Heimilispósturinn - 15.03.1950, Blaðsíða 22
þeirra! „Hver er þarna?“ En
Ruggieri svaraði ekki, þar eð
hann þekkti ekki röddina, og
fóru þær þá að kalla á strák-
ana tvo, en þeir höfðu farið svo
seint að sofa, að nú sváfu þeir
svo fast, að þeir heyrði ekki
neitt. Þess vegna hlupu þær út
að glugganum og hrópuðu:
„Þjófar, þjófar!“ og nágrann-
arnir spruttu á fætur og reyndu
að komast inn í húsið bæði ofan
af þakinu og annars staðar frá.
Við allan þennan hávaða vökn-
uðu báðir strákarnir og fóru á
fætur.
Ruggieri, sem var alveg utan
við sig, er hann sá hvar hann
var og hafði ekki hugmynd um,
hvernig hann gæti sloppið, var
nú handtekinn, og afhentur
mönnum borgardómarans, sem
komið höfðu hlaupandi, er þeir
heyrðu hávaðann. Hann var síð-
an fluttur til dómarans, sem
þekkti óknytti hans og lét strax
pynda hann til sagna. Var hann
á þann hátt neyddur til að viður-
kenna, að hann hefði farið inn
í hús okraranna til að stela.
Áleit dómarinn bezt, að hafa
sem minnstar vöflur á því, en
hengja hann sem skjótast.
Sú fregn barst óðar um alla
Salerno, að Ruggierí hefði ver-
ið handtekinn, er hann var að
fremja innbrot hjá okrurunum,
og urðu bæði læknisfrúin og
þernan svo undrandi yfir því, að
það lá við að þær væru farnar
að trúa því sjálfar að allt, sem
þær höfðu aðhafzt síðastliðna
nótt hefði aðeins verið draum-
ur, en jafnframt varð frúin svo
sorgmædd út af þeirri hættu,
sem Ruggierí var kominn í, að
hún varð alveg hugstola.
Á meðan þessu fór fram,
hafði læknirinn, áður en tvær
stundir voru liðnar af degi,
spurt eftir meðalinu, af því hann
ætlaði að vitja um sjúklinginn,
og þegar hann fann flöskuna
tóma, hrópaði hann upp, að ekki
gæti maður haft neitt í friði í
þessu húsi. Við þetta espaðist
frúin, sem áður var utan við
sig af leiðindum og hún sagði!
„Hvað mynduð þér segja ef
einhver alvarleg ógæfa væri á
ferðum, þegar þér æpið svona
ef ein vatnsf laska veltur um koll,
eins og það fáist ekkert annað
vatn í veröldinni?“
„Þessu svaraði meistarinn".
„Ef þú heldur að hér sé um
tómt vatn að ræða, þá skjátlast
þér, því þetta var svefnmeðal“
og svo sagði hann henni hvernig
hann hefði látið búa það til.
Er frúin heyrði þetta, skildi
hún strax að þær hefðu álitið
Ruggierí dauðann vegna þess
að hann hefði drukkið úr flösk-
unni og sagði:
„Herra, það vissum við ekkert
um, og þér verðið að láta útbúa
yður annað“ hvað hann og gerði,
þar sem ekki var um annað að
ræða.
Nokkru seinna kom stúlkan
aftur, sem frúin hafði sent út
til að hlera hvað sagt yrði um
Ruggierí, og sagði:
„Madonna, hver einasti mað-
ur talar illa um Ruggierí, og eft-
ir því sem ég hef komizt næst, á
hann hvorki vin né ættingja,
sem lætur sér detta í hug að
hjálpa honum, svo það er álitið
að hann muni verða hengdur á
morgun. En í því sambandi get
ég sagt yður, að ég held, að ég
viti hvernig hann hefur komizt
inri í hús okraranna, og það
hefur skeð á þennan hátt: Þér
20
HEIMILISPÓSTURINN
2 9 9