Morgunblaðið - 10.12.2020, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 10.12.2020, Qupperneq 58
58 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020 landi, og alltaf var tilhlökkun þeg- ar von var á Ágústu til Hafnar. Ágústa var trúuð kona og safn- aðarstarf við Dómkirkjuna var henni mikils virði. Þar eignaðist hún marga góða vini. Samstarfs- fólk hennar í Seðlabankanum var líka upp til hópa vinir hennar. Ágústa var bara dáð og elskuð af þeim sem kynntust henni. Hún var mikill dýravinur og voru kettir í sérstöku uppáhaldi. Þá naut hún þess að skoða landið sitt og var þá gjarnan sjálf undir stýri. Eftir að ég flutti aftur á höf- uðborgarsvæðið styrktist vinátta okkar Ágústu enn frekar og héld- um við nær daglegu sambandi upp frá því. Það breyttist allt þennan laugardagsmorgun og símtölin við Ágústu verða því mið- ur ekki fleiri. Ég, börnin mín og barnabörn hugsum hlýlega til Ágústu og þökkum henni samfylgdina. Kristni sendum við samúðar- kveðjur, hans missir er mestur. Edda Flygenring. Kveðja frá Dómkirkjunni Í dag er til moldar borin hin mæta og kirkjurækna kona, Ágústa K. Johnson, sem um langa hríð hefur verið virk í safnaðar- starfi Dómkirkjunnar. Við fráfall hennar leita þessi orð svo sterkt á hugann: Kærleik- ur, trúfesti, umhyggjusemi, gjaf- mildi, fórnfýsi, heiðarleiki og fé- lagslyndi. Öllum þessum hæfileikum var Ágústa ríkulega búin. Þetta vita allir sem þekktu hana og störfuðu með henni í öll þessi ár, ekki síst við sem nutum vináttu hennar. Í öllum hennar störfum er enn einn hæfileikinn ótalinn en hann er hve létt hún átti með að vinna með öðrum og laða fram það besta í þeim. Eftir erfið veikindi þar sem tví- sýnt var um líf hennar náði hún heilsunni á ný. Vaknaði því sú von að fram undan biði áhyggjulaust ævikvöld þar sem hún sjálf væri í fyrirrúmi. Sú von brást. Kallið kom skyndilega og Ágústa hélt til móts við skapara sinn sátt við líf sitt, reiðubúin til að ganga inn í hið eilífa líf. Á kveðjustund er okkur hugs- að til Kristins, en missir hans er mikill. Megi góður Guð blessa hann og styrkja. Í brjóstum okkar sem eftir lif- um ríkir söknuður og eftirsjá. En þar inni býr líka minningin um góða og trúaða konu sem helgaði líf sitt kirkjunni sinni og með- borgurum og tókst að gera um- hverfi sitt betra en það var fyrir. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Marinó Þorsteinsson, formaður sóknarnefndar. Ágústa Johnson var samstarfs- kona föður okkar, Jóhannesar Nordals, í meira en þrjá áratugi og vinkona okkar allra í sextíu ár. Hún réðst ung til starfa í Lands- banka Íslands að afloknu stúd- entsprófi frá Verzlunarskóla Ís- lands og flutti sig síðan í nýstofnaðan Seðlabanka Íslands árið 1961. Þar starfaði hún óslitið í tæp fimmtíu ár. Ágústa varð rit- ari föður okkar þegar hann var skipaður seðlabankastjóri árið 1961 og var í mörgum skilningi hans nánasti samstarfsmaður þar til hann lauk störfum í bankanum árið 1993. Það var einstök gæfa hans að fá svo trausta, vandaða og glað- lynda manneskju sér við hlið. Hún gerði allt óaðfinnanlega sem hún tók sér fyrir hendur. Hélt ut- an um alla þræði á skrifstofu bankastjóra og leysti fumlaust öll verkefni. Stoð hans og stytta í vandasömu starfi. Aldrei bar nokkurn skugga á samstarf þeirra og vináttu sem varði allt til loka. Það varð ekki hjá því komist að Ágústa yrði vinkona okkar systra og ein af fjölskyldunni. Hún fylgdist með okkur vaxa úr grasi og sýndi öllum áföngum í lífi okk- ar einlægan áhuga. Alltaf tók hún fagnandi á móti okkur þegar við komum smástelpur til funda við pabba á