Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.02.2021, Qupperneq 82

Fréttablaðið - 06.02.2021, Qupperneq 82
GAMAN ER AÐ SJÁ ÍSLENSKA MYND- LISTARHEFÐ OG FRANSKA RENNA SAMAN Í LANGVARANDI GLÍMU SIGURÐAR ÁRNA VIÐ ÓEFNIÐ. Fra m ef t ir nýliðinni öld deildu menn um íslenska myndlist á for­sendum þjóðhollustu fremur en fagurfræði. Inn í þá umræðu voru stundum dregnar erlendar mynd­ listarstefnur, eftir því hvort þær féllu að listrænum hagsmunum Íslendinga eður ei. Þá var mynd­ listarleg heimsmynd Íslendinga tiltölulega fábreytt; fyrir þeim var listin annað hvort þýsk eða frönsk. Þeim sem annt var um það sem þeir kölluðu „heilindi“ íslenskrar mynd­ listar, töldu að hún ætti að taka sér til fyrirmyndar þýsku myndlistina, að því gefnu að hún væri laus við áhrif frá bolsévíkum og Gyðingum. Íslendingar væru jú þjóð af sama germanska meiði og Þjóðverjar. Sjálfir gerðu Þjóðverjar og Frakkar greinarmun á myndlist þjóðanna, eins og hún birtist á tuttugustu öldinni. Að þeirra mati snerist þýsk myndlist fyrst og fremst um tjáningu sjálfsins, en frönsk mynd­ list var athugun á tjáningu sjálfsins. Á þessu er umtalsverður munur. Á Íslandi var frönsk myndlistar­ hefð síðast til umræðu í kjölfar strangf latarlistarinnar á sjötta áratugnum, enda var sú vitsmuna­ lega, yfirvegaða myndlist sannar­ lega sprottin upp úr því sem var að gerast í menningarlífinu í París á árunum eftir síðari heimsstyrjöld. Síðan leið og beið, allt þar til „nýja málverkið“ hafði runnið sitt skeið á enda. Þá er það sem þrír ungir listamenn frá Akureyri halda til Frakklands í framhaldsnám, fyrstu íslensku listmálarar til að gera það í áratugi. Þarna er ég að tala um þá Birgi Snæbjörn Birgisson, Sigtrygg Bjarna Baldvinsson og Sigurð Árna Sigurðsson. Þessir þrír listamenn báru sig öðruvísi að en f lestir jafnaldrar þeirra í íslenskri myndlist. Myndlist þeirra var – og er – hófstillt, yfirveg­ uð og knúin áfram af rannsóknar­ þörf, enquěte, fremur en tjáningu sjálfsins, sem er einmitt einkenni á bestu málaralist Frakka. Birgir Snæ­ björn hefur helgað sig athugunum á kynjabundnum staðalímyndum og myndlist Sigtryggs Bjarna snýst fyrst og síðast um hegðan vatns­ ins í íslenskri náttúru. Og nú má kynna sér til hlítar hvað Sigurður Árni hefur haft fyrir stafni síðast­ liðin þrjátíu ár, því enn stendur yfir gagnvönduð yfirlitssýning á verkum hans að Kjarvalsstöðum. Þetta er ekki sýning þar sem leitast er við að koma til skila öllu sem listamaðurinn hefur fengist við um dagana, heldur er hún straumlínu­ löguð að helstu hugmyndum hans og viðfangsefnum. Hér er sýningar­ stjórinn, Markús Þór, á heimavelli, og vélar um það sem hann hefur þekkingu á. Takmörk og villuljós skynjunar Að einu leyti þykir mér hann þó skjóta yfir strikið. Sýningin ber það fremur almenna nafn „ÓraVídd“ eða „Expanse“ á ensku. Í orðabók Menningarsjóðs stendur: „óravídd­ ir“; einhver hinna þriggja stefna sem unnt er að mæla hluti í rúminu í, þ.e. lengd, breidd eða hæð“. Ég held að ekki þurfi að rýna lengi í verk Sigurðar Árna til að sjá að við­ fangsefni hans er ekki „umfang“ rýmisins – eða tómsins – hvað þá „mælanleiki“ þess, heldur miklu frekar birtingarmyndir rýmis/tóms alls staðar í umhverfi okkar, og þau áhrif, tilfinningaleg eða vitsmuna­ leg, sem þær hafa á skynjun okkar. Til að mynda verður mörgum þeim sem fjalla um ævistarf Sigurðar Árna tíðrætt um skuggamótífið, sem er auðvitað býsna fyrirferðar­ mikið í verkum listamannsins. En skuggar, burtséð frá því sálfræði­ lega og bókmenntalega trússi sem á þá hefur hlaðist í tímans rás, eru kannski fyrst og fremst rýmið ( eða „óefnið“?) gert sýnilegt fyrir tilvilj­ anir fjarveru – ljóssins. Það sem er auðvitað mesta undrið, og knýr Sigurð Árna áfram í rannsóknum sínum, er hve stórt hlutverk óefnið leikur í þeim heimi rökhyggju og áþreifanleika sem við teljum okkur vera hluta af. Þannig málar Sigurður Árni hverja mynd­ ina á fætur annarri, þar sem endur­ kast hluta eða forma kallar á jafn mikla athygli áhorfandans eins og hlutirnir sjálfir. Hér er