Morgunblaðið - 10.12.2020, Síða 41
41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020
Pottormur Árbæjarlaug og aðrar sundlaugar opna að nýju í dag. Einhver virðist þó hafa skellt sér í pottinn í gær.
Árni Torfason
Þórdís Lóa Þór-
hallsdóttir skrifar um
skuldir Reykjavík-
urborgar og telur
þær vera minni en
nágrannasveitarfélag-
anna. Til er einföld
aðferð til að kanna
hvort slíkt sé rétt.
Hún er sú að bera
saman skuldir á íbúa.
Samband íslenskra
sveitarfélaga birtir þessar tölur á
vef sínum. Þar kemur fram að
skuldir samstæðu borgarinnar voru
2,6 milljónir á hvert mannsbarn.
Sambærileg tala nágrannasveit-
arfélaganna Kópavogs,
Hafnarfjarðar, Garða-
bæjar, Seltjarness og
Mosfellsbæjar er innan
við helmingur af því eða
1,2 milljónir á mann.
Þessi samanburður er
sláandi og segir sína
sögu. Nú gerir Þórdís
Lóa ráð fyrir að taka 52
milljarða að láni á
næsta ári. Skuldir
Reykjavíkur vaxa því
áfram og er borgin í al-
gerri forystu á höf-
uðborgarsvæðinu. Hvað þetta varð-
ar.
Eftir Eyþór
Arnalds
Eyþór Arnalds
Höfundur er oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjórn.
Skulda tvöfalt
-
500,000
1,000,000
1,500,000
2,000,000
2,500,000
3,000,000
RVK Hafnarf Kópav Mos Selt Garðabær
Skuldir á íbúa 2019
Ný markmið Íslands
í loftslagsmálum verða
kynnt á leiðtogafundi
sem Sameinuðu þjóð-
irnar, Bretland og
Frakkland standa að á
laugardag. Í Parísar-
sáttmálanum er kveðið
á um að ríki heims eigi
að uppfæra landsmark-
mið sín á fimm ára
fresti og nú er komið að
fyrstu uppfærslu. Á fundinum á laug-
ardaginn koma saman leiðtogar
þeirra ríkja sem eru reiðubúin að
kynna uppfærð og enn metn-
aðarfyllri markmið en áður um sam-
drátt í losun gróðurhúsalofttegunda,
kolefnishlutleysi og framlög til
loftslagstengdra verkefna í þróunar-
löndum.
Á undanförnum árum hefur Ísland
markað sér stöðu sem ríki sem stend-
ur að mörgu leyti framarlega í lofts-
lagsmálum. Á leiðtogafundinum á
laugardag höldum við áfram á þeirri
braut og kynnum þrjú ný metnaðar-
full markmið;
a) Aukinn samdráttur í losun gróður-
húsalofttegunda. Úr núverandi
markmiði um 40% samdrátt m.v.
árið 1990 í 55% eða meira til ársins
2030 en það markmið tengist sam-
floti Íslands með ESB og Noregi.
b) Efldar aðgerðir einkum í land-
notkun, sem munu auðvelda Ís-
landi að ná settu markmiði um kol-
efnishlutleysi fyrir 2040 og að auki
áfangamarkmiði um kolefnishlut-
leysi losunar á beinni ábyrgð ís-
lenskra stjórnvalda í kringum árið
2030.
c) Aukin áhersla á loftslagstengd
þróunarsamvinnuverkefni einkum
á sviði sjálfbærrar orku.
Þó að heimsfaraldur kórónuveiru hafi
yfirskyggt flest önnur verkefni und-
anfarna mánuði þá hefur loftslags-
váin síður en svo horfið á meðan. Í
upphafi þessa kjörtímabils ákvað rík-
isstjórnin að forgangsraða loftslags-
málunum og kynnti fyrstu aðgerða-
áætlun Íslands í loftslagsmálum
strax haustið 2018. Flaggskip að-
gerðaáætlunar eru samdráttur í los-
un frá samgöngum með orkuskiptum
og landgræðsla, skóg-
rækt og endurheimt
votlendis. Þar settum
við okkur það markmið
að verða kolefn-
ishlutlaus ekki seinna
en árið 2040.
Aðgerðaáætlun
í loftslagsmálum
Í sumar kynntum við
svo uppfærða aðgerða-
áætlun í loftslagsmálum
þar sem staðfest var að
með þeim verkefnum
sem fóru af stað í fyrri áætlun hefði
þegar náðst sá árangur að hægt væri
að gera ráð fyrir meiri samdrætti í
losun en krafa er gerð um í núverandi
samkomulagi Íslands og Noregs við
ESB. Ísland er því vel undirbúið að
takast á hendur ný metnaðarfyllri
markmið í loftslagsmálum.
Með aðgerðaáætluninni er komið
öflugt stjórntæki í loftslagsmálum
með mælanlegum markmiðum og
fjármögnuðum aðgerðum sem skila
nú þegar árangri. Fjárframlög til
umhverfismála hafa aukist um 47% í
tíð þessarar ríkisstjórnar og þar af
hafa bein framlög til loftslagsmála
ríflega áttfaldast auk verulegrar
aukningar á ívilnunum til vistvænna
ökutækja, virkra ferðamáta og
hleðslustöðva auk stuðnings við
breyttar ferðavenjur. Nauðsynlegt er
þó að efla valdar aðgerðir á því sviði í
tengslum við metnaðarfyllra mark-
mið um samdrátt í losun og það er
hægt að gera m.a. með því að flýta
aðgerðum í orkuskiptum og auka
stuðning við loftslagsvæna nýsköpun.
Til þessa verður horft við gerð næstu
fjármálaáætlunar á vordögum.
Til að ná markmiði um kolefnis-
hlutlaust Ísland fyrir árið 2040 er kol-
efnisbinding með skógrækt og land-
græðslu lykilaðgerð til að ná árangri,
auk annarra aðgerða í landnotkun,
s.s. endurheimt votlendis. Efla þarf
slíkar aðgerðir sem geta samhliða
frumkvöðlastarfi við bindingu kol-
efnis í berglögum markað Íslandi
sérstöðu meðal fremstu ríkja varð-
andi upptöku kolefnis úr andrúms-
lofti, sem er ein megináhersla í Par-
ísarsamningnum. Þær eru einnig til
þess fallnar að auka samkeppn-
ishæfni Íslands, skapa störf og
styrkja byggðir, auk þess að vera
„náttúrulegar loftslagslausnir“, sem
stuðla að vernd og endurheimt vist-
kerfa og landgæða. Með auknum að-
gerðum á þessu sviði getur Ísland
náð þeim áfanga að verða kolefnis-
hlutlaust varðandi losun á beinni
ábyrgð Íslands í kringum árið 2030.
Framlög Íslands til loftslags-
tengdra verkefna í þróunarsamvinnu
munu aukast um 45% á næsta ári í
samanburði við yfirstandandi ár. Þar
er sérstaklega horft til verkefna á
sviði sjálfbærrar orku með tilliti til ís-
lenskrar sérþekkingar, aðallega jarð-
hitanýtingar í Austur-Afríku.
Okkar stærsta áskorun
Loftslagsváin hefur skapað neyð-
arástand nú þegar víða um heim.
Hún er okkar stærsta áskorun. Okk-
ar stærsta verkefni er að draga úr
hraða þessarar ógnvænlegu þróunar,
lágmarka skaðann og tryggja framtíð
okkar og lífríkisins alls á þessari
plánetu. Því að mannkynið á ekki eft-
ir að fá annað tækifæri á annarri
plánetu heldur aðeins það tækifæri
sem við höfum hér og nú.
Í slíku ástandi skiptir máli að nýta
lærdóma fortíðar en lykilatriðið er
samt núið: það sem við ætlum að gera
núna. Það er mikilvægt að finna fyrir
aukinni vitund hjá almenningi um
mikilvægi þess að við leggjum öll
okkar lóð á vogarskálarnar. Það veit-
ir okkur öllum aukið hugrekki til að-
gerða. En baráttan verður ekki ein-
göngu lögð á almenning. Samstarf
ríkis, sveitarfélaga, fjárfesta, at-
vinnurekenda, samtaka launafólks og
umhverfis- og náttúruvernd-
arsamtaka og margra fleiri er nauð-
synlegt til að draga vagninn. Sam-
stillt átak er forsenda þess að við
náum raunverulegum árangri.
Þó að heimsfaraldurinn hafi tekið
mesta okkar athygli undanfarna
mánuði þá er það líka svo að við höf-
um tækifæri til að gera hlutina öðru-
vísi að lokinni kreppu. Við leggjum
áherslu á að viðspyrnan verði græn.
Meðal annars með því að tryggja með
jákvæðum hvötum að kraftur einka-
fjárfestingar styðji við græna um-
breytingu, kolefnishlutleysi og sam-
drátt gróðurhúsalofttegunda. Það
gerum við líka með því að halda
áfram að auka stuðning okkar við
grænar fjárfestingar hins opinbera.
Við erum á réttri leið. Við settum
okkur skýr markmið í upphafi kjör-
tímabils og höfum fylgt þeim eftir af
festu og ákveðni. Til að ná raunveru-
legum árangri í baráttunni við lofts-
lagsvána skiptir nefnilega öllu að láta
verkin tala. Ísland á að skipa sér í
fremstu röð í þessum málum; börnin
okkar eiga að geta litið um öxl og
sagt: Hér var gripið í tauma og ráðist
í aðgerðir fyrir framtíðina. Það er
ekki eingöngu okkar ábyrgð – heldur
líka tækifæri fyrir Ísland til fram-
tíðar.
Eftir Katrínu
Jakobsdóttur
» Við erum á réttri
leið. Við settum okk-
ur skýr markmið í upp-
hafi kjörtímabils og höf-
um fylgt þeim eftir af
festu og ákveðni.
Katrín Jakobsdóttir
Höfundur er forsætisráðherra.
Metnaður fyrir framtíðina
Morgunblaðið/Golli
Fljótaá í Fljótum Ísland hefur markað sér stöðu sem ríki sem stendur að mörgu leyti framarlega í loftslagsmálum.