Morgunblaðið - 10.12.2020, Síða 70
70 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
2012
2020
HJÁ OKKUR FÁST
VARAHLUTIR
Í AMERÍSKA BÍLA
Alda Norðfjörð Guðmundsdóttir
fæddist á Norðfirði 10.12. 1930, en
telur sig alltaf vera Ísfirðing. Í dag
eru afkomendur hennar orðnir 78,
það eru níu börn, 23 barnabörn og 46
barnabarnabörn, samkvæmt Öldu-
bók sem uppfærð er árlega af afkom-
endum.
Alda gekk í barnaskóla á Norðfirði
og fermdist þar. Þegar hún er 14 ára
flytja afi og amma hennar, Guðjón
Símonarson og Sigurveig Sigurðar-
dóttir, til Reykjavíkur og hún fer
með þeim. Foreldrar Öldu, þau Guð-
mundur Eyjólfsson og Sigríður Guð-
jónsdóttir, koma fljótlega eftir það til
Reykjavíkur. Erfitt var fyrir utan-
bæjarfólk að fá húsnæði í Reykjavík.
Ekki var um aðra möguleika að ræða
en að leigja húsnæði í bragga. Það
var í Laugarneskampi sem Alda sá
verðandi eiginmann sinn, Leif Jónas-
son, í fyrsta sinn. Hún var þá 17 ára,
en hann 23 ára fráskilinn tveggja
barna faðir. Þrátt fyrir mikil mót-
mæli ættingja varð ekki aftur snúið.
Fyrsta barn Öldu og Leifs, Sigurður,
fæddist snemma árs 1950, síðan
fæddist Kolbrún 1951 og Svanhvít
1952. Þegar fósturfaðir Leifs, Har-
aldur Guðmundsson, kemur suður og
sér aðstæður ungu hjónanna, býður
hann þeim að koma vestur á Ísafjörð.
Þar eignast þau sitt fyrsta húsnæði,
Fjarðarstræti 35 sem var 65 fermetr-
ar, en með óinnréttuðu lofti. Börnin
héldu áfram að fæðast: Bryndís
(Brynja) 1953, d. 1980, Ómar 1954 og
Sigurrós 1955, en hún var ættleidd
og því fylgdi mikill tregi og eftirsjá.
En lífið hélt áfram og Haraldur
fæddist 1958, Hulda 1960 og Ágúst
1961, níu börn á 11 árum. Þegar elstu
börnin fara að heiman flytja Alda og
Leifur með tvö yngstu börnin í
Fjarðarstræti 4. Alda verður ekkja 4.
maí 1976 þegar Leifur ferst á sjó að-
eins 52 ára og flytur til Reykjavíkur
eftir 28 ára búsetu á Ísafirði og vann
á Borgarspítalanum til 1989.
Alda er ein af alþýðuhetjum lands-
ins sem þrátt fyrir erfiðar aðstæður
tókst að koma börnum sínum á legg
og lét þau aldrei líða skort. Börnin
hennar eru öll mjög samrýnd og hafa
spjarað sig vel í lífinu. Þau þakka
móður sinni þann góða grunn sem
þau fengu og leitast nú við að láta arf-
leifðina ganga fram til komandi kyn-
slóða.
Alda Norðfjörð
Guðmundsdóttir – 90 ára
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það virðist vera sama hvað fólk ger-
ir þér, þú bregst við á þroskaðan hátt.
Reyndu að setja þér skýr markmið og
stefna svo ótrauður að þeim.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er eitt og annað í þínum eigin
garði sem þarfnast athugunar og úrbóta.
Mundu að draumar þínir geta orðið að
veruleika ef þú ert óhræddur.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ættir að reyna að hvíla þig eitt-
hvað í dag, því þú hefur satt að segja geng-
ið ansi nærri þér. Taktu vandamálin í þínar
hendur og leystu þau sjálfur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert skapandi og skemmtilegur
og átt auðvelt með að kenna öðrum. Temdu
þér virðingu fyrir sjónarmiðum annarra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert enn að ákveða hversu nálægt
vissri manneskju þú átt að hætta þér.
