Heimilispósturinn - 15.03.1950, Síða 21
en aðra, og svo var hann slíkur
skálkur, að fólk heldur að hann
hafi verið í slæmum félagsskap,
lent í slagsmálum við óvini, ver-
ið drepinn og látinii ofan í kist-
una. —
Þetta ráð líkaði frúnni vel, að
öðru en því, að hún vildi ekki
eiga þátt í að stinga hann hníf-
stungum, því eins og hún sjálf
sagði, þá gat hún ekki fengið
sig til.þess. Þernan var svo send
út til að gæta þess, hvort kass-
inn væri þar enn þá, og er hún
hafði sannfærzt um að svo væri,
þá lét hún frúna hjálpa sér til
að taka Rúggieri á bakið. Hún
var svo kraftamikil, að þannig
gat hún borið hann, en frúin
gekk á undan til að gá að, hvort
nokkur væri úti á götunni. Er
þær höfðu svo komið honum
ofan í kassann, smelltu þær lok-
inu yfir.
Um sama leyti höfðu tveir
ungir náungar flutt í hús eitt
nokkru neðar í götunni. Þeir
lánuðu peninga með okurvöxt-
um, og þar eð þeir girntust allt,
sem þeir gátu fengið fyrir lítið
verð, höfðu þeir daginn áður
tekið eftir hinum umtalaða
kassa og höfðu ákveðið að slá
eign sinni á hann þessa nótt, því
þá vantaði húsbúnað. Þeir fóru
að heiman frá sér um miðnætti,
og enda þótt þeim þætti kassinn
nokkuð þungur, drógu þeir hann
með sér og án þess að hugsa
nánar út í það, komu þeir hon-
um heilu og höldnu og skildu
hann eftir við hliðina á svefn-
herbergi kvennanna. Síðan fóru
þeir að sofa.
Undir morgun vaknaði Rug-
gieri, eftir langan og væran
blund, og voru áhrif svefnlyfs-
ins að mestu horfin, þótt hugs-
unin væri ekki skýr hvorki það
sem eftir var nætur né næstu
daga á eftir. Hann opnaði aug-
un, en þegar hann gat ekkert
séð, þreifaði hann fyrir sér með
höndunum og komst þá að raun
um, að hann var í kassa. Hann
reyndi þá að muna hvað skeð
hefði og sagði við sjálfan sig:
,,Hvað er þetta eiginlega? Hvar
er ég ? Sef ég eða er ég vakandi ?
Ég veit þó það, að í nótt heim-
sótti ég ástkonu mína í svefn-
húsi hennar, og nú lítur út fyrir
að ég liggi í kassa. Hvað á þetta
að þýða? Skyldi læknirinn hafa
snúið aftur til baka, eða skyldi
eitthvað annað hafa komið fyr-
ir, sem hafi neytt frúna til að
fela mig, meðan ég svaf? Já,
þannig hlýtur það að vera.“
Hann var þess vegna rólegur
og beið átekta, ef eitthvað kynni
að heyrast. Þannig leið góð
stund, en vegna þess að rúmið
var lítið í kassanum og hann
varð að liggja þar mjög óþægi-
lega, svo að hann var farið að
verkja í aðra síðuna, reyndi
hann að snúa sér við, en við
þetta brölt sporðreistist kassinn,
sem staðið hafði á ósléttu og
valt niður með dunum og dynkj-
um, svo að konurnar, sem sváfu
þar við hliðina, vöknuðu og urðu
frá sér af hræðslu.
Ruggieri varð líka mjög
hræddur. En er hann komst að
raun um, að kassinn hafði opn-
azt, vildi hann undir öllum
kringumstæðum heldur vera fyr-
ir utan en inni í honum, og fór
að þreifa sig áfram til að vita
hvort ekki væri annaðhvort stigi
eða dyr, sem gætu opnað hon-
um leið í annað og betra um-
hverfi. Er konurnar heyrðu
þetta þrusk, hrópaði önnur
$ $ ?
HEIMILISPÖSTURINN
19