skrifstofu hans eða þegar við litum til hennar á Flókagöt- unni. Alltaf glöð með opinn faðm- inn og sitt einstaka hlýja bros og tindrandi augu, þó að lífið væri kannski ekki alltaf dans á rósum. Það skildum við síðar. Orð Opinberunarbókarinnar koma okkur í hug þegar við minn- umst Ágústu á kveðjustundu, vertu trúr allt til dauða og ég mun gefa þér lífsins kórónu. Eðlislæg trúmennska var henni í blóð borin og rann eins og rauður þráður í gegnum líf hennar. Hjartahlý og bænheit trúkona, akkeri fjöl- skyldu sinnar og sannur vinur vina sinna. Við kveðjum kæra vin- konu með djúpu þakklæti. Bera, Guðrún, Salvör og Marta. Foreldra mína hefur örugglega ekki órað fyrir því, þegar þau festu kaup á sinni fyrstu íbúð, hversu einstakir nágrannar fylgdu með í kaupunum. Þrátt fyrir að þau hefðu einungis stutta viðdvöl á Hringbrautinni skipuðu þau Sigríður, Ágústa og Kristinn sérstakan sess í okkar huga, ekki síst okkar systkinanna. Ég var ekki fæddur þegar foreldrar mín- ir fluttust af Hringbrautinni, en naut samt góðs af þessari vináttu sem varð til á þessum árum, á svo ótrúlega margan hátt. Þegar ég hugsa til baka finnst mér eins og það hafi alltaf verið sunnudagur þegar ég hitti þau og gott ef það var ekki alltaf sól líka. Að minnsta kosti er óvenjubjart yfir þessum minningum, hvort sem Ágústa var að fara með okkur á jólaböllin sem voru engu lík í Seðlabankan- um, skrúðgöngu 17. júní eða við komum í heimsókn fyrst á Hring- brautina og síðan á Flókagötuna. Móttökurnar voru þvílíkar að ég sagði oft seinni árin við Ágústu að mér liði eins og þjóðhöfðingja þegar ég kæmi í heimsókn til þeirra. Þessar minningar eru líka vel varðveittar því að Ágústa var sérstakur hirðljósmyndari fjöl- skyldunnar, sem kom sér vel því að skilningur og áhugi á ljós- myndun í fjölskyldu minni var enginn og varla til fjölskyldu- myndir aðrar en þær sem Ágústa hefur tekið. Það kom þó ekki að sök því það var enginn fjölskyldu- viðburður haldinn án þess að Ágústa væri viðstödd. Það var t.d. föst venja hjá okkur í fjöl- skyldunni að hitta þau á jóladag og mikilvægur þáttur í okkar jólahaldi. Í þeim jólaboðum var fastur liður að taka skák við Kristin, sem hafði kennt mér mannganginn. Markmiðið var alltaf að reyna að vinna hann, sem tókst nánast aldrei, enda Kristinn góður skákmaður. Ágústa fylgdist vel með mér alla tíð og mér fannst mikilvægt að standa mig í skólanum, ekki síst biblíusögunum, og sýndi henni stoltur einkunnir mínar þegar svo bar undir. Hún hvatti mig áfram og veitti mér ýmsar ráðleggingar sem ég tók mark á. Ég var afkastamikill blaðberi á þessum árum og velti því fyrir mér hvort ég ætti ekki að hætta því og auka tekjurnar með því að gerast blaðasali. Ég bar þetta upp við Ágústu en hún benti mér á að með því að vera blaðberi hefði ég fastar tekjur en blaðasal- an væri óviss og ekki alltaf víst að ég myndi nenna að selja blöðin auk þess sem salan gæti brugðist. Það væri því ekki víst að tekjurn- ar myndu aukast þegar upp væri staðið. Þessari fyrstu viðskipta- ráðgjöf tók ég mark á, enda vissi ég að hún var, eins og annað sem frá Ágústu kom, vel ígrunduð. Ágústa var minnug, örlát, fróð og traustur vinur sem vildi veg minn sem bestan. Í raun var ég alltaf barnið í þessum samskiptum, sem hún þreyttist aldrei á að dekra við, alveg fram í andlátið. Þegar ég hringdi í Ágústu seinni hluta októbermánaðar til að segja henni frá því að ég væri orðinn afi hafði ég enga hugmynd um að hún hafði nokkrum dögum áður verið flutt á Landakot. Hún kom til baka á Flókagötuna og virtist vera að aukast kraftur þegar hún