Morgunblaðið - 05.12.2020, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 05.12.2020, Qupperneq 56
Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Því fyrr á æviskeiðinu sem við töl- um við börn um fjölbreytileikann, því auðveldara gerum við börnum sem eru á einhvern hátt utan við normið að líða ekki eins og þau séu ein í sínum aðstæðum. Okkar draumur er að öll börn, hvort sem þau eru í hinsegin fjölskyldum, fötl- uð eða af erlendum uppruna, geti speglað sig og sinn veruleika með einhverjum hætti í þessari bók,“ segja þær Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir, höfundar nýrrar barnabókar sem heitir Vertu þú!, en bókin sú geymir lit- ríkar sögur af fjölbreytileikanum og hvetur til fordómaleysis og víðsýni. „Þessi hugmynd að bók hefur velkst með okkur allan þann tíma sem við höfum verið foreldrar. Ingi- leif kom inn í líf mitt og eldri stráksins okkar þegar hann var fimm ára og við áttuðum okkur fljótlega á hversu lítill fjölbreyti- leiki er í barnabókum. Þar eru per- sónur oft mjög einsleitar og strák- urinn okkar spurði hvers vegna það væri aldrei neinn í bókunum sem átti fjölskyldu eins og hann, með tveimur mömmum,“ segir María Rut og bætir við að þegar þær Ingileif stofnuðu fyrir fjórum árum fræðsluvettvang á samfélags- miðlum, Hinseginleikann, þá hafi þær ákveðið að skrifa barnabók sem væri af sama meiði. „Þar fáum við allskonar fólk til okkar sem segir sína sögu og við erum svo heppnar að nokkrir þeirra einstaklinga hafi leyft okkur að nota sínar sögur í bókinni. Allar sögurnar eru sannar en í nokkrum þeirra höfum við breytt nöfnum. Okkur finnst mikilvægt að börn geti séð að það er raunveruleg manneskja af holdi og blóði þarna úti sem er eins og þau. Þetta er ekki skáldskapur og því geta börnin horft til einstaklinga sem eru að spjara sig úti í samfélaginu, einmitt af því að þeir eru þeir sjálfir.“ Börn eru ekki fordómafull „Útgangspunkturinn í bókinni er að við erum öll einstök, eigum öll ólíka drauma, ólík áhugamál og við lítum ólíkt út, en við erum öll manneskjur sem búa saman í sam- félagi. Það að einhver sé ólíkur okk- ur þýðir ekki að okkur geti ekki lík- að vel við viðkomandi. Við samtvinnum allan fjölbreytileikann í þeim skilaboðum sem felast í titli bókarinnar: Vertu þú. Um leið og við fengum hugmyndina að bókinni þá vissum við að við vildum ekki að- eins fókusera á hinsegin, heldur líka á aðra sem eru á jaðrinum. Ekki einvörðungu börn í hinsegin fjölskyldum upplifa að þau séu ein í sínum aðstæðum, líka börn sem finna til dæmis fyrir kvíða og vita ekki hvaða tilfinning það er og kunna ekki að tækla það af því að þau halda að engum öðrum líði þannig. Börn sem á einhvern hátt eru utan við normið mæta líka oft fordómum, en okkar reynsla af börnum er sú að þau eru ekki manneskjurnar sem eru fordóma- fullar, það er fullorðna fólkið, en börnin bergmála stundum viðhorf þeirra. Fordómar, stríðni og einelti byggist mikið á fáfræði en líka menningarvanda. Sérstaklega í miðstigi grunnskóla og unglinga- stigi, þá er ákveðinn húmor í gangi sem er oft mjög niðrandi fyrir minnihlutahópa. Okkar von með þessari bók er að hægt sé að taka samtalið strax og börnin eru lítil, til að koma í veg fyrir að krökkum sé strítt eða þau séu útilokuð af því þau eru á einhvern hátt öðruvísi en fjöldinn.“ Nokkur tár féllu hjá okkur Þær Ingileif og María segja að foreldrar í hefðbundnu fjölskyldu- formi hafi haft orð á því við þær hversu erfitt þeim finnist að byrja samtöl við börnin sín um fjölbreyti- leikann. „Við viljum með bókinni gefa þeim tækifæri til að byrja slíkt samtal við börnin. Þess vegna spyrjum við börnin spurninga í bókinni og út frá þeim geta skapast ótrúlega skemmtilegar umræður milli barns og foreldris, eða þess einstaklings sem er að lesa með þeim, afa eða ömmu, frænku eða frænda,“ segja þær stöllur og bæta við að þær hafi nú þegar fengið fyrirspurnir frá kennurum sem nota bókina í lestri hjá krökkum í fyrstu bekkjum grunnskóla. „Bókin okkar er líka notuð á leik- skólum til að skapa þessa umræðu og við erum afar ánægðar með. Við finnum hversu mikil þörf er í raun fyrir svona bók, líka fyrir trans- börn, en við segjum söguna af Ronju í bókinni, transstelpu sem við kynntumst á Hinseginleikanum. Hennar saga er nú þegar farin að hjálpa öðrum transbörnum og við höfum fengið ótrúlega falleg skila- boð þar um. Meðal annars frá einni lítilli transstelpu sem hefur verið að reyna að fikra sig áfram og ekki vitað hvernig hún ætti að koma út fyrir öðrum í fjölskyldunni. Eftir að hún las bókina þá ákvað hún að stíga fram sem transbarn og breytti nafni sínu í Ronja. Nokkur tár féllu hjá okkur við þessi tíðindi og yndislegt að bókin hafi auðveld- að barni að þora að vera eins og það er.“ Bókin er líka fyrir fullorðna Ingileif og María Rut segjast sannfærðar um að allt fullorðið fólk í dag, sem er að ala upp börn, muni mæta þeirri áskorun að þurfa að taka þessa umræðu við börnin sín, því sýnileikinn sé orðinn það mikill, sem betur fer. „Okkur þykir mjög vænt um skilaboð sem við höfum fengið frá fullorðnu fólki sem segir að það hafi ekki síst sjálft lært mikið á því að lesa bókina okkar. Þetta er nefni- lega líka bók fyrir fullorðna, fyrir alla sem koma að uppeldi barna, líka ömmur og afa, því það er kannski helst eldra fólk sem er að kljást við öll þessi nýju hugtök. Þetta fólk talar um að það hafi við lestur bókarinnar fengið innsýn í fjölbreytileikann, hvað hann sé „allskonar“.“ Allar sögurnar eru sannar  Við erum öll einstök, eigum ólíka drauma, ólík áhugamál og lítum ólíkt út  Ingileif og María Rut hafa sent frá sér bókina Vertu þú!  Bókin geymir litríkar sögur af fjölbreytileikanum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fjölskylda Mömmur tvær, María Rut og Ingileif með hundinn Míló og son sinn Rökkva. Eldri sonur þeirra, Þorgeir, var vant við látinn. María Rut og Ingileif segja skipta miklu máli að fræða börn snemma um fjölbreytileikann. 56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020 Ævintýraheimur, önnurvídd eða jafnvel plán-eta er sögusvið Skóg-arins, lokabindis í þríleik Hildar Knútsdóttur. Skóg- urinn leynist handan skápsins í ris- herberginu við Skólastræti og nú fær Kría loks svör við ótal spurn- ingum sem hafa ásótt hana frá menntaskólaárunum í MR. Skógurinn gefur fyrri bókunum, Ljóninu og Norninni, lítið eftir en undirrituð verður að viðurkenna að hún taldi það fullvíst að von væri á Skápnum í lokabindinu. Hildur heldur hins vegar áfram að koma á óvart og verður því vísunin í Nar- níubækur C.S. Lewis ekki full- komnuð, að minnsta kosti ekki um sinn. Líkt og í fyrstu bókinni er Kría í aðal- hlutverki, nú sem gömul kona (eða hvað?) og hefst sagan þar sem Norninni lauk; Kría fórnar sér fyrir dóttur- dóttur sína Ölmu sem lesendur þekkja svo vel úr annarri bókinni og fær þá loks að sjá hvað býr handan skápsins. Án þess að segja of mikið endurnýjar hún kynnin við hinn dularfulla Dav- íð í skóginum ásamt fleiri persónum frá æskuárunum. Þríleikurinn er fyrst og fremst ungmennabókmenntir en á meðan Nornina má einnig flokka sem lofts- lagsbókmenntir má alveg flokka Skóginn sem vísindaskáldskap þar sem Hildur fer nú alla leið í sköp- uninni. Heimurinn handan skápsins er framandi og þó svo að þar sé að finna fólk, vatn og gróður líkt og í raunheimum, er samt eins og raun- veruleikinn sé bjagaður. Það á Kría erfitt með, vísindakonan sem hún er. „Kannski er ekkert ómögulegt,“ skrifar Alma í bréfi til ömmu Kríu og það er ekki fyrr en þá sem Kría virðist sætta sig við hlutskipti sitt í þessu nýja lífi í nýja heiminum og þá loks hefst atburðarás sem heldur lesandanum við efnið. Skógurinn er gríðarlega fram- andi og ef til vill þess vegna grípur hún lesandann ekki jafn snemma og Ljónið og Nornin gerðu. Kannski er það óþreyjan að fá loks svör við öll- um spurningunum sem veldur eða kannski er það hið óþekkta handan skápsins sem flækir málin. Hildi tekst engu að síður að lýsa heim- inum sem hún skapar með heillandi hætti og enn á ný sýnir hún að frumlegri höfund er líklega ekki að finna hér á landi. Lýsingin á því sem fyrir augu ber er afar mynd- ræn og væri gaman að sjá á hvíta tjaldinu, það væri að minnsta kosti ekki amalegt að sjá Jennifer Law- rence í hlutverki Kríu. Skógurinn er lokabindi þríleiks- ins líkt og áður segir en tilfinningin þegar lestrinum lýkur er samt sem áður ekki sú að komið sé að leiðar- lokum. Það er ekki öllum spurn- ingum svarað. Kemur kannski Skápurinn eftir allt saman? Morgunblaðið/Hari Höfundurinn „Skógurinn gefur fyrri bókunum, Ljóninu og Norninni, lítið eftir,“ skrifar gagnrýnandi um nýja og heillandi sögu Hildar Knútsdóttir. Ævintýri Skógurinn bbbbn Eftir Hildi Knútsdóttur. JPV, 2020. Innb., 311 bls. ERLA MARÍA MARKÚSDÓTTIR BÆKUR „Kannski er ekkert ómögulegt“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.