Morgunblaðið - 10.12.2020, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020
„Komdu í Bílanaust þar færð þú allt fyrir bílinn og meira til“
rafgeymar olíurvarahlutir vetrarvörur
3
7 verslanir um land allt
Hafnargötu 52Vatnagörðum 12
104 Reykjavík
S. 535 9000
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Biskup Íslands, Agnes M. Sigurð-
ardóttir, hefur farið þess á leit við
Svandísi Svavarsdóttur
heilbrigðisráðherra að starfsþættir
kirkjunnar verði skilgreindir á
sama máta og önnur menningar-
starfsemi, og lúti þar með sömu
sóttvarnatakmörkunum og önnur
menningarstarfsemi. „Sé ráðu-
neytinu ekki unnt að verða við
þeirri beiðni væri gagnlegt að fá
rökstuðning fyrir því,“ segir í bréfi
sem Þorvaldur Víðisson bisk-
upsritari sendi heilbrigðisráðu-
neytinu í gær.
Athygli vakti þegar nýjar reglur
um samkomutakmarkanir voru
kynntar í vikunni að tilslakanir ná
til útfara, 50 manns, en áfram er
miðað við hámark 10 manna í
kirkjum. Þetta kemur illa við
marga enda fyrir höndum jólahá-
tíðin þar sem rík hefð er fyrir því
að fólk sæki kirkjur.
Biskup kveðst í bréfinu leita
staðfestingar á að skilningur kirkj-
unnar og sóttvarnalæknis, en sam-
ráð hafi verið haft við fulltrúa
hans, á reglugerðinni sé í samræmi
við skilning ráðherra.
„Er það ekki rétt túlkun að sú
menningar- og þjónustustarfsemi
sem fram fer í kirkjum landsins
flokkist með „… öðrum menning-
arviðburðum, þar sem heimilt
verði að taka á móti 50 gestum
sitjandi og þeim skylt að nota
grímu, sem og allt að 100 börnum
fæddum 2005 og síðar“? Í þessu
sambandi megi þá að líkindum
hafa 30 manns á „… sviði, við æf-
ingar og sýningar“, þar sem um
kóra og annað listafólk og starfs-
fólk sé að ræða,“ segir í bréfinu.
„Kóræfingar og tónleikar kirkju-
kóra eru sannarlega menningar-
viðburðir. Hugtakið trúarsamkoma
á ekki við um slíka viðburði og má
því segja að fimmta greinin eigi
betur við en sú þriðja. Aðventu-
kvöld eru gjarnan samspil af upp-
byggilegum orðum, tónlist og fleiri
menningartengdum atriðum. …
Spurningin vaknar síðan hver sé
munurinn á jólaguðsþjónustu, þar
sem textar eru lesnir og sálmar/
söngvar sungnir, listaverk ber fyr-
ir augu og fleira, og síðan annarri
menningarstarfsemi. Má ekki líta
svo á að öll hin kirkjulega starf-
semi heyri undir 5. grein reglu-
gerðarinnar?“ er spurt í bréfinu og
ennfremur hvort kirkjan þurfi að
vera með númeruð sæti og þau
skráð á nafn.
Samkvæmt upplýsingum frá
Biskupsstofu mun mun biskup Ís-
lands senda frekari leiðbeiningar
til sókna landsins í kjölfarið á svari
ráðuneytisins.
Vill að tilslak-
anir nái einnig
til kirkjustarfs
Biskup ritar ráðherra bréf Guðs-
þjónustur og kórastarf fái þrifist um jól
Morgunblaðið/Ófeigur
Messa Það verður einhver bið á því
að fullsetið verði í kirkjum.
Mikil gleði ríkir í starfsmannahópi
Árbæjarlaugar yfir því að fá líf í laug-
ina. Starfsfólk hefur mætt á meðan
lokun stóð og sinnt viðhaldsverkefn-
um og þrifum en gleðst nú yfir að fá
aftur fólk í laugarnar, segir Drífa
Magnúsdóttir forstöðukona Árbæj-
arlaugar í samtali við Morgunblaðið.
Sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu
verða opnaðar aftur í dag þegar ný
reglugerð heilbrigðisráðherra um
sóttvarnaráðstafanir tekur gildi.
