Heimilispósturinn - 15.03.1950, Blaðsíða 11
Frank Sinatra — Kathryn Grayson
— Ja, hún ætti bara að þora að
ybba sig, gálan sú . . .
Það var f jölmennt hjá Piclet. Koma
Pignols kom öllu I uppnám. Allir
kölluðu til hans. Allir vildu fá hann
að borðinu til sin. Menn skellihlógu.
Gleðin smaug* inn í hvern krók og
kima.
Þannig var Pignol. Þegar hann
kom inn í veitingahús, lyftist strax
brúnin á öllum. Hann tók í handlegg
gamla mannsins og dró hann með
sér að einu borðinu.
— Góðan daginn Manglet, góðan
daginn Clavin, ég sezt hjá ykkur!
Juliette, láttu okkur fá einn af hvít-
víni.
Manglet og Clavin, sem fannst
sæmd í því að hafa hann við borð
sitt, vildu báðir borga. Gamli mað-
urinn, sem ætlaði að fara að sýna
rausnarskap sinn, hrópaði:
— Við bíðum með þetta, Juliette,
láttu okkur fá líkjör í glösin.
Það var góður líkjör með votti af
eplabragði, sem kitlaði þægilega í
nefið. Það sagði Pignol, og þeir féll-
ust á það.
— Eigum við ekki að taka ennþá,
einn slag, sagði Manglet.
Þeir spiluðu þrjú spil og drukku
hvitvín. Þeir urðu kátari og kátari.
Pignol skrækti með hinni mjóu rödd
sinni.
— Sjáðu hérna, Clavin, hér færðu
34 i hausinn!
Gamli maðurinn var svo drukkinn,
að hann var hættur að þekkja tromp-
2 9 2
HEIMILISPÓSTURINN
9