Bæjarins besta - 20.12.2001, Síða 32
32 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001
hátíðardagbókin
skemmtanir · fundir · fólk · sjónvarp · veður · íþróttir · fréttir · kirkjustarf
Á morgun, Þorláksmessu, er stórleikur í enska boltanum þegar Liverpool tek-
ur á móti Arsenal. Leikurinn fer fram á heimavelli Liverpool, Anfield, og verður
án efa um harða baráttu að ræða enda um að ræða tvö af efstu liðunum í
ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn er sýndur á Sýn og hefst útsending kl. 15:55.
Stórleikur á Anfield
karlsöngvarar í Peking-óperunni. Annar
þeirra sérhæfir sig í kvenhlutverkum og
hefur ætíð rennt hýru auga til félaga
síns. Við fylgjumst með örlögum þeirra
en þeir voru uppi á miklum umbrotatím-
um í heimalandi sínu. Aðalhlutverk:
Gong Li, Leslie Cheung, Chang Fengyi.
03.25 Dagskrárlok og skjáleikur
Fimmtudagur 27. desember
18.20 NBA-tilþrif
18.50 Sjónvarpskringlan
19.05 Trufluð tilvera (16:17)
19.30 Heimsfótbolti með West Union
20.00 Hasar úr lofti (2:12)
21.00 Náttfatateiti. (House Party 2)
Allir muna hvernig fór þegar táningurinn
Kid óhlýðnaðist pabba sínum og fór í
villt partí hjá vini sínum. Það var í fyrstu
myndinni en nú er Kid orðinn eldri og
ábyrgðarfyllri og er kominn í mennta-
skóla. Sóknarnefndin í gamla hverfinu
heima kostar drenginn til náms og það er
eins gott að bregðast ekki traustinu. En
freistingarnar eru á hverju strái og það er
erfitt að einbeita sér að náminu. Aðalhlut-
verk: Christopher Reid, Christopher
Martin, Martin Lawrence, Iman, Tony
Burton.
22.30 Heklusport
23.00 Óðs manns æði. (In the Mouth of
Madness) Von er á nýrri bók frá rithöf-
undinum Sutter Cane. Fyrri bækur hans
hafa selst í milljónum eintaka og nýjustu
skáldsögunnar er beðið með eftirvænt-
ingu. En rétt áður en Cane á að skila
handritinu í prentun gufar hann bókstaf-
lega upp. Útgefendurnir eru forviða og
ráða spæjarann John Trent til að finna
Cane. Trent er tortrygginn að eðlisfari
og hann grunar að hvarfið sé auglýsinga-
brella. Aðalhlutverk: Sam Neill, Jurgen
Prochnow, Charlton Heston, David
Warner, John Clover.
00.40 Lögregluforinginn Nash
01.25 Dagskrárlok og skjáleikur
Föstudagur 28. desember
18.00 Heklusport
18.30 Sjónvarpskringlan
19.00 Gillette-sportpakkinn
19.30 Alltaf í boltanum
20.00 Fífl og furðufuglar (16:18)
21.00 Með hausverk um helgar
23.00 Mac. Niccolo (Mac) Vitelli er
elstur þriggja bræðra og tekur við stjórn
fjölskyldunnar er faðir hans deyr. Fað-
irinn var byggingameistari og synirnir
taka við störfum hans. Í fyrstu vinna þeir
fyrir skussann og svikahrappinn Polow-
ski en gefast fljótlega upp á því og ákveða
að stofna eigið fyrirtæki. Viðskiptin
ganga vel en vinnufíkn og fullkomnunar-
árátta Macs reynist bræðrunum erfið við-
ureignar. Aðalhlutverk: Nicholas Turt-
urro, Ellen Barkin, Matthew Sussman.
00.55 Martröðin tekur enda. (Freddy´s
Dead: The Final Nightmare (6)) Það var
2. nóvember árið 1984 sem martröðin
hófst í Álmstræti í Springwood í Banda-
ríkjunum. Freddy Krueger kom fram á
sjónarsviðið og eftirleikinn þekkja flestir.
En svo fór að lokum að íbúarnir höfðu
betur og Freddy Krueger kvaddi þennan
heim. Eða svo héldu flestir. Höfðu þeir
Ron Crawford, Francis Guinan.
