Heimilispósturinn - 15.03.1950, Blaðsíða 3
HEIMILIS
RsTuRINN
3. HEFTI REYKJAVlK MARZ 1950
| KONUR!
I þessum Kluta
| ritsins er lestrarefni
I fyrir konur.
GÍSLI BRYNJÚLFSSON:
KOLBRÚN
Hvert var það fljóða, sem ég sá
mér svífa um anganstundu hjá
svo fagurleit og blökk á brá
sem blys um geiminn viða?
Hrafnsvörtum lék í lokkum hár
Ijósan um háls, um dökkar brár
tindrandi augu ástarþrár
•eldgeisla sendu þýða ....
Kulnað var að um ýmis hold,
eldurinn falinn djúpt í mold;
mér var að líta menjafold
sem mjöll af himinboga ....
Andaði þá um eyru mér
ilmhlýjum blœ, er mœtti þér,
blíðviðri lék í brjósti sér
sem blési gola um voga ....
Ó, augu blökk, er brúna há
blikandi skinuð liimni á,
og kolsvört undir blakkri brá
brunnuð í dimmum loga!
Ö, augu dökk, ég yður sá,
og aldrei síðan gleyma má —
ég nötra eins og nakið strá,
er nœturvindar soga!
*
Mörg eru liðin árin ör,
éldur er minni, kulnað fjör;
en þau, sem sœrðu seimabör,
svanna augun þýðu —
Þau eru enn í minni mér,
og munu, hvað sem eftir fer,
unz móður hnígur málmagrér
að moldarskauti viðu.
Og er á vori sunnan sól
senda gjörir um bala og hól
lifandi geisla guðs, sem ól
gróðrarfoldm blíða —-
Þá lifnar enn hin aldna þrá,
aftur mig langar þig að sjá
ókunnu vengi viða frá
að vegi minum liða!
2 2 2
HEIMILISPÓSTURINN
1