féll óvænt frá. Við fjöl- skyldan sendum Kristni og öðr- um aðstandendum samúðar- kveðjur. Helgi Sigurðsson. Yndisleg kona er fallin frá. Við Ágústa kynntumst fyrir um 30 árum þegar Már sneri aftur til starfa við Seðlabanka Íslands eft- ir nokkur ár í fjármálaráðuneyt- inu. Hún kynnti sig fyrir mér og rakti tengsl sinnar fjölskyldu við mína. Hún sagði mér að móður- amma mín, Ingiríður Kristín Helgadóttir, hefði reynst móður hennar svo einstaklega vel um miðja öldina. Amma sem þá var orðin ekkja og flutt til Reykjavík- ur hafi stutt móður hennar sem var einstæð móðir með tvö ung börn. Hún talaði svo fallega um ömmu og minntist sérstaklega kjóls sem amma færði henni. Það var ekki daglegt brauð þá eins og nú að fá nýja flík. Það var gaman og upplýsandi að sjá hana ömmu mína í öðru ljósi. Okkur Ágústu varð vel til vina og alla tíð sýndi hún okkur Má vinskap og hlýju. Ég bjó erlendis þegar Ágústa lét af störfum í Seðlabankanum snemma árs 2009 og voru sam- skiptin þá og árin á undan tak- mörkuð. En eftir að Már tók við embætti seðlabankastjóra síðla sumars það ár hófust samskipti okkar á ný. Formlegur kvöld- verður fyrir Ágústu með fyrrver- andi seðlabankastjórum og mök- um þeirra í byrjun árs 2010 og ýmsir viðburðir í bankanum sem hún var dugleg að mæta á koma upp í hugann. Ætíð var einstak- lega ánægjulegt að hitta hana. Ég minnist einnig áttræðisaf- mælis hennar fyrir tæpum tveim- ur árum, haldið í safnaðarheimili Dómkirkjunnar, en kirkjan skip- aði stóran sess í lífi Ágústu. Þar var hún umvafin þeim sem voru henni kærastir, ættingjum, vin- um, samstarfsfólki frá sínum gamla vinnustað og frá kirkjunni. Mikið var hún glöð þessi hægláta kona. Við hittumst síðast í febrúar sl. við jarðarför mömmu. Þrátt fyrir kulda, snjó og erfiða færð kom hún í Kópavoginn til að kveðja. Veiran var þá þegar farin að láta á sér kræla en engar sam- félagslegar takmarkanir höfðu verið settar. Það var því gott að geta faðmað hana enn á ný, fregnað af henni og sagt henni fréttir af okkur Má í Malasíu. Ég kveð einstaka konu með hlýju og þakklæti í huga. Við Már sendum Kristni, bróður hennar, og öðr- um ættingjum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Ágústu K. Johnson. Elsa S. Þorkelsdóttir. Það hefur líklegast verið í maí- mánuði 1959 að ég hitti Kristin bróður Ágústu á kaffihúsi og ég sagði honum að ég ætlaði að taka stúdentspróf utan skóla í Verzl- unarskólanum þá um vorið, að Kristinn sagði við mig: Af hverju talarðu ekki við hana Gústu syst- ur en hún var í skólanum og ætl- aði líka að taka þetta próf. Ágústa tók mér tveim höndum og var reiðubúin að veita mér alla þá hjálp sem hún gæti. Eftir þetta kom ég oft heim til Ágústu og þáði alltaf góðar veitingar hjá mömmu hennar og Ágústa brást mér ekki. Hún var mér stoð og stytta allan tímann þar til próf- unum var lokið. Þakklæti mitt er það blóm sem aldrei fölnar né fellir blöðin. Bestu þakkir fyrir allt. Eyþór Heiðberg. Farsæld og góðmennska eru þau tvö orð sem fyrst koma upp í hugann þegar hugsað er til Ágústu K. Johnson, samstarfs- konu okkar og vinkonu til ára- tuga. Ágústa var í hópi fyrstu starfsmanna Seðlabanka Íslands og naut mikillar farsældar sem deildarstjóri í bankanum í hálfa öld. Að frátöldum núverandi seðlabankastjóra vann hún með öllum hinum, þar til hún lét af störfum fyrir aldurs sakir fyrir rúmum áratug eftir glæsilegan feril þar sem hún veitti stjórn- endum bankans ómetanlega að- stoð. Ágústa sinnti starfi sínu af einstakri fag- og trúmennsku og samstarfið við hana var einstakt. Hún var vakin og sofin yfir öllum