Morgunblaðið - 05.12.2020, Qupperneq 55
ÍÞRÓTTIR 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020
Ég hef stundum velt því fyrir
mér hvort Bandaríkin geti
nokkru sinni átt gott knatt-
spyrnulandslið í karlaflokki. Þá
meina ég á heimsmælikvarða,
eins og kvennalandslið þeirra er.
Bandaríska karlalandsliðið hefur
undanfarna áratugi gert sig
heimakomið á HM en hefur
lengst komist í 16 liða úrslit.
Ef nýlegur hópur þeirra er
skoðaður virðist manni sem
ágætis grundvöllur sé fyrir því að
eignast gott landslið á næstu ár-
um. Christian Pulisic er þeirra
helsta stjarna og spilar með
Chelsea í ensku úrvalsdeildinni.
En hann er ekki eini bandaríski
leikmaðurinn sem er að gera það
gott með toppliði í Evrópu.
Sergino Dest er byrjunar-
liðsmaður hjá Barcelona og We-
ston McKennie er það sömuleiðis
hjá Juventus. Tyler Adams spilar
reglulega með RB Leipzig og
Josh Sargent gerir slíkt hið sama
hjá Werder Bremen.
Þá er ónefndur Giovanni
Reyna, sem er aðeins 18 ára
gamall og spilar alla leiki með
Borussia Dortmund. Yunus Mu-
sah er jafnaldri hans og byrjar
alla leiki hjá Valencia. Einnig má
nefna Konrad de la Fuente hjá
Barcelona og Chris Richards hjá
Bayern München, sem hafa báðir
spilað sína fyrstu leiki fyrir stór-
veldin á þessu ári.
Þetta eru alls níu leikmenn
sem ég hef talið upp. Það athygl-
isverða er að elstu leikmennirnir
í þessari upptalningu eru aðeins
22 ára, þeir Pulisic og McKennie.
Það skyldi þó aldrei vera að
Bandaríkin verði komin með
samkeppnishæft karlalandslið á
næstu árum? Í það minnsta
verður maður þess áskynja að
mikil spenna er fyrir upprenn-
andi kynslóð hjá þjóðinni.
Kannski réttilega.
BAKVÖRÐUR
Gunnar Egill
Daníelsson
gunnaregill@mbl.isKnattspyrnumennirnir Kári Árna-
son og Þórður Ingason hafa báðir
framlengt samninga sína við Víking
í Reykjavík. Kári til eins árs og
Þórður til tveggja en þetta kom
fram á blaðamannafundi Víkinga í
Fossvoginum í gær. Kári, sem er 38
ára gamall, er uppalinn í Víkinni og
á að baki farsælan fimmtán ára at-
vinnumannsferil en hann sneri aft-
ur til Víkinga í júní 2019. Þórður er
32 ára gamall en hann gekk til liðs
við Víkinga í janúar 2019. Viðtöl við
þá Kára og Þórð má nálgast á
mbl.is/sport/efstadeild.
Framlengdu í
Fossvoginum
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Reynsla Kári Árnason á að baki 37
leiki í efstu deild með Víkingum.
Grindvíkingar þurfa að sjá á eftir
fyrirliða karlaliðsins í knattspyrnu
því Gunnar Þorsteinsson er á leið til
útlanda og ætlar ekki að leika á
næsta keppnistímabili.
Í færslu á Facebook-síðu Grinda-
víkur kemur fram að Gunnar ætli
að taka sér frí frá knattspyrnuiðk-
un á næsta ári.
Gunnar er á leið í nám á nýju ári í
auðlindaverkfræði við hinn kunna
Columbia-háskóla í New York.
Gunnar er 26 ára gamall og hef-
ur verið lykilmaður í liði Grindavík-
ur síðustu árin. kris@mbl.is
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
New York Gunnar Þorsteinsson er á
leið til Bandaríkjanna.
Gunnar nemur
við Columbia
Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkastari úr
Ármanni, og Guðni Valur Guðna-
son, kringlukastari úr ÍR, voru val-
in frjálsíþróttafólk ársins en Frjáls-
íþróttasambandið tilkynnti um valið
á heimasíðu sinni í gær.
