Morgunblaðið - 10.12.2020, Blaðsíða 84
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hilmar Gunnarsson, eigandi og rit-
stjóri Mosfellings í Mosfellsbæ, ber
sig vel þrátt fyrir kórónuveiru-
faraldur og annan utanaðkomandi og
óvæntan mótvind. „Ég hef alltaf haft
á tilfinningunni að allir Mosfellingar
lesi blaðið og samkvæmt lestrarmæl-
ingu Gallup fyrr á árinu lesa það um
90% bæjarbúa. Það er virkilega
ánægjulegt og því er ástæða til að
halda áfram á sömu braut.“
Karl Tómasson byrjaði með Mos-
felling 2002. Hilmar tók við rekstr-
inum í nóvember 2005 og undanfarin
15 ár hefur hann verið ritstjóri blaðs-
ins og umbrotsmaður og í raun séð
um allt sem því viðkemur. „Rekst-
urinn hefur alla tíð verið aukavinna
og áhugamál mitt án yfirbyggingar,“
segir Hilmar, en aðalstarf hans er að
sjá um viðburði og markaðsmál hjá
veitingastöðunum Barrion í Mos-
fellsbæ, þar sem höfuðstöðvarnar
eru, og vestur á Grandagarði. Einnig
á Hlöllabátum og skemmtigarðinum
Minigarðinum, en Sigmar Vilhjálms-
son rekur öll þessi fyrirtæki.
Allir í sama liði í Mosó
Eftir að Hilmar kom heim frá námi
hóf hann ásamt Steinda jr. útgáfu á
blaðinu Lókal. „Okkur fannst vanta
blað fyrir ungt fólk og einkunn-
arorðin voru „Blaðið sem þú lest á
klósettinu“,“ rifjar hann upp. „Við
gáfum það út í eitt ár en þá tók ég við
Mosfellingi og Steindi fór í aðra átt.“
Mosfellingur er frítt og óháð blað,
opið fyrir allar skoðanir, og kemur út
á fimmtudögum á þriggja vikna
fresti. Hilmar segist leggja upp með
jákvæðan tón í máli og
myndum, reyna að
endurspegla
lókal-stemn-
inguna, sem sé svo
skemmtileg. „Við
erum sveit í borg,
hér þekkja allir nán-
ast alla, þótt það verði
erfiðara eftir því sem
íbúum fjölgar, og ég
reyni að halda góða and-
anum lifandi. Við viljum vera svolítið
sveitó og bæjarblaðið endurspeglar
jákvætt og gott mannlíf. Mosfell-
ingur er biblían í Mosó.“
Hilmar segir að blaðaútgáfan sé
vissulega tímafrek en hún sé
skemmtileg og ákveðinn lífsstíll.
„Þetta er fyrst og fremst hugsjóna-
starf með þrautseigju að leiðarljósi.“
Reksturinn hafi al-
mennt gengið
vel en
kórónuveiru-
faraldurinn
hafi haft sín
áhrif. „Ég tók
sóttfrí í vor og
svo aftur í haust,
en annars hefur
Mosfellingur allt-
af komið út,“
heldur Hilmar áfram. Hann þakkar
það fyrst og fremst traustum auglýs-
endum og samstarfi við Ungmenna-
félagið Aftureldingu, sem hafi séð um
dreifinguna eftir að Pósturinn ákvað
að hætta að dreifa fjölpósti í hús í
vor. „Það er í raun ótrúlegt að rík-
isfyrirtæki geti bara hætt að bjóða
upp á þessa þjónustu. Við vorum í
betri málum hérna þegar Stjáni póst-
ur fór ríðandi um sveitina í gamla
daga. Þegar Pósturinn skellti í lás
hélt ég að öll nótt væri úti en við er-
um öll í sama liði í Mosó og dreifingin
hjá Aftureldingu hefur gengið mjög
vel. Viðbrögð bæjarbúa hafa líka
haldið mér gangandi. Nokkrar and-
vökunætur fyrir útgáfudag gleymast
fljótt þegar ég finn fyrir þakklætinu
eftir að fólkið hefur fengið blaðið inn
um lúguna.“
Mosfellingur endur-
speglar gott mannlíf
Mosfellingur Hilmar Gunnarsson hefur verið eigandi og ritstjóri í 15 ár.
Hilmar Gunnarsson hefur verið eigandi og ritstjóri í 15 ár
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
Fimmtudag og föstudag 12-18
Jólaopnun hefst 12. des,
opið 12-20 alla daga fram að jólum
TAX
FREE
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður 24%
virðisaukaskatt af þessari sölu. Verðlækkunin
19,36% er alfarið á kostnað ILVA
10.-14. DESEMBER
*Gildir ekki um vörur á áður
niðursettu verði. Gildir á meðan
birgðir endast.
AF ÖLLUM
VÖRUM*
40%
af jólavörum
til jóla
Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands býður lands-
mönnum upp á hátíðlega
aðventutónleika í beinni
útsendingu á RÚV og Rás
1 í kvöld kl. 20. Á tónleik-
unum þreytir sópran-
söngkonan Álfheiður Erla
Guðmundsdóttir frum-
raun sína með hljóm-
sveitinni og flytur hátíð-
legar aríur eftir Händel
og Mozart. Samkvæmt upplýsingum frá hljómsveitinni
er Álfheiður þegar farin að hasla sér völl á óperusviðinu
og hefur m.a. sungið í Staatsoper Berlin og við óp-
eruhúsið í Basel. Einnig stíga á svið í kvöld hjónin Vera
Panitch og Páll Palomares og leika fjörugan konsert
fyrir tvær fiðlur eftir Vivaldi en tónleikunum lýkur á
sinfóníu nr. 25 eftir Mozart. Hljómsveitarstjóri er Daní-
el Bjarnason en hann hlaut ásamt sveitinni nýverið til-
nefningu til hinna virtu Grammy-verðlauna.
Aðventutónleikar Sinfóníunnar
í beinni útsendingu í kvöld kl. 20
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 345. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Svo kom þessi tilfinning stuttu síðar, eins og maður
stæði á teppi, og því var allt í einu kippt undan manni.
Ég féll með því og ég hef í raun bara verið í lausu lofti
síðan í júlí og ég veit satt best að segja ekkert hvort ég
eigi að halda áfram í sundinu eða kalla þetta gott,“
segir sundkonan Ingibjörg Kristín Jónsdóttir sem ætl-
aði að komast á Ólympíuleikana í Tókýó sumarið 2020
en hætta síðan keppni. »72
Eins og ég stæði á teppi og
því væri kippt undan manni
ÍÞRÓTTIR MENNING