Morgunblaðið - 10.12.2020, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 10.12.2020, Qupperneq 54
✝ Helgi Jóhann-esson fæddist í Reykjavík 20. október 2006. Hann varð bráð- kvaddur 27. nóv- ember 2020. Foreldrar hans eru Jóhannes Ingi- mundarson, fædd- ur 14. febrúar 1967, og Marta María Jónasdóttir, fædd 23. mars 1977. Leiðir þeirra skildi. Jóhannes er í sambúð með Silviu Bök, fædd 10. september 1976. Marta María er í sambúð með Páli Winkel, fæddur 10. júlí 1973. Bróðir Helga er Kolbeinn Ari, fæddur 13. júlí 2009. Hálf- systir Helga samfeðra er Fanney Jóhannesdóttir, fædd 26. nóvember 1992. Hún er í sambúð með Hreini Bergs, fæddur 24. júní 1991. Þau eiga dóttur sem fædd- ist 1. desember 2020. Stjúpsystur Helga eru Guðný Kristín Winkel, fædd 27. febrúar 2002, og Katrín Pála Winkel, fædd 11. desember 2003. Helgi ólst upp í Fossvogi. Helgi var á leikskóla á Kvistaborg. Hann hóf svo skólagöngu í Háaleitisskóla haustið 2012. Árið 2019 hóf hann skólagöngu í Réttar- holtsskóla. Helgi var listfengur og hafði næmt auga fyrir um- hverfi sínu. Hann lagði mikla áherslu á gott og náið fjöl- skyldulíf og hans bestu stund- ir voru í faðmi fjölskyldunnar. Útför Helga fór fram frá Neskirkju 8. desember 2020. Elsku Helgi minn eða Moli 1 eins og ég kallaði þig okkar á milli. Áður en þú fæddist hélt ég að börn væru krúttlegir fylgihlutir sem mæður klæddu í sitt fínasta púss og montuðu sig af. Ef þú hefðir ákveðið að koma í heiminn 20. október árið 1906 hefðum við líklega bæði kvatt þessa jarðvist í fæðingunni. 100 árum síðar voru læknavísindin hins vegar orðin það háþróuð að móður þinni var bara trillað inn á skurðstofu þar sem málinu var reddað. Það að fá þig í fangið var engu líkt. Ég upplifði mikinn vanmátt því ég vissi ekki að foreldrar gætu elskað börnin sín jafnheitt og ég elskaði þig. Frá fyrstu mínútu ákvað ég að gefa þér allt sem ég átti til þess að þú myndir feta lífs- ins veg glaður. Þegar þú varst fimm ára greindist þú með vöðvarýrnunar- sjúkdóminn Duchenne. Það var mikið áfall fyrir okkur foreldrana þína og alla sem þótti vænt um þig. Við ákváðum að setja fókus- inn á að þú myndir lifa venjulegu lífi. Duchenne var þarna með okk- ur og við vissum alltaf af honum, en ákváðum að láta lífið ekki snú- ast um hann. Lífið snerist um þig, elsku Helgi okkar. Á stund sem þessari þar sem það er óhugsandi að við eigum ein- hvern tímann eftir að líta glaðan dag þá græt ég af þakklæti. Þakk- læti fyrir að hafa fengið þessi 14 góðu ár þar sem þú varst kenn- arinn. Þú kenndir mömmu hvað skiptir mestu máli í lífinu. Þú kenndir mömmu að það skiptir máli að eiga alltaf góðar hvers- dagslegar stundir og voru okkar bestu stundir þegar við spjölluð- um saman fyrir svefninn. Þegar ég lagðist upp í rúm hjá þér og við ræddum um vonir og væntingar. Þig dreymdi um að eignast bíl þegar þú yrðir 17 ára og engan venjulegan bíl. Þú vildir Læðu eins og Ólafur Ragnar í Nætur- vaktinni keyrði um á og Helgi stóri frændi. Það hvarflaði ekki að mér að segja að Læðan væri kannski ekki sérlega hjólastóla- væn heldur naut þess að hlusta á framtíðarpælingar. Ég sá þetta líka ljóslifandi fyrir mér við þínar leiftrandi frásagnir. Sá sem á von á svo margt. Í sorginni