Morgunblaðið - 10.12.2020, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Búið er að landa 208 þúsund tonnum
af kolmunna á árinu samkvæmt töl-
um á vef Fiskistofu. Alls eru afla-
heimildir Íslendinga í kolmunna 247
þúsund tonn og er því eftir að veiða
tæplega 40 þúsund tonn, en ótalinn
er sá afli sem er í skipunum. Síðustu
daga hefur veiðst ágætlega á miðun-
um á gráa svæðinu milli Færeyja og
Skotlands.
Þar voru átta íslensk uppsjávar-
skip að veiðum í gær; Jón Kjartans-
son SU, Aðalsteinn Jónsson SU,
Hoffell SU, Beitir NK, Börkur NK,
Sigurður VE, Venus NS, Víkingur
AK. Guðrún Þorkelsdóttir SU var að
landa á Vopnafirði, Heimaey VE í
Vestmannaeyjum, Bjarni Ólafsson
AK á landleið og Huginn VE var á
leið á miðin. Á svæðinu suður af
Færeyjum voru einnig færeysk, hol-
lensk og rússnesk skip.
Þegar rætt var við Grétar Rögn-
varsson, skipstjóra á Jóni Kjartans-
syni SU 111, skipi Eskju á Eskifirði,
um miðjan dag í gær voru þeir að
hífa í síðasta skipti í túrnum. Yfir
1.600 tonn voru komin í tanka skips-
ins og Grétar sagði að útlit væri
ágætt á að 300 tonn bættust við, von-
andi nóg til að fylla. Þá yrði lagt af
stað heim á leið, en af miðunum er
um 28 tíma stím til Eskifjarðar.
„Þetta hefur verið alveg þokkalegt
síðustu þrjá daga og vinnuveður alla
daga,“ sagði Grétar. „Þegar við kom-
um á miðin fyrir viku byrjuðum fyrir
austan eyjarnar, en þar var smár
kolmunni og svæðum þar var lokað.
Þá var farið suður fyrir og hér á gráa
svæðinu hafa fengist 3-400 tonn í holi
undanfarið. Í birtutímanum hefur
ekkert verið að hafa og því verið tog-
að yfir nóttina í
15-20 tíma og síð-
an híft upp úr há-
degi.“
Grétar sagðist
reikna með að
farið yrði í einn
túr til viðbótar á
Færeyjamið fyrir
jól og 5-6 veiði-
dagar ættu að
nást. Lögum og
reglum samkvæmt eiga sjómenn á
uppsjávarskipum jólaleyfi frá og
með 20. desember til 2. janúar.
Eskja á drjúgan kvóta í kolmunna
eða um 19% af heildinni og sagðist
Grétar reikna með að árið byrjaði á
kolmunna suður af Færeyjum eða á
alþjóðlegu hafsvæði vestur af Ír-
landi. „Vonandi verður síðan loðnu-
vertíð í febrúar og mars,“ segir skip-
stjórinn.
Óþarfa mannaferðir
um borð ekki vel séðar
Loðnuveiðar hafa ekki verið tvö
síðustu ár, en Grétar segir að þetta
ár hafi að öðru leyti gengið sinn
vanagang og sérstaklega vel hafi
gengið á veiðum á norsk-íslenskri
síld. Spurður um kórónuveikifarald-
urinn og aðgerðir um borð segir
hann að Austfirðingar hafi blessun-
arlega sloppið vel frá faraldrinum til
þessa. Í sumar hafi áhöfnin tvívegis
farið í skimun og menn hugi vel að
persónulegum smitvörnum og séu
vel varðir um borð.
Á leiðinni á miðin í yfirstandandi
túr var komið við í Færeyjum til að
taka olíu. Til að forðast smit fór eng-
inn í land og enginn um borð og land-
gangur ekki settur á milli skips og
bryggju. Óþarfa mannaferðir um
borð séu ekki vel séðar.
Þokkalegur
kolmunnaafli
Uppsjávarskip að veiðum suður af
Færeyjum Vonandi verður loðnuvertíð
Ljósmynd/Grétar Rögnvarsson
Á miðunum Fylgst með þegar kolmunni fer í gegnum skiljuna um borð í
Jóni Kjartanssyni suður af Færeyjum í gær. 330 tonn voru í síðasta holinu.
Grétar
Rögnvarsson.
Því er haldið fram í norska
blaðinu Nordlys í gær að upp-
hæðir í skipulagðri glæpastarf-
semi í norskum sjávarútvegi nemi
tveimur milljörðum norskra króna
árlega eða sem nemur hátt í 30
milljörðum íslenskra króna. Teg-
undasvindl sé arðbært og erfitt
við að eiga og veltan í þessari
ólöglegu starfsemi sé svipuð og í
fíkniefnaviðskiptum í landinu.
