Morgunblaðið - 10.12.2020, Qupperneq 71
DÆGRADVÖL 71
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020
Sloppar
í jólap k
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 • Vefverslun: selena.is
fverslun
ena.is
heimsending
um land allt
Ve
sel
Frí
Opið alla daga til jóla
„AFSAKIÐ HVAÐ ÉG KEM SEINT. MISSTI
ÉG AF EINHVERJU?”
„ÞAÐ VIRKAR OFTAST.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að líða vel í eigin
skinni.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HRÓLFUR HRÆÐILEGI ER AÐ
RÁÐAST Á OKKUR OG ÞÚ ERT AÐ
DREKKA?
ÉG SKAL HUNDUR HEITA EN ÉG
EFTIRLÆT EKKI HRÓLFI BESTA
VÍNIÐ MITT!
FÖRUM
ÚT
ÓKEI! ÉG MEINTI
SAMAN!
HUGSA, LÍSA,
HUGSA
GEF
IST
UP
P!
GLUGG
GLUGG
fæðingu er víst að dauðinn heim-
sækir líka einhvern tímann, en
hvenær stundin rennur upp veit
enginn sem betur fer.“
Fjölskylda
Eiginmaður Guðnýjar er Krist-
ján G. Eggertsson, f. 20.8. 1947,
rafvirkjameistari, fram-
kvæmdastjóri og hafnarvörður í
Vestmannaeyjum til 2018. For-
eldrar hans eru hjónin Eggert
Ólafsson, f. 7.3. 1924, d. 12.4.
1980, skipasmíðameistari frá
Eyrarbakka, og Helga Ólafs-
dóttir, f. 13.1. 1925, d. 11.4. 1997,
húsmóðir og skrifstofumaður.
Þau bjuggu í Vestmannaeyjum.
Guðný var áður gift Bergþóri
Bergþórssyni, f. 16.9. 1950, fram-
reiðslumanni. Systkini Guðnýjar
eru 1) Snorri, f. 22.7. 1944, tón-
mennta- og ökukennari í Reykja-
vík; 2) Halldór, f. 5.8. 1945, húsa-
smíðameistari í Borgarnesi; 3)
Ármann, f. 27.3. 1947, bóndi á
Kjalvararstöðum, og 4) Ásdís, f.
27.7. 1948, d. 1950.
Foreldrar Guðnýjar eru hjónin
Bjarni Þorsteinn Halldórsson, f.
16.11. 1905, d. 30.7. 1984, bóndi
og Þórlaug Margrét Símonar-
dóttir, f. 6.3. 1909, d. 3.11. 1972,
húsmóðir. Þau bjuggu á Kjal-
vararstöðum í Reykholtsdal.
Guðný Bjarnadóttir
Guðlaug Stefánsdóttir
húsmóðir í Breiðumýrarholti
Þorsteinn Þorsteinsson
bóndi í Breiðumýrarholti
Guðrún Þorsteinsdóttir
húsmóðir frá Breiðumýrarholti
í Stokkseyrarhreppi
Símon Jónsson
sjómaður á Sauðárkróki
Þórlaug Símonardóttir
húsmóðir frá Jaðri í
Hrunamannahreppi
Ingibjörg Símonardóttir
húsmóðir í Neðra-Nesi
Jón Einarsson
bóndi í Neðra-Nesi á Skaga
Guðríður Jónsdóttir
húsmóðir í Gróf
Þorsteinn Sigmundsson
bóndi í Gróf í Reykholtsdal
Guðný Þorsteinsdóttir
húsmóðir á Kjalvararstöðum
Halldór Þórðarson
bóndi á Kjalvararstöðum
Helga Sighvatsdóttir
húsmóðir, f.k. Þórðar,
lést af barnsförum
Þórður Halldórsson
bóndi á Kjalvararstöðum og víðar
Úr frændgarði Guðnýjar Bjarnadóttur
Bjarni Halldórsson
bóndi á Kjalvararstöðum
1968 Guðný á fyrstu mánuðunum í
spítalalífinu, en árin urðu alls 48.
Pétur Önundur Andrésson sendimér í pósti „til gamans tvær
vísur“ og er mér ljúft að senda þær
áfram. – „Þráin eftir bjartari tíð“:
Sjáðu fossinn svala hjala
syngja og tala haf og storð.
Láttu rímið ljóðsins sala
letra í hrímið ástar orð.
Vænkast okkar allra hagur
urðir lífs og gæfan fléttast.
Fer að sólar fagur dagur
flest þá þungu verkin léttast.
Fyrir viku orti Magnús Hall-
dórsson á Boðnarmiði:
Ekki’er tíðin „ypparlig“,
ákaft vindur þýtur.
Frostið bara fjögur stig,
en fast í eyrun bítur.
Í „Prestavísum“, sem Sigurður
Guðmundsson vígslubiskup tók
saman segir, að sr. Gunnar Árna-
son hafi ort þessar vísur meðan
hann var enn á Æsustöðum:
Herra, þegar heimi frá
held ég á dauðavaðið
sendu mér hann Sörla þá
sit ég hann best í hlaðið.
Oft fær Sörli munann mýkt
minnir hann á vorið.
Það er draumi og ljóði líkt
létta hýrusporið.
Í Prestavísum segir frá því, að sr.
Jón Aðalsteinn Baldursson sendi-
ráðsprestur í London komi heim á
æskustöðvar sínar í Kaldakinn á
hverju hausti og gangi þá gjarna til
rjúpna. Einar Kristjánsson á
Ófeigsstöðum orti:
Ágirnd manna aldrei brást
örugg reyndist glíman.
Skrítin er þessi ættjarðarást
einkum um veiðitímann.
Haustið 1994 kom sr. Jón heim að
vanda og gekk til rjúpna. Um
kvöldið orti hann:
Af því mér var gefin gnægð
af græðgi bæði og hroka
er þungt að bera forna frægð
af fjalli í tómum poka.
Símon Dalaskáld orti um sunnu-
dagavinnu:
Blönduhlíðar-búendur
binda á sunnudögum;
er það ljótur ósiður
og mót kristnum lögum.
Og að lokum:
Held ég ekki hratt um veg
– horfin bestu árin.
Hann er orðinn eins og ég
ellihrumur klárinn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Tvær vísur til gamans
og raunar fleiri