps vorið
2020. Það var ofboðslega mikill
munur að koma aftur eftir að fara
aðeins frá þessu og mér fannst ég
fá nýja sýn á starfið,“ segir Ingi-
björg sem unir sér hvergi betur en
úti í sveit. „Ég held að ást mín á
Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri – 50 ára
Sveitarstjórinn Í fjörunum er fyrir utan Norðursalt verksmiðjuna 2019.
Alltaf best að vera í sveitinni
Hjónin Inga Birna og Hjalti eru ánægð fyrir vestan. Börnin F.v.: Eiður Rafn, Birna Björt, Inga Birna og Hlynur.
Reykjavík Vignir Bragi Halldórsson
fæddist 30. mars 2020 kl. 0.03. Hann vó
3.970 g og var 52 cm langur. Foreldrar
hans eru Halldór Atli Þorsteinsson og
Sólrún Bragadóttir.
Nýr borgari
30 ára Hjördís ólst
upp í Bárðardal í
Þingeyjarsýslu og
býr núna í Að-
aldalnum í sömu
sýslu. Hjördís er sál-
fræðingur og starfar
sem barnasálfræð-
ingur og námsráðgjafi í Þingeyj-
arskóla. Hún hefur mikinn áhuga á
sauðfjárrækt og borðspilum og að
lesa góðar bókmenntir.
Maki: Guðmundur Árni Hreiðarsson, f.
1992, skólaliði í Þingeyjarskóla.
Barn: Óðinn Máni, f. 2018.
Foreldrar: Friðrika Sigurgeirsdóttir, f.
1959, og Ólafur Ólafsson, f. 1959. Þau
eru bændur á Bjarnastöðum í Bárð-
ardal.
Hjördís
Ólafsdóttir
30 ára Elísabet Ýrr
ólst upp í Mosfells-
bænum en býr núna í
Reykjavík. Hún er
sjúkraliði og með BA-
próf í uppeldis- og
menntunarfræði. Hún
starfar sem sértækur
stuðningsfulltrúi í grunnskóla. Helstu
áhugamál hennar eru prjónaskapur og
hún er að prufuprjóna fyrir verslunina
Stroff og svo hefur hún gaman af spilum
og tónlist.
Börn: Emilía Birna, f. 2015 og Þórir
Hrafn, f. 2018.
Foreldrar: Jón Jósep Bjarnason, f. 1958,
gervigreindarsérfræðingur og Emilía
Helga Þórðardóttir, f. 1960, vinnur hjá
Happdrætti Háskóla Íslands. Þau búa í
Mosfellsbænum.
Elísabet Ýrr
Jónsdóttir