Málfríður - 15.05.1996, Page 5

Málfríður - 15.05.1996, Page 5
eyri um gæðastjórnun í skóla- kerfinu, vitnaði ég í bók eftir breskan blaðamann, um þróun og stefnu fram til ársins 2020. Þar segir hann að í skólum séu notuð sömu vinnubrögð við kennslu og fyrir 150 árum. Þar hljóti að verða breyting á tímum nýrrar upplýsingatækni. Fyrr í þessari viku var ég á fundi vísinda- og tæknimálaráð- herra OECD-ríkjanna í París. Þar var hollenskur prófessor meðal ræðumanna. Hann kvað svo fast að orði að segja að í skólum væri að finna einu starfsaðferð- irnar sem ekki hefðu breyst frá miðöldum. Hann færi af skrif- stofu sinni, þar sem hann væri tengdur við umheiminn í gegn- um síma, tölvu og fjölmiðla, inn í skólastofu sem væri friðhelgur staður fyrir öllu ytra áreiti og messaði yfir nemendum sínum á eigin forsendum og ótruflaður. Þeir tækju við boðskapnum og ættu ekki kost á öðru. Á ráðherrafundinum var með- al annars rætt um það, hvernig tengja ætti þróunar- og vísinda- starf við þjóðlífið í heild; háskól- ar yrðu að vera hluti af umhverfi sínu þótt ekki mætti koma í veg fyrir að þeir sinntu verkefnum sem hefðu aðeins gildi innan veggja þeirra. Hvaða erindi á þessi boðskap- ur á fund ykkar ágætu tungu- málakennarar? Fyrir mér vakir að draga fram þá staðreynd að kennsla þarf í senn að leggja traustan grunn og einnig að vera hagnýt. I mínum huga er góð tungumálakennsla eitt mikilvæg- asta framlag íslenska skólakerf- isins til að búa þjóðina undir framtíðina. Við eigum erfitt með að setja okkur í sömu spor og sá sem nú gengur sex ára í fyrsta sinni í íslenskan skóla, engu að síður berum við ábyrgð á því að 15 ár- um síðar, eða árið 2010, geti hann nýtt þekkingu sína sjálfum sér og þjóðinni allri til góðs. Við sjáum í hendi okkar að þetta getur hann alls ekki án þekking- ar í erlendum tungumálum. Hún er að mínu mati lykillinn að því að nemandinn lendi ekki á blind- götu, sama hvaða nám eða starf hann tekur sér fyrir hendur. Á fyrrgreindum ráðherra- fundi komu fram áhyggjur af því að í mörgum löndum, sem við teljum standa okkur framar í tækni og vísindum, væri ekki nægilegur áhugi hjá námsmönn- um á að fara í tækni- og vísinda- nám. Þeir sem ekki tileinkuðu sér tæknina eða þekkingu á henni stæðu höllum fæti. Að mínu mati á hið sama við hér á landi þegar tungumálakunnátta er til umræðu. Þörfin fyrir færni í beinum samskiptum manna er miklu rík- ari nú en áður þegar lestrar- færni í erlendum tungumálum var aðalatriðið. Breyttir tímar, minni heimur, aukin samskipti og ný tækni hljóta að hafa áhrif á inntak kennslunnar. Góð menntun tungumálakennara er því mjög mikilvæg. í menntun grunnskólakenn- ara í KHI, þar á meðal tungu- málakennara, er sérhæfing í kennslugrein mjög lítill hluti heildarnámsins. Nauðsynlegt er að gerðar séu breytingar á þessu ef vel á að takast til með kennslu erlendra mála í grunn- skólum. Samstarf Evrópuþjóða á sviði menntamála er í sífelldri þróun. Sókratesáætlunin er nýjasta dæmið um það, hún opnar nýjar leiðir með undiráætlunum Lingua, Comeniusi og Erasmusi. Þær nýtast ekki nema með góðri tungumálakunnáttu. Evrópuþjóðir leggja nú mikla áherslu á kennslu í erlendum tungumálum vegna aukins sam- starfs þessara þjóða og hug- mynda annarra um Evrópuvídd- ina svonefndu. Víða er verið að endurskoða kennaramenntun í þessu sambandi. Einnig á þessu sviði verðum við Islendingar að standast samanburð og aðeins taka mið af því besta. íslensk fyrirtæki eru að færa út kvíarnar með fjárfestingu erl- endis, t.d. í Chile og Mexíkó, svo að dæmi sé tekið af Granda hf. Sú ákvörðun krefst þess að einhverj- ir íslenskir starfsmenn fyrirtæk- isins tileinki sér spænsku. Fleiri sambærileg dæmi má nefna. I Háskóla Islands hefur viðskipta- deild brugðist við auknum kröf- um viðskiptalífsins um málakunn- áttu með því að taka upp tungu- málakennslu. Nýlega kom út frönsk-íslensk orðabók með stuðningi stjórn- valda hér og í Frakklandi. Góðar og nútímalegar orðabækur eru ekki aðeins tæki til að læra tungumál eða flytja þekkingu frá einu máli yfir á annað heldur einnig til að þróa íslenska tungu. Við orðabókargerð glíma menn við vandamál sem tengjast þró- un málsins og menningarinnar. Hið sama á við um tungumála- kennslu, þess vegna er nauðsyn- legt að menningarleg markmið hennar séu háleit um leið og nemendum er afhent tæki sem þeir geta nýtt sér í daglegu lífi. Eg vona að málþingið, sem nú er að hefjast, eigi eftir að verða þátttakendum í því til gagns og ánægju og góðra áhrifa þess gæti um allt skólakerfið og þar með þjóðlífið. Bjöm Bjamason menntamálaráðherra. 5

x

Málfríður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.