Fréttablaðið - 06.02.2021, Page 68

Fréttablaðið - 06.02.2021, Page 68
Sigga Soffía, eins og hún er oftast kölluð, fann fyrir skyndilegum og óvæntum áhuga á blómum og garð­rækt fyrir nokkrum árum.„Árið 2017 vann ég að f lugeldasýningu í Barcelona og valdi skotkökur fyrir sýninguna sem báru nafnið Babys Breath. En eftir að hafa skotið upp kökunni sem var allt annað en rólegur andar­ dráttur barns skoðaði ég bombuna nánar og tók þá eftir öðru heiti, Gypsophila, sem er nafn á blómi, en skotkakan hamraði upp á himininn á agressívan hátt nokkurs konar runna af hvítum litlum blómum.“ Blómið sem um ræðir nefnist brúðarslör á íslensku. „Eftir þessa uppgötvun prófaði ég að fletta upp nafngiftum f lugeldanna af pönt­ unarlistum sem eru á japönsku, kínversku, frönsku og spænsku eftir framleiðendum og í langflestum til­ fellum voru nafngiftir f lugeldanna eftir blómum eða trjám,“ segir Sigga, sem taldi þarna koma skýr­ inguna á skyndilegum áhuga sínum á garðrækt. „Ég var raunverulega að horfa á fyrirmyndir flugeldanna sem ég hef kynnst svo vel síðustu árin.“ Eldblóm á gamlárskvöld Siggu þyrsti í að vita meira og komst yfir biblíu flugeldahönnuða, bókina Fireworks, art, science and tecn­ ique, eftir Takeo Shimizu. „Þar gat ég loksins lesið mér til um upphaf flugeldanna. Japanska orðið yfir f lugelda er Hanabi, en sam­ kvæmt bókinni Fireworks þýðir „Hana“ eldur og „bi“ blóm. Þeir tala því ekki um f lugelda í beinni þýðingu heldur sem eldblóm. Árið 1926 hannaði Gisaku Aoki fyrsta eldblómið, Chrysanthemum with pistil, og nánast allir f lugeldar sem við Íslendingar sprengjum á gaml­ ársdag eru eldblóm, skotið myndar stilk og út springur blóm. Algeng­ ustu flugeldaeffektar í dag eru blóm og tré af asískum uppruna, blóm sem margir hafa ræktað í mörg ár fyrir sumarbeðin,“ útskýrir Sigga af áhuga, en þarna fæddist hjá henni hugmyndin að því að rækta f lug­ eldasýningu. „Þegar hugmyndin um að rækta í stað þess að sprengja var fædd, var fyrsti partur rannsóknavinn­ unnar að komast að því hvaða blóm ég þyrfti að prófa að rækta. Á Edo­tímabilinu í Japan frá 1603 til 1868 kepptust listamenn um að framleiða f lugelda í mismunandi formum, en flug elda sýningar voru algeng skemmtun fyrir fjöldann. Tilgangur f lugeldasýninga var að sameina þjóðir, stuðla að samkennd og friði. Japanir hafa alltaf borið mikla virðingu fyrir náttúrunni og á þess­ um f lugeldasamkomum kepptust sveitarfélög um hönnun á fallegustu eldskúlptúrunum. Þeir leituðu þá eftir innblæstri frá nærumhverfi sínu, þess vegna eru algengustu flugeldarnir blóm af asískum upp­ runa, kirsuberjatréð sakura, weep­ ing willow­tré og mismunandi blómategundir. Enn þann dag í dag eru þessi blóm framleidd sem flug­ eldar í hundruðum útfærslna, mis­ munandi litum og stærðum.“ Lagði stofuna undir ræktunina Áhugi Siggu var kveiktur og næstu þrjú ár kynnti hún sér réttu fræin, hnýðin og laukana í réttum lita­ afbrigðum. „Ég fann blómabónda á Instagram sem ég gat keypt fræ af og vorið 2018 lagði ég hálfa stofuna undir tilraunir mínar og hóf ræktun á flugeldasýn­ ingu. Vinir og fjölskylda voru ekki að kveikja á þessari hugmynd þarna í byrjun,“ segir hún og hlær. „Með mikilli eftirvæntingu fylgd­ ist ég með fyrstu eldblómunum kíkja upp úr moldinni,“ segir Sigga, sem komst að því að hægt væri að rækta flugeldasýningu en sjálf væri hún ekki með réttu kunnáttuna. „Ég komst þá í samstarf við hina hæfileikaríku Zuzanna Vondra sem MIG LANGAÐI AÐ FANGA KÁTÍNUNA OG GLEÐINA SEM FYLGIR FLUGELD- UNUM, VERANDI ÁSTRÍÐU- FULLUR SPRENGJUVARGUR ÞÁ ELSKA ÉG FLUGELDA, EN EKKI MENGUNINA. Ræktaði flugeldasýningu Sigríður Soffía Níelsdóttir danshöfundur, var listrænn stjórnandi flugeldasýninga á Menningarnótt 2013-2015 og 2020, en í nýjasta verki sínu, Eldblómum, dansverki fyrir flugelda og flóru, ræktaði hún flugelda í Hallargarðinum. Blómainnsetningin er í raun hægfara flugeldasýning sem hægt er að njóta mikið lengur að sögn Siggu, hér í Hallargarðinum ásamt dóttur sinni, Ísold Freyju. MYND/LEIFUR WILBERG ORRASON Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is Flugeldasýn- ingu Siggu Soff- íu sem átti að vera á síðustu Menningarnótt var frestað til næsta sumars vegna gildandi samkomutak- markana. 6 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.