Fréttablaðið - 06.02.2021, Side 72

Fréttablaðið - 06.02.2021, Side 72
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðbjörg Jóna Jónsdóttir Miðvangi 41, Hafnarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi, Hafnarfirði, 29. janúar. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 10. febrúar, kl. 13.00. Vegna aðstæðna er mælst til að takmarka fjölda ættingja og vina og eru þeir velkomnir meðan pláss leyfir. Útförinni verður streymt og hægt er að nálgast virkan hlekk á mbl.is/andlat. Jón Magnús Harðarson Gróa Björg Jónsdóttir Örn Harðarson Bryndís Richter barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Helgi Sigurður Ásgrímsson Ásvegi 5, Dalvík, lést á heimili sínu mánudaginn 25. janúar 2021. Útförin fer fram í Dalvíkurkirkju 13 febrúar, kl. 13.30. Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins viðstaddir ættingjar og nánustu vinir. Streymi verður aðgengilegt á Facebook, Jarðarfarir í Dalvíkurkirkju. Íris Dagbjört Helgadóttir Jens Viborg Óskarsson Aðalbjörg Gréta Helgadóttir Snæbjörn V. Ólason Árni Geir Helgason Guðrún Ásgeirsdóttir afabörn og langafabörn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Auðar Magneu Jónsdóttur Austurbyggð 17, Akureyri. Jarðarförin fór fram 21. 12. 2020 frá Akureyrarkirkju. Anna Lúthersdóttir Guðný Pálsdóttir Þórunn Pálsdóttir Páll Sigurðsson Unnur Pálsdóttir Jakob Jónasson Magnús Pálsson Lára M. Sigurðardóttir og fjölskyldur. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Ástkær eiginmaður, faðir, stjúpfaðir, bróðir, tengdafaðir, afi og langafi, Hafsteinn Linnet vélvirki, Lækjargötu 10, Hafnarfirði, lést 27. janúar á Landspítalanum við Hringbraut. Útför fer fram 12. febrúar klukkan 11.00 í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Sérstakar þakkir fær allt starfsliðið á blóðlækningadeild 11G á Landspítalanum við Hringbraut. Útförinni verður streymt. Anna Snjólaug Arnardóttir Helga Linnet Stefán Hreinn Stefánsson Jóhann Linnet Suzen Mapulanga Logi Þröstur Linnet Guðrún Alda Linnet Gunnar Linnet Elín Gísladóttir Rósa Guðrún Linnet Þorvaldur Helgi Þórðarson Eiður Ingi Sigurgeirsson Svava Björg Sigurgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Þegar hringt er í Nichole Leigh Mosty og byrjað á að óska henni til hamingju með embættið – forstöðumaður Fjöl men n ing a r set u r s – svarar hún hress: „Þakka þér fyrir, mér finnst það æðislegt. Heyrir þú ekki bros?“ Nichole er fædd í Michigan í Banda- ríkjunum en f lutti til Íslands 1999 og hefur náð góðum tökum á tungumálinu. Hún sat á Alþingi Íslendinga fyrir Bjarta framtíð og hefur valist til ábyrgðar- starfa í skólum og ráðum og unnið sem verkefnastjóri hjá Þjónustumiðstöð Breiðholts frá 2018. Hún hefur látið sig fjölmenningu varða og er formaður Samtaka kvenna af erlendum uppruna, sem er ólaunað starf. Ég bendi henni á að nú bætist karlarnir við. „Já, ég hef starfað á leikskólum og í þjónustumiðstöð og sinnt fjölskyldum – börnum, konum og körlum,“ segir hún og lætur ekki slá sig út af laginu. Nýtt að búa á landsbyggðinni Fjölmenningarsetrið er á Ísafirði, þar verður vinnustaður Nichole næstu fimm árin, frá og með 1. mars. Henni finnst það spennandi áskorun. „Það er fjöldi fólks af erlendum uppruna vestur á fjörðum og með því að vera staðsett þar er ég því aðgengilegri. Fjölmenningar- setrið er ríkisstofnun og á að sinna fólki í öllum sveitarfélögum landsins. Það er mín bjartasta von að fá að teygja boð- skapinn eins langt og hægt er.“ Ekki kveðst Nichole hafa búið úti á landi áður. „Þetta er alger nýjung,“ segir hún glaðlega. „Reyndar taldist það strjálbýli sem ég ólst upp í, þar voru um 20.000 manns. Sem Íslendingur hef ég alltaf búið í Breiðholti, ég er í raun Breið- hyltingur í húð og hár. En ég hlakka til að kynnast Ísafirði, hef heyrt að þar sé góður andi og bæjarbragur. Eins og ég sagði við manninn minn – þetta kannski fullkomnar þá reynslu mína að vera Íslendingur!“ Já, manninn. Nichole á íslenskan mann og þau eiga þrjú börn. „Börnin eru að komast á unglingsaldur og ætla að prófa að leyfa mömmu að vinna fyrir vestan en þau koma að heimsækja mig. Þeim líður vel hér og eitt af því sem maður lærir í fjölmenningarlegu sam- félagi er að fólki þarf að líða vel í sínu umhverfi,“ segir Nichole. „Þetta verður svona núna, svo sjáum við hvað gerist í sumar þegar þau komast í frí. Ég er svo heppin að eiga fjölskyldu sem skilur mig og metnað minn, hún hefur oft sleppt mér í krefjandi verkefni, fyrst þegar ég fór að vinna á þinginu. Ég hef líka farið til Grikklands að starfa og í janúar 2020 fór ég til Kaliforníu og endaði með að vera föst þar í COVID. Svo hvað eru Vest- firðir? Þangað er bara 45 mínútna flug úr borginni!“ Spennandi verkefni Nichole segir hlutverk starfsfólks í Fjöl- menningarsetrinu fyrst og fremst vera að veita ráð og upplýsingar, ekki bara til einstaklinga heldur líka fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga sem vinna með innf lytjendum. „Samþætting er svo mikilvæg og spennandi,“ segir hún og býst við f leiri brýnum verkefnum svo sem að samræma þjónustu í mót- töku flóttafólks og þeirra sem fá alþjóð- lega vernd. „Það er nýbúið að mæla fyrir því frumvarpi á þinginu og í von um að það fái brautargengi er mikilvægt að vel takist til með framkvæmdina. Við fylgjumst með.“ Hvað um Alþingi? Hefur hún misst áhugann á því? „Nei, ég lauk ekki erindi mínu á þingi svo ég hef verk að vinna þar. En tækifærið núna er of stórt til að segja nei við því. Ég hef ástríðu fyrir umbótum sem skipta máli. Þegar ég var á þingi lærði ég mikið um Ísland og Íslendinga og hef líka kynnst stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Nú fæ ég að læra um minni sveitarfélög og bæta við skilning minn á þjóðfélaginu. Því verð ég í enn sterkari stöðu þegar ég býð mig næst fram til þings.“ gun@frettabladid.is Hef ástríðu fyrir umbótum Nichole Leigh Mosty, fyrrverandi alþingismaður, var nýlega skipuð forstöðumaður Fjölmenningarseturs af Ásmundi Einari Daðsyni, félags-og barnamálaráðherra. „Ég hlakka til að kynnast Ísafirði, hef heyrt að þar sé góður andi og bæjarbragur,“ segir Nichole Leigh. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Eins og ég sagði við manninn minn – þetta kannski full- komnar þá reynslu mína að vera Íslendingur! 6 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R34 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.