Morgunblaðið - 10.12.2020, Qupperneq 76

Morgunblaðið - 10.12.2020, Qupperneq 76
76 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020 Það er runninn upp svartastimánuður ársins, og hvað erþá meira við hæfi en aðhlusta á svolítinn svart- málm til að ylja sér um hjartaræt- urnar? Margir gera þau mistök að halda að svartmálmur eða blakk- metall sé fráhrindandi og reið tónlist og eru jafnvel hræddir við að kanna þá tegund rokktónlistar. Ég kalla það mistök, því margir sem hlusta á framúrstefnurokk (proggrokk) og eldri rokkbönd frá áttunda og níunda áratugunum gætu haft verulegt gaman af því að víkka út sjóndeildar- hringinn. Sannleikurinn er sá að svartmálmur er alls konar, og innan þeirrar tegundar tónlistar flokkast bæði tilraunamennska, proggskotið rokk, gítarhávaðarokk og við- kvæmnisleg og hæg melódísk tónlist. Auðn hefur skapað sér þá sérstöðu innan íslensku senunnar að vera næstum hlý og ljóðræn í nálgun sinni á þetta vandmeðfarna form metals- ins, og gefa þó hvorki afslátt af þyngslum né útsetningum. Þetta er semsagt alls ekki poppuð tónlist, en samt er hún grípandi, hún grípur mann bara öðruvísi. Hún grípur mann eiginlega heljartökum, rétt eins og veðrið og myrkrið á Íslandi gerir. Þess vegna er ný plata Auðnar verulega kærkomin hlustun í desem- ber, þegar veðrið getur farið í alls kyns öfgar og myrkrið hægir á manni. Jóla- lögin eru ein- faldlega ekki allra, og „Ég kemst í hátíðar- skap“-ið kem- ur mér alls ekki í hátíðarskap. Ég skelli frekar einhverju háværu í græjurnar og reyni að hrista alla skanka til að koma blóðinu á hreyfingu. Lagasmíðar Auðnar virðast hafa beina tengingu við veðuröflin og hið ófyrirsjáanlega og á þessari þriðju plötu sveitarinnar er eins og þetta hafi styrkst til muna. Gítarveggurinn er orðinn nær óyfirklífanlegur, enda bættist þriðji gítarleikarinn við og hljómsveitin því orðin sextett. Við þá viðbót mæðir vissulega enn meira á rytmapari sveitarinnar og söngvara, en þeir hafa allir vaxið við þessa breytingu. Sérstaklega er gaman að heyra hve söngvarinn Hjalti Sveins- son hefur breikkað og bætt við sig í söngstíl sínum og tækni. Hann getur rumið eins og þurs, og vælt og skrækt og kallað örvæntingarfullt upp texta sína. Minnir mig á stöku stað á söngvara úr annarri sveit sem á ættir að rekja á Suðurlandið, Karl Óttar Pétursson, sem syngur með sveitinni Saktmóðigur. Það er pönk- aðri tónn í því, en jafnframt fullt af reiði og sársauka. Sú blanda kallast einstaklega vel á við beljandi trommuleik og gítarklettana. Ekki veit ég hvað hefur gerst hjá hljóm- sveitinni síðan fyrsta plata þeirra, samnefnd sveitinni, kom út árið 2014. Líklega má að minnsta kosti gera ráð fyrir því að mikil spila- mennska hafi styrkt bandið til muna, og sú ákvörðun að taka nýjustu plöt- una upp í lifandi flutningi var líklega sú besta sem þeir hafa tekið. Einnig hefur verið splæst í framúrskarandi hljóðblöndun og hljómjöfnun og þannig er platan orðin mjög „sam- keppnishæf“ á hinum erlenda mark- aði (en hver keppir svo sem í tón- list?). Hljómurinn á plötunni er í öllu falli afbragð og hún þolir bæði lág- væra hlustun sem og blastandi há- vaða svo rúðurnar nötra. Hvort ná- grannar mínir þola það jafnvel er önnur saga. Síðasta plata Auðnar, Farvegir fyrndar, kom út árið 2017, og var virkilega góð, en eitthvað hefur gerst síðan þá. Ef náttúruöflin og vind- hviður sem væla og veina væru í hljómsveit, þá væru þau í Auðn og lékju á gítar, svo mikið er víst. Þarna er ekki veikan blett að finna. Auðn „Þarna er ekki veikan blett að finna,“ segir um plötu sveitarinnar. Svartmálmur Auðn – Vökudraumsins fangi bbbbb Þriðja breiðskífa Auðnar. Aðalsteinn Magnússon, Andri Björn Birgisson og Hjálmar Gylfason leika á gítara, Matt- hías Hlífar Mogensen leikur á bassa, Hjalti Sveinsson syngur og Sigurður Kjartan Pálsson leikur á trommur. Einn- ig koma Magnús Jóhann og Arnaldur Ingi Jónsson við sögu á plötunni en þeir spila á hammondorgel og píanó. Platan er hljóðrituð í lifandi flutningi í Sund- lauginni og upptökum stjórnaði Steph- en Lockhart. Um hljóðblöndun og hljóm- jöfnun sá Jens Bogren. Season of Mist gaf út 30. okt. 2020. RAGNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR TÓNLIST Svört lög fyrir myrkrið