23.25 Ben Húr. Sannkölluð stórmynd
sem sópaði til sín 11 Óskarsverðlaunum
á sínum tíma. Hér segir af Ben Húr sem
lendir upp á kant við æskuvin sinn, her-
stjóra í Róm, og er í framhaldinu gerður
að galeiðuþræl en fjölskylda hans er send
í fangelsi. Ben Húr sver þess dýran eið
að koma fram hefndum. Aðalhlutverk:
Charlton Heston, Jack Hawkins, Stephen
Boyd, Haya Harareet.
02.50 Dagskrárlok og skjáleikur
Þriðjudagur 25. desember
15.30 Útilegan. (Father and Scout)
Gamanmynd. Spencer Paley og sonur
hans, Michael, eru ekki neinir perluvinir.
Eiginkonan Donna vill bæta andrúms-
loftið á heimilinu og hvetur því feðgana
til að fara saman í útilegu. Með í för eru
strákar úr skólanum hans Michaels og
feður þeirra. Útilegan snýst hins vegar
upp í martröð og Michael er að því kom-
inn að gefast upp og halda heim á leið.
Aðalhlutverk: Bob Saget, Brian Bonsall,
Heidi Swedberg, Stuart Pankin, Troy
Evans.
17.05 Malaika
18.40 Tónleikar Elizabeth Taylor. Eng-
landsdrottning veitti Elizabeth Taylor
viðurkenningu fyrir framlag hennar til
leiklistar og líknarmála.Á þessum
tónleikum til heiðurs leikkonunni koma
m.a. fram: Tony Bennett, Marti Pellow,
Andrea Boccelli og Reba McIntyre.
20.05 Sú eina sanna. (She´s the One)
Rígurinn á milli bræðranna Mickeys og
Francis hefur ætíð verið mikill og ekki
skánar ástandið þegar Francis heldur
fram hjá konunni sinni með Heather,
fyrrverandi unnustu Mickeys. Hún vill
fara aftur til Mickeys en hann kærir sig
ekki lengur um hana þar sem hann telur
sig hafa fundið hina einu sönnu ást með
Renee. Aðalhlutverk: Edward Burns,
Cameron Diaz, Jennifer Aniston.
21.40 Martha, má ég kynna Frank.
(Martha, Meet Frank, Daniel & Laur-
ence) Ein af betri gamanmyndum síðari
ára. Martha hefur fengið nóg af lífinu í
Minneapolis og heldur á vit ævintýranna
í London. Á leiðinni kynnist hún Daniel
og eftir komuna til Englands hittir hún
Frank og Laurence. Þremenningana hittir
hún hvern í sínu lagi en svo ótrúlega vill
til að þeir eru allir góðir vinir. Allir hríf-
ast þeir af Mörthu og það teflir að sjálf-
sögðu vinskap þeirra í verulega hættu.
Aðalhlutverk: Monica Potter, Rufus
Sewell, Tom Hollander, Joseph Fiennes.
23.05 Rithöfundurinn. (Author Author)
Rithöfundurinn Ivan Travalian er í þann
mund að sjá verk sitt sett upp á Broadway.
Þótt allt virðist ganga honum í haginn í
starfi verður það sama tæpast sagt um
einkalífið. Konan hefur yfirgefið hann
og skilið hann eftir með börnunum. Að-
alhlutverk: Al Pacino, Dyan Cannon,
Tuesday Weld.
00.55 Dagskrárlok og skjáleikur
Miðvikudagur 26. desember
11.30 Enski boltinn. Bein útsending frá
leik Arsenal og Chelsea.
14.00 Hasar úr lofti (6:12)
14.50 Enski boltinn. Bein útsending frá
leik Everton og Manchester United.
17.00 Sirkus. (At the Circus) Óborganleg
gamanmynd. Sirkusstjórinn Jeff Wilson
skuldar viðskiptafélaga sínum, John
Carter, umtalsverða peninga. Wilson ætl-
ar að standa í skilum en áður en til þess
kemur stelur Carter peningunum og
heimtar í þokkabót að taka við stjórninni
í sirkusnum. Tveir starfsmenn hliðhollir
Wilson stíga þá fram og hefja ítarlega
leit að þjófnum. Aðalhlutverk: Groucho
Marx, Chico Marx, Harpo Marx, Kenny
Baker.
18.25 Bernskubrek Caspers. (Casper:
A Spirited Beginning) Ungur og örvænt-
ingarfullur mætir Casper ekki í þjálfunar-
búðir drauga og yfirmaður drauganna
sendir menn sína af stað til þess að hafa
uppi á honum í mannheimum. Aðalhlut-
verk: Brendon Ryan Barrett, Steve Gutt-
enberg, Lori Loughlin, Rodney Danger-
field.
20.00 Kyrrahafslöggur (8:22)
21.00 Frægðin er fallvölt. (Price Of
Glory) Arturo Ortega var snjall boxari
sem hefði getað náð langt. Synir hans,
Sonny, Jimmy og Johnny, iðka allir
íþróttina og eiga framtíðina fyrir sér.
Árin líða og bræðurnir eru hársbreidd
frá stóra tækifærinu. Pabbi þeirra stjórnar
öllu en kannski er ráðríki hans einmitt
þeirra versti óvinur. Aðalhlutverk: Jimmy
Smits, Jon Seda, Clifton Collins, Jr..
22.55 Rómeó og Júlía. Sígilt leikrit
Shakespeares er fært til nútímans í hreint
magnaðri útfærslu. Orðræðan er hin sama
og söguþráðurinn en umgjörðin er
grámyglulegur nútíminn þar sem stoltir
menn láta byssurnar tala og knýja fram
blóðuga hefnd. Aðalhlutverk: Claire
Danes, Leonardo DiCaprio, Brian
Dennehy, John Leguizamo.
00.55 Farvel, frilla mín. (Farewell My
Concubine) Aðalsöguhetjurnar eru tveir
kannski rangt fyrir sér? Er hann aftur
kominn á stjá? Aðalhlutverk: Robert
Englund, Lisa Zane, Shon Greenblatt,
Leslie Deane, Ricky Dean Logan.
02.25 Dagskrárlok og skjáleikur
Laugardagur 29. desember
18.00 Íþróttir um allan heim
18.54 Lottó
19.00 Í ljósaskiptunum (12:17)
20.00 Eitt sinn þjófur (16:22)
21.00 Aleinn heima 3. (Home Alone 3)
Fjörug fjölskyldumynd um átta ára snáð-
ann Alex sem fær fjarstýrðan bíl að gjöf
frá nágranna sínum. Hann vissi hins veg-
ar ekki að fjórir njósnarar höfðu stolið
verðmætum tölvukubb og falið í bílnum.
Það hittir svo illa á að Alex er einn heima
þegar þrjótarnir ákveða að endurheimta
kubbinn en hann er viðbúinn komu
þeirra. Aðalhlutverk: Alex D. Linz, Olek
Krupa, Rya Kihlstedt.
22.40 Léttlynda Lola. Erótísk kvikmynd.
00.20 Ástarhreiðrið. Erótísk kvikmynd.
01.30 Dagskrárlok og skjáleikur
Sunnudagur 30. desember
15.40 Enski boltinn. Bein útsending frá
leik Fulham og Manchester United.
18.00 Sjónvarpskringlan
18.15 Einkaspæjarinn (6:14)
19.00 NBA-tilþrif
19.30 NBA. Bein útsending frá leik
Sacramento Kings og Boston Celtics.
22.30 Keðjuverkun. (Chain Reaction)
Hörkuspennandi vísindatryllir. Á rann-
sóknarstofu Háskólans í Chicago er verið
að gera merkilega uppgötvun. Niður-
staða vísindamannanna mun skipta
sköpum en áður en hún er gerð opinber
er framið voðaverk. Einn rannsakend-
anna er myrtur og sökinni er komið á
Eddie og Lily sem störfuðu með hinum
látna. Skötuhjúin leggja á flótta og freista
þess sjálf að leysa hina flóknu morðgátu.
Aðalhlutverk: Keanu Reeves, Morgan
Freeman, Rachel Weisz, Fred Ward.
00.15 Í sömu mynt. (Murphy´s War)
Breskt flutningaskip verður fyrir tundur-
skeyti frá þýskum kafbáti undan strönd-
um Venesúela á síðustu dögum seinni
heimsstyrjaldarinnar. Murphy skipstjóri
kemst einn lífs af og leitar skjóls á eyju í
Kyrrahafinu. Þar áformar hann að koma
fram hefndum gegn áhöfn kafbátsins en
það reynist þrautin þyngri. Aðalhlutverk:
Peter O´Toole, Sian Phillipps, Horst
Janson, Philippe Noiret.
02.00 Dagskrárlok og skjáleikur
Mánudagur 31. desember
21.00 Texas á tónleikum
22.00 Madonna á tónleikum
23.50 Áramót
00.30 U2 á tónleikum
02.00 Tom Jones á tónleikum
03.10 Demantsránið. (The Hot Rock)
Þriggja stjarna glæpamynd á léttum nót-
um. John Archibald Dortmunder og tveir
félagar hans ætla að stela demanti frá
virtu listasafni og koma aftur í hendur
réttra eigenda, íbúum lítils lands í Afríku.
Aðalhlutverk: Robert Redford, George
Segal, Ron Leibman.
05.00 Dagskrárlok og skjáleikur
Föstudagur 21. desember
18.00 Heklusport
18.30 Sjónvarpskringlan
19.00 Gillette-sportpakkinn
19.30 Alltaf í boltanum
20.00 Fífl og furðufuglar (15:18)
21.00 Með hausverk um helgar
23.00 Rándýrið 2. (Predator II) Rándýr-
ið leikur nú lausum hala í Los Angeles.
Þar starfar lögreglumaðurinn Harrigan
sem á fullt í fangi með hafa hendur í hári
eiturlyfjasala. Hann býður nú skrímslinu
birginn og þarf að glíma við hinn óboðna
gest með hyggjuviti sínu. Aðalhlutverk:
Danny Glover, Gary Busey, Ruben Blad-
es, Adam Baldwin.
00.40 Fullkominn föstudagur. (Perfect
Friday) Bresk kvikmynd. Graham er
óvenjulegur bankastjóri. Viðskiptin
ganga ágætlega en hann er samt ekki
ánægður og vill fá meiri peninga til eigin
nota. Þá er bara eitt til ráða og það er að
ræna eigin banka. Graham þarf á vitorðs-
mönnum að halda og hefur samband við
hjónin Nicholas og Britt Dorset, sem eru
traustir viðskiptamenn bankans. Aðal-
hlutverk: Stanley Baker, Ursula Andress,
David Warner, Paticene Collier.
02.15 Dagskrárlok og skjáleikur
Laugardagur 22. desember
18.00 Íþróttir um allan heim
18.54 Lottó
19.00 Í ljósaskiptunum (11:17)
20.00 Eitt sinn þjófur (15:22)
21.00 Með fullri reisn. (The Full Monty)
Ein vinsælasta gamanmynd síðari ára
sem fjallar um nokkra atvinnulausa stál-
iðjuverkmenn sem deyja ekki ráðalausir
þótt á móti blási. Neyðin kennir naktri
konu að spinna og félagarnir fá þá hug-
mynd að gerast nektardansarar til að
geta séð sér og sínum farborða. Gallinn
er bara sá að þeir kunna ekki að dansa,
eru taktlausir, of þungir og óframfærnir.
Aðalhlutverk: Robert Carlyle, Tom
Wilkinson, Mark Addy, Lesley Sharp.
22.30 Hnefaleikar. Útsending frá hnefa-
leikakeppni í Bandaríkjunum.
00.30 Tvöfalt líf. Erótísk kvikmynd.
02.00 Dagskrárlok og skjáleikur
Sunnudagur 23. desember
13.45 Ítalski boltinn. Bein útsending.
15.55 Enski boltinn. Bein útsending frá
leik Liverpool og Arsenal.
18.00 Sjónvarpskringlan
18.15 Einkaspæjarinn (5:14)
19.00 Járnbrautarbörnin. (Railway
Children) Systkinin Bobbie, Phyllis og
Peter eru venjulegir krakkar í Hamp-
stead, einu úthverfa Lundúna. Dag einn
hrynur veröld þeirra þegar ókunnugir
menn koma á heimilið og hafa pabba
þeirra á brott með sér. Í kjölfarið flytur
fjölskyldan út í sveit en þar er lífið mjög
frábrugðið því sem þau eiga að venjast í
stórborginni. Aðalhlutverk: Jenny Agutt-
er, Gary Warren, Sally Thomsett, Dinah
Sheridan, Bernard Cribbins, William
Mervyn.
21.00 Hjónabandsmiðlarinn. (Match-
maker) Rómantísk gamanmynd. Marcy
Tizard er aðstoðarkona bandarísks þing-
manns. Hún er send sérstakra erinda til
Ballinagra á Írlandi en lendir mitt í árleg-
um hátíðarhöldum innfæddra. Hjóna-
bandsmiðlararnir Dermot og Millie
hugsa sér gott til glóðarinnar og eru
bæði staðráðin í að finna þeirri banda-
rísku efnilegan eiginmann. Aðalhlutverk:
Janeane Garofalo, David O´Hara, Milo
O´Shea, Denis Leary, Jay O. Sanders.
22.35 Með tak á Hollywood. (Hijacking
Hollywood) Gamanmynd um starfsmann
í kvikmyndaveri í Hollywood sem lætur
ekki bjóða sér hvað sem er. Tökur standa
yfir á stórmyndinni Moby Dick. Fram-
leiðandinn og aðstoðarmaður hans
skeyta skapi sínu á starfsfólkinu en eng-
inn fær eins slæma útreið og Kevin
Conroy. Honum ofbýður þessi yfirgang-
ur og ákveður að grípa til sinna ráða.
Aðalhlutverk: Henry Thomas, Scott
Thompson, Mark Metcalf.
00.05 NBA. Bein útsending frá leik San
Antonio Spurs og Milwaukee Bucks.
02.55 Dagskrárlok og skjáleikur
Mánudagur 24. desember
21.00 Þrúgur reiðinnar. (Grapes of
Wrath) Leikgerð sígildrar sögu eftir John
Steinbeck sem gerist á kreppuárunum.
Þegar Tom Joad kemur heim úr fangelsi
hefur fjölskyldan afráðið að flytja frá
Oklahoma til Kaliforníu. Eftir erfitt
ferðalag koma þau til Vesturstrandar-
innar en þar tekur ekkert betra við. At-
vinnuleysið er alls staðar og útlitið er
svart. Deilur um kaup og kjör bæta ekki
ástandið en þar hefur Tom Joad sig mikið
í frammi. Aðalhlutverk: Robert Breuler,
Föstudagur 21. desember
06.58 Ísland í bítið
09.00 Glæstar vonir
09.20 Í fínu formi 4
09.35 Oprah Winfrey (e)
10.20 Á Lygnubökkum (19:26) (e)
10.45 New York löggur (12:22) (e)
11.30 Myndbönd
12.00 Nágrannar
12.25 Í fínu formi 5
12.40 Ástir og átök (10:22) (e)
13.00 Daman frá Shanghai
14.25 Ein á báti (21:24) (e)
15.10 Simpson-fjölskyldan (6:23) (e)
15.35 Andrea (e)
16.00 Barnatími Stöðvar 2
17.45 Sjónvarpskringlan
18.05 Seinfeld
18.30 Fréttir
19.00 Ísland í dag
19.30 Simpson-fjölskyldan (7:21)
20.00 Egypski prinsinn. (Prince of Eg-
ypt) Heillandi teiknimynd um þekkta
sögu. Í Egyptalandi til forna var gefin út
sú skipun að drekkja skyldi nýfæddum
gyðingadrengjum. Í upphafi myndar
fylgjumst við með örvæntingarfullri
móður leggja ungan son sinn í körfu á
ánni og fela hann í hendur Guði sínum.
Drengurinn átti eftir að vaxa úr grasi og
hafa mikil áhrif á sögu heimsins. Fjöldi
þekktra leikara leggur til raddir.
21.45 Blóðsugubaninn Buffy (14:22)
22.35 Leikið á dauðann. (Final Desti-
nation) Alex Browning og samnemendur
hans eru á leiðinni í skólaferð til Parísar.
Hópurinn er kominn um borð í flugvél
þegar Alex fær á tilfinninguna að vélin
muni farast. Hann skýrir frá þessu og er
þá vísað frá borði ásamt sex öðrum. Svo
ótrúlega vill til að flugvélin springur í
loft upp og sjömenningarnir hrósa happi.
Hópurinn furðar sig á því hvernig þeim
tókst að leika á dauðann en kannski hafa
þau hrósað happi einum of snemma!
Aðalhlutverk: Devon Sawa, Ali Larter,
Kerr Smith.
00.15 Skrifstofublók. (Office Space)
Skrifstofublókin Peter Gibbons er búin
að fá nóg af starfi sínu og ákveður að
gera allt til þess að verða rekin. Hann
tekur upp á því að mæta alltof seint í
vinnuna og suma daga heldur hann sig
bara heima. En fyrirætlanir hans fara á
annan veg en ætlað var því að hegðunin
er rækilega misskilin og það lítur ekki út
fyrir annað en hann sé á hraðri uppleið
innan fyrirtækisins. Aðalhlutverk: Jenni-
fer Aniston, Ron Livingston, David Her-
man.
01.45 Ránið mikla. (The Big Hit) Leigu-
morðinginn Melvin Smiley er ekki við
eina fjölina felldur í kvennamálum. Hann
kemst í hann krappan þegar honum verð-
ur á að ræna dóttur yfirmanns síns. Fórn-
arlambið fellur fyrir honum en Melvins
bíður varla björt framtíð. Aðalhlutverk:
Lou Diamond Phillips, Mark Wahlberg.
kirkja
Ísafjarðarkirkja:
Fjölskyldumessa kl. 11:00
á Þorláksmessu. Miðnæt-
urmessa á aðfangadags-
kvöld kl. 23:30. Hátíðar-
messa á jóladag kl. 14:00.
Aftansöngur á Gamlárs-
dag kl. 18:00.
Hnífsdalskapella:
Aftansöngur á
aðfangadag kl. 18:00.
Hólskirkja:
Þorláksmessa,
23. desember kl. 11:00.
Sunnudagaskóli. 5. bekkur
G.B. flytur helgileik.
Aftansöngur kl. 18:00 á
aðfangadag 24. desember.
Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14:00. Helgistund á
sjúkrahúsinu kl. 15:00.
Aftansöngur kl. 18:00 á
gamlársdag 31. desember.
Staðarprestakall:
Aftansöngur í Suðureyrar-
kirkju kl. 18:00 á aðfanga-
dag. Hátíðarguðsþjónusta
í Súðavíkurkirkju kl. 11:00
á jóladag og kl. 15:00 í
Vatnsfjarðarkirkju. Guðs-
þjónusta í Ögurkirkju kl.
14:00, fimmtudaginn 27.
desember. Aftansöngur í
Staðarkirkju kl. 18:00 á
gamlársdag.
Flateyrarkirkja:
Aftansöngur kl. 18:00 á
aðfangadag. Aftansöngur
kl. 17:00 á gamlársdag.
Holtskirkja:
Hátíðarguðsþjónusta kl.
14:00 á jóladag. Nýárs-
guðsþjónusta kl. 14:00 á
Nýársdag.
Þingeyrarkirkja:
Hátíðarguðsþjónusta
kl. 16:00 á jóladag.
Nýársguðsþjónusta
kl. 17:00 á Nýársdag.
Mýrakirkja:
Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14:00 á 2. í jólum.
helgin
Edinborgarhúsið:
Á Þorláksmessu verður
menningardagskrá í Ed-
inborgarhúsinu til styrktar
Rakel Maríu Björnsdóttur
frá Þórustöðum í Önund-
arfirði sem fæddist í mars
á þessu ári með hjarta-
galla og hefur síðan þá
þurft að fara í tvær að-
gerðir erlendis vegna
þess. Einnig hefur verið
opnaður söfnunarreikn-
ingur til styrktar Rakel
Maríu og er númerið 314
við Sparisjóð Vestfirðinga.
51.PM5 19.4.2017, 09:5232