Morgunblaðið - 10.12.2020, Blaðsíða 73
ÍÞRÓTTIR 73
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020
Ég held að karlalandsliðið í
knattspyrnu geti vel við unað
eftir að dregið var til und-
ankeppni HM 2022. Nú fer víst
að líða að þessari umtöluðu
keppni í Katar sem manni fannst
lengi vera í fjarlægri framtíð.
Þannig týnist tíminn.
Þegar riðillinn er borinn saman
við aðra í undankeppninni þá eru
Þjóðverjar örugglega ánægðir.
Ekki ætti að vefjast mjög fyrir
þeim að komast áfram.
Möguleikar íslenska liðsins á
að ná öðru sætinu virðast fínir.
Ef liðið verður á svipuðu róli og í
undankeppni EM eru möguleik-
arnir fyrir hendi. En þar sem nýr
þjálfari mun taka við liðinu er
erfiðara að spá í spilin.
Ég hef þó áhyggjur af einu atriði
og það eru þessar leikjahrinur
sem eru boðaðar. Þrír leikir á
einni viku í lok mars og þrír leikir
í byrjun september.
Hvernig hentar þetta okkar
mönnum? Við erum með lið þar
sem menn eru farnir að eldast í
íþróttaárum. En það er ekki
kennitalan ein og sér sem veldur
þessum áhyggjum.
Leikmenn eins og Kolbeinn
Sigþórsson, Jóhann Berg Guð-
mundsson og Alfreð Finn-
bogason hafa átt erfitt upp-
dráttar síðustu árin vegna
meiðsla. Í tilfelli Kolbeins er það
auðvitað vægt til orða tekið enda
héldu flestir að hans ferill væri á
enda. Alfreð og Jóhann hafa ekki
náð keppnistímabili án meiðsla í
langan tíma.
Um tíma virtist Aron Einar
Gunnarsson vera í svipaðri stöðu
en hitinn í Katar virðist fara vel
með fyrirliðann sem kominn er
af fólki frá hlýjum slóðum eins
og Eyjafirði og Skutulsfirði. Aron
spilar nú flesta leiki. Er það vel.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
HEIMKOMA
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Ég er ekki á leið heim til Íslands
vegna þess að ég sé að hugsa um að
fara að hætta í fótbolta. Þvert á móti,
ég er ótrúlega spenntur fyrir því að
spila með Val og ætla að gefa enn
meira í en áður ef eitthvað er,“ sagði
Arnór Smárason knattspyrnumaður
frá Akranesi sem snýr heim eftir
sautján ár í atvinnumennsku erlendis
og hefur skrifað undir samning við
Íslandsmeistara Vals til næstu
tveggja ára.
Arnór sagði við Morgunblaðið að
þetta væri búið að vera í bígerð í
nokkurn tíma.
„Ég hef hinsvegar einbeitt mér að
því að hjálpa við að koma Lilleström
aftur upp í úrvalsdeildina ásamt því
að komast sjálfur aftur í leikform eft-
ir langa fjarveru. Ég er farinn að æfa
á fullu með liðinu og er að vonast til
þess að vera í hópnum í lokaumferð-
inni um næstu helgi. Ég glímdi við
álagsmeiðsli í langan tíma og ég
þurfti að fara í aðgerð vegna þeirra í
sumar. Þau komu til vegna þess að ég
píndi mig til að spila meiddur tíma-
bilið 2019 og ég þurfti að súpa seyðið
af því,“ sagði Arnór en hann missti
alveg af tímabilinu 2020 vegna
meiðslanna, kannski að því und-
anskildu að hann gæti spilað loka-
leikinn um næstu helgi. Lilleström
hefur nú endurheimt úrvalsdeild-
arsætið eftir árs fjarveru.
Atvinnumannsbragur
á umhverfinu hjá Val
„Mér finnst þetta vera flottur
tímapunktur til að koma heim eftir að
hafa leikið erlendis í sautján ár,
meira en helming ævinnar. Ég hef
alltaf verið með það á bak við eyrað
að koma heim og spila í deildinni þeg-
ar það hentaði vel. Þetta hefur verið
æðislegur tími, þar sem gengið hefur
verið upp og niður eins og gengur og
gerist. En ég ákvað að þetta væri
besti tíminn til að koma heim, á með-
an ég hefði eitthvað fram að færa, í
stað þess að bíða með það í nokkur
ár. Samningurinn er til tveggja ára,
ég stefni á að spila mun lengur en
það en við ákváðum að halda okkur
við þessa tímalengd og síðan er allt
opið eftir það.
Mér líst vel á uppsetninguna hjá
Val, á hópinn og plönin. Valsmenn
eru í þessu til að vinna titla og svo
verða þeir í Meistaradeildinni sem
heillaði mig líka. Það er mikill at-
vinnumannsbragur á umhverfinu hjá
Val og eftir að hafa verið í slíku um-
hverfi í sautján ár þá veit ég að ég er
á leiðinni á góðan stað,“ sagði Arnór.
Hann ólst upp á Akranesi og lék
með yngri flokkum ÍA til 15 ára ald-
urs en samdi þá við Heerenveen í
Hollandi. Þar lék hann frá 2003 til
2010, með aðalliðinu frá 2007, síðan
með Esbjerg í Danmörku frá 2010 til
2013, með Helsingborg í Svíþjóð
2013 til 2015 og fór þá um tíma sem
lánsmaður til Torpedo Moskva í
Rússlandi. Síðan lék Arnór með
Hammarby í Svíþjóð í þrjú ár en hef-
ur verið í röðum Lilleström síðustu
þrjú tímabil.
Bikartitlar í Hollandi og
Danmörku hápunktar
„Ég er stoltur af mínum atvinnu-
mannsferli erlendis, ég hef lært mik-
ið á þessum sautján árum og tek það
með mér í næsta verkefni. Vonandi
næ ég að miðla einhverju af því inn í
hópinn hjá Val,“ sagði Arnór og
nefndi tvo hápunkta á ferli sínum
með erlendum félagsliðum.
„Það var mjög stórt að verða hol-
lenskur bikarmeistari með Heeren-
veen árið 2009 og vera þar í stóru
hlutverki, og eins að vinna danska
bikarinn með Esbjerg árið 2013. Þá
var frábært að taka þátt í verkefnum
með íslenska landsliðinu og vera
mikið í kringum það á þeim árum
sem Lars Lagerbäck var nýtekinn
við því. Þó ég hefði ekki spilað mjög
mikið þá var það flottur og dýr-
mætur tími og ég náði þó að spila 26
landsleiki og skora í þeim þrjú mörk.
Lágpunktarnir á ferlinum eru eft-
irminnilegir, alveg eins og hinir, sér-
staklega þar sem mér tókst alltaf að
vinna mig til baka eftir þá. Hjá Hee-
renveen var ég frá keppni í eitt ár,
2010, og hjá Esbjerg var ég kominn
út úr liðinu og á leiðinni burt en vann
mig inn í það aftur og endaði þar sem
bikarmeistari.
Eins gekk ég í gegnum erfiða tíma
hjá Helsingborg þegar Henke Lars-
son tók við liðinu og vildi losna við
okkur sem vorum á hæstu laununum
hjá félaginu. Staðan var svört á þeim
tíma en ég lagði allan minn metnað
og ástundun í að snúa blaðinu við og
endaði með því að vera í stóru hlut-
verki hjá Larsson í Helsingborg.
Þetta er reynsla sem ég tek með
mér í baráttuna sem er fram undan
hjá Val,“ sagði Arnór Smárason.
Kem ekki til Íslands til
þess að hætta í fótbolta
Arnór Smárason samdi við Val til tveggja ára eftir sautján ára feril erlendis
AFP
Valsmaður Arnór Smárason hefur aldrei leikið meistaraflokksleik á Íslandi
en hefur nú samið við Íslandsmeistara Vals til næstu tveggja ára.
Áfrýjunardómstóll KSÍ staðfesti í
gær úrskurð aga- og úrskurð-
arnefndar KSÍ í máli KR gegn KSÍ
og dómstóllinn vísað máli Fram
gegn KSÍ frá.
KR-ingar kærðu þá ákvörðun
KSÍ að hætta keppni á Íslandsmóti
og í bikarkeppni í lok október og
láta bráðabirgðareglugerð um lykt-
ir móta sem sett var í júlí ráða end-
anlegri niðurstöðu mótanna.
Framarar kærðu þá ákvörðun
KSÍ að nota markatölu til að skera
úr um sætaniðurröðun eftir að Ís-
landsmótinu var hætt en það þýddi
að Leiknir R. fékk úrvalsdeild-
arsæti á betri markatölu en Fram.
„Fyrst og fremst eru þetta mikil
vonbrigði og ég er ósammála efn-
islegri niðurstöðu dómsins. Það já-
kvæða er að við fengum þó alla
vega efnislega umfjöllun sem er
alla vega faglegri afgreiðsla en í
stefndi um tíma. Dómstóllinn gefur
stjórn KSÍ mikið svigrúm til
ákvarðana. Það er þeirra skoðun.