Gættu þess að þú vanrækir ekki skyldur
þínar og taktu málin föstum tökum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Hvert augnablik dagsins þarf ekki að
vera skipulagt. Þótt gott sé að hafa reynsl-
una bak við eyrað er nauðsynlegt að ganga
fordómalaus til móts við nýja tíma.
23. sept. - 22. okt.
Vog Komdu öllu í verk sem þú hefur látið
reka á reiðanum að undanförnu. Þú hefur
margt til málanna að leggja.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú getur ekki ætlast til þess að
aðrir trúi á málstað þinn ef þú ert sjálfur í
einhverjum vafa.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Samræður gegna þýðingar-
miklu hlutverki í fjölskyldunni í dag. Tíminn
hefur unnið með þér svo allt reynist þetta
auðveldara en þú bjóst við.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þótt þú getir sett mál þitt fram
með skemmtilegum hætti er ekki þar með
sagt að allir gleypi við skoðunum þínum.
Flestar breytingar verða vegna hversdags-
legra hluta.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Gefðu þér tíma til þess að leyfa
sköpunargáfunni að njóta sín og láttu ann-
að sitja á hakanum á meðan. Slík tilbreyting
mun aðeins hafa gott í för með sér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ef þú heldur rétt á spilunum mun
þér ganga allt í haginn á næstunni. Reyndu
að halda aftur af löngun þinni til að kaupa
eitthvað um leið og þér sérð það.
hópi sem heitir „Göngusystur“ frá
1997. Við erum búnar að ganga
þvers og kruss um landið og höf-
um tvisvar farið til útlanda í göng-
ur. Þar eru nokkrar reglur í há-
vegum hafðar: enginn sími nema á
kvöldin, en þá þarf að læðast; eng-
ir starfstitlar virkir nema vaktir í
mötuneyti hópsins og svo göngum
Stundum voru útköllin mjög löng
og börn ekki að spyrja hvað
klukkan sé þegar þau vilja koma í
heiminn. Ég hafði yndi af þessu
starfi, en vaktirnar voru farnar að
taka toll eftir rúm tuttugu ár. Á
þessum tíma var undantekning ef
barnshafandi kona fæddi „uppi á
landi“ og þá var það yfirleitt
vegna þess að þeim var vísað
vegna sérstakrar áhættu, t.d.
veikinda móður eða barns. Það
eru mikil forréttindi að hafa feng-
ið að starfa í faginu á landsbyggð-
inni og hafa fullbúna skurðstofu
og fagfólk ef grípa þyrfti inn í
fæðingarferlið.“
Guðný starfaði sem ljósmóðir í
Reykjavík á árunum 2009-2011, en
var kennari á sjúkraliðabraut við
Framhaldsskólann í Eyjum 2011
til starfsloka 2017. Hún var for-
maður Vesturlandsdeildar Hjúkr-
unarfélags Íslands í eitt ár, vara-
bæjarfulltrúi í Eyjum í tvö
kjörtímabil 1990-1998 og var aðal-
fulltrúi í félagsmálanefnd þau
skeið.
Guðný er mikil útivistarkona og
segir göngur helsta áhugamálið
fyrir utan heimili og starf. „Ég
hef verið í skemmtilegum göngu-
G
uðný Bjarnadóttir
fæddist 10.12. 1950 á
Kjalvararstöðum í
Reykholtsdal. „Móðir
mín eignaðist fimm
börn á sex árum og við vorum öll
fædd heima, en Guðý fæddist
sama ár og Ásdís systir hennar
lést.“ Mannmargt var á heimilinu
og afi Guðnýjar bjó þar og yfir-
leitt eitthvert vinnufólk og svo
börn ættingja á sumrin.
