Lögmannablaðið - 2020, Side 33
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/20 33
Ekið upp Arnarhól með ráðuneytisstjóra
Einhvern tímann var dr. Gunnlaugur á Land Rover
jeppanum á ferð í miðbænum og ók fram á Baldur Möller
ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins þar sem hann
var að ganga í vinnuna. Dr. Gunnlaugur bauð Baldri far
en þegar hann var að aka framhjá Arnarhóli þá tók hann
sig til og fór beint yfir hólinn. Lögregluþjónn varð vitni
að athæfinu, stoppaði dr. Gunnlaug sem skrúfaði niður
rúðuna og spurði: „Veistu hver situr hér við hliðina á mér?
Sjálfur ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins!“ Það urðu
ekki meiri eftirmálar af þessu.
Dr. Gunnlaugur kaupir Austin mini
Dr. Gunnlaugur ók alltaf um á Land Rover. Einn daginn
þegar dr. Gunnlaugur var að aka upp Hverfisgötuna, að flýta
sér í sakadóm, bilaði jeppinn. Hann lét hann renna upp á
gangstétt, fór og keypti næsta bíl sem var til í umboðinu.
Það var Austin mini.
„Hvor mange born har du?“
Í formannstíð Jóns Steinars Gunnlaugssonar fór
Lögmannafélagið í ferð til Kaupmannahafnar. Dr.
Gunnlaugur Þórðarson var með í för og var þá nýbúinn
að frétta af, og gangast við, stúlkubarni sem hann hafði
eignast einum eða tveimur áratugum fyrr. Einn morguninn
fóru lögmennirnir að skoða tölvufyrirtæki og voru allir
frekar ryðgaðir og illa til hafðir eftir slark næturinnar. Þar
flutti maður fyrirlestur um tæknimál framtíðar og gaf að
því loknu kost á fyrirspurnum. Dr. Gunnlaugur spurði þá:
„Hvor mange born har du?“
Maðurinn svaraði, dálítið hissa á spurningunni: „Jeg
har tre.“
Þá spurði dr. Gunnlaugur: „Har du de alle med den
samme kvinde?“
Bílnum gleymt í Hafnarfirði
Dr. Gunnlaugur var eitt sinn að reka erindi við sýslumanninn
í Hafnarfirði og skildi bílinn eftir í gangi fyrir utan á
meðan hann hljóp inn. Þegar hann kom aftur út var
Hafnarfjarðarstrætó að renna að og dr. Gunnlaugur stökk
upp í hann, án þess að muna eftir bílnum í gangi fyrir
utan embættið.
Flug til Húsavíkur eins og gróðurhús
Dr. Gunnlaugur var mjög úrræðagóður. Hann fór til
Snædísar dóttur sinnar reglulega þar sem hún bjó í Húsavík
og tók þá með trjáplöntur. Eitt sinn ætlaði hann að senda
plöntur með flugi norður en bíllinn var of seinn þannig að
það var búið að loka fraktinni. Hann fór í Húsavíkurröðina
og bað farþega að taka fyrir sig tvær plöntur í handfarangur.
Vélin til Húsavíkur þennan dag var eins og lítið gróðurhús.
Listaverkasala
Dr. Gunnlaugur leigði húsnæði til listamanna og tók
oft málverk upp í leigu þegar þeir voru blankir. Einn
daginn kom dr. Gunnlaugur í Lögmannafélagið með
stærðar málverk og spurði hvort hann mætti geyma það í
stjórnarherberginu. Hann fékk að hengja málverkið upp
en kom svo tveimur mánuðum síðar með reikninginn og
þá var auðvitað ekkert hægt að gera annað en að borga.
Eyrún Ingadóttir tók saman