Fréttablaðið - 06.02.2021, Page 36

Fréttablaðið - 06.02.2021, Page 36
Áhættustjóri Lífsverk er opinn lífeyrissjóður fyrir háskólamenntaða. Allir sem lokið hafa grunnnámi á háskólastigi geta skráð sig í sjóðinn. Lífverk var fyrsti lífeyrissjóðurinn sem byggði á aldurstengdum réttindum, tók upp sjóðfélagalýðræði og rafrænt stjórnarkjör. Sérstaða Lífsverks er m.a. hár ávinningur réttinda og val um leiðir fyrir skyldusparnað. Sjóðurinn er ört vaxandi og nemur hrein eign í árslok um 120 milljörðum króna. Gildi sjóðsins eru: Heilindi – jákvæðni – ábyrgð Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna á heimasíðu hans www.lifsverk.is Menntunar- og hæfniskröfur: Lífsverk lífeyrissjóður óskar eftir að ráða öflugan einstakling í nýtt og spennandi starf áhættustjóra. Í starfinu felst einnig greiningarvinna og eftirfylgni á sviði eignastýringar. Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225. • Ábyrgð á starfssviði áhættustýringar • Greining, mæling og skýrslugjöf um áhættu • Mótun og umsjón með áhættustefnu og áhættustýringarstefnu • Frumathugun og greining nýrra fjárfestingarkosta • Eftirfylgni með óskráðum eignum • Flokkun eigna, skýrslugjöf og skoðun fjárfestinga með tilliti til stefnu Lífsverks í ábyrgum fjárfestingum • Aðstoða stjórn og stjórnendur við þróun og viðhald á skilvirku eftirlitskerfi fyrir áhættu í rekstri sjóðsins Helstu verkefni og ábyrgð: Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. • Háskólapróf á sviði fjármála, verk- eða tölfræði eða sambærileg menntun. Meistarapróf er kostur • Greiningarhæfni og hæfni til að setja fram efni og niðurstöður í tölum og texta • Haldgóð starfsreynsla í eignastýringu eða á fjármálamarkaði • Sjálfstæði, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð • Góð færni í íslensku og ensku • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót Marel er alþjóðlegt hátæknifyrirtæki með um 7.000 starfsmenn, þar af um 700 á Íslandi. Fyrirtækið er brautryðjandi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja og hugbúnaðar fyrir matvælaiðnað. Við leggjum ríka áherslu á nýsköpun og framþróun í öllu okkar starfi. Þess vegna viljum við ráða til okkar öflugt fólk, sem hefur áhuga á að mæta nýjum og spennandi áskorunum á hverjum degi. Við bjóðum upp á góða vinnuaðstöðu, skilvirka starfsþjálfun, sveigjanlegan vinnutíma, glæsilegan matsal, framúrskarandi íþróttaaðstöðu og gott félagslíf. Marel leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi starfsmanni með mikla þekkingu og áhuga á námsgagnagerð. Hlutverk sérfræðingsins (Learning & Development Specialist) er að vinna að gerð og miðlun námsefnis til sölu- og þjónustufólks Marel út um allan heim. Meðal verkefna er að skilgreina áherslur í námsefni í samráði við fagaðila, ritstýra og framleiða námsgögn. Sérfræðingur í námsefnisgerð Nánari upplýsingar veitir Hildur Halldórsdóttir, hildur.halldorsdottir@marel.com. Umsóknarfrestur er til og með 21. febrúar. Sótt er um rafrænt á marel.com/störf Information in English can be found on Marel’s website Starfssvið: • Greina námsþörf fyrir sölu- og þjónustunet Marel • Skilgreina námsefni í samstarfi við vörusérfræðinga • Færa námsefni í kennsluhæft form sem hentar hverju sinni • Verkstjórn við framleiðslu námsgagna • Taka virkan þátt í námsefnisgerð • Hönnun námsferla fyrir skilgreindar starfslýsingar • Uppsetning námsferla í mannauðskerfi Marel • Þátttaka í alþjóðlegu teymi kennslusérfræðinga Marel Hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Þekking og reynsla í kennslu og námsefnisgerð • Almennur áhugi á tæknilausnum og því umhverfi sem Marel vinnur í • Góð þekking á hugbúnaði og kerfum sem tengist námsefnisgerð • Góð þekking á þróun kennsluaðferða t.d. fjarkennslu og notkun sýndarveruleika • Færni í samskiptum og teymisvinnu • Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð • Mjög góð enskukunnátta

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.