Guðný gekk í barnaskóla á
Kleppjárnsreykjum, fór síðan í
Reykholtsskóla og útskrifaðist
vorið 1967. Um haustið hóf hún
störf á Landsspítalanum sem
gangastúlka. Þá tók við Hjúkr-
unarskóli Íslands og þaðan út-
skrifaðist hún um vorið 1972, en
starfsárin í heilbrigðiskerfinu urðu
48 samanlagt. Guðný var alltaf að
bæta við sig og árið 1979 varð hún
svæfingahjúkrunarfræðingur frá
Nýja hjúkrunarskólanum og ljós-
móðir frá Ljósmæðraskóla Íslands
árið 1988. Síðar lauk hún sjö ein-
ingum til meistaraprófs í sál-
gæslufræðum við HÍ og djákna-
námi við guðfræðideild HÍ 2007 og
vígðist ári síðar. Eftir að
hjúkrunarnámi lauk starfaði
Guðný á sjúkrahúsum í Reykjavík
og á Akranesi, en frá 1979 við
Sjúkrahúsið í Eyjum, fyrst sem
hjúkrunarfræðingur, en frá 1988-
2010 sem ljósmóðir.
„Ég flyt til Vestmannaeyja í
desember 1979 og bý í 39 ár, þar
til í febrúar 2018. Þá flytjum við
hjónin í Borgarnes, nálægt mínum
æskuslóðum. Í Vestmannaeyjum
starfaði ég á hand- og lyflæknis-
deild og auk þess á skurðstofu. Ég
starfa frá 1988 eingöngu sem ljós-
móðir, en þá voru stöðugildi ljós-
móður tvö og maður var á sólar-
hringsvöktum. Þetta var mjög
skemmtilegt – algjört draumastarf
– þar sem maður fylgdi konum og
þeirra fjölskyldum allt ferlið. Oft
var mikið að gera, en góð hlé á
milli, en með vaktsímann var mað-
ur ekki frjáls. Mér er minnisstætt
að eitt sinn tók ég á móti fjórum
börnum á fjórtán tímum, en allar
þær fæðingar gengu vel fyrir sig.
allar í röð og engin fer hraðar en
sú sem fer hægast. Eftir því sem
líður á ævina sé ég hvað ræktar-
semi við fjölskyldu, vini, skóla-
félaga og samstarfsfólk í gegnum
tíðina er mikilvæg. Samskipti við
náungann eru hin raunverulegu
verðmæti í lífinu.“
Guðný og eiginmaður hennar,
Kristján, eru með ferðabíl og hjól-
hýsi og skreppa oft með litlum
fyrirvara út á land þegar andinn
grípur þau. Síðan eiga þau papil-
lion-tíkina Lóu, sem er tólf ára
gömul. „Hennar velferð og ham-
ingja er samofin okkar lífsgöngu.
Hún er mikil prinsessa og hefur
veitt okkur ómælda gleði og
ánægju, en við hjónin erum barn-
laus og það er út af fyrir sig sér-
stakt lífsferðalag.“
Árið 2020 stofnaði Guðný, ásamt
Grétu Björgvinsdóttur, Borg út-
fararþjónustu í Borgarnesi. „Ég
hef alltaf haft gaman af að vinna
og að vera virk í samfélaginu og
mér fannst að það sem ég hef lært
af bókum og lífinu sjálfu gæti
komið vel að gagni við útfarar-
þjónustu. Útfararþjónusta er þjón-
usta við lífið, því um leið og fyrsti
andardrátturinn er tekinn eftir
Guðný Bjarnadóttir ljósmóðir, djákni og útfararstjóri – 70 ára
Þjóðhátíð 2017 Guðný og Kristján með Emblu Tókedótt-
ur, dóttur vinkonu þeirra, Önnu Kristínar Magnúsdóttur.
Alla tíð í þjónustu við lífið
Ljósmóðirin Hér er Guðný með
fjögur nýfædd börn sem hún tók á
móti á 14 tímum í Vestmannaeyjum.
Þórsmörk 2014 Guðný er búin að vera í gönguhópn-
um Göngusystur frá 1997 sem er góður félagsskapur.