Fréttablaðið - 06.02.2021, Side 73
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Guðjón Guðmundsson
frá Arkarlæk,
lést á dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi, þriðjudaginn 2. febrúar.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju,
fimmtudaginn 11. febrúar kl. 13.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu munu einungis nánustu
aðstandendur verða viðstaddir. Útförinni verður streymt
frá vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is
Börn, tengdabörn,
barnabörn og langafabörn.
Ástkær móðir mín og tengdamóðir,
Matthildur Haraldsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk,
Reykjavík, þriðjudaginn 2. febrúar.
Útför verður auglýst síðar.
Einar Örn Einarsson Jennifer Pors
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, bróðir, afi og langafi,
Sigurður Th. Ingvarsson
frá Ísafirði,
Sléttuvegi 29, Reykjavík,
lést 1. febrúar.
Útförin fer fram frá Grensáskirkju
12. febrúar kl. 15.00. Í ljósi aðstæðna fer útförin fram með
nánustu ættingjum og vinum.
Arndís Ólafsdóttir
Sigríður Brynja Sigurðardóttir Hilmar Guðmundsson
Ólafur Sigurðsson Svala Guðmundsdóttir
Anna Ólafía Sigurðardóttir Stefán Hrafnkelsson
Björk Sigurðardóttir
Sigrún Stella Ingvarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Sveinsína Guðmundsdóttir
lést á dvalarheimilinu Lundi, Hellu,
fimmtudaginn 4. febrúar sl.
Útförin verður auglýst síðar.
Ólafía Ingólfsdóttir Guðmundur Elíasson
Gróa Ingólfsdóttir
Kristinn Karl Ægisson Hrönn Baldursdóttir
Guðrún Breiðfjörð Ægisdóttir Kjartan Jóhannsson
Friðleifur Valdimar Ægisson
Fjóla Breiðfjörð Ægisdóttir Þorsteinn Þorvaldsson
Guðmundur Breiðfjörð Ægisson Annemarie Ægisson
Björg Elísabet Ægisdóttir Björg Þorkelsdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigfríð Hallgrímsdóttir
frá Skálanesi við Seyðisfjörð,
lést mánudaginn 1. febrúar á
hjúkrunarheimilinu Grund.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þann
10. febrúar. Í ljósi aðstæðna verða aðeins hennar allra
nánustu viðstaddir útförina. Streymt verður frá athöfninni
í Facebook-hópnum “Útför - Sigfríð Hallgrímsdóttir”.
Vefslóð facebook.com/groups/2763519640567470
Inga Þórarinsdóttir
Bjarndís Harðardóttir
Þuríður Höskuldsdóttir
Hjörtur Harðarson Mimie Fríða Libongcogon
Hallgrímur Harðarson Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir
Helena Harðardóttir
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar og amma,
Sigríður Jónatansdóttir
lést á Droplaugarstöðum 31. janúar.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 11. febrúar kl. 13.
Jónatan Þórðarson
Þórður Þórðarson
Sigríður Þóra Þórðardóttir
Helga Marín Jónatansdóttir
Þórður Jónatansson
Elskulegur eiginmaður minn,
Birgir Lúðvíksson
Sléttuvegi 23,
lést á heimili sínu 3. febrúar.
Útför auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Helga Brynjólfsdóttir
Ástkær eiginmaður minn,
sonur, bróðir, faðir, tengdafaðir,
afi og frændi,
Jens Andrésson
vélfræðingur,
Grænumýri 28, Seltjarnarnesi,
varð bráðkvaddur á heimili sínu 27. janúar.
Útför hans fer fram föstudaginn 12. febrúar kl. 14.
Vegna aðstæðna í samfélaginu eru einungis boðsgestir
leyfðir, en athöfninni verður streymt á vef Óháða
safnaðarins. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
styrktarsjóð ÍFR, í síma 561 8225.
Kristín Þorsteinsdóttir
Ellen M. Guðjónsson
Grímur Andrésson María Friðriksdóttir
Óskar Jensson Björg Ýr Guðmundsdóttir
Ívar Jensson Hafdís Elfa Sævarsdóttir
Ellen Margrethe Holm Tony Holm
Anna Kristín Jensdóttir
Jón Þorsteinn Sigurðsson Svetlana Veshchagina
Andrés Ívarsson Þorbjörg Pálmadóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Ásdís Hannesdóttir
Sóltúni 7,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn
1. febrúar. Útför hennar fer fram frá
Laugarneskirkju, fimmtudaginn 11. febrúar klukkan 13.