Ásdís lauk keppnisferli sínum á
árinu eins og hún hafði ákveðið fyr-
ir löngu og frestun Ólympíu-
leikanna haggar ekki þeirri ákvörð-
un. Hún yfirgefur sviðið sem
frjálsíþróttakona ársins en Ásdís
náði á árinu fjórða lengsta kasti
sínu á ferlinum. Kastaði Ásdís 62,66
metra og á þrettánda lengsta kastið
í heiminum í ár.
Guðni Valur á stigahæsta afrek
Íslendings á árinu ef hoft er til
stigalista Alþjóðafrjálsíþrótta-
sambandsins. Reyndar er það stiga-
hæsta afrek Íslendings frá upphafi
að sögn FRÍ. Guðni Valur sló þrjá-
tíu og eins árs gamalt Íslandsmet
Vésteins Hafsteinssonar þegar
hann kastaði kringlunni 69,35 metra
í september. Stórbætti Guðni raun-
ar metið en met Vésteins var 67,74
metrar. Kast Guðna var fimmta
lengsta kastið í heiminum í ár og
bætti hann eigin frammistöðu um
tæpa fjóra metra.
Þjálfari ársins var valinn Pétur
Guðmundsson, Íslandsmethafi í
kúluvarpi, sem þjálfar einmitt
Guðna Val í kringlukastinu.
sport@mbl.is
Ásdís og Guðni sköruðu fram úr í frjálsum íþróttum
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Methafi Guðni Valur átti risakast í
september og stórbætti sig.
Skapti Hallgrímsson
Síðasta árið Ásdís Hjálmsdóttir er
hætt og horfir ekki um öxl.
okkur hvort niðurstaðan hafi verið
röng. Það er samt mjög erfitt að
sanna það og það átti að taka allt að
48 klukkustundir. Daginn eftir
sjáum við í fjölmiðlum í Noregi að
þjálfarinn þeirra er líka með já-
kvæða prófniðurstöðu og greindist
sama dag og Vegard,“ bætti Snorri
við.
Morguninn eftir var svo greint
frá því að niðurstaðan í jákvæðu
prófi þjálfara Norðmanna hefði
verið fölsk. „Þá kvikna svolítið
margar spurningar hjá okkur
vegna þess að þetta tók aðeins 12
klukkustundir hjá norska liðinu.
Við förum að hringja út um allt og
ég finn það út hjá konu á skrifstof-
unni á svæðinu að Norðmennirnir
hafi borgað finnskum lækni 200.000
krónur fyrir próf sem tók styttri
tíma. Þá urðum við afskaplega reið-
ir því okkur var aldrei boðið svo-
leiðis próf, svona hraðpróf,“ sagði
hann.
Fékk ekki að keppa
Annað próf Snorra og Vegard var
sent til skoðunar og tók hinar hefð-
bundnu 48 klukkustundir að fá end-
anlega úr því skorið. Á fyrsta
keppnisdegi í sprettgöngu á föstu-
deginum var Snorri tilbúinn að
hefja leik, þar sem hann og Vegard
áttu að fá niðurstöðu úr prófinu í
tæka tíð þann daginn. Skömmu áð-
ur en Snorri átti að byrja var hon-
um hins vegar tilkynnt að það þyrfti
að skoða prófið betur og hann gæti
því ekki keppt þann daginn.
Niðurstaðan í prófi beggja reynd-
ist neikvæð og hafði Vegard því
fengið falskt jákvætt próf upp-
haflega. Á þessum tímapunkti var
Snorri búinn að missa af heilum
keppnisdegi og ekki búinn að geta
æft í viku. Hann fékk undanþágu til
þess að keppa á laugardeginum og
sunnudeginum en skaðinn var skeð-
ur.
„Ég þurfti að byrja í síðasta sæti.
Ég er ekkert rosalega góður í
sprettgöngu hvort eð er en ég hef
aldrei lent í síðasta sæti áður. Á
laugardeginum fann ég að við vor-
um enn þá svolítið langt niðri. Við
vorum að reyna að snúa þessu upp í
eitthvað jákvætt en vorum mjög
búnir á því,“ sagði Snorri, sem gekk
ekki nægilega vel þann daginn.
Honum gekk þó betur á síðasta
degi keppninnar, þar sem hann
náði að vinna sig upp í 58. sæti
heildarkeppninnar af 72 þátttak-
endum.