málefnum Seðlabankans og hagsmunum hans. Hún var stofnanaminnið holdi klætt, en um leið alltaf að huga að nýjustu tækni til að þróa starfið. Vinnuframlag og viðhorf Ágústu til vinnunnar var einstakt, sem þó rímaði vel við einstakan per- sónuleikann. Hún elskaði starfið sitt og sá ekki sólina fyrir sam- starfsfólkinu. Ágústa varð fjöl- skylduvinur samstarfsfólksins, mætti í barnaafmælin og fylgdist með fjölskyldumeðlimum. Í góð- mennsku sinni og hlýju prjónaði hún bæði peysur og vettlinga til að halda hlýju á fólkinu sínu. Ágústa var trúuð manneskja og tók mikinn þátt í kristilegu starfi um árabil. Hún lifði sam- kvæmt þeim boðskap, sýndi öðr- um mikla umhyggju og góð- mennska einkenndi allt hennar fas. Hún kom jafn vel fram við alla, vildi öllum vel og samferða- fólk hennar naut gæsku hennar í hvívetna. Ævi Ágústu var farsæl. Hún naut trausts og mótaði sannar- lega menningu Seðlabanka Ís- lands. Sú menning einkennist af trausti, heiðarleika og fag- mennsku. Hennar verður sárt saknað en minning um einstaka samstarfskonu lifir. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráð- herra, og Jón Sigur- geirsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Ágústa K. Johnson Okkar innilegustu þakkir fyrir allar þær kveðjur og samúðaróskir sem okkur hafa borist við fráfall föður okkar, afa og langafa, JÓNS ÞÓRS JÓHANNSSONAR, fv. framkvæmdastjóra, sem andaðist 2. nóvember. Minning hans mun lifa. Þorleifur Þór Jónsson Þórdís H. Pálsdóttir Stefanía Gyða Jónsdóttir Jóhann Þór Jónsson Þórunn Marinósdóttir Bergrún Svava Jónsdóttir Ragnar Baldursson barnabörn og barnabarnabarn Þótt móðir mín sé nú bara minning ein mun ég ávallt minnast hennar með glöðu geði og dýpstu virðingu hugheilu þakklæti og hjartans hlýju fyrir allt og allt (Sigurbjörn Þorkelsson) Elsku besta mamma mín, nú ert þú komin í sumarlandið og veit ég að það hefur verið tekið vel á móti þér. Nú hleypur þú á tánum í grænu grasi og horfir á falleg blóm allt í kringum þig. Þú verður örugglega fljót að finna lítinn búgarð til að dunda þér við að setja niður kartöflur og annað. Mikið á ég eftir að sakna þín og að heyra ekki röddina þína í símanum. Veit að þú heldur áfram að fylgjast með okkur og vernda. Hvíldu í friði elsku mamma mín og takk fyrir allt og allt. Þín dóttir, Alda Björg (Bogga). Mig langar að minnast tengda- móður minnar Dísu í Árgerði í ör- fáum orðum. Ég var ekki gamall þegar ég kom fyrst í Árgerði til Magna og Dísu, eða um 15 ára gamall. Mér var alltaf vel tekið og þær voru ófáar stundirnar sem við áttum saman í ýmsum rök- ræðum sem snerust nú oftar en ekki um hrossaræktina. Þú varst mér miklu meira en einungis tengdamóðir, við urðum sam- starfsfélagar í hrossaræktinni og ég var svo einstaklega lánsamur að fá að taka við ykkar frábæra ræktunarstarfi. Árið 2002 kaup- um við Herdís Litla-Garð og urðu þá tengslin enn meiri þar sem einungis einn kílómetri skildi bæina að. Varð stöðugur sam- gangur og hjálpsemi á báða bóga, við pössuðum hvert upp á annað. Það var mikil hvatning hversu áhugasöm þú varst um allt sem við vorum að gera, við áttum löng símtöl um framgang hrossarækt- arinnar og ef vel gekk á hesta- mannamótum samgladdist eng- inn meira en þú. Þú varst okkar fremsti stuðningsmaður og verð ég þér ætíð þakklátur fyrir það. Þú varst frábær amma, þú hélst utan um hópinn þinn og passaðir vel upp á hann. Mikið á ég eftir að sakna þín en ég veit að þú hefur það gott með Magna í sumarland- inu og heldur ræktunarstarfinu ótrauð áfram þar á nýrri grund. Þú hafðir áhuga á öllu sem varðaði búskapinn og vissir