Heimilispósturinn - 15.03.1950, Side 28
INGIMUNDUR:
Mormónar
EIR menn hér á landi, sem
komnir eru yfir þrítugt
muna víst flestir eftir mormóna-
prestinum, sem kom hingað til
landsins sumarið 1890. Þeir
muna hvílík heift, hvílík ógurleg
ofsabræði gagntók hjörtu allra,
þegar það fréttist, að hann hefði
farið til Ameríku með 60—70
feitustu og fallegustu stúlkum-
ar í Suður- og Vesturamtinu.
Að Baldvin agent var talinn sem
engill hvítur í samanburði við
þenna viðbjóðslega prest, sem
rændi menn því, er þeim er
hjartfólgnast og þeir höfðu
hugsað sér að hafa sjálfir yndi
af þegar stundir liðu fram. Enn
brennur eldur úr augum þeirra,
enn strengjast vöðvar og titra
taugar er þeir hugsa til óhappa-
dagsins mikla, þegar þær 70
sigldu vestur um haf til
vatnsins salta, til spámanns
þessa dálaglega trúarfélags,
saurlifnaðarpostulans alræmda,
Brigham Young.---------
Það var um þetta leyti að ég
hafði fyrstu kynni mín af mor-
mónum. Þá var ég níu vetra.
Presturinn kom í kauptúnið,
sem ég átti heima í, og mér var
leyft að fara með Gunnu vinnu-
konu á útbreiðslufund, sem
hann hafði stofnað til í ullar-
geymsluhúsi þar. Við hlustuð-
um bæði með miklum fjálgleik
á hinar afar-hugðnæmu kenn-
ingar þessa mælskumanns, og
að lokinni ræðunni sendi Gunna
mig einsamlan heim, af því hún
væri búin að taka trúna, og
mætti til að verða eftir stund-
arkorn hjá klerki til þess að
leggjast á bæn með honum.
Ég varð líka eldheitur áhang-
andi prestsins, og mér er það
minnisstætt, að ég heilan mán-
uð á eftir hélt dómadags prédik-
anir fyrir öllum stelpum á mínu
reki í kauptúninu, og lauk því
svo að við urðum öll mormónar,
en þær konur mínar. Þær voru
12 að tölunni.
Við höfðum samkomur okkar
í gömlum dimmum moldarkofa,
og þar kyssti ég þær. Annað
vissi ég ekki um hjónabandið,
og svo hitt, að maður svona við
og við ætti að skamma konuna
líkaði — manni illa maturinn,
sem hún bjó til. Ég man að þær
tóku allvel kossunum, en þegar
ég fór að skamma þær fyrir að
moldargrauturinn væri sangur
og taðpönnukökurnar óætar, þá
lömdu þær mig.
Það er ekki ólíklegt að það sé
þessari barnslegu reynzlu að
kenna, að hugur minn brátt
snerist frá Mormónatrúnni, og
að ég síðan hef haft megnustu
óbeit á henni. Það er mjög
sennilegt að barnslundin — sem
er svo afarviðkvæm — hafi
kveinkaði sér við að hallast að
trú er aðallega virtist hafa högg
og barsmíð í för með sér.----
Ýmsir hafa veitt því eftir-
tekt, að Ameríkufarir eru
óvenju miklar í ár. Menn hafa
gizkað á margskonar ástæður
26
HEIMILISPÓSTURINN
$22