Fréttablaðið - 06.02.2021, Síða 18

Fréttablaðið - 06.02.2021, Síða 18
FÓTBOLTI Litlar líkur eru á því að Cloé Lacassé, kanadíski framherji Benfica sem fékk íslenskan ríkis- borgararétt árið 2019, fái nokk- urn tímann að leika fyrir íslenska kvennalandsliðið en hún er ekki enn komin með leikheimild hjá FIFA. Samkvæmt reglum Alþjóða- knattspyrnusambandsins þurfa einstaklingar að búa í fimm ár sam- fleytt í ríkinu til þess að fá heimild til að fá að leika fyrir hönd nýs lands en Cloé náði því ekki fyrir félags- skipti sín til Portúgals. Samkvæmt reglum FIFA um aðila sem vilja leika fyrir hönd annarrar þjóðar en fæðingarlands síns, þurfa leikmenn að fylla eitt af fimm skil- yrðum. Meðal þeirra er að leikmað- urinn hafi búið í að minnsta kosti fimm ár samf leytt í tilheyrandi landi eftir átján ára afmælisdag. Í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins staðfesti Haukur Hinriksson, yfir- lögfræðingur KSÍ sem sér um leyfis- mál, að Cloé hefði ekki uppfyllt til- skyldan kvóta. Framherjinn yfirgaf ÍBV og samdi við Benfica sumarið 2019 en þá voru rúm fjögur ár frá komu Cloé til landsins. KSÍ sendi fyrirspurn inn til FIFA hvort að félagsskipti hennar milli landa yrðu til þess að samfleytt dvöl teldist rofin og staðfesti FIFA að svo væri. Samkvæmt því þyrfi Cloé því að dvelja í fimm ár á Íslandi á ný til að öðlast keppnisrétt fyrir hönd íslenska landsliðsins. Cloé var um árabil einn af bestu leikmönnum efstu deildar þegar hún lék með ÍBV. Á fjórum árum lék hún 79 leiki fyrir hönd ÍBV í efstu deild og skoraði í þeim 54 mörk ásamt því að eiga eftirminnilega stóran þátt í öðrum bikarmeistara- titlinum í sögu kvennaflokks ÍBV. Í úrslitaleiknum braut markahrókur- inn ísinn fyrir ÍBV og fiskaði víta- spyrnuna sem sigurmarkið kom úr . Kanadíski Íslendingurinn hefur ekkert slegið af en hún skoraði 22 mörk og lagði upp önnur átta í sautján leikjum á síðasta ári og er komin með ellefu mörk í tíu leikjum til þessa á yfirstandandi tímabili. Á sama tíma og Cloé fékk ríkis- borgararétt fékk Natasha Anasi, miðvörður Kef lavíkur, ríkisborg- ararétt og er miðvörðurinn sem er fædd í Bandaríkjunum búin að leika tvo leiki fyrir Íslands hönd. – kpt Cloé fær ekki leikheimild með Íslandi Cloé Lacassé í leik með Benfica í Meistaradeild Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Kanadíski Íslendingur- inn Cloé Lacasse kom að 30 mörkum í sautján leikjum með Benfica á síðasta ári. Super Bowl 2021 BUCCANEERSCHIEFS Tímabilið 2020 Sigrar 14 Töp 2 Tímabilið 2020 Sigrar 11 Töp 5 7. febrúar Raymond James Stadium, Tampa Bay, Flórída Meðaltal í leikjum Stig Sóknarleikur Varnarleikur Jardar Hlaupajardar Kastjardar 29,6 415,8 358,3 22,6 112,4 122,1 30,8 384,1 327,1 22,2 94,9 80,6 289,1 246,6 440 Milljónir króna á sigur Tampa Bay er stærsta veðmálið á leikinn sem búið er að stað- festa í Bandaríkjunum. 1 Í fyrsta sinn leikur lið leikinn um Ofurskálina á heimavelli í Tampa Bay. 1,4 Búist er við að nýtt met verði sett í kjúkl- ingavængjaáti yfir leiknum en samtök kjúklingabænda búast við því að 1,4 milljörðum vængja verði torgað. 