Eftirlit er sagt bágborið og það
falli undir ótrúlega óheppni náist
þeir brotlegu. Það er Steinar Eli-
assen, formaður í samtökum fisk-
kaupenda, sem heldur þessu fram
og gagnrýnir stjórnvöld fyrir að
taka ekki á málinu.
Stjórnvöld undirbúa átak
Odd Emil Ingebrigtsen sjávar-
útvegsráðherra segir að stjórnvöld
undirbúi nú átak til að taka á
vandanum og sé aðgerðaáætlunar
að vænta í janúar. Málið sé mikil-
vægt, en ráðherra segist ekki vita
hversu mikið umfangið sé. Sjó-
menn og fiskkaupendur verði líka
að bera ábyrgð og ekki grafa und-
an eigin atvinnugrein.
Svindlið er einkum rakið til
landana að næturlagi og þorskur
verði þá oft að ufsa um leið og
hann komi upp á bryggjuna.
Margir sjómenn hafi veitt leyfileg-
an þorskkvóta, en haldi áfram að
veiða aðrar tegundir. Sem slíkur
meðafli megi þorskur ekki fara yf-
ir 30% af aflanum, en gerist það
renni verðmætið í ríkissjóð. Sjó-
maðurinn sjái sér hag í að selja
þorskinn sem ufsa og kaupandinn
geti selt þorsk á fullu verði þótt
hann hafi aðeins greitt tæplega
hálfvirði fyrir hann.
Fram kemur í viðtali við Elias-
sen að þessi starfsemi grafi undan
fiskveiðistjórnarkerfinu. Einnig
standi þau fyrirtæki sem fari að
lögum og reglum höllum fæti í
samkeppninni og missi af við-
skiptum.
Milljarða
svik í norsk-
um útvegi
Afurðaverð á markaði
8. des. 2020, meðalverð, kr./kg
Þorskur, slægður 412,48
Ýsa, óslægð 273,33
Ýsa, slægð 277,40
Ufsi, óslægður 168,60
Ufsi, slægður 176,69
Gullkarfi 286,40
Blálanga, óslægð 301,62
Langa, óslægð 189,74
Langa, slægð 241,93
Keila, óslægð 58,03
Keila, slægð 80,19
Steinbítur, óslægður 420,38
Steinbítur, slægður 491,16
Skötuselur, slægður 763,50
Grálúða, slægð 358,11
Skarkoli, slægður 497,92
Þykkvalúra, slægð 1.176,02
Langlúra, óslægð 120,00
Sandkoli, óslægður 100,92
Flundra óslægð 82,00
Bleikja, flök 1.409,00
Gellur 1.041,18
Hámeri, slægð 19,00
Hlýri, slægður 478,81
Lúða, slægð 568,31
Lýsa, óslægð 42,88
Lýsa, slægð 118,39
Skata, slægð 75,53
Stórkjafta, slægð 86,00
Undirmálsýsa, óslægð 128,51
Undirmálsýsa, slægð 144,00
Undirmálsþorskur, óslægður 185,66
Undirmálsþorskur, slægður 187,38
Kolmunni er af þorskfiskaætt og er einn af fimm uppsjávarfiskistofnum
sem veiddir eru af íslenskum fiskiskipum, en hinir eru loðna, makríll,
norsk-íslensk síld og íslensk sumargotssíld. Mest af kolmunnanum fer í
bræðslu og er fiskimjölið m.a. notað sem fóður í fiskeldi, en hinar teg-
undirnar eru að mestu unnar til manneldis.
Aðalhrygningarsvæði kolmunna í Norðaustur-Atlantshafi eru við
landgrunnsbrúnirnar norðvestan og vestan við Bretlandseyjar. Eftir
hrygningu fer hrygningarstofninn í ætisgöngur norður í haf og síðan
suður á bóginn aftur þegar líður á haust. Kolmunninn heldur sig mest í
úthafinu og er þá í miðsævinu eða uppsjónum á 2-500 metra dýpi.
Kolmunni af ætt þorskfiska
FÓÐUR Í FISKELDI
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
• Olíulitir
• Akrýllitir
• Vatnslitir
• Trélitir
• Trönur
• Blindrammar
• Strigi
• Penslar
• Spreybrúsar
• Teikniborð
• Gjafasett
• Teikniborð
• Ljósaborð
• Skissubækur
... og margt fleira
Þess vegna leggjum við mikinn
metnað í myndlistarvörurnar okkar.
Listin er eilíf
Þú finnur réttu jólagjöfina í myndlistarvörudeildum
okkar í Fellsmúla v/Grensásveg og á Akureyri.