Morgunblaðið - 08.12.2020, Page 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2020
✝ Ingibjörg JónaGilsdóttir
fæddist 15. maí
1940 í Reykjavík,
hún lést á Landa-
koti 30. nóvember
2020 eftir langvar-
andi veikindi.
Foreldrar henn-
ar voru Rannveig
Lárusdóttir, fædd
1914, dáin 1998, og
Gils Jónsson, fædd-
ur 1906, dáinn 1967. Systkini
hennar: Anna Auðunsdóttir,
fædd 1935, dáin 2017,
Hafsteinn Gilsson, fæddur
1941, og Matthías Gilsson,
fæddur 1949, dáinn 2001.
Ingibjörg giftist Finni Valdi-
marssyni 27. september 1957,
fæddum 1936 að Hlíð í Álfta-
firði í Ísafjarðardjúpi, hans for-
eldrar voru Guðrún Kristjáns-
dóttir, fædd 1902, dáin 1986, og
Valdimar Veturliðason, fæddur
1909, dáinn 1992. Systkini
Finns voru 10 og eru fjögur
þeirra á lífi.
Ingibjörg og Finnur eign-
uðust þrjár dætur,
Rannveigu Finnsdóttur,
fædda 1956, eiginmaður hennar
er Kristján Þormar Gíslason,
fæddur 1955, og eiga þau fjög-
Ingibjörg ólst upp í miðbæ
Reykjavíkur fyrstu árin og síð-
an flutti fjölskyldan í Bústaða-
hverfið, hennar skólaganga
var Miðbæjarbarnaskólinn og
Austurbæjarskólinn og var
hún virk í starfi KFUM/
KFUK. Ingibjörg og Finnur
byrjuðu sinn búskap í Reykja-
vík og fluttu 1958 til Keflavík-
ur þar sem Finnur vann á
Keflavíkurflugvelli og bjuggu
þau þar í rúm 40 ár. Ingibjörg
vann við veitingasölu þegar
hún bjó í Reykjavík, en í
Keflavík fór hún að vinna við
búðarstörf þegar dætur henn-
ar voru orðnar nógu gamlar
að passa þá yngstu. Síðan
starfaði hún í kaffiteríunni í
gömlu flugstöðinni á Keflavík-
urflugvelli og þegar nýja flug-
stöðin var opnuð vann hún í
flugeldhúsinu hjá Flugleiðum.
Þau flytja til Reykjavíkur 1998
og vann hún á Vitatorgi/
Dagdeild aldraða í 9 ár. . Ingi-
björg og Finnur ferðuðust
mikið, bæði innanlands í úti-
legum og á húsbílnum, og ut-
anlandsferðirnar voru fjöl-
margar.
Útförin fer fram frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag, 8.
desember 2020, klukkan 15.
Vegna aðstæðna í þjóðfélag-
inu verður aðeins nánasta fjöl-
skylda viðstödd útförina.
https://youtu.be/Ns8eeQq7548
Virkan hlekk á streymi má
nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
ur börn.
Finnur, eig-
inkona hans er
Lena Johanna Rei-
her og eiga þau
þrjú börn,
Svanhildur, sam-
býlismaður hennar
er Claus Henrik
Holm og á hann
tvö börn frá fyrra
sambandi.
Ívar Orri, eig-
inkona hans er Harpa Jóns-
dóttir og eiga þau tvö börn.
Fjóla Finnsdóttir, fædd 1959,
eiginmaður hennar er Sigurjón
Sveinn Rannversson, fæddur
1958, og eiga þau þrjá syni,
Rannver, sambýliskona hans
er Rakel Orra Amin og eiga
þau fjögur börn.
Viktor, sambýliskona hans er
Thelma Björg Kristinsdóttir og
eiga þau fjögur börn.
Oliver, sambýliskona hans er
Halla Björg Ólafsdóttir og eiga
þau eina dóttur.
Áslaug Finnsdóttir, fædd
1963, eiginmaður hennar er
Jónas Guðjónsson, fæddur
1959, og eiga þau eina dóttur.
Ingibjörg, sambýlismaður
hennar er Víðir Jónasson og
eiga þau tvö börn.
Yndislega mamma mín er lát-
in og þeir sem þekktu hana vita
hversu góð og ljúf hún var, við
elskuðum hana.
Fjölskyldan var henni allt og
ekkert var betra en að hafa fólk-
ið sitt hjá sér, söknuðurinn er
mikill. Hún var tilbúin að fara í
Sumarlandið laus við allar þraut-
ir, spókar sig þar í sólinni eins og
hún gerði á Kanarí, góða ferð
elskuleg.
Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að
sér.
Hún heitast þig elskaði’ og fyrirgaf
þér.
Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur og
hlíf.
Hún er íslenska konan, sem ól þig og
þér helgaði sitt líf.
Með landnemum sigldi’hún um
svarrandi haf.
Hún sefaði harma. Hún vakti’er hún
svaf.
Hún þerraði tárin. Hún þerraði blóð.
Hún var íslenska konan, sem allt á að
þakka vor þjóð.
Ó! Hún var ambáttin hljóð.
Hún var ástkonan rjóð.
Hún var amma, svo fróð.
Ó! Athvarf umrenningsins,
inntak hjálpræðisins,
líkn frá kyni til kyns.
Hún þraukaði hallæri, hungur og fár.
Hún hjúkraði’og stritaði gleðisnauð ár.
Hún enn í dag fórna sér endalaust má.
Hún er íslenska konan, sem gefur þér
allt sem hún á.
Ó, hún er brúður sem skín!
Hún er barnsmóðir þín
eins og björt sólarsýn!
Ó! Hún er ást, hrein og tær!
Hún er alvaldi kær
eins og Guðsmóðir skær!
Og loks þegar móðirin lögð er í mold
þá lýtur þú höfði og tár falla’á fold.
Þú veist, hver var skjól þitt, þinn
skjöldur og hlíf.
Það var íslenska konan sem ól þig og
gaf þér sitt líf.
En sólin, hún sígur, og sólin, hún rís,
og sjá: Þér við hlið er þín hamingjudís,
sem ávallt er skjól þitt, þinn skjöldur
og hlíf:
Það er íslenska konan, tákn trúar og
vonar,
sem ann þér og þér helgar sitt líf.
(Ómar Ragnarsson)
Guð geymi þig móðir mín kær
Rannveig.
Yndislega mamma mín sem
ég elska svo mikið er flutt í Sól-
arlandið fagra og þar finnast
engar þrautir. Ég veit að vel
verður tekið á móti henni af ætt-
ingjum og vinum sem kvöddu
allt of snemma.
Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að
sér.
Hún heitast þig elskaði og fyrirgaf þér.
Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur
og hlíf.
Hún er íslenska konan sem ól þig og
þér helgar sitt líf.
Með landnemum sigldi hún um
svarrandi haf.
Hún sefaði harma, hún vakti er hún
svaf.
Hún þerraði tárin hún þerraði blóð.
Hún var íslenska konan sem allt á að
þakka vor þjóð.
Ó, hún var ambáttin hljóð
hún var ástkonan rjóð
hún var amma svo fróð.
Ó, athvarf umrenningsins
inntak hjálpræðisins
líkn frá kyni til kyns.
Hún þraukaði hallæri, hungur og fár.
Hún hjúkraði og stritaði gleðisnauð ár
Hún enn í dag fórna sér endalaust
má.
Hún er íslenska konan sem gefur þér
allt sem hún á.
Ó, hún er brúður sem skín
Hún er barnsmóðir þín.
Hún er björt sólarsýn.
Ó, hún er ást, hrein og tær
Hún er alvaldi kær.
Eins og Guðsmóðir skær.
Og loks þegar móðirin lögð er í mold
þá lýtur þú höfði og tár falla á fold.
Þú veist hver var skjól þitt, þinn
skjöldur og hlíf.
Það var íslenska konan sem ól þig og
gaf þér sitt líf.
En sólin hún hnígur og sólin hún rís.
Og sjá þér við hlið er þín hamingjudís,
sem ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur og
hlíf.
Það er íslenska konan, tákn trúar og
vonar,
sem ann þér og þér helgar sitt líf.
(Ómar Ragnarsson)
Minningarnar af lífshlaupi
okkar saman geymi ég í hjarta
mínu, elsku mamma, þú kenndir
mér svo margt og ég sakna þín
endalaust, hafðu þökk fyrir allt
og allt.
Áslaug Finnsdóttir.
Þá hefur ástkær tengdamóðir
mín, Ingibjörg Jóna Gilsdóttir,
oftast kölluð Dedda, kvatt þessa
jarðvist eftir veikindi á erfiðum
tímum sem þetta ár hefur verið.