alltaf allt. Minnugri manneskju hef ég heldur ekki kynnst. Elsku Dísa mín, ég vil þakka þér fyrir allar ánægjustundirnar, dugnaðinn og ævistarfið sem þú skilaðir með glæsibrag. Lopa- peysurnar sem þú prjónaðir á mig og ullarsokkana, betri flíkur hef ég aldrei eignast. Ég geri mitt besta til að halda ræktuninni á lofti og halda áfram með ykkar frábæra ræktunarstarf. Ég veit að þið Magni munuð fylgjast með og halda verndarhendi yfir okk- ur. Sæl að sinni og við sjáumst þegar minn tími kemur. Þinn tengdasonur, Stefán Birgir. Elsku amman mín. Alla tíð hef ég vitað hve stór hluti af mínu lífi þú hefur alltaf verið en það er ekki fyrr en þú ert farin sem ég Þórdís Sigurðardóttir ✝ Þórdís Sigurð-ardóttir fædd- ist 21. september 1941. Hún lést 20. nóvember 2020. Útförin fór fram 30. nóvember 2020. átta mig á hversu stór hluti það raun- verulega var. Þetta skarð sem þú skilur eftir þig verður aldrei fyllt en ég hugga mig við að hafa átt þig að hing- að til og að eiga margar góðar minn- ingar. Mikið sem ég sakna þess að heyra í þér og fá alls konar lífsins ráðleggingar, hvort sem þær ráðleggingar voru velkomn- ar eða ekki þá sakna ég þeirra allra. Þú varst ekki bara amma mín heldur góð vinkona alla tíð og varst partur af öllu og inni í öllu ávallt. Hugur þinn var allar stundir með okkur öllum í fjöl- skyldunni þinni og þú hafðir hug- ann ávallt við sveitina og öll þau sveitastörf sem til falla hverju sinni. Það verður virkilega skrýt- ið í vor að fá ekki símtal og áminningu um að kaupa kartöflu- útsæði eða geta ekki hringt í þig með þær gleðifréttir þegar hryssurnar kasta og svo mætti lengi telja. Svo margt sem ég mun sakna. En ég veit að þú ert komin á betri stað elsku amma mín og loksins frjáls á ný. Ég elska þig af öllu hjarta og mun alltaf sakna þín. Góða ferð amma mín. Ég vaknaði af djúpum dvala við dýrlegan hörpuóm. Sál mína dreymir síðan sólskin og undarleg blóm. Ég fann hvernig foldin lyftist og fagnandi tíminn rann, með morgna, sem klettana klifu, og kvöld, sem í laufinu brann. Nú veit ég, að sumarið sefur í sál hvers einasta manns. Eitt einasta augnablik getur brætt ísinn frá brjósti hans, svo fjötrar af huganum hrökkva sem hismi sé feykt á bál, unz sérhver sorg öðlast vængi og sérhver gleði fær mál. (Tómas Guðmundsson) Þín Ásdís Helga. Elsku duglega amma mín er dáin. Það er svo óraunverulegt því fyrir tveimur vikum varstu að hvetja mig til að fara í vélstjórn. Þú varst alltaf með ráð við öllu, t.d. vildirðu að andalæknar lög- uðu mitt brákaða hné, „já það gerir alla vega ekkert til að prufa það“, sagðir þú og hlóst. Það var alltaf stutt í grínið hjá þér amma mín og þú vildir fylgjast með öllu sem ég tók mér fyrir hendur. Ég man þegar ég fór með þér í fjósið að mjólka kúna, gefa kindunum og ná í eggin til hænsnanna. Þetta gerðum við saman í hverri viku og hjóluðum saman út í hús. Þegar mikið lá við áttirðu það til að segja við mig að ég yrði að drífa mig, „sko núna eða strax“, amma mín var ekkert fyrir hangs. Ég veit að það er nóg að gera hjá þér núna. Ég sé þig fyrir mér fríska og létta í spori á grænum túnum með blóm í haga. Þú varst mér góð og kær amma og ég mun alltaf taka þig til fyrirmyndar því umhyggju- samari og duglegri konu hef ég aldrei kynnst. Takk fyrir allar okkar stundir, elsku amma mín, óteljandi minn- ingar á ég með þér sem ég mun aldrei gleyma. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum í trú á að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Ég elska þig að eilífu! Þinn Sindri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.