Fréttablaðið - 06.02.2021, Síða 20
Ágústa Hjaltadóttir hefur undanfarin tvö ár staðið fyrir f lotviðburðum fyrir konur og stendur nú reglulega fyrir
slíkum viðburðum á sunnudögum
í sundlauginni við Varmá í Mos-
fellsbæ.
Ágústa, sem er leik- og grunn-
skólakennari að mennt, hefur sótt
f jölmörg heilsutengd námskeið
undanfarin ár og til að mynda lagt
stund á Hagnýta heilsueflingu við
Háskóla Íslands.
„Ég vann mjög lengi í fjármála-
geiranum en svo breyttust aðstæð-
ur hjá mér árið 2018 og ég snéri mér
í framhaldi að kennslu og stofnaði
fyrirtæki á sviði heilsueflingar.
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga
á öllu sem tengist heilsu og betri
líðan. Við fjölskyldan stunduðum
sundlaugina í Vesturbænum og
fórum í hvaða veðri sem var í sund.
Ég man eftir því að stundum þurft-
um við að ýta bílnum af stað en í
sund fórum við. Varðandi flotið þá
fór ég fyrst í f lot í Laugaskarði 2016
og fannst þetta dásamleg upplifun
og fór að skoða það betur og leita
uppi f lottíma til að sækja.“
Innleiddi flot í Danmörku
Það var svo þegar Ágústa f lutti til
Kaupmannahafnar árið 2018 og var
að leita sér að verkefnum að henni
datt í hug að taka námskeið í f lot-
meðferðum og keypti sér nokkrar
hettur.
„Ég fór svo af stað og var svo lán-
söm að fá tækifæri til að bjóða upp á
flot í glæsilegu spa-i í Frederiksberg
og í framhaldi seldi ég þeim hettur
svo það má segja að ég hafi innleitt
f lot í Danmörku,“ segir Ágústa.
Þar sem hún hafði tímann fyrir
sér fór hún að stunda Saunagus
eða ilmsánu og ákvað í framhaldi
að kynna sér þá menningu í Kaup-
mannahöfn.
„Ég varð alveg heilluð af því og
ákvað að taka þá þekkingu með
mér heim til Íslands og taka það
inn í mína tíma; f lot og sána alveg
steinlá saman. Í framhaldi fékk ég
íþróttafulltrúann í Mosfellsbæ í lið
með mér og við fórum á námskeið
hjá danskri konu sem hefur kennt
Saunagus í 14 ár og prófuðum svo
í fyrravetur að hafa opna ilmsánu-
tíma í Lágafellslauginni við mikla
ánægju.“
Ágústa hannaði, ásamt Sóleyju
Jóhannsdóttur líkamsræktarfröm-
uði, námskeið í Hveragerði, bæði í
tengslum við Laugaskarð og einn-
ig helgarnámskeið á Heilsustofnun
NLFÍ. Þeim námskeiðum var vel
tekið og í framhaldi fékk Ágústa
inni með námskeið sín í Varmá, þar
sem konur á aldrinum 25 til 70 ára
hafa flotið í kyrrð og öðlast þannig
dýrmæta slökun.
Ágústa segir ávinning slökunar-
f lots margvíslegan. „Það er mikil
vellíðan og frelsi að f ljóta í heitri
laug með þar til gerðum flotbúnaði
og þú nærð algerri slökun. Slök-
unin veitir nærandi hvíld og örvar
hreinsun líkama og huga, hún
getur verið verkjalosandi, dregið úr
streitu, bætt svefn, styrkir ónæmis-
kerfið og ég gæti talið lengi upp
fleiri kosti þess að fljóta. Svo er líka
alltaf mismunandi hvernig þátttak-
endur upplifa þetta. Enda misjafnt
hvað fólk er að takast á við og hvað
hrjáir það.“
Hreinsandi og nærandi ilmsána
Varðandi ilmsánuna segist Ágústa
hafa fundið á eigin skinni á Dan-
merkurárunum hversu gott hún
gerði henni.
„Ég féll alveg fyrir henni enda
alltaf verið spennt fyrir ilmolíum
og hafði farið á námskeið á Íslandi í
olíufræðum svo þetta small hjá mér,
sána og olíur.
Þetta er u svokallaðar ilm-
kjarnaolíumeðferðir með áherslu á
núvitund. Það er alltaf einn stjórn-
andi, „Gusmaster“ sem blandar olí-
urnar, hellir á heita steinana, er með
handklæði og dreifir hitanum um
klefann og er inni í sánunni allan
tímann. Það skiptir miklu máli að
skapa hlýja stemningu í sánunni
og ég legg áherslu á það að fólk njóti
þess og slaki á og hugsi um líðandi
stund.“
Ágústa segir mismunandi hvaða
tímar og meðferðir séu í boði.