303,4 236,2 NFL Átján ár skilja að leikstjórnendurna og mikilvæg- ustu leikmenn liðanna í leiknum um 55. Ofurskálina (e. Super Bowl LV) sem fer fram í Flórídaríki um helgina. Þá mætast hinn goðsagnakenndi Tom Brady sem leikur fyrir Tampa Bay Buccaneers og Íslandsvinurinn Patrick Mahomes í Kansas City Chiefs, í leik sem að mörgu leyti endurspeglar kynslóðabil í NFL-deildinni. Þó að það sé ekkert að hægjast á hinum 44 ára gamla Brady er hann elsti leikstjórnandi deildarinnar og beitir líkama sínum eftir því, en Mahomes sem hefur komið eins og storm- sveipur inn í deildina á þremur árum er hreyfanlegri og er meiri sprengikraftur innanborðs hjá Chiefs. Hefndarför Bradys Ákvörðun Bradys um að yfirgefa New England Pat- riots og semja við Tampa Bay Buccaneers skók íþrótta- heiminn eftir tuttugu ára farsælt samband Bradys og Patriots. Þá leitaði hann á ný mið og samdi við lið Buccaneers sem var með efnivið í góðan leikmannahóp en þurfti góðan skipstjóra til að stýra skútunni. Eftir komu Bradys voru nokkrar stórstjörnur sem sömdu við lið Buccaneers og gerðu liðið illviðráðanlegt á báðum endum vallarins. Útherjasveit Bradys er meðal þeirra bestu sem nokkurt lið hefur haft undanfarna áratugi og varnarlínan hefur verið að spila betur og betur eftir því sem líður á tímabilið. Eftir misjafna frammistöðu í upphafi árs náði Brady betri takti eftir því sem leið á tímabilið og er hann nú að leika til úrslita í fjórða sinn á síðustu fimm árum og tíunda skiptið á ferlinum. Brady er þegar sigursælasti leikstjórnandi allra tíma með sex meistarahringa og sá einstaklingur sem hefur komist oftast í Superbowl en í þetta skiptið er hann með aukinn hvata. Með sigri Meistararnir reyna að verja krúnuna Úrslitaleikurinn um Ofurskálina fer fram um helgina þar sem Tom Brady og Patrick Mahomes leiða saman hesta sína. Átján ára aldursmunur er á leikstjórnendunum tveimur, sem hafa hampað titlinum í síðustu tveimur Ofurskálarleikjum. í úrslitaleiknum þetta árið tekst Brady að skjótast fram úr Bill Belichick, þjálfara New England Patriots, í fjölda meistaratitla eftir að þeir unnu sex meistaratitla í sam- einingu. Brady er þegar með ferilskrána til að standa undir titlinum besti leikmaður allra tíma, en með sigri í leik helgarinnar tekst honum að breikka bilið enn frekar. Ríkjandi meistararnir til alls líklegir Ríkjandi meistararnir í Kansas City þykja sigurstrang- legri samkvæmt veðbönkunum, enda liðið með besta árangurinn á tímabilinu með leikstjórnanda sem lendir meðal efstu tveggja í kosningunni á besta leikmanni deildarinnar þegar valið verður tilkynnt í kvöld. Liðin mættust á sama velli fyrir rúmum tveimur mánuðum þar sem Chiefs vann 27-24  sigur þar sem Buccaneers tókst að laga stöðuna með tveimur snertimörkum í lokaleikhlutanum.  Frá því að Mahomes tók við stöðu leikstjórnanda hjá Kansas City hefur sóknarleikur liðsins verið svo gott sem óstöðvandi afl og verður gaman að sjá vörn Bucca- neers takast á við Mahomes. Eina liðinu sem hefur tek- ist að stöðva Kansas City í úrslitakeppninni frá því að Mahomes tók við keflinu í leikstjórnandastöðunni er New England Patriots með Brady innanborðs, en Chiefs hafa unnið 25 af síðustu 27 leikjum liðsins. Með sigri í úrslitaleiknum tækist Chiefs að blanda sér í umræðuna um bestu lið sögunnar með því að verða níunda liðið til að verja meistaratitilinn, sextán árum eftir að Patriots tókst það síðast. Undanfarin ár hefur tveimur liðum tekist að komast í úrslitaleikinn sem ríkjandi meistarar en hvorugu liði tókst að endurtaka leikinn. kristinnpall@frettabladid.is 6 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.