Heimilispósturinn - 15.03.1950, Síða 19
ættingjar né vinir hans kærðu
sig hót um hann meir, því hann
var var alræmdur um alla Sal-
erno fyrir þjófnað og önnur
óþokkabrögð. En þetta lét frúin
sig einu gilda, þar eð hann féll
henni í geð að öðru leyti,
og með aðstoð þernu sinnar
tókst henni að ná samfundum
við hann. Er þau svo höfðu
átt nokkrar sameiginlegar gleði-
stundir, fór hún að ásaka hann
fyrir fyrra lífemi hans og bað
hann að gera það fyrir sig að
hætta nú þessháttar athöfnum
og til þess að fá hann ofan af
því, laumaði hún öðru hvoru
dálitlu af aurum til hans.
Á sama tíma og þau þannig
höfðu samskipti vildi það til að
læknirinn fékk sjúkling, sem
hafði mein í fæti, og eftir ná-
kvæma skoðun varð hann að
tilkynna aðstandendum sjúkl-
ingsins, að hann yrði að taka í
burtu köggul úr fætinum, sem
skemmd væri komin í, til þess
að komist yrði hjá því að mað-
urinn annað hvort missti allan
fótinn eða dæi. Það gæti máske
bjargað honum, ef köggullinn
yrði tekinn burtu, en sem læknir
gæti hann eki neitað því, að
hann hefði ekki mikla von um
hann. Er aðstandendur sjúkl-
ingsins heyrðu þetta, bjuggust
þeir einnig við að hann væri
dauðans matur.
Læknirinn var þess fullviss,
að sjúklingurinn mundi ekki
þola sársaukann og heldur ekki
leyfa aðgerðina án þess að hann
yrði svæfður með ópíum, og þess
vegna lét hann morgun einn
blanda sérstakan drykk, sem
hann mundi sofna af svo fast,
að læknirinn gæti framkvæmt
aðgerðina um kvöldið. Er drykk-
Dennis Morgan í kvikmyndinni
,,lrska villirósin".
urinn var tilbúinn lét hann
koma með hann heim til sín og
setti hann inn í svefnherbergi
sitt, án þess að segja neinum
hvað það væri.
Um aftanssöngstíð ætlaði
hann að vitja um manninn, en
rétt í því kom boð frá nokkrum
af beztu vinum hans í Amalfí,
um að hann yrði að láta allt
annað sitja á hakanum og koma
þangað, því það hefði verið
götubardagi þar og margir
hefðu særzt. Hann frestaði þess
vegna aðgerðinni á fætinum til
næsta morguns og sigldi til
Amalfí. Er frúin frétti þetta
lét hún á laun koma með Ruggi-
erí inn í húsið, því hún vissi
S $ 9
HEIMILISPÓSTURINN
17