„Stundum eru þetta tímar sem
vara í 10 til 15 mínútur og eins
höfum við boðið upp á klukkutíma-
meðferð, þá eru þrjár lotur, 10 mín-
útur hver lota og 10 mínútur að kæla
sig á milli, og alltaf ný olíublanda í
hverri lotu,“ útskýrir Ágústa og
nefnir nokkrar tegundir meðferða;
„Detox, Total Relax, hormónameð-
ferð fyrir konur, Aðventusána og
svo má lengi telja.“
Ágústa segir viðtökurnar hafa
verið góðar og að nánast sé alltaf
fullt í tíma hjá henni.
„Þetta er ekki bara afslappandi
heldur er ávinningurinn mikill,
en olíurnar virka meðal annars
á ónæmiskerfið, eru hreinsandi,
djúpvirkandi, hjálpa til við streitu,
eru hreinsandi fyrir öndunarfærin,
eru bakteríudrepandi, húðin verður
mjúk og ekki síst hjálpar þetta til
við andlegu hliðina. Meðferðin
lyftir þér upp á hærra plan eins
og sagt er. Svo er ilmurinn alveg
dásamlegur en ég nota yfir 40 teg-
undir af ilmkjarnaolíum. Þetta er
algjör veisla fyrir öll skilningarvit
og svo má ekki gleyma hvað þetta
er notaleg samvera.“
Mikil náttúruupplifun
Ágústa segir meðferðina henta
öllum þeim sem almennt séu heilsu-
hraustir, þó ekki þeim sem eru yngri
en 18 ára, barnshafandi konum og
fólki með hjartasjúkdóma.
Sjálf er Ágústa alltaf ofan í laug-
inni með þátttakendum og gefur
þeim létt nudd sem eykur slökun-
ina og getur að hennar sögn skipt
sköpum.
„Að liggja í heitri lauginni og þá
sérstaklega útilaug er mikil nátt-
úruupplifun. Að hlusta á fuglana,
fá rigningu í andlitið og svífa um í
lauginni algerlega tímalaus. Vatnið
hreinsar hugann og endurnærir
okkur og það verður ákveðin endur-
stilling.“
Ágústa segir gaman að fá endur-
gjöf á það sem hún er að gera og rifjar
upp sögu af rúmlega fertugum karli
sem hafi fyrir meðferðina vaknað
hverja nótt til að pissa.
„Hann fór að sækja ilmsánutíma
hjá mér og eftir nokkur skipti þá
uppgötvaði hann að hann var hætt-
ur að þurfa að fara á klósettið á nótt-
unni. Hann var alsæll með þá breyt-
ingu og örugglega konan hans líka.
Aðrir hafa sagt mér hvernig svefninn
hafi lagast en bestu meðmælin eru
þegar fólk fer að koma aftur og aftur
í tíma. Þá er maður að gera eitthvað
rétt. Ein kona sendi mér póst og sagð-
ist hafa sofið í 12 tíma eftir flot hjá
mér. Það hafði ekki gerst síðan hún
var unglingur,“ segir Ágústa og bætir
við: „Ég man líka eftir konu sem var
að jafna sig eftir krabbameinsmeð-
ferð og var orðin háð svefnlyfjum en
eftir flotið svaf hún eins og engill og
þurfti ekki neina hjálp við það.“
Streita er eitt stærsta nútíma-
vandamálið en Ágústa segir fólk
sífellt vera farið að hlúa betur að
sjálfu sér og gefa sér tíma til slökunar.
„Ég held að það sé smitandi og
flestir séu í dag meðvitaðir um að
þú þarft fyrst að setja grímuna á þig
til að geta hjálpað og gefið af þér. Það
er ekki hægt að keyra sig áfram, þá
lendir þú bara á vegg,“ segir hún að
lokum.
Hægt er að nálgast upplýsingar um
flotviðburði Ágústu á Facebook-síðu
hennar undir nafninu Heil & sæl.
MEÐFERÐIN LYFTIR ÞÉR
UPP Á HÆRRA PLAN EINS
OG SAGT ER.
Vellíðan og frelsi í heitri laug
Ágústa Hjaltadóttir hefur undanfarin tvö ár staðið fyrir flotviðburðum fyrir konur og býður nú reglulega upp á
sunnudagsflot og hreinsandi ilmsánumeðferð að danskri fyrirmynd, í sundlauginni við Varmá í Mosfellsbæ.
Ágústa hefur alltaf haft áhuga á öllu því sem tengist heilsu og betri líðan en kynntist floti fyrst fyrir tæpum fimm árum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hlý stemning skiptir miklu máli í ilmsánunni. Ágústa býður upp á svokallaðar ilmkjarnaolíumeðferðir.
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
6 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R18 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN