Morgunblaðið - 10.12.2020, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 10.12.2020, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020 S K Ó V E R S L U N STEINAR WAAGE KRINGLAN - SMÁRALIND Lloyd Dag Verð: 29.995.- Vnr. LLODAG Lloyd Lacour Verð: 24.995.- Vnr. LLOLACOUR VANDAÐIR OG FALLEGIR SKÓR - NÝ SENDING - Lloyd Lex Verð: 22.995.- Vnr. LLOLEX-COG Lloyd Osmond Verð: 22.995.- Vnr. LLOOSMOND-COG Áætlunarflug með Boeing 737 MAX-flugvélum hófst á ný í Brasilíu í gær eftir 20 mánaða hlé en þessar vélar voru kyrr- settar um allan heim í mars á síðasta ári eftir að tvær slíkar fórust vegna galla í tæknibúnaði. Vélin er í eigu flugfélagsins Gol og var henni flogið með farþega frá Sao Paulo til Porto Alegre. Að sögn blaðamanns AFP-fréttastofunnar um borð gekk allt vel. Fæstir farþeganna um borð virtust gera sér grein fyrir því að þetta flug væri fréttnæmt og áhöfnin minnt- ist ekki á það í tilkynningum meðan á fluginu stóð. Gol, sem er stærsta innanlandsflugfélag Brasilíu, á sjö MAX- vélar og hefur pantað 115 slíkar til viðbótar. Banda- ríska loftferðaeftirlitið gaf út nýtt flughæfnisvottorð fyrir MAX-vélarnar í nóvember og það brasilíska fylgdi í kjölfarið viku síðar. Búist er við að evrópsk flugmálayfirvöld geri slíkt hið sama í byrjun næsta árs. AFP Boeing 737 Max-flugvél í loftið í fyrsta skipti í 20 mánuði Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands sagði fyrir för sína til Brussel til fundar við Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) síðdegis í gær, að kröfur ESB í Brexit-viðræð- unum væru enn óaðgengilegar. „Enginn breskur forsætisráðherra myndi nokkru sinni geta fallist á þær,“ sagði Johnson í fyrirspurna- tíma í þinginu. „Góður samningur er enn ekki fenginn.“ Johnson sagði að ESB krefðist meðal annars „sjálfkrafa réttar“ til hefndaraðgerða gegn Bretlandi breyttu þeir lögum sínum og reglum síðar meir á þann veg að samhljóm vantaði við lög og reglur ESB, svo sem við staðla á vinnumarkaði og við- miðanir í umhverfismálum. Gert var ráð fyrir að þau von der Leyen myndu freista þess yfir kvöldverði í Brussel í gærkvöldi að höggva á hnútinn í til- raunum til að lenda samningi um samskipti ESB og Bretlands frá og með komandi áramótum en þá hætta Bretar að fylgja lögum og reglum sambandsins um milliríkjaviðskipti. Í kvöldverðinum ætluðu Johnson og von der Leyen að fara yfir lista yfir helstu ásteytingarefnin í viðræðunum sem fóru út um þúfur í fyrradag. Háttsettur embættismaður í London sagði að hægt yrði að taka upp samn- inga að nýju eftir nokkra daga tækist leiðtogunum tveimur að þoka málum undir borðhaldinu. Raunsætt væri að telja útilokað að þeir Frost lávarður og Michel Barnier – aðalsamninga- menn Breta og ESB, næðu saman. Leiðtogar ESB-ríkjanna 27 koma saman til fundar í Brussel í dag, fimmtudag. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði enn unnt að semja, en bætti við að virða þyrfti það, að innri markaður sambandsins yrði heill og óskertur. Ágreiningur um margt Samningsaðila greindi enn verulega á um fiskveiðimál, samkeppnisreglur og eftirlit með fullnustu útgöngusam- komulagins. Þótt fiskveiðar vegi hvorki þungt í hagkerfi Bretlands né ESB þá skipta þær miklu máli fyrir nokkur lönd ESB. Og þær réðu miklu um niður- stöður þjóðaratkvæðisins í Bretlandi 2016 þar sem útgangan úr ESB var samþykkt. Sambandið hefur krafist hámarksaðgengis fiskiskipa sinna að bresku lögsögunni en aflaverðmæti þeirra á ári hefur verið um 600 millj- ónir sterlingspunda, jafnvirði röskra hundrað milljarða íslenskra króna. Bretar hafa aftur á móti viljað mun stærri skerf af kvótunum en verið hef- ur og ráða hvar og hvaða fisktegundir fiskiskip ESB veiði. Ágreiningur í samkeppnismálum hef- ur snúist um leikreglur á margra millj- arða punda markaði nú og í framtíðinni. Ekki hafði náðst saman um hvernig komið skyldi í veg fyrir að annar hvor samningsaðilinn nyti ósanngjarnrar að- stöðu umfram keppinautana. Þriðja stóra óleysta málið er hvern- ig háttað skyldi eftirliti með að við- skiptasamningar yrðu haldnir og hvernig tekið skyldi á brotum. Hefur ESB knúið á um refsiheimildir til handa báðum aðilum til að grípa til refsitolla yrðu samningsbrot framin. Johnson kvaðst einnig álíta að ESB myndi heldur ekki fallast á að Bretar réðu einir rétti sínum til fiskveiða í eigin efnahagslögsögu þegar útganga Breta úr ESB væri um garð gengin. Hann sagði í þinginu, að sambandið ætlaðist til þess að Bretland yrði eina strandríki heims sem ekki hefði fullt og óskorað vald yfir fiskimiðum sín- um. Mikilvæg kvöldmáltíð beið í Brussel  Tíminn til að ná samningum fyrir gamlársdag er að hlaupa frá aðilum en þá hætta Bretar að fylgja lögum og reglum ESB um milliríkjaviðskipti  Óaðgengilegar kröfur, sagði forsætisráðherra Breta AFP Til fundar Boris Johnson við sendi- ráð Breta í Brussel í gærkvöldi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.