fer hraðlest af stað í hausnum á mömmu sem minnir á öll ferðalögin okkar til Kaliforníu, Króatíu og Kanarí, Ítalíu, Kaup- mannahafnar, Krítar og Parísar svo einhverjir staðir séu nefndir. Í Parísarferðinni 2019 neitaðir þú til dæmis að taka litla hjólastólinn með og þegar ég var búin að bera þig um stræti borgarinnar í heilan dag keyptum við barnakerru svo við gætum haldið fjörinu áfram. Í þínum huga var nefnilega ekkert að. Þú kvartaðir aldrei og varst harður af þér fram á síðasta dag. Þú bannaðir mömmu að leggja í P- stæði og minntir á að þú gætir al- veg labbað. Í gegnum lífið sýndir þú hvað þú ert mikið hörkutól. Við sem eftir sitjum með sorg í hjarta huggum okkur við góðar minningar og vitum að við verðum að halda áfram. Mamma mun reyna að lifa eftir öllum góðu gild- unum sem þú kenndir henni enda varstu regluvörðurinn í fjölskyld- unni. Minningin um dásamlegan dreng mun lifa. Elska þig enda- laust. Mamma. Fyrir rúmum fimm árum lágu leiðir okkar Helga saman í fyrsta sinn þegar ég og móðir hans vor- um að taka okkar fyrstu skref í heillaríku sambandi. Ég áttaði mig fljótt á að samband mæðgin- anna Mörtu, Helga og Kolbeins var einstakt. Sérstök hjartahlýja, ástúð og gagnkvæm virðing ein- kenndi samband þeirra og ég fann fljótt að til þess að eiga von um að verða hluti þessarar einingar ásamt dætrum mínum þurfti ég að leggja mig fram. Það reyndist mér einfalt verkefni enda eru þau öll hvert öðru yndislegra. Helgi tók mér með fyrirvara enda setti hann hagsmuni sinna nánustu í fyrsta forgang og ætlaði að tryggja að enginn kæmi illa fram í garð ást- vina hans. Fljótlega tókst þó með okkur góður kunningsskapur sem síðar þróaðist í náinn vinskap og kærleika. Helgi var dulur en hafði leiftrandi skopskyn og einstaka hjartahlýju auk þess sem ekki var hægt annað en fyllast aðdáun á af hve mikilli þrautseigju hann tókst á við alvarlegan sjúkdóm sem hann glímdi við. Öll vissum við að baráttan yrði erfið en skyndilegt andlát hans er okkur öllum óbæri- legt áfall og tilvera fjölskyldunnar verður aldrei söm. Ég er þakklátur fyrir dásam- legar minningar í formi samveru- stunda og fjölskyldugleði en lífs- viðhorf móður hans um að lifa lífinu hamingjusöm og til fulls gerði okkur öllum kleift að lifa góðu og innihaldsríku lífi. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið Helga og Kolbein bróður hans inn í líf okkar. Helgi gerði líf okkar betra og okkur að betri manneskj- um. Blessuð sé minning Helga Jó- hannessonar. Öðrum fjölskyldu- meðlimum og ástvinum bið ég allrar blessunar. Páll Winkel, stjúpfaðir. Elsku góði og fallegi bróðir minn. Mikið ofboðslega er erfitt að kveðja þig svona snemma. Þú hef- ur kennt mér margt þó svo að þú hafir ekki endilega vitað það, eins og til dæmis að vera þakklát fyrir það sem ég hef, njóta stundarinn- ar og ekki að pæla í smáhlutum sem skipta engu máli. Þú varst alltaf svo jákvæður og kátur þeg- ar við hittumst og stutt í húmorinn hjá þér. Ég heyrði þig aldrei kvarta og þú lifðir lífinu til fulls sem er svo gott að hugsa til á þess- um stundum. Þú varst mikill húm- oristi og ég er svo rosalega þakk- lát fyrir þær stundir sem sem við áttum saman. Eins og þegar við hlógum saman að fyndnum you- tube-myndskeiðum eða þegar þú flissaðir að furðulegum samræð- um milli mín og foreldra okkar. Það sem ég er líka þakklát fyrir eru samfélagsmiðlarnir. Þar áttu okkar helstu samskipti sér stað þar sem við bjuggum hvort í sínu landinu. Þú sparaðir það ekki að senda mér hjörtu og kveðjur sem mér þykir svo dýrmætt, elsku Helgi minn. Þú áttir gott líf, góða vini og tvær yndislegar fjölskyldur sem hugsuðu svo vel um þig og vildu allt fyrir þig gera. Þú fékkst að ferðast um heiminn og gera það sem þér þótti skemmtilegt. Fyrir það er ég líka þakklát. Ég mun sakna þín verulega og það verður skrítið að koma heim til Íslands um jólin með nýfæddu dóttur mína og geta ekki sýnt þér hana. Ég vissi að þú varst spennt- ur að fá það nýja hlutverk að verða móðurbróðir. Í staðinn ætla ég að sýna henni myndir og segja henni fallegar sögur af þér þegar hún verður eldri. Þú verður alltaf móðurbróðir hennar þótt þú sért ekki hjá okkur. Ég veit að þú fylg- ist með okkur einhvers staðar. Elsku Helgi minn, hvíldu í friði. Ég elska þig. Þín stóra systir, Fanney. Þau komu inn í líf mitt þegar sonur minn kynntist Mörtu Mar- íu. Það var þegar þau komu í heimsókn til mín að ég sá þau fyrst. Yfir þeim var eitthvert sér- stakt yfirbragð, yfirbragð lífs- gleði, styrks og samheldni. Greini- legt var að þessi þrjú, þ.e. Marta, Helgi og Kolbeinn synir hennar, ætluðu að tækla þetta líf með trompi. Öll voru þau hvert öðru glæsilegra en ég tók eftir að Helgi hafði aðeins öðruvísi göngulag en hin en ekkert meira en það. Síðan fékk ég að vita að helti Helga væri vegna sjúkdómsins Duchenne sem hann var greindur með þegar hann var fimm ára. Enginn bar- lómur var þarna á ferðinni heldur bara ísköld staðreynd sem þurfti að læra að lifa með. Á þeim fimm árum sem ég fékk að vera með í hans lífi heyrði ég Helga aldrei kvarta á nokkurn hátt, þvert á móti var hann mjög kátur og létt- ur þótt hann væri ekkert að trana sér fram og þakklátur var hann fyrir allt sem lífið færði honum. Raunverulega lifði hann mjög innihaldsríku lífi, ekki síst vegna frábærra aðstandenda sem gerðu sér grein fyrir að mikilvægt væri að hann fengi að upplifa sem mest á meðan heilsan leyfði. Ég leyfi mér að vitna í orð móður hans sem komu fram í blaðaviðtali við hana árið 2015, fjórum árum eftir að sjúkdómsgreining Helga varð ljós. Þar segir hún m.a. að við svona fréttir breytist allt og mað- ur spyr sig hvað sé hægt að gera til að gera lífið skárra og eitt af því sé að gæta þess að aldrei sé vond stemning og togstreita, vera þakklát fyrir hvern dag, tala við börnin og segja þeim nákvæmlega hvernig hlutirnir eru. Gæta þurfi þess að rækta samband við vinina til að forðast einangrun og leyfa Helga að gera allt sem hann er fær um að gera til þess að taka þátt í lífinu eins mikið til fulls og hægt er og hlífa honum ekki. Við þessi orð hefur hún staðið svo vel að þegar ég sá þau þrjú fyrst leyndi sér ekki ákafur lífsþróttur- inn. Þarna var ekki nein beygð fjölskylda á ferðinni. Marta gætti þess að Helgi fengi að upplifa sem mest á meðan hann hefði heilsu til, ferðast til og um Bandaríkin tvisv- ar, um þvera og endilanga Evr- ópu, þar á meðal Kanarí, og einnig hér innanlands, t.d. fóru þau á húsbíl um Ísland sl. sumar eins lengi og Helga langaði. Aldrei misstu þau af tækifæri til þess að gera sér glaðan dag svo sem á af- mælisdögum og á hátíðum, heim- ilið skreytt og gerður góður og skemmtilegur matur og sæta- brauð. Helgi var svo lánsamur að eiga að góðan bróður, hann Kol- bein, sem er þremur árum yngri, en stór og sterkur eftir aldri og var hann betri en enginn þegar rétta þurfti stóra bróður hjálpar- hönd við ýmis tækifæri, einkum þegar á leið, því smám saman ruddi sjúkdómurinn sér meira og meira til rúms eftir því sem tímar liðu. Minningin um góðan og yndis- legan dreng lifir í hjörtum allra sem til þekktu og er það mikil arf- leifð eftir ekki lengra líf en 14 ár. Bið ég nú allar góðar vættir að vaka yfir eftirlifandi aðstandend- um og blessuð veri minning hans. Guðný Jónsdóttir stjúpamma. Í dag kveðjum við Helga, elsta barnabarnið okkar, aðeins 14 ára gamlan, hann varð bráðkvaddur 27. nóvember sl. stuttu eftir heim- komu úr skólanum, þar sem hann kenndi sér slappleika. Helgi var hlédrægur og blíður drengur, það má kannski ráða að hlédrægnin hafi stafað af Duch- enne-sjúkdómnum sem hann greindist með ungur að árum. Hann var heldur ræðnari við okkur afa og ömmu upp á síðkast- ið þegar unglingsárin gengu í garð, þar sem áhuginn á ýmsum málum fullorðna fólksins jókst. Sjúkdómurinn skerti hreyfi- hæfni hans en hann lét það ekki stoppa sig. Helgi ferðaðist hér heima og töluvert til útlanda ýmist með pabba sínum eða mömmu. Hann fékk að upplifa meira en margur, foreldrarnir sáu til þess hvort með sínum fjölskyldum. Helgi og Kolbeinn bróðir hans fóru í sumar með móður sinni hringinn um landið á húsbíl, þar sem þau þrjú nutu sín, skoðuðu landið og spiluðu á kvöldin. Þeir bræður fóru í stutta sjó- ferð með afa í sumar og höfðum við allir gaman af. Helgi þurfti að notast við raf- skutlu sem við kölluðum „trylli- tækið“ og fór hann sjálfur akandi á rafskutlunni í skólann. Tryllitækið var vinsælt meðal skólasystkinanna sem alla tíð studdu Helga með ráðum og dáð. Aðdáunarvert hefur verið að fylgjast með þeim bræðrum Helga og Kolbeini sem studdu hvor annan án þess að mikið færi fyrir því. Helgi sýndi frændsystkinum sínum mikla alúð og blíðu, það var aðdáunarvert að sjá hann með tvíburafrænkur sínar í fanginu. Þá fór kisa ekki á mis við blíðu Helga. Elsku Helgi okkar, takk fyrir allar góðu stundirnar með þér, þótt tíminn hafi verið alltof stutt- ur, megi englar Guðs umvefja þig elsku ljósið okkar. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson) Jónas afi og Harpa amma í Vesturási. Elsku Helgi minn. Deginum sem þú fæddist man ég eftir líkt og hann hafi verið í gær. Spenningurinn var í há- marki. Beint af ballettæfingu fékk ég þig í fangið og klæddi litlu tólf klukkustunda gömlu tærnar í nýprjónaða rauð-hvítröndótta sokka. Erfiðlega gekk mér að klæða spriklandi tærnar í þá. Sokkarnir voru eilítið misstórir og prjónaðir af tíu ára gömlu stoltu frænku sem eignaðist þarna fyrsta litla frænda sinn. Ég naut þess að fá að fylgja þér næstu fjórtán árin, glaða, góða og hógværa frænda mínum. Af þér stafaði ró og friður, geð- góður varstu mjög og ljúfur. Ég fékk að leika við þig og passa líkt og þú værir minn eigin bróðir og fyrir það er ég ævinlega þakklát. Það var svo indælt að fá að hafa þig í hverfinu, einkum þegar þú bjóst í sömu götu og í þeirri næstu. Minningarnar eru af ýms- um toga líkt og ferðir okkar til Danmerkur þegar við þeyttumst um landið í leit að öllum rússíbön- um landsins. Þau voru ófá spilin, hjólatúrarnir, lærdómsstundirn- ar, bátsferðirnar og sögustund- irnar sem við áttum saman. Minnugur varstu með eindæmum þannig að frásagnir af gömlum gleði- og grínstundum voru afar nákvæmar. Gleðistundirnar voru ófáar í þínu lífi enda áttir þú heimsins besta litla bróður sem alltaf er svo glaður, fyndinn og hress. Þið tveir voruð eins og hugur hvor annars og gátuð aldr- ei verið lengi aðskildir. Fallegra bræðrasamband er vart hægt að hugsa sér. Ég var svo lánsöm að starfa í sama grunnskóla og þú gekkst í fyrstu sjö grunnskólaárin. Lítil hlý bros og stutt hnitmiðuð vink mættu manni oft hér og hvar á göngunum. Vænst þykir mér um veturinn þegar þú varst í 6. bekk og ég var stuðningsfulltrúi í bekknum þínum. Vinirnir voru margir í bekknum, góðir, hressir og stuðningsríkir, og ég minnist oft ferðarinnar til Nauthólsvíkur þegar þú mættir í fyrsta sinn á bílnum þínum, skælbrosandi, með þrjá vini hangandi á trylli- tækinu. Þetta var ekki í síðasta sinn sem vinirnir fengu far með þér. Úr frímínútum í Réttó skruppuð þið stundum í gamla grunnskólann ykkar og köstuðuð háværum kveðjum á gamla fé- laga. Stoltið sem ríkti hjá tíu ára gömlu frænkunni daginn sem þú fæddist hefur aukist dag frá degi en sokkarnir eru fyrir löngu orðnir of litlir. Minning þín lifir alla tíð, björt og hlý. Elsku Helgi minn. Þín er sárt saknað. Við sjáumst síðar, Marta frænka. Litli frændi minn hefur frá fyrstu tíð verið ofarlega í huga mér og staðið nálægt hjartanu og í raun horfði ég á hann á margan hátt meira eins og bróður. Hann sagði ekki margt en mér fannst hann ekki þurfa þess því mér fannst ég skilja hann. Mér fannst hann jafnvel vera líkur mér. Það var ekki boltinn sem heillaði heldur bílar og tækni. Að skrúfa og komast að því hvað væri fyrir innan og sjá hvernig hlut- irnir voru settir saman, heillast af snúningi hjóls og krafti í bíl. Hann birtist á sinn hægláta hátt kannski með hjólabrettið eða á hjóli, kom upp að hlið manns og fylgdist athugull með einu og öðru sem maður hafði fyrir stafni svo sem bílaviðgerðum og tölvustússi. Þrátt fyrir að hann væri hlédræg- ur skein eftirtekt hans í gegn. Það kom líka á daginn að hann hafði tekið eftir því hann kunni og gat. Hann tók vel í það þegar maður bauð honum með í það sem maður var að fást við í frítímanum og áreynslulaust var það að finna handa honum gjafir, en áhugasvið okkar reyndust vera á sömu mið- um. Hvort sem um var að ræða að draga vélarvana bíl, fara á bíla- sýningu, í skógarferð, fylgjast með dýrum eða skjóta upp flug- eldum, þá var gott að hafa glaðan og áhugasaman frænda með. Minnist ég þess nú fyrir stuttu að þegar við vorum að velja sam- an aðgangsorð þá stakk ég upp á því í gamni að aðgangsorðið væri um það að hann væri bestur en eftir umhugsun þá vildi hann frekar að það snerist um það að hinir væru jafn góðir og hann. Svona var hann frændi minn hlýr og hjartagóður, vildi öllum vel og sá aðeins það góða. Kankvísi