Barnaræninginn eftir Gunn-ar Helgason er gífurlegaspennandi og spreng-hlægileg bók en ein- hverjum lesendum gæti ofboðið allt ofbeldið sem þar er að finna. Barnaræninginn er framhald af fyrri sögu Gunnars um rotturnar í Hafnarlandi, Draumaþjófinum, og er best að byrja á því að mæla með að lesa Draumaþjófinn áður en lengra er haldið. Söguþráður Barnaræningjans er nefnilega nokkuð flókinn og ef lesandinn vill forðast að koma af fjöllum í upphafi Barnaræningjans er líklega best fyrir hann að undirbúa sig með Draumaþjófinum. Barnaræninginn segir frá Eyrdísi og félögum hennar, rottum í Hafnarlandi, sem neyðast til að leggja upp í hættuför til þess að bjarga rottunum á Matarfjallinu frá móður Eyrdísar og Barnaræningj- anum. Ástandið er í raun Eyrdísi að kenna en hún hefði ekki getað séð fyrir þann ófögnuð sem myndi eiga sér stað á Matarfjallinu eftir að hún sendi móður sína og Barnaræningj- ann þangað í síðustu bók. Sam- viskubitið nagar Eyrdísi og hún og vinir hennar gera allt sem í þeirra valdi stendur til að bjarga matar- fjallsrottunum. Á vegi þeirra verða ótal ógnir, minkar, mávar, mann- eskjur, villirottur, reiðar matar- fjallsrottur og svo auðvitað barna- ræninginn og sjálfar tilrauna- rotturnar. Ógnirnar eru raunverulegar. Hver og ein þeirra ógnar lífi Hafnarfjalls- rottanna og það nægir ekki að flýja eða leysa málin svo allir gangi sáttir frá borði. Þá er gripið til ofbeldis. Grimmdin í rottuheimi Gunnars er mikil og er alveg líklegt að hún geti orðið einhverjum ungum lesendum um megn. Rotturnar slást, ganga hver af annarri dauðri og leggja sér jafnvel rottukjöt til munns. Annað sem gæti ofboðið les- endum eru gamaldags hugmyndir um tengsl stríðni og ástar, rottu- stelpa stríðir mun yngri rottustrák í sífellu og er sögð gera það vegna þess að hún sé skotin í honum. Slík hugmynd er nokkuð gamaldags og á varla við í nútímasamfélagi. Hið þriðja er kannski erfiðara að bera kennsl á en í bókinni má finna fitufordóma. Því er lýst í smá- atriðum hversu feit Skögultönn, móðir Eyrdísar, er og sannarlega er ekki dregin upp jákvæð mynd af þess konar líkamsgerð þar sem dóttirin fyllist viðbjóði yfir feitum líkamanum. Að því sögðu þá er söguþráðurinn í Barnaræningjanum upp á tíu. Hvert einasta atriði hans er úthugs- að og bókin heldur lesandanum rækilega við efnið. Söguþráðurinn er vissulega flókinn en Draumaþjóf- urinn undirbýr lesandann fyrir það sem koma skal. Höfundi tekst að gera rotturnar hæfilega mannlegar og hæfilega dýrslegar. Þannig verður bókin ein- hvers konar hliðarveruleiki við mannlegan veruleika, en í Barna- ræningjanum birtast t.a.m. hug- myndir um misskiptingu auðs og valds í einfaldaðri mynd. Þannig er Barnaræninginn ein af þeim bókum sem hjálpa lesandanum að læra á samfélagið, jafnvel þótt hann geri sér ekki grein fyrir því. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gunnar Söguþráðurinn í Barnaræningjanum er „upp á tíu. Hvert einasta at- riði hans er úthugsað og bókin heldur lesandanum rækilega við efnið“. Hrífandi rottuslagur Skáldsaga Barnaræninginn bbbnn Eftir Gunnar Helgason. Mál og menning, 2020. Innb., 224 bls. RAGNHILDUR ÞRASTARDÓTTIR BÆKUR Hugar, þeir Bergur Þórisson og Pétur Jónsson, eru tilnefndir af hálfu Íslands til Norrænu kvik- myndatónskáldaverðlaunanna fyrir tónlist sína við heimildarmyndina The Vasulka Effect í leikstjórn Hrafnhildar Gunnarsdóttur sem fjallar um líf og starf Vasulka- hjónanna, Steinu og Woodys, sem voru í hringiðu framúrstefnulistar og grasrótarmenningar New York- borgar í kringum 1970 og voru þar að auki frumkvöðlar í vídeólist. Tónlistin úr myndinni var nýver- ið gefin út á plötu hjá Sony Class- ical-útgáfunni um heim allan og ber platan titilinn The Vasulka Effect: Music for the Motion Picture. Tón- listinni hefur verið streymt yfir milljón sinnum á streymisveitunni Spotify og upplagið af plötunni á ví- nil er nánast uppselt, að því er fram kemur í tilkynningu. Hugar tilnefndir til Norrænu kvik- myndatónskáldaverðlaunanna Tilnefndir Bergur og Pétur eru Hugar. Ljósmynd/Anna Maggý HVÍTANES merino buxur Kr. 11.990.- Hlýjar Icewear gjafir Vinir fá sérkjör Skráning á icewear.is HVÍTANES merino bolur Kr. 13.990.-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.