Ég er ekki sammála henni en mað-
ur er ekki alltaf sammála lög-
fræðilegri niðurstöðu,“ sagði Páll
Kristjánsson, formaður knatt-
spyrnudeildar KR, við Morg-
unblaðið í gær.
Ásgrímur Helgi Einarsson, for-
maður knattspyrnudeildar Fram,
vildi ekki tjá sig um dóminn að svo
stöddu. sport@mbl.is
Fram og KR
varð ekki
ágengt
ÍTALÍA
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Hólmbert Aron Friðjónsson vonast
til þess að geta spilað sinn fyrsta leik
með ítalska knattspyrnuliðinu
Brescia áður en árinu lýkur en hann
hefur nú verið í herbúðum þess í rúm-
lega tvo mánuði án þess að ná að
komast inn á völlinn í búningi félags-
ins.
Brescia keypti Hólmbert af Aale-
sund í Noregi í byrjun október og
samdi við hann til þriggja ára. Þá var
framherjinn meiddur og biðin eftir
fyrsta leiknum er orðin löng.
„Ég meiddist í leik gegn Sarpsborg
um miðjan september, skaddaði lið-
band í hnénu ásamt því að sprunga og
beinmar komu í aðra ristina, og það
hefur því tekið þennan tíma að jafna
sig. Núna er þetta loksins að koma,
ég byrjaði að hlaupa aftur á mánu-
daginn og á næstu dögum fæ ég að
koma smám saman inn í boltann á æf-
ingum liðsins. Vonandi tekst mér að
komast inn í hóp og inn á völlinn fyrir
lok desember en eins og er legg ég
áherslu á að komast sem fyrst í góða
æfingu án þess að fá eitthvert bak-
slag,“ sagði Hólmbert við Morg-
unblaðið í gær en hann kvaðst kunna
afar vel við sig hjá félaginu, liðsfélag-
arnir séu skemmtilegir og borgin fín.
Búið að vera bras á liðinu
Brescia, sem er frá samnefndri 200
þúsund manna borg á Norður-Ítalíu,
féll úr A-deildinni í sumar en meðal
samherja Hólmberts þar er Birkir
Bjarnason landsliðsmaður. Liðið hef-
ur ekki byrjað vel, hefur aðeins unnið
tvo af fyrstu tíu leikjunum og er sem
stendur í tólfta sæti af tuttugu liðum.
„Ég sé fram á að fá tækifæri strax
og ég er orðinn heill heilsu. Það er bú-
ið að vera talsvert bras á liðinu til
þessa, fullt af kórónuveirusmitum
sem hafa komið upp ásamt meiðslum
en það fer vonandi að skána,“ sagði
Hólmbert sem var fenginn til félags-
ins til að skora mörk, enda gerði hann
11 mörk í 15 leikjum með Aalesund í
úrvalsdeildinni áður en hann var seld-
ur, þrátt fyrir að liðið sæti á botni
deildarinnar.
Nokkrum dögum fyrir leikinn gegn
Sarpsborg fékk Hólmbert tækifæri í
byrjunarliði íslenska landsliðsins
gegn besta liði heims, Belgíu, í Þjóða-
deild UEFA. Framherjinn nýtti það
vel og skoraði mark Íslands í 5:1-
ósigri. Það var hans annað mark í
fyrstu fjórum A-landsleikjunum.
Nokkrum dögum áður krækti hann í
vítaspyrnu gegn Englendingum,
nokkrum sekúndum eftir að hafa ver-
ið skipt inn á sem varamanni.
Ólýsanlega svekkjandi að missa
af landsleikjunum
En meiðslin urðu til þess að hann
var út úr myndinni í landsleikjunum í
október og nóvember.
„Ég get varla lýst því hversu
svekkjandi það er að hafa lent í þessu
í fyrsta leiknum í Noregi eftir lands-
liðsverkefnið, og þar með misst af
hinum tveimur. Ég hef fulla trú á að
ég hefði verið með í þeim ef ég hefði
verið heill. Það er mjög sárt að þetta
skyldi koma fyrir, loksins þegar ég
var kominn á radarinn hjá landslið-
inu. En svona er þetta, árið 2020 er
búið að vera fullt af hæðum og lægð-
um hjá mér. Vonandi endar það á
góðum nótum og með því að ég nái að
spila einn leik áður en því lýkur,“
sagði Hólmbert Aron Friðjónsson.
Vonast eftir að ná leik á árinu
Hólmbert Aron Friðjónsson hefur
verið frá keppni vegna meiðsla eftir
að Brescia keypti hann af Aalesund
Ljósmynd/Aalesund
2020 Hólmbert Aron vonast eftir því
að spila aftur áður en árið er liðið.