Það hefur verið erfitt fyrir ást-
vini að hugsa til hennar á sjúkra-
húsi og geta ekki heimsótt hana
og ekki síður að geta ekki fengið
tækifæri til að kveðja á dánar-
stundu. En minningar síðustu 47
ára vináttu og umhyggjusemi
birtast í hugskoti og ylja á
stundu sem þessari, en 1973
kynntist ég henni Ranný, elstu
dóttur þeirra hjóna. Heimsóknir
til Keflavíkur og síðar til Reykja-
víkur þar sem okkur fjölskyld-
unni var alltaf tekið opnum örm-
um af henni og Finna
tengdapabba, samvera um jól og
áramót, sumarferðalög með þeim
en þau hjónin voru afar dugleg
að ferðast um landið – fyrst með
tjald, svo tjaldvagn en síðar á
húsbíl. Voru þau einnig dugleg
að koma í heimsókn til okkar
austur á Hellu, vestur í Dali og
Ingibjörg Jóna
Gilsdóttir
✝ Sigrún VigdísViggósdóttir
fæddist í Reykjavík
2. október 1948.
Hún lést á líkn-
ardeild Landspít-
alans 28. nóvember
2020.
Foreldrar Sig-
rúnar voru Viggó
Einar Gíslason, f.
14. júlí 1905, d. 21.
mars 1985, vélstjóri
á togurum frá Reykjavík, og Ása
Sigríður Björnsdóttir, f. 24. maí
1905, d. 17. febrúar 1951, hús-
freyja. Fósturmóðir María Bene-
diktsdóttir, f. 25. maí 1910, d. 3.
maí 1999, húsfreyja. Bræður
Sigrúnar eru: Hilmar, f. 14. febr-
úar 1939, fv. útibússtjóri Lands-
banka Íslands, Gísli, f. 3. maí
1943, verkfræðingur, og Björn,
f. 29. júlí 1946, tæknifræðingur.
Árið 1980 giftist Sigrún Inga
Eiginmaður Maríu er Helgi Þór
Harðarson, f. 16. júlí 1975. Börn:
Sunna Gló, f. 16. nóvember 2005,
Sóley Kría, f. 31. desember 2008,
og Dagur Nói, f. 4. nóvember
2013.
Sigrún ólst upp í foreldra-
húsum í Mávahlíð 24 í Reykja-
vík, gekk í Barnaskóla Austur-
bæjar og Gagnfræðaskóla
Austurbæjar. Hún stundaði
ýmsa vinnu eins og þá var til
siðs, var í sveit hjá frænku sinni
á Öxl í Þingi, síðar á Egilsá í
Skagafirði og um tíma sem barn-
fóstra sendiherrahjóna Íslands í
Kaupmannahöfn. Hún lauk prófi
frá Fósturskóla Íslands 1974,
starfaði um tíma á Akureyri,
Engjaborg, Jöklaborg, Háls-
aborg og Heiðarborg og var um
tíma forstöðukona í Efrihlíð.
Útför Sigrúnar fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag, 8. des-
ember 2020, klukkan 15. Vegna
aðstæðna geta aðeins nánir að-
standendur og vinir verið við-
staddir. Athöfninni verður
streymt: https://youtu.be/
oKosvfFuVAU
og má nálgast virkan hlekk á
https://www.mbl.is/andlat
Karli Guðmunds-
syni húsasmið, f. 7.
febrúar 1952, þau
skildu. Börn þeirra:
1) Guðmundur Lár,
f. 9. desember 1980.
Eiginkona Nanna
Björk Bjarnadóttir,
f. 29. mars 1982.
Börn: Daníel Þór, f.
18. október 2015,
og Ásgeir Ísak, f. 2.
júlí 2018. 2) Ása
Sigríður, f. 24. maí 1982. Sam-
býlismaður Svavar Páll Pálsson,
f. 29. apríl 1981. Börn: Svala
Vigdís, f. 29. desember 2009,
Hjalti Valur, f. 13. febrúar 2012,
og Matthías Ingi, f. 7. febrúar
2018. 3) Viggó Már, f. 30. desem-
ber 1983. Sambýliskona Ásta
Björk Guðmundsdóttir, f. 9. jan-
úar 1991. Fyrir átti Sigrún dótt-
urina Maríu Ingibjörgu, f. 5. júlí
1976, með Ragnari Gunnarssyni.
Það er komið að kveðjustund.
Hvernig fáum við best lýst bestu
mömmu í heimi um leið og við
reynum að segja frá hennar
góðu eiginleikum í einni stuttri
minningargrein þegar svo margs
er að minnast.
Mamma var einstök kona og
yndisleg móðir. Hún var hlý og
ljúf með stóran faðm sem rúm-
aði okkur öll systkinin. Hún var
alltaf til staðar fyrir okkur.
Mamma hlúði vel að okkur
systkinum og nærði okkur með
ást sinni og umhyggju.
Hugurinn reikar aftur til
æskuáranna og upp koma dýr-
mætar minningar af ferðarlög-
um fjölskyldunnar. Farið var í
tjaldútilegur, sumarbústaði úti á
landi ásamt hringferðum. Þá var
gula A-tjaldinu pakkað niður
ásamt prímus, potti fyrir pyls-
urnar og skottið fyllt af dóti á
litlu brúnu Mözdunni og svo
brunuðum við sex manna fjöl-
skyldan af stað. Við erum óskap-
lega þakklát fyrir þessar ferðir
og öll viljum við að börnin okkar
upplifi fallega landið okkar á
sama hátt og við gerðum.
Öll munum við sakna matar-
boðanna hjá mömmu. Þó svo að
það væri farið að þrengja að fjöl-
skyldunni í stofunni þá skipti
það ekki máli því samvera okkar
og nærvera var dýrmætari en
allt annað.
Mamma lifði fyrir barnabörn-
in sín sem gáfu henni svo mikið
og einstök bönd mynduðust á
milli hennar og allra barna-
barnanna. Öll barnabörnin fundu
fyrir hlýju og kærleika ömmu
sinnar og fannst fátt skemmti-
legra en að vera hjá henni að
spila, leika og spjalla. Heima í
Breiðuvík var mamma með heilt
leikherbergi fyrir barnabörnin
með öllum þeim spilum, púslum,
kubbum sem þau gat dreymt um
ásamt heilu bókasafni af barna-
bókum. Mamma var leikskóla-
kennari af guðs náð og var alltaf
að hugsa um hvað væri best fyr-
ir börnin. Hvort sem það voru
börnin sem hún kenndi, við
systkinin eða barnabörnin henn-
ar.
Þrátt fyrir langa baráttu við
geðsjúkdóma lét hún aldrei deig-
an síga og kenndi okkur úthald,
seiglu og að gefast aldrei upp.
Hún greindist með krabbamein
fyrir þremur árum og þá komu
þessir sömu eiginleikar í ljós í
hetjulegri baráttu hennar við
krabbameinið. Hún var krafta-
verkakona og náði því mun
lengri tíma en búist var við í
upphafi greiningar. Þessi tími
var okkur systkinunum dýrmæt-
ur og nýttum við hann vel.
Við systkinin buðum mömmu í
afmælisferð til Barcelona árið
2019 og er sú ferð sérstaklega
minnisstæð. Við nýttum tímann
vel við að rifja upp gamlar og
góðar stundir og um leið búa til
nýjar. Við rifjuðum m.a. upp
lúðrasveitarferð sem við fórum
saman í til Austurríkis árið 1994.
Það var stórkostleg ferð því við
systkinin vorum öll að spila á
blásturshljóðfæri á sama tíma í
lúðrasveitinni, pabba til mikillar
gleði.
Við þessi tímamót er mikil-
vægt að staldra aðeins við og
muna að njóta þess sem maður
hefur, vera saman og halda
minningu mömmu á lofti. Við vit-
um að heimurinn er ekki samur
án mömmu. Á sama tíma og við
kveðjum með söknuð í hjarta þá
gleðjumst við yfir því að við náð-
um að láta mömmu vita að það
væri von á tveimur litlum stelp-
um í fjölskylduna okkar í apríl.
Við elskum þig, mamma. Hvíl
í friði og safnaðu kröftum þang-
að til við sameinumst aftur á ný
þegar okkar tími kemur.
María Ingibjörg,
Guðmundur Lár,
Ása Sigríður og
Viggó Már.
Amma Sigrún var besta
manneskja í heimi. Þegar við
komum í heimsókn var alltaf
hægt að gera eitthvað skemmti-
legt eins og að spila, lita, púsla
eða fara í Lego. Það var alltaf
gaman að leika við hana og rosa
notalegt að spjalla við hana. Það
var alltaf gott að fá hlýtt knús
frá henni og koma í ömmudekur.
Hún var svo skemmtileg og blíð
við okkur. Við eigum svo margar
góðar minningar sem við munum
aldrei gleyma, öll góðu ferðalög-
in, bústaðarferðirnar og allar
góðu stundirnar.
Hún var besta amma í heimi.
Við vorum svo leið þegar við
heyrðum að amma Sigrún væri
dáin og við söknum hennar mik-
ið. Nú er hún komin á betri stað,
megi guð passa hana vel.
Þín ömmubörn,
Svala Vigdís og
Hjalti Valur.
Sigrún hét amma mín
hún alltaf klæddist rosa fín.
Hún átti heima í stórri blokk
og alltaf flokkaðist í góðan flokk.
Hún hittir núna minn afa
þar sem þau eru að drekka safa.
