Morgunblaðið - 10.12.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020
ÁAlþingi í gær var rætt um störfþingsins og voru ýmsir ánægð-
ir með þau en aðrir síður eins og
gengur. Þingmenn náðu samstöðu
um að ljúka þingstörfum í friði og
komast heim í góðum tíma fyrir jól
og fyrir það eru allir þakklátir.
Á daginn kom aðeitt þeirra
mála sem þeim sem
ráða för í þinginu
þótti að mætti bíða
var frumvarp um
stuðning við einka-
rekna fjölmiðla. Það
hefur svo sem beðið
áður og líklega hefur þingheimi
ekki þótt muna um eitt árið enn.
Einn þingmaður, GuðmundurAndri Thorsson, kvaddi sér þó
hljóðs og fann að þessu. Hann sagði:
„Sum mál ríkisstjórnarinnar styðj-
um við, jafnvel frekar en rík-
isstjórnin sjálf. Þar má til dæmis
nefna frumvarp hæstvirts mennta-
málaráðherra um stuðning við fjöl-
miðla sem nú er enn eitt árið að
gufa upp hér á þingi. Mikilvægi fjöl-
miðla í samfélagi okkar verður
aldrei nógsamlega undirstrikað.
Við erum að tala um alls konar fjöl-
miðla, litla, stóra, fámenna, fjöl-
menna, netmiðla, vefmiðla, hljóð-
miðla, myndmiðla, héraðsmiðla og
landsmiðla. Þetta er allt mjög mik-
ilvægt að þrífist í opnu en við-
kvæmu lýðræðissamfélagi, hvort
sem er í einkaeigu, einkarekstri eða
þá að við séum að tala um Rík-
isútvarpið.“
Þetta síðastnefnda er að vísu um-deilanlegt, en mikilvægi fjöl-
miðla er þó væntanlega óumdeilt.
Sömuleiðis er óþarfi að deila um að
ábending þingmannsins sem fylgdi
á eftir um ójafna samkeppni við „al-
þjóðlega risa sem greiða ekki
skatta eða önnur gjöld hér á landi“
á fullan rétt á sér.
Guðmundur
Andri Thorsson
Frestur er víst
á öllu bestur
STAKSTEINAR
Vegna heimsfaraldurs kórónuveir-
unnar hefur helgihald að mestu
leyti legið niðri í kirkjum landsins
frá því í byrjun október. Altaris-
ganga hefur ekki verið í boði af
þessari ástæðu. En með nýjum
sóttvarnareglum hefur opnast
möguleiki.
„Þau í Grafarvogskirkju – en það
er stærsta sókn landsins – bjóða
upp á altarisgöngu í kirkjunni núna
á sunnudaginn, 13. desember, með
nýstárlegum hætti,“ segir í frétt á
vef biskups, kirkjan.is.
Þau sem vilja ganga til altaris
skrá sig fyrirfram á vef Grafar-
vogskirkju en hægt er að velja sér
tíma: kl. 11, 12, 13 og 14. Átta ein-
staklingar geta gengið til altaris í
hverjum hópi í senn. „Og það sem
meira er: öll sem ætla til altaris
koma með sinn bolla. Já, og hví
ekki uppáhaldsbollann?“
Altarisganga er kirkjuleg athöfn
þar sem prestur útdeilir brauði og
víni sem hefur verið helgað með
innsetningarorðum. Rætur altaris-
göngu eru í síðustu kvöldmáltíðinni.
Tveggja metra reglan verður virt
við altarisgönguna svo og allar aðr-
ar sóttvarnareglur. Fjöldinn tak-
markast við 10 manns í sama rými,
kirkjugestirnir eru átta og tveir
prestar. sisi@mbl.is
Til altaris með uppáhaldsbollann
Nýjung í Grafarvogskirkju Þeir
sem ganga til altaris skrái sig á netinu
Morgunblaðið/Ásdís
Altarisganga Gestir geta ekki bergt
vínið af bikarnum að þessu sinni.
Í borgarkerfinu er nú til meðferðar
umsókn um leyfi til að byggja við-
byggingu, fjórar hæðir og kjallara,
steinsteypta, einangraða og klædda
glerklæðningu, við hátæknisetur
Alvotech á lóð við Sæmundargötu.
Hið nýja hús verður samtals 13.286
fermetrar. PK arkitektar eru aðal-
hönnuðir.
Málið var tekið fyrir á fundi
skipulagsfulltrúa Reykjavíkur sl.
föstudag og gerir hann ekki skipu-
lagslegar athugasemdir við erindið
að öðru leyti en því að breyta þarf
bílastæðum í götu.
Núverandi bygging Alvotech á
Sæmundargötu 15-19 í Vatnsmýr-
inni var reist árið 2016 og er tæp-
lega 13 þúsund fermetrar að stærð.
Brunabótamat samkvæmt fast-
eignaskrá er rúmir 4,2 milljarðar
króna. Húsið er hluti af Vísinda-
görðum Háskóla Íslands. Viðbygg-
ingin mun rísa sunnan við núverandi
hús.
Vegna vaxandi umsvifa stefnir
lyfjaþróunarfyrirtækið Alvotech á
að fjölga starfsmönnum í höfuð-
stöðvum félagsins í Vatnsmýri á
næstu misserum, að því er fram
kom í frétt hér í blaðinu í september
sl. Hjá fyrirtækinu starfa nú um 500
vísindamenn og sérfræðingar frá 45
þjóðlöndum, á Íslandi, í Þýskalandi,
Sviss og í Bandaríkjunum.
Sesselja Ómarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri lyfjagreiningar-
deildar Alvotech, sagði á Iðnþingi
nýlega að útlit væri fyrir að velta
fyrirtækisins yrði 5% af VLF
(vergri landsframleiðslu) á Íslandi
og 20% af útflutningstekjum árið
2027.
Þær upplýsingar fengust hjá
Alvotech að stefnt væri að því að
tekjur félagsins yrðu um 500 millj-
arðar króna á næstu 10 árum, að
mestu leyti vegna Bandaríkjamark-
aðar, en Teva er þar samstarfsaðili
félagsins. sisi@mbl.is
Alvotech reisir stór-
hýsi í Vatnsmýrinni
Hyggjast fjölga
starfsmönnum á
næstu misserum
Morgunblaðið/ Kristinn Magnússon
Vatnsmýri Höfuðstöðvar Alvotech.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Baðinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15