frændi minn hefur ávallt verið og mun áfram vera mér ofarlega í huga þegar ég fæst við það sem ég veit að hann myndi hafa gaman af. Garðar Arnarsson. Elsku Helgi. Ég á erfitt með að trúa því að ég sé að skrifa þessi orð. Ef allt væri eðlilegt þá værir það þú sem myndir skrifa um mig eftir mörg ár en lífið er ekki alltaf sann- gjarnt. Mér verður hugsað til þess hversu þakklátur ég er fyrir að hafa kynnst þér og þann tíma sem ég fékk með þér. Það er ómetanlegt en ekki sjálfsagt að hafa kynnst litlum frænda sínum svona náið enda leit ég frekar á þig sem lítinn bróður. Okkar samband hófst snemma eða strax á fæðingardeildinni þar sem ég sá þig fyrst. Þegar leiðin lá í leikskóla hófust bíltúrarnir hjá okkur en þangað sótti ég þig með æfingaakstursleyfinu. Í seinni tíð voru bíltúrarnir nokkrir þar sem við prófuðum hina ýmsu bíla, bár- um þá saman, skoðuðum borgar- lífið og þá bíla sem urðu á vegi okkar. Með þér sannaðist það að bílaáhuginn er meðfæddur. Strax sem lítið barn í kerru varst þú far- inn að þekkja helstu bíla í sundur eftir tegundum. Eitt sinn þegar ég gekk með þig um hverfið í vagni til að svæfa þig þurfti ég að breiða sérstaklega vel yfir vagn- inn til að þú sæir ekki út því þú taldir upp alla þá bíla sem við gengum fram hjá í stað þess að sofna. Við náðum að gera margt sam- an á þeim stutta tíma sem við fengum. Bæði heima í Brekku- gerði og í fríum. Þessa dagana er ferð okkar í Tívolí í Kaupmanna- höfn mér ofarlega í huga. Sú ferð var mikið ævintýri og tókst ykkur bræðrum að plata mig í mikið svakalegri tæki en ég hefði alla jafna lagt í. Þið vilduð prófa öll tækin, bentuð bara á næsta og næsta þótt ég lýsti þeim sem rosa- legum til að fæla ykkur frá þeim mín vegna enda var ég stóri frændinn í ferðinni og gat ekki sagt að ég þyrði ekki. Þar hafði ég ekki erindi sem erfiði og fórum við í nánast öll tækin í Tívolíinu þar sem þið skemmtuð ykkur vel en ég lokaði bara augunum á með- an rússíbaninn fór á hvolf. Núna verða bíltúrarnir okkar ekki fleiri en þú getur reitt þig á það að ég verð alltaf til staðar fyr- ir litla bróður þinn og okkar besta vin. Vonandi hittumst við svo aft- ur síðar þar sem þú getur rakið fyrir mig í smáatriðum það sem á daga okkar hefur drifið líkt og þú gerðir þegar vel lá á þér. Jónas Arnarsson. Helgi Jóhannesson HINSTA KVEÐJA Elsku Helgi, drauma- drengurinn hennar frænku. Takk fyrir spjallið. Takk fyrir sms-in. Takk fyrir búðarferðirnar. Takk fyrir ísbúðarferðirnar. Takk fyrir rúntinn. Takk fyrir að lúlla í sófanum mínum. Afi veit að amma tekur á móti Helga sínum í draumalandinu. Elska þig. Ragna frænka. Elsku Helgi. Með fatastílinn á hreinu og jákvæðni í framsætinu stýrðir þú lífinu á fallegan veg. Upprennandi og efni- legur tónlistarmaður, löngu orðinn björt stjarna okkar bræðra. Ingimundur Óskar og Jón Kristján. Aldrei tími góður gleymist, gott er ætíð hann að muna. Minning Helga í hugum geymist, honum þökkum samveruna. Við þökkum Helga fyrir dýrmætar og góðar stundir öll árin okkar saman í Hvassaleitisskóla. Kær- leiks- og samúðarkveðja frá okkur öllum. Fyrir hönd samnemenda og foreldra úr árgangi 2006, Hvassó, Rósa Jóhannesdóttir. 54 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.