„Við höfum verið að taka á móti
skólasundi og sundæfingum síðustu
tvær vikur svo að sundlaugin er alveg
klár, það voru bara heitir pottar og
eimbað sem þurfti að fíra aftur upp í.
Farið var yfir hvort allt virkaði seinni
partinn í dag,“ sagði Drífa í gær-
kvöldi.
Eigendur líkamsræktarstöðva
skoða lagalega stöðu sína
Þó eru ekki allir á eitt sáttir. Ekki
voru heimilaðar opnanir líkamsrækt-
arstöðva við tilslakanir sóttvarnaráð-
stafana í þetta skiptið. .„Manni sárn-
ar þessi mismunun,“ segir Linda
Hilmarsdóttir, eigandi heilsuræktar-
stöðvarinnar Hress, um ákvörðun
stjórnvalda um að heilsuræktar-
stöðvar skyldu halda dyrum sínum
lokuðum áfram vegna faraldursins.
Linda segir að aldrei hafi komið upp
smit hjá Hress og kallar eftir því að
landlæknir horfi á lýðheilsu þjóðar-
innar með heildrænni hætti en þeim
að einblína einungis á möguleg veiru-
smit. „Heilsuræktarstöðvar eru ekki
bara fyrir einhverja kroppatemjara,
það eru ekki allir bara að kroppast
þarna í kjörþyngd. Við erum með svo
mikið af viðskiptavinum sem er lífs-
spursmál að koma til okkar,“ segir
Linda.
Hress skoðar nú stöðu sína laga-
lega vegna lokunarinnar og segir
Linda að til greina komi að höfða mál
á hendur ríkinu vegna þeirra mánaða
sem stöðin hefur þurft að vera lokuð.
Þá hefur Björn Leifsson, eigandi
World Class heilsuræktar, sent heil-
brigðisráðherra álit lögfræðinga
sinna sem telja ákvörðun um
að halda heilsuræktarstöðv-
um lokuðum, þegar opnað er
fyrir sambærilega starfsemi,
ekki lögmæta. Lögfræðiálitið
var birt á samfélagsmiðlum
World Class í gær. Fjár-
málaráðherra og for-
sætisráðherra fengu
afrit. Líkamsrækt-
arstöðvar hafa
nú verið lokað-
ar í fjóra
mán-
uði.
Morgunblaðið/Eggert
Árbæjarlaug Jón Ferdinandsson undirbjó laugina í gær fyrir opnun og ryksaug meðal annars lauf úr pottinum.
Langþráð opnun
sundlauga loks í höfn
Nýjar sóttvarnaráðstafanir stjórnvalda taka gildi í dag
Jakob E. Jakobsson, veitinga-
maður á Jómfrúnni, segir
ákvörðun um að leyfa fimm
manns á hverja 10 fermetra í
verslunarhúsnæði vera blauta
tusku í andlit veitingamanna.
Hann spyr á Facebook-síðu
sinni hvernig betra sé að fólk
gangi á milli fatarekka eða
hillna og máti, skoði og snerti
í misvel loftræstum rýmum
„í stað þess að sitja til
borðs á veitingahúsi, í
góðri fjarlægð frá öðrum
og einungis þjónninn fer
um salinn“.
Hann segir þetta
hrópandi ósamræmi
í sóttvarnaaðgerð-
um stjórnvalda.
„Afar órökstutt
að mínu mati og
hreinlega ósann-
gjarnt.“
Órökstutt
ósamræmi
BLAUT TUSKA
Jakob E.
Jakobsson
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar segir súrt að sömu reglur gildi yfir allt landið
þrátt fyrir fá smit utan höfuðborgarsvæðisins. Rauð viðvörun er nú í gildi
um land allt samkvæmt nýju litakóðunarkerfi almannavarna.
Undanfarið hefur fólk greinst smitað af kórónuveirunni sem ekki er
hægt að rekja til annarra smita. Að sögn Þórólfs Guðnasonar sótt-
varnalæknis segir það okkur að smit séu enn úti í samfélaginu. Lítið þurfi
til svo faraldurinn blossi upp að nýju og það sé ástæðan fyrir rauðri við-
vörun um land allt. Rautt stig merki alvarlegt ástand.
Sama viðvörunarstig um land allt í nýju
litakóðunarkerfi almannavarna
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI