Heimilispósturinn - 15.03.1950, Blaðsíða 29
til þessa, en enginn fundið þá
réttu. En ég er eins og oftar
fróður um margt. Ég veit það,
og rís upp úr gröf minni að
segja frá því. Mér halda engin
bönd, hafi ég frá einhverju að
kjapta. Ástæðan er sú, að ræð-
urnar hans Kobba mormón-
prests, sem var hérna í vetur
sem leið og ekki átti barnið
með stúlkunni á Álftanesi, eru
nú farnar að verka. Þetta er
gullsatt.
Stúlkurnar eru allar á leið til
Kobba — ekki laglegri en hann
er — fjárinn eigi hann.------—
Hópur af ungum stúlkum eru
farnar af stað og eru nú komnar
í kvennabúrið hans í Utah, og
hópar standa á bryggjunni ólm-
ar af óþreyju eftir hinni mor-
mónsku paradís, sem hinn lævísi
Kobbi hefur talið þeim trú um
að biði þeirra fyrir handan haf-
ið, við salta vatnið mikla.
Þetta verður að stöðva. Al-
þingismennirnir verða að taka
í taumana og snúa stúlkunum
við.
Því ég get fullvissað þá um,
að Kobbi kærir sig ekki um
aðrar en þær laglegu.
Það sagði minnsta kosti
Broberg við mig um daginn
þegar ég spurði hvernig þær
hefðu verið sem sigldu með
Ceres, „Förste klasses Pi’er
kære“, sagði hann, „rigtig
lækkre, buttede nó en — fin
Leverance,“ og Broberg smjatt-
aði og sagði „dikk — dik —“
við mig.
En hann var nú líka mor-
móni. (Ingimundur 1916).
Húsráð
Tau, sem litað er svart, vill oft
verða gráleitt eftir litunina. Ef bland-
að er saman hluta af dökkbláum og
2 hlutum af svörtum lit verður tauið
djúpsvart.
*
Myglu-blettir hverfa, ef þeir eru
þvegnir úr mjólk.
*
Vin-blettum má ná úr í sjóðheitri
mjólk.
*
Ef mjólkin verður söng, skal láta
ílátið í kalt salt-vatn í nokkrar mín-
útur. Hverfur þá sengjubragðið.
*
Ryðbletti í fötum skal þvo úr
sítrónusafa og setja fatið síðan út í
sólina. Ef bletturinn hverfur ekki al-
veg í fyrsta skipti, verður að endur-
taka þetta tvisvar til þrisvar.
*
Gott ráð við svefnleysi er að þvo
andlitið úr ísköldu vatni og drekka
siðan lítið glas af mjólk, sem blandað
er safanum úr hálfri sítrónu.
Jólakökur og sandkökur verða létt-
ari og „klessast" ekki, ef blandað er
einni teskeið af glycerini í deigið.
*
Þvottaskinnhanzka á að þvo úr
heitu vatni, sem sett eru i 2—4 gr.
af sódadufti. Þá hreinsast þeir betur
og harðna ekki eftir þvottinn.
*
Edik hreinsar alla bletti af hönd-
unum.
*
Ef þér þurfið að hengja upp þvott í
kuldum á vetrum, þá berið fyrst
„Cold cream“ á hendurnar, svo að
húðin springi ekki.
*
Ef vatn kemst undir gólfdúkana,
er hætt við að þeir fúni. Það er því
ráðlegra, að þvo þá með tusku, sem
er ekki mjög blaut, enda nægir það
oftast nær.
*
Að brydda með silkiböndum er
auðvelt verk, ef strauað er brot eftir
miðju bandinu endilöngu. Þá er hægt
að festa bryddinguna á með einum
saum. Það er líka til hægðarauka,
ef .spretta á því upp aftur.
9 $ ?
HEIMILISPÖSTURINN
27