Lögmannablaðið - 2020, Blaðsíða 14
14 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/20
Sex grunnreglur IBA um hegðun lögmanna
Á árinu 2014 gaf International Bar Association út viðmið-
unar reglur um hegðun lögmanna á samfélagsmiðlum (IBA
International Principles on Social Media Conduct for the
Legal Profession).
Þar kemur fram að hegðun á samfélagsmiðlum eigi
alltaf að vera í samræmi við skyldur lögmanns samkvæmt
lögum og siðareglum og að mikilvægt sé að lögmenn valdi
umbjóðendum sínum ekki tjóni eða skaði traust almennings
á lögmannastéttinni. Til að aðstoða samtök lögmanna, og
þá aðila sem hafa eftirlit með lögmönnum, við að setja
reglur og meta hegðun lögmanna á samfélagsmiðlum settu
samtökin fram eftirfarandi sex grunnreglur:
1. Óhæði
Mikilvægt er að lögmenn séu óháðir og ekki undir áhrifum
frá utanaðkomandi aðilum við störf sín. Á samfélagsmiðlum
tengjast lögmenn með sjáanlegum hætti umbjóðendum
sínum, dómurum og öðrum lögmönnum. Áður en lögmenn
stofna til rafrænna tengsla ættu þeir að huga að því hvaða
áhrif slík tengsl geti haft. Lögmenn eiga að gæta að því
að sýna sama sjálfstæði og óhæði á samfélagsmiðlum og
annars staðar.
2. Heilindi
Gerð er rík krafa til lögmanna um heilindi og heiðarleika á
öllum sviðum og þar með talið á samfélagsmiðlum. Það er
því mikilvægt að hafa í huga hvaða áhrif samfélagsmiðlar
geta haft á orðspor lögmanna. Í því sambandi er rétt
að hafa í huga að efni sem sett er fram í þrengri hóp á
samfélagsmiðlum getur komist í almenna dreifingu og
náð mikilli útbreiðslu.
3. Ábyrgð
Lögmenn verða alltaf að hafa í huga að það sem þeir gera
á samfélagsmiðlum fari ekki gegn lögum. Mikilvægt er að
skilja notkun samfélagsmiðla og nota aðgangsstillingar, en
jafnframt að skilja að þó að aðgangur að þeirri síðu sem efni
er sett fram á sé takmarkaður geti efni sem þar er sett fram
náð útbreiðslu hratt. Þá er rétt að hafa í huga að það innlegg
og þær skoðanir sem settar eru á samfélagsmiðla verða þar
HEGÐUN, ATFERLI
OG FRAMKOMA
LÖGMANNA Á
SAMFÉLAGSMIÐLUM
Óhætt er að segja að samfélagsmiðlar hafi breytt samskiptum, og raunar samfélaginu
öllu, síðustu ár. Margir lögmenn nota samfélagsmiðla bæði persónulega og við
atvinnu sína en rétt notkun á samfélagsmiðlum getur gefið lögmönnum möguleika
til að markaðssetja sig, til að skapa umræðu um lögfræðileg málefni og til að taka
þátt í umræðum við aðra lögmenn, viðskiptavini og fleiri aðila. Lögmenn verða hins
vegar að nota samfélagsmiðla á ábyrgan hátt og gæta að því hvernig þeir tjá sig.