Fréttablaðið - 06.02.2021, Síða 43
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
hagvangur.is
Verkefnastjóri miðlunar
Menningar- og ferðamálasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endur-
spegli það margbreytilega samfélag sem við búum í. Reykjavíkurborg vinnur gegn mismunun á vinnumarkaði og
hvetur innflytjendur, fatlað fólk, hinsegin fólk og fólk á öllum aldri til að sækja um störf hjá borginni.
Listasafn Reykjavíkur auglýsir lausa til umsóknar stöðu verkefnastjóra miðlunar. Starfið felst í miðlun og skipulagningu
viðburða í tengslum við sýningar safnsins.
Um er að ræða 70-100% starf. Leitað er að hugmyndaríkum og jákvæðum einstaklingi til starfa í kraftmiklum starfshópi.
Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2021.
Launakjör eru skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélög.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Markús Þór Andrésson, deildarstjóri sýninga og miðlunar,
markus.thor.andresson@reykjavik.is, sími 411 6400.
Sótt er um starfið á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Umsókninni þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og
kynningarbréf.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Umsjón og skipulag fræðslu og viðburða í safninu í sam-
starfi við yfirmann og samstarfsfólk.
• Þátttaka í mótun og þróun viðburða og fræðslu. Móttaka
hópa, leiðsagnir og önnur safnfræðsla.
• Umsjón með samstarfsverkefnum, textagerð og upplýs-
ingagjöf.
• Þróun og gerð fræðsluefnis og námskeiða.
• Gerð fjárhagsáætlunar og eftirfylgni með henni.
Listasafn Reykjavíkur er lifandi og framsækinn vettvangur
þar sem tækifæri gefst til að kynnast fjölbreytileika mynd-
listar og öðlast dýpri skilning á sögulegu, félagslegu, menn-
ingarlegu og listrænu samhengi sköpunarverka listamanna.
Safnið er til húsa á þremur stöðum í Reykjavík: í Hafnarhúsi,
á Kjarvalsstöðum og í Ásmundarsafni við Sigtún.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á starfssviði safnsins; í myndlist,
listfræði, safnafræði eða listasögu.
• Menntun og/eða reynsla á sviði listkennslu eða
listmiðlunar.
• Reynsla af safnastarfi.
• Mjög góð þekking á íslenskri listasögu, góð þekking á
íslenskri og alþjóðlegri samtímamyndlist.
• Mjög góðir skipulags- og verkefnisstjórnunarhæfileikar.
• Mjög góð samskiptafærni á íslensku og ensku og hæfni til
að tjá sig í ræðu og riti eru skilyrði.
• Færni og geta til að vinna undir álagi og sinna mörgum
viðfangsefnum.
• Færni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki.
• Metnaður, frumkvæði, hugmyndaauðgi og sjálfstæði
í starfi.
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Umsóknarfrestur er til og með 21. febrúar 2021.
Sækja skal um starfið á ráðningarvef Mosfellsbæjar, www.mos.is/storf. Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá og
kynningarbréf sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Nánari upplýsingar
um starfið veitir Hugrún Ósk Ólafsdóttir verkefnastjóri þjónustu- og samskiptadeildar í síma 525 6700. Um framtíðarstöðu er
að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi
stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni.
Þjónustufulltrúi í þjónustuver Mosfellsbæjar
VIÐ LEITUM AÐ ÞJÓNUSTULIPRUM OG METNAÐARFULLUM ÞJÓNUSTUFULLTRÚA
Þjónustuver Mosfellsbæjar sinnir almennri þjónustu og upplýsingagjöf til íbúa, viðskiptavina og
starfsmanna hjá sviðum og stofnunum bæjarins. Þjónustufulltrúi tekur á móti viðskiptavinum í
þjónustuveri og á mikil samskipti í gegnum síma og vef. Hann annast jafnframt skönnun, skráningu og
frágang gagna.
Þjónustufulltrúi þarf að hafa ríka þjónustulund, vera lausnamiðaður og búa yfir afburða
samskiptafærni.
Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og
umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Stúdentspróf, skrifstofunám eða annað
sambærilegt nám er skilyrði
• Reynsla af skrifstofustörfum er
nauðsynleg
• Þekking á opinberri stjórnsýslu er æskileg
• Mjög góð tölvukunnátta er nauðsynleg
• Þekking á skjalavistunar- og
bókhaldskerfi.
• Framúrskarandi samskiptafærni er
skilyrði
• Nákvæmni í vinnubrögðum
• Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
er nauðsynleg
• Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg
Sumarstörf
Almenn garðyrkjustörf,
flokkstjórar og vélamenn
Störfin tilheyra garðyrkjudeild Kirkjugarða Reykjavíkur-
prófastsdæma og felast í almennri umhirðu útisvæða
s.s. slátt, gróðursetningu og illgresishreinsun í
Fossvogskirkjugarði, Gufuneskirkjugarði, Hólavallagarði
við Suðurgötu og Kópavogskirkjugarði.
Ráðningartími er 10-14 vikur frá miðjum maí.
Hæfniskröfur almenn garðyrkjustörf
• Umsækjandi sé fæddur árið 2004 eða fyrr
• Stundvísi og samviskusemi
Hæfniskröfur flokksstjóra
• Reynsla af garðyrkjustörfum
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Færni í mannlegum samskiptum
• Stundvísi og samviskusemi
Menntun og hæfniskröfur vélamanna
• Dráttarvélaréttindi
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Stundvísi og samviskusemi
Umsókn berist skrifstofu Kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæma í Fossvogi, Vesturhlíð 8, 105
Reykjavík fyrir 8. mars 2021, merkt „Sumarstörf“.
Einnig er hægt að fylla út umsókn á
www.kirkjugardar.is og senda rafrænt.