Vegna fjöldatakmarkana verða eingöngu nánustu
aðstandendur og vinir viðstaddir útförina.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem
vildu minnast Ásdísar er bent á að láta líknarstofnanir
njóta þess.
Gunnar I. Waage
Benedikt G. Waage Ólöf Björnsdóttir
Davíð G. Waage Carolina Castillo
Alexander, Ísabella og Emma Björk
Mér fannst óhugs-andi að hafa ekkert þorrablót en var samt tvístígandi,“ s e g i r S i g u r g e i r Skafti Flosason, tón-
listarmaður og prímusmótor í Þorra-
blóti Sunnlendinga sem haldið verður
í kvöld. Efann segir hann hafa stafað af
því að hann og unnusta hans, Unnur
Birna Björnsdóttir, hafi eignast sitt
fyrsta barn í nóvember. „Mér fannst að
nú ætti ég að vera rólegur heima og sló
þorrablótið út af borðinu á tímabili. En
ég hitti góðan vin minn á Akranesi, Ísólf
Haraldsson, sem var meðal forsprakka
að Skagablóti og hann kveikti í mér, svo
ég hringdi nokkur símtöl og óð í þetta,
með góðum hópi.“
Heilmikið í dagskrána lagt
Sigurgeir er Selfyssingur, þó hann búi í
Hveragerði núna og kveðst hafa spilað á
þorrablótum frá því hann var unglingur,
meðal annars í Reykjavík, með Stuðla-
bandinu. En hvernig fer þetta blót fram?
„Fólk fer inn á tix.is og kaupir miða þar,
í dag opnast linkur eða lykilorð að sjón-
varpi Símans, Apple TV og snjalltækjum,
þar er skrifaður ákveðinn kóði, þetta
er mjög einfalt,“ lýsir hann. „Streymið
verður opið upp úr fimm, sennilega
komin dinnermúsík um hálf átta og
formleg dagskrá hefst klukkan átta. Við
ætlum að hafa þetta eins eðlilegt og við
getum fyrir fólkið heima í stofu.“
Hvað með þorramatinn? „Það borðar
hver heima hjá sér, býst ég við. Ákveðin
íþróttafélög hafa verið að selja þorra-
bakka og Suðurlandsblótið sjálft líka,
svo hafa matsölustaðir á vestanverðu
Suðurlandi tekið sig saman um mat-
seðil með réttum sem fólk getur tekið
heim.“ En fyrir hvað er fólk að borga?
„Dagskrána sem er glæsileg,“ svarar
Sigurgeir. „Það er ekki þorrablót nema
vera með Guðna Ágústsson Flóamann.
Svo er Ólafía Hrönn sem ólst upp á
Hornafirði og er auðvitað óborganleg,
Sóli Hólm fæddur Hvergerðingur, kann
sögur og getur hermt eftir mörgum.
Markhópurinn er sem sagt á svæðinu
frá Ölfusi austur í Hornafjörð.“
Guðni setur hátíðina um áttaleytið,
að sögn Sigurgeirs. „Svo verða tónlist-
aratriði með Unni Birnu og Pétri Jesú.
Hjördís Geirs söngkona og Grétar í
Áshól harmóníkuleikari fara yfir sögu
sveitaballa. Það verður fjöldasöngur,
minni karla og kvenna og endað á dans-
leik, spiluð lög sem við getum sungið og
dillað okkur við heima.“
Undirtektir eru framar björtustu
vonum, að sögn Sigurgeirs. „Sunnlend-
ingar úti um allan heim eru að kaupa sér
miða. Það geta allir haft gaman af þessu
þó uppistaðan í skemmtiatriðum verði
léttar fréttir af Suðurlandi. Í heildina er
þetta fyrir alla.“ gun@frettabladid.is
Sunnlenskt netþorrablót
Sigurgeir Skafti Flosason er hinn þjóðmenningarlega sinnaði maður sem stendur bak
við Þorrablót Sunnlendinga í kvöld, hvar sem þeir eru í heiminum. Það er á netinu.
Sigurgeir Skafti hefur spilað á þorrablótum frá unglingsaldri og fannst ótækt að sleppa því í ár. MYND/AÐSEND
Það er ekki þorrablót nema
vera með Guðna Ágústsson
Flóamann.
T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 35L A U G A R D A G U R 6 . F E B R Ú A R 2 0 2 1