ekki á ferð­ inni ábyrgðarlaus leikur með form og endurkast þeirra, heldur graf­ alvarlegar ábendingar um takmörk og villuljós skynjunar. Væntanlega gefur augaleið að ef óefnið, fjarvera hlutanna, er orðið snar þáttur þess „sýnilega veruleika“ sem við búum við, þá er veraldleg vegferð okkar meira óvissuferðalag en við áttum okkur á. Óefnið er gert sýnilegt með marg­ víslegum hætti í verkum Sigurðar Árna. Plexíglerplötur í litum eru festar framan á ljósa f leti til að sýna – og virkja – bilið milli glers og flata, þar sem verður til og blandast „litað“ endurkast, s.s. tómarúm. Listamaðurinn gerir teikningar á hálfgagnsæjan smjörpappír og leggur ofan á aðrar teikningar; við það myndast „merkingarými“ milli teikniflatanna beggja. Huglægir staðir Sameindamyndir Sigurðar Árna, sem eru eins konar tilbrigði við samtengd mólekúl, hafa reynst honum heilladrjúg verkfæri í framköllun óefnis. Málverk og lág­ myndir af „sameindum“ hafa gert honum kleift að gangsetja ýmiss konar leiki með skuggafleti og rými. Framhald þeirra verka eru lág­ myndir úr málmi, teygðar á ýmsa vegu svo að úr fjarlægð virðist eiga sér stað ummyndun sjálfs rýmisins/ óefnisins innan í þessum verkum („Valerie“). Mestar víddir er Sigurður Árni með undir í þeim verkum sem láta einna minnst yfir sér, formrænt séð. Þar á ég við nokkra álskúlptúra á miðju gólfi, verkin „Landrek“ (1999) og „Án titils“ (2007). Þessi verk hafa ekki ósvipaða verkan og „útvortis“ húsið hans Hreins Friðfinnssonar, þar sem allir innveggir sneru út, þar með taldist gjörvallur heimurinn hluti af innréttingum hússins. Í Landreksverkum mætast „f lekar“ sem marka fyrir lárettum víddum, sem eru auðvitað takmarkalaust óefni. „Án titils“ er röð kringlóttra álþynna sem festar eru hornrétt saman um miðjuna, og þar sem þær standa á gólfi safna þær til sín opnu rými úr öllum áttum, verða miðpunktur þar sem allar áttir eiga upphaf sitt. Gaman er að sjá íslenska mynd­ Efni og óefni Aðalsteinn Ingólfsson skrifar um Óra- Vídd yfirlitssýningu á verkum Sigurðar Árna Sigurðssonar á Kjarvalsstöðum. Sigurður Árni á sýningunni á Kjarvalsstöðum FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Þetta er ekki sýning þar sem leitast er við að koma til skila öllu sem lista- maðurinn hefur fengist við, segir Aðalsteinn Ingólfsson. Á sýningunni má sjá verk listamannsins frá síðustu þrjátíu árum. listarhefð og franska renna saman í langvarandi glímu Sigurðar Árna við óefnið. Í mynd frá 1990 tekur hann til athugunar „gegnheila“ skýjabólstra Jóns Stefánssonar (með rætur í verkum málarans og hugsuðarins Cézanne) og býr þeim eins konar „hreiður“ í áþreifanlegu landslagi. En þessar hugmyndir fá verulegan byr undir vængi við náin kynni Sigurðar Árna af arf leifð Marcels Duchamps, helstu mann­ vitsbrekku franskrar myndlistar. Og ef hægt er að tala um jákvæða nærveru útlends listamanns í myndlist hans, þá er Duchamp sá maður. Í verkum hans rekst Sigurður Árni á ýmsa nytsamlega vegvísa, hvort sem hann er að velta fyrir sér eðli óefnis, eða fást við þverstæður í mannlegu atferli og skynjun. Pælingar um skugga, tómarúm og óefni er víða að finna í hlutgerv­ ingum Duchamps, að ógleymdri kaldhæðnislegri íróníu sem Sigurði Árna hugnast vel. Írónískir viðauk­ ar hans við ljósmyndaefni, gamalt og nýtt, eru augljóslega þráðbeint framhald á teiknuðum hlutgerv­ ingum meistarans ( sjá „Apótek“ 1914­45). Loks er í verkum þeirra beggja sterk erótísk undiralda, sjá opinskáar konumyndir Sigurðar Árna. Í viðtali í Fréttablaðinu segist Sigurður Árni ekki enn vera kom­ inn að beinni niðurstöðu í verkum sínum. „Það opnast bara meiri víð­ átta, hæð tekur við af hól og ég held bara áfram.“ Með þessu áframhaldi eru honum allir vegir færir. Aðalsteinn Ingólfsson www.borgarsogusafn.is Sjó min jas afn ið í Re ykj aví k frá bæ rum Lan dná ms sýn ing in safnE itt Árb æja rsa fn Ljó sm ynd asa fn R eyk jav íku r á fi mm Við ey stö ðu m 6 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R44 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.