Fréttablaðið - 06.02.2021, Síða 6
1
Aliksei Navalní
rússneskur stjórnarandstæðingur
mætti fyrir dómara
í vikunni og var
dæmdur til
þriggja og hálfs
árs fangelsis-
vistar. Navalní
var handtekinn
er hann kom til
Rússlands 17. janúar.
Hann hafði dvalið á sjúkrahúsi í
Þýskalandi í fimm mánuði eftir að
talið var að eitrað hefði verið fyrir
honum.
Harpa Jónsdóttir
framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins
segir tímabært að
endurskoða lög-
bundið hámark
á erlendar fjár-
festingar lífeyr-
issjóða, helst með
það fyrir augum
að afnema þær alveg.
„Núverandi fyrirkomulag er orðið
íþyngjandi fyrir lífeyrissjóði.“ Hún
segir fjárfestingarkosti innanlands
vera takmarkaða og þess vegna
muni núverandi fyrirkomulag jafnt
og þétt auka fjárfestingaráhættu
sjóðanna.
Jón Ólafur Ólafsson
formaður SAMARK
segir að ummæli
varaformanns
skipulagsráðs
Reykjavíkur-
borgar bendi til
þess að ekki sé
horft til fagþekk-
ingar sem til staðar
sé meðal arkitekta hér á landi. „Hér
er til staðar gríðarleg fagþekking,
hvort sem er í innviðastrúktúr
eða við gerð mannvirkja, sem ekki
er nýtt,“ segir hann. „Það sem við
köllum eftir er að ekki sé litið fram
hjá okkur þegar farið er af stað í slík
verkefni, þessi verkefni eru fyrst
og fremst að skila sér í verkfræði-
geirann.“
Þrjú í fréttum
Andstæðingur,
stjóri og
formaður
TÖLUR VIKUNNAR 31.01.2021 TIL 06.02.2021
40 ár
síðan fyrsta smáskífa Duran
Duran kom út.
1.800
manns hafa frá 2015
óskað eftir að Alþingi
veiti þeim
ríkisborgara-
rétt. ár voru haldlagðar CBD-
húðvörur á þvælingi
milli löggæsluembætta.
65
ár er hámarks-
aldur þeirra sem
fá bóluefni frá
AstraZeneca
hérlendis. 71%
þeirra sem fá heim-
sendan mat frá borginni
eru ánægð með hann.
DÓMSMÁL Benedikt Bogason, for-
seti Hæstaréttar, vildi ekki sitja
undir ásökun fyrrverandi hæsta-
réttardómara um að hann og þrír
aðrir dómarar við réttinn hefðu
framið glæp með því að hafa vís-
vitandi dæmt saklausan mann í
fangelsi fyrir alvarlegt brot. „Það
er rangt og þetta taldi ég ærumeið-
ingar sem ég vildi mótmæla kröftu-
lega,“ segir Benedikt um ástæður
þess að hann höfðaði mál gegn Jóni
Steinari Gunnlaugssyni.
Dómur var kveðinn upp í Hæsta-
rétti í gær og var Jón Steinar sýkn-
aður af kröfum Benedikts um
að ummæli í bók Jóns, Með logn ið í
fang ið – um af glöp Hæst a rétt ar eft ir
hrun, yrðu dæmd dauð og ómerk.
Benedikt segist að sjálfsögðu una
dómi Hæstaréttar en í forsendum
hans segir meðal annars að traust til
dómstóla verði fremur reist á frjálsri
umræðu en takmörkun á umfjöllun
um málefni þeirra, jafnvel þótt hún
gangi nærri því að geta skaðað það
traust til skemmri tíma.
Málaferlin hafa varpað áhuga-
verðu ljósi á andrúmsloftið í Hæsta-
rétti þegar mál Baldurs Guðlaugs-
sonar, fyrrum ráðuneytisstjóra, var
þar til meðferðar. Þá var Jón Steinar
enn dómari við réttinn en sat ekki í
umræddu máli enda vinur Baldurs
til margra áratuga.