„Þetta var svolítið erfið byrjun á
tímabilinu þar sem ég var svo neð-
arlega og langt á eftir. En sunnu-
dagurinn var alveg rosalega góður,
mér fannst það vera mjög fín
keppni. Vonandi er það gott vega-
nesti fyrir Tour de Ski,“ sagði
Snorri að lokum. Áætlað er að Tour
de Ski, sem fer fram víðs vegar um
Evrópu, hefjist 1. janúar á nýju ári.
Ótrúleg atburðarás þegar
Snorra var meinað að keppa
Ljósmynd/Ski.is
Skíðakappi Snorri Einarsson keppir í heimsbikarnum í skíðagöngu í Ruka í Finnlandi um síðustu helgi.
Gat ekki æft Missti af fyrsta keppnisdegi Ósáttur að fá ekki hraðpróf
HEIMSBIKARINN
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Snorri Einarsson skíðagöngumað-
ur lenti í miklum ógöngum um síð-
ustu helgi, þegar hann tók þátt í
fyrstu umferð heimsbikarsins í
skíðagöngu í Ruka í Finnlandi.
Ógöngurnar hófust þegar einn af
þjálfurum hans, Vegard Karlstrøm,
greindist með kórónuveiruna. Ekki
var þó allt sem sýndist.
„Þetta var svolítið skrítin ferð.
Ég fór í kórónuveirupróf á Íslandi,
alvöru PCR-próf. Þegar ég kom til
Finnlands fór ég bara í mótefna-
mælingu. Ég reyndist alveg nei-
kvæður og hélt mínu striki,“ sagði
Snorri í samtali við Morgunblaðið.
„Ég var kominn til Finnlands
þremur dögum á undan þjálf-
aranum mínum og aðilanum sem
ætlaði að hjálpa mér með skíðin.
Svo koma þeir seint um nótt og
fara í próf um morguninn. Í prófinu
reyndist Vegard jákvæður. Við
vorum saman í íbúð og vorum þá
auðvitað búnir að vera í sama her-
bergi, grímulausir, í meira en 15
mínútur,“ hélt hann áfram. Því
þurftu Snorri og Vegard að fara í
sóttkví hvor í sínu lagi.
„Þá fóru í hönd þrír dagar þar
sem ég hef aldrei á ævinni talað
jafn mikið í símann. Það var ekki
hægt að fá neitt út úr þeim sem
voru að halda mótið. Það var eng-
inn sem vissi neitt og enginn sem
vildi taka ábyrgð á neinu. Mér
fannst skrítið að ég skyldi ekki fá
kórónuveiruna úr því að við vorum
búnir að vera þarna saman. Vegard
var heldur ekki með nein einkenni.
Það var heldur enginn heima hjá
honum með nein einkenni. Hvernig
fékk hann þá kórónuveiruna? Bara
á leiðinni í bílnum sjálfur, frá Nor-
egi til Finnlands?
Við byrjuðum að velta því fyrir
FH mun ekki
leika í Evrópu-
keppni félagsliða í
handknattleik
eins og til stóð en
félagið hefur
ákveðið að draga
sig úr keppni.
Hafnfirðingar
áttu að mæta
Robe Zubri frá
Tékklandi í 3. um-
ferð keppninnar en fyrri viðureign
liðanna átti að fara fram 12. desem-
ber í Kaplakrika og síðari viðureignin
19. desember í Tékklandi. „Hand-
knattleiksdeild FH og HC Robe
Zubri frá Tékklandi hafa undanfarna
viku verið í daglegum samskiptum
vegna fyrirhugaðra leikja liðanna í
Evrópukeppninni í handknattleik,“
segir í yfirlýsingu FH-inga. „Því mið-
ur hafa strangar sóttvarnareglur á
Íslandi undanfarna mánuði, æfinga-
og keppnisbann, og gríðarlegar kröf-
ur yfirvalda á keppnislið sem koma til
landsins, verið okkur íþyngjandi, og í
raun gert okkur ókleift að leika á Ís-
landi. Reglugerð á landamærum Ís-
lands sem kveður á um sóttkví við
heimkomu FH-liðsins frá Tékklandi
er einnig með þeim hætti að ótækt er
að taka þátt. Handknattleiksdeild
FH hefur því neyðst til að draga lið
sitt úr Evrópukeppninni,“ segir enn
fremur í tilkynningu FH.
Drógu sig úr
Evrópukeppni
félagsliða
Sigursteinn
Arndal