Þetta er mamma mömmu minnar,
þannig tár komu niður á hennar
kinnar.
Í fyrradag hún fór burt
og ég vil að ekkert sé spurt.
Barnabörnum hún átti mikið af
og einu sinni í viku hún fer í kaf.
Ég vona að hún hafi það alltaf gott
því það er sagt að uppi sé allt flott.
Hún var með mjög ljóst hár
og ég held hún hafi lifað í 72 ár.
Hún átti rosalega falleg augu blá
og á andlitinu hún hafði hrukkur smá.
Afmæli 2. október hún ætti
og allir héldu hún byggi yfir mætti.
Hún var góð við alla í kringum sig
og alveg rosalega sérstaklega þig.
Hún þurfti á gleraugum að halda
og ég veit hún elskar að tjalda.
Hún elskaði þegar ég var að ríma
og líka í karate þegar ég var að glíma.
Þetta fór pínu yfir strikið
en ég elskaði hana rosa mikið.
Þín,
Sóley Kría.
Sigrún greindist með krabba-
mein í brisi fyrir þremur árum
og þá var talið að stutt væri eft-
ir. Með hjálp læknavísindanna
lifði hún í þrjú góð ár þar sem
andlegur styrkur hennar jókst
við hverja raun, vel studd af
börnum sínum og barnabörnum.
Sigrún var yngst okkar systk-
ina. Fjölskyldan fluttist í Máva-
hlíð 24 sama ár og hún fæddist.
Gatan var leikvöllur okkar og
var leikið úti frá morgni til
kvölds. Skugga bar á þegar Sig-
rún var rúmlega tveggja ára
gömul því þá dó móðir okkar.
Pabbi var vélstjóri og alltaf á
sjónum. Sem betur fer eignuð-
umst við góða stjúpu sem reynd-
ist okkur afskaplega vel. Hjarta-
hlýrri og yndislegri konu var
vart hægt að hugsa sér og var
það mikið gæfuspor fyrir okkur
systkinin þegar þau pabbi gengu
í hjónaband 1956.
Sigrún var kraftmikil og var
ekki alltaf tilbúin að hlýða þegar
kallað var á hana. Þá var brugð-
ið á það ráð að segja henni að
pabbi væri kominn heim af sjón-
um og þá kom hún strax inn.
Sigrún var einstaklega barngóð
og því ekki að undra þó hún
lærði að verða leikskólakennari.
Sigrún eignaðist fjölda tryggra
vinkvenna í barnæsku og ber
þar helst að nefna Sigrúnu
Karlsdóttur en þær nöfnur hafa
ávallt verið nánar.
Þegar Sigrún óx úr grasi varð
hún há og myndarleg með ljóst
hár. Hún bar sterk einkenni
móðurfólksins síns, var hæglát
og prúð í framkomu og yfir
henni var jafnan mikil ró. Þessu
kynntumst við bræður hennar
þegar við vorum send í sveit
norður í Húnaþing til frændfólks
okkar. Til að rifja upp þennan
tíma fórum við systkinin norður
í þriggja daga ferð í ágúst 2013
og áttum þar saman ógleyman-
legar stundir með ættfólki okk-
ar.
Það hefur verið hefð hjá okk-
ur systkinunum að fara saman í
Fossvogskirkjugarð dagana fyr-
ir jól og minnast foreldra okkar
og ástvina. Nú förum við þrír
bræðurnir og verður elskulegrar
Sigrúnar systur okkar sárt sakn-
að. Blessuð sé minning hennar.
Hilmar, Gísli og Björn
Viggóssynir.
Það voru sorgarfréttir að
heyra að Sigrún frænka mín
hefði látið í minni pokann fyrir
illvígum sjúkdómi og væri nú öll.
Hún átti svo margt að gefa og
lengi blundaði sú von að henni
tækist að yfirvinna sjúkdóminn
og eiga fleiri góðar stundir með
sínu fólki.
Við Sigrún vorum systkina-
dætur. Systkinabarnahópurinn í
móðurfjölskyldu minni og föður-
fjölskyldu hennar er stór. Í þeim
góða hópi erum við nöfnur. Á
barnsaldri leit ég upp til
frænkna minna sem eldri voru
en hafði minni áhuga á þeim sem
yngri voru, sem Sigrún var þótt
Sigrún Vigdís
Viggósdóttir
HINSTA KVEÐJA
Kveðja til ömmu.
Amma var mjög góð
kona og átti flotta íbúð og
lifði góðu lífi. Hún gaf mér
epli og við vorum rosalega
góð saman. Ég elska þig.
Þinn
Dagur Nói.