Morgunblaðið - 05.12.2020, Side 53

Morgunblaðið - 05.12.2020, Side 53
DÆGRADVÖL 53 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020 Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna Hreinsandi • Vatnslosandi • Gott fyrir meltinguna • Getur lækkað blóðsykur Getur dregið úr slímmyndun • Gott fyrir þvagblöðru, lifur og nýru Aðeins ein tafla á dag og ekkert bragð! Eplaedik – lífsins elexír „Í ágúst í fyrra greindist ég með of háan blóðsykur og var sagt að skera niður í mat og drykk til að reyna að laga þetta. Ég skar niður sætindi, sem getur verið erfitt, en með því að taka inn eina töflu af Apple Cider daglega tókst mér að halda mér við efnið. Ég fór aftur í mælingu ummiðjan janúar og þá hafði blóðsykurinn lækkað niður í eðlileg viðmið, þrátt fyrir að vera komin niður í eðlilegt viðmið ætla ég að halda áfram að taka þessar töflur því þær gera svo ótalmargt annað gott fyrir mig. Mæli 100%með Apple Cider frá New Nordic.“ Bjarni Ómar Zach Elíasson Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „TVO REIKNINGA, TAKK.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að senda knús og kossa. ÉG ER Í NÝJU ÓSÝNILEGU GÖNGUSKÓNUM MÍNUM Í ÓSÝNILEGU GÖNGUFERÐINNI MINNI ÉG ER METSÖLUHÖFUNDUR! ÞÚ HLÝTUR AÐ VERA MOLDRÍKUR! ÞAÐ VÆRI ÓSKANDI! SÖLULAUNIN MÍN ERU ÖMURLEG OG ÚTGEFANDINN MINN ER Í KASTALANUM SÍNUM AÐ TELJA PENINGA! LEYFÐU MÉR AÐ SEGJA ÞÉR HVAÐ ÉG GERI OG HVERNIG ÉG GET HJÁLPAÐ… „ÞESSAR ERU FRÁ „HVÍTÞVOTTAR” TÍMABILINU HANS.” Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Hæð ei stóra hér má sjá. Hreppur á Austurlandi þá. Býsna algengt bókum á. Bæir þetta heiti fá. Helgi Þorláksson svarar: Fell er hæð og heldur lág, hreppinn Fell ég forðum sá, fell í bækur brúka má, bæir heiti af fellum fá. Hér kemur lausn Þorgerðar Haf- stað: Fellið hátt við himin ber, Helga á bókfell ritar, Fellshreppur í eyði er, amma á Felli stritar. Kjartan Eggertsson leysir gát- una þannig: Úlfarsfell er hæð ei há. Hest í Fellahreppi veit. Bókfell hannað höndum á. Heita bæir Fell í sveit. Helgi R. Einarsson svarar: Í Mosó eru fell ei fá. Fellahreppur austurfrá. Bókfellið er bókum á. Bæinn Fell má víða sjá. Sigmar Ingason á þessa lausn: I Fellahreppi var fínt að búa fellin og klettana finna þar má. Að bókfellum gömlum ber að hlúa bæjarnafnið Fell má víða sjá. Guðrún B. svarar: Þó gjói inn, má ganga á fell í gamla Fellahreppi. Bókfellið hlaut skjótan skell. „Skoðum Fell!“ kvað seppi. Eysteinn Pétursson Út um allt má fellin finna. Fellahrepp þarf vart að kynna. Bókfellið er borðleggjandi. Bærinn Fell er víða á landi. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una svona: Lágafell er fjall ei bratt. Í Fellahreppi oft var glatt. Bókfellið er bókum á. Bæinn Fell hér nefna má. Þá er limra eftir Guðmund: Vesæll er Fúsi á Felli og fráleitt mikill á velli, hrumur og ljótur sá horaði þrjótur, en hann er sterkur á svelli. Og ný gáta efir Guðmund: Rýkur fönn um fjallatind, freyðir alda á sjónum, gátan fauk út í veður og vind, en vonandi finnst í snjónum: Oft hann gengur opna með. Úr henni margir sletta. Í fjalli langa laut hef séð. Loks er sauðkind þetta. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Þau eru mörg fellin náttúrunni komi frá dvölinni hjá afa og ömmu á Patró.“ Fjölskylda Eginmaður Ingu Birnu er Hjalti Hafþórsson, f. 21.6. 1966, fram- leiðslustjóri Norðursalts. Foreldrar hans eru Jónína Brynja Gísladóttir, húsmóðir á Siglufirði, f. 18.9. 1947, og Hafþór Hafþórsson, sjómaður á Siglufirði, f. 4.6. 1943. Þau eru skil- in. Börn Ingu Birnu og Hjalta eru: 1) Eiður Rafn, f. 8.10. 1993, nemi; 2) Birna Björt, f. 10.8. 2002, nemi; 3) Hlynur, f. 5.11. 2004, nemi og búa öll í Reykhólahreppi. Stjúp- börn Ingu Birnu eru 4) Zanný Lind Hjaltadóttir, f. 23.9. 1985, við- skiptalögfræðingur í Húnavatns- hreppi, gift Jóhanni Hólmari Ragn- arssyni, f. 23.9. 1978. Börn þeirra eru Björk Dögun Victorsdóttir, f. 10.7. 2005; Anna Rakel Jóhanns- dóttir, f. 18.5. 2010, og Mikael Leví Jóhannsson, f. 29.5. 2012. 5) Brynja Hjaltadóttir, f. 2.2. 1987, innan- hússarkitekt í Tyresö í Svíþjóð, í sambúð með Simon Elmqvist inn- kaupastjóra, f. 1.2. 1984. Þau eiga soninn Frank Erni Símonarson Elmqvist, f. 13.3. 2019. 6) Hafdís Elva, f. 17.3. 1990 á Selfossi, í sam- búð með Andra Karli Helgasyni, f. 23.06. 1989. Börn þeirra eru Daníel Karl Andrason, f. 13.05. 2011, og Snædís Freyja Andradóttir, f. 13.12. 2014. Systkini Ingu Birnu eru Ester Erlingsdóttir, f. 24.5. 1972, versl- unarkona í Hafnarfirði; Þröstur Erlingsson, f. 19.6. 1975, flugvirki og flugeftirlitsmaður í Hafnarfirði. Hálfbróðir Ingu Birnu samfeðra er Hermann Þór Erlingsson, f. 20.10. 1964, viðskiptafræðingur í Reykja- vík. Foreldrar Ingu Birnu eru hjónin Jóhanna Björnsdóttir, f. 3.10. 1951, síðast meðhjálpari í Hafnarfjarð- arkirkju, og Erling Rafn Ormsson, f. 15.6. 1943, síðast bílstjóri í Hafn- arfirði. Ingibjörg Birna Erlingsdóttir Björn Filippus Andrésson sjómaður á Bíldudal Anna Jónatansdóttir húsfreyja á Tálknafirði Björn Jónatan Björnsson útgerðarmaður á Patreksfirði Hulda Guðbjörg Helgadóttir verkakona og húsfreyja á Patreksfirði Jóhanna Björnsdóttir meðhjálpari í Hafnarfirði Guðmundur Helgi Símonarson maskínumaður á Þingeyri Jóhanna Bjarnadóttir húsfreyja á Þingeyri Ormur Ormsson rafvirkjameistari í Borgarnesi Helga Kristmundsdóttir húsfreyja í Borgarnesi Ormur Guðjón Ormsson rafvirki í Njarðvík Hulda Hrefna Jóhannesdóttir húsfreyja í Hafnarfirði Jóhannes Jóhannesson bakari í Hafnarfirði Jóna Guðlaug Jóhannsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði Úr frændgarði Ingibjargar Birnu Erlingsdóttur Erling Rafn Ormsson bílstjóri í Hafnarfirði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.