Jón lýsir þeirri afstöðu sinni í
bók sinni að dómur réttarins í máli
Baldurs hafi ekki staðist kröfur
um sakfellingar í refsimálum og
að dómararnir hafi viljað sýna
almenningi að þeir tækju hrun-
málin engum vettlingatökum.
Í stefnu Benedikts kemur hins
vegar fram allt önnur lýsing. Jón
Steinar hafi leitast við að hafa áhrif
á hvernig málið yrði dæmt efnislega
með því að gera sér ferðir inn á skrif-
stofur dómaranna til að ræða um
málið. Hann hafi einnig skilið eftir
skjal á borði dómara með punktum
sem honum hafi þótt að leiða ættu
til þess að sýkna bæri Baldur.
Í stefnu segir að þótt ekki verði
staðhæft að Jón hafi með þessu
gerst sekur um spillingu og refsi-
verða misnotkun á aðstöðu sinni,
hafi hann bersýnilega farið gegn
ákvæðum laga um dómstóla um að
dómarar séu sjálfstæðir í störfum
sínum og lúti þar aldrei boðvaldi
annarra.
„Jón Steinar hefur alltaf gefið til
kynna að taka eigi hann alvarlega
og að hann meini það sem hann
segir. Hann vann hins vegar málið
með því að hlaupa í það auma skjól
að hann hefði ekki meint það sem
hann sagði,“ segir Benedikt um
niðurstöðuna í gær.
Benedikt segir Jón Steinar hafa
um langt skeið reynt að grafa
undan dómstólum landsins og
leitast við að rýra traust þeirra „og
ég vildi draga hann til ábyrgðar,“
segir hann.
„Ég kalla einnig eftir opinni
umræðu um stöðu dómsvaldsins og
hvernig megi betur verja það gegn
niðurrifi af þessu tagi sem á ekkert
skylt við málefnalega gagnrýni. Jón
Steinar er angi af þeirri ógeðfelldu
og öfgafullu umræðu sem á undan-
förnum árum hefur einkennt sam-
félagið bæði hér og víða annars
staðar og fer langt út fyrir öll vel-
sæmismörk,“ segir Benedikt.
Fimm settir dómarar kváðu upp
dóm í málinu í gær. Héraðsdómar-
arnir Ingibjörg Þorsteinsdóttir og
Kristrún Kristinsdóttir skiluðu
séráliti og töldu að fallast hefði átt
á kröfu Benedikts. Að niðurstöðu
meirihlutans stóðu Árni Vilhjálms-
son, lögmaður á Logos, Hildur
Briem, settur landsréttardómari,
og Þórunn Guðmundsdóttir, lög-
maður á Lex, sömu stofu og Baldur
Guðlaugsson starfaði á um tíma
meðan hann lauk afplánun á
áfangaheimilinu Vernd. Fjallað var
ítarlega um dóminn á vef Frétta-
blaðsins í gær.
adalheidur@frettabladid.is
Vildi draga Jón til ábyrgðar
Benedikt Bogason segir niðurrif af því tagi sem Jón Steinar Gunnlaugsson hafi stundað ekki eiga neitt
skylt við málefnalega gagnrýni á dómstóla. Hann höfðaði mál gegn Jóni til að verjast ásökun um glæp.
Benedikt hefur ekki áður tjáð sig opinberlega um málaferli sín við Jón Steinar Gunnlaugsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Jón Steinar er angi
af þeirri ógeðfelldu
og öfgafullu umræðu sem á
undanförnum árum hefur
einkennt samfélagið.
Benedikt Bogason, forseti Hæsta-
réttar
BJÓÐUM UPP Á 37” - 40” BREYTINGAPAKKA
BREYTINGAVERKSTÆÐI ÍSBAND,
SMIÐSHÖFÐA 5, SÉRHÆFIR SIG Í
BREYTINGUM Á RAM PALLBIFREIÐUM.
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
RAM 3500
BÍLL Á MYND RAM 3500 LARAMIE SPORT MEGACAB MEÐ 35” BREYTINGU
VERÐ FRÁ 7.547.906 KR. ÁN VSK.
9.359.403 KR. M/VSK.
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
GOTT ÚRVAL BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX
6 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð