Bæjarins besta - 20.12.2001, Síða 3
FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001 3
Nýi veitingastaðurinn í
Faktorshúsinu í Hæstakaup-
stað á Ísafirði var opnaður
formlega sl. föstudagskvöld
en hefur frá mánaðamótum
verið opinn til reynslu fyrir
hópa. Gífurleg vinna er að
baki við að gera upp þetta
forna og fornfræga hús og og
halda þar blæ löngu liðins
tíma í hvívetna. Hjónin Magn-
ús Alfreðsson húsasmíða-
meistari og Áslaug Jóhanna
Jensdóttir keyptu húsið í
megnustu niðurníðslu fyrir
nokkrum árum og stakka-
skiptin eru ótrúleg. Þegar hafa
tveir veitingasalir á jarðhæð-
inni verið teknir í notkun en
sá þriðji sem er uppi kemst
væntanlega í gagnið nálægt
áramótum.
Þá verður hægt að taka
nærri hundrað manns í sæti
og jafnvel fulla þá tölu eftir
því hvernig uppröðunin verð-
ur í salnum á efri hæðinni.
Hann er undir súð beggja
vegna en hátt til lofts í miðj-
unni. Staðurinn hefur vínveit-
ingaleyfi en yfir daginn er
hann fyrst og fremst hugsaður
Faktorshúsið í Neðstakaupstað á Ísafirði
Nýr veitingastaður í
fornu og glæsilegu húsi
sem kaffihús með ýmsum létt-
um réttum. Þegar um hópa er
að ræða, sem panta fyrirfram,
er hægt að leggja meira í veit-
ingarnar.
Veitingastaðurinn í Faktors-
húsi má kallast afleggjari sem
er gróðursettur í næsta húsi
við Gistiheimili Áslaugar,
sem Áslaug Jóhanna opnaði
fyrir tólf og hálfu ári. Frammi-
stöðustúlkur í Faktorshúsinu,
eins og ef til vill væri rétt að
nefna þær að hætti fyrri tíma í
samræmi við húsið sjálft, eru
dætur Áslaugar og Magnúsar,
þær Helga og Rakel. Þær hafa
báðar öðlast reynslu á þeim
vettvangi í Kaffitári í Reykja-
vík..
Á næstunni verður opið í
Faktorshúsinu frá kl. 08 virka
daga og frá kl. 10 á sunnu-
dögum. Ekki er alveg á hreinu
þegar þetta er skrifað hversu
árla verður opnað á laugar-
dögum en alla daga verður
opið fram undir miðnætti.
Eins og með allan rekstur
verða reynslan og óskir við-
skiptavina síðan að móta nán-
ar afgreiðslutímann.
„Frammistöðustúlkurnar“ í Faktorshúsinu, Rakel og Helga Magnúsdætur. Þær hafa báð-
ar lært til verka í Kaffitári í Reykjavík.
Edinborgarhúsið á Ísafirði
Holly Hughes
sýnir verk sín
Margmenni var við opn-
un myndlistarsýningar
bandarísku ævintýrakon-
unnar Holly Hughes í Edin-
borgarhúsinu á Ísafirði á
sunnudag. Hún dvelst á Ísa-
firði í vetur eftir margra ára
ferðalög um heiminn ásamt
George MacLeod, fyrst á
reiðhjólum en síðustu árin
á skútunni Hannah Brown.
Við opnunina sagði lista-
konan frá verkum sínum og
margbreytilegri tilurð
þeirra. Á sýningunni eru
bæði listaverk sem hún
hefur skapað hér á landi og
hér við land og eins eldri
verk. Mest er þó um ljós-
myndir frá Hornströndum.
Efniviðurinn sem Holly
vinnur úr er margvíslegur,
svo og form verkanna. Hún
málar og býr til skúlptúra
og tekur ljósmyndir. Í skúlp-
túrana notar hún oft það sem
kallað er drasl eða þá hluti
úr náttúrunni.
Sýningin í Edinborg
verður opin daglega kl. 16-
18 til jóla. Hún er breytileg
frá degi til dags og sífellt
bætast nýjar myndir við.
Þess vegna er hægt að koma
aftur og aftur og sjá alltaf
eitthvað nýtt. Og þeir sem
óska eftir að heimsækja
sýninguna á öðrum tíma en
áður var nefndur geta haft
samband við Holly í síma
456 5667.
Holly Hughes við opnun sýningarinnar ásamt þeim
Jósefínu Gísladóttur og Ruth Tryggvason.
51